Morgunblaðið - 30.12.2004, Page 1
STOFNAÐ 1913 355. TBL. 92. ÁRG. FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 2004 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Skugginn lýsir
skammdegið
Kristján Eggertsson gerir það
gott hjá Dönum | Menning
Viðskipti | Umboðsskrifstofa í útrás Actavis fyrst á markað
með nýtt samheitalyf Úr verinu | Surimimarkaðurinn að verða
mettaður Íþróttir | Valið vekur góðar minningar hjá Arnóri
MIKLIR fagnaðarfundir urðu þegar
finnski drengurinn Hannes Berg-
ström, sem fannst einn og yfirgef-
inn á götu í Phuket eftir hamfar-
irnar í Asíu á sunnudag, hitti föður
sinn að nýju í gær á sjúkrahúsi á
eyjunni. Hannes, sem er tæplega
tveggja ára gamall, virtist raunar
undrandi á hamaganginum en faðir
hans, Marko Kärkkäinen, gat hins
vegar ekki haldið aftur af gleðitár-
unum.
Eins og greint var frá í Morg-
unblaðinu í gær náði frændi Hann-
esar í hann á sjúkrahús í Phuket
eftir að hafa séð frásögn af
drengnum og mynd af honum á
vefsíðu blaðsins Phuket Gazette.
Var Hannes síðan fluttur á sjúkra-
hús til föður síns, annars staðar á
Phuket-eyju, í gær. Herma fréttir
að taílensk prinsessa hafi greitt
þann kostnað sem féll til er þyrla
flaug með Hannes á fund föður
síns.
Kärkkäinen sagðist hafa heyrt af
því að taílensk prinsessa hefði
bjargað syni hans. „Ég hef komið
til Taílands sjö sinnum og þessi
heimsókn hefur einfaldlega staðfest
það sem ég vissi fyrir um íbúa Taí-
lands; hversu gjafmildir þeir eru og
hjartagóðir,“ sagði hann hrærður.
Það varpaði þó miklum skugga á
endurfundi feðganna í gær að móð-
ir Hannesar, Suzanne Bergström,
er í hópi þeirra sem saknað er.
AP
Hannes Bergström í fangi föður síns.
Fagnað-
arfundir
í Phuket
HJÁLPARGÖGN voru tekin að
berast til hamfarasvæðanna í Suð-
ur-Asíu í gær en öruggt þykir að
neyðaraðstoð vegna hörmunganna,
sem nú er vitað að kostuðu 80.789
manns lífið, verður sú umfangs-
mesta í sögunni. Fréttir eru loks
farnar að berast frá svæðum vest-
arlega á eyjunni Súmötru sem
næst eru upptökum jarðskjálftans
sem varð á sunnudag og olli því að
öflugar flóðbylgjur gengu á land í
mörgum löndum við Indlandshaf
með hörmulegum afleiðingum.
Hefur orðið gífurleg eyðilegging í
vestasta og afskekktasta hluta
Indónesíu. Fréttamenn sem flugu
yfir sögðu raunar að sums staðar
væru fá merki um líf.
Peter Rees, embættismaður
Rauða krossins, sagði að það
myndi ekki koma sér á óvart ef tala
látinna færi yfir 100.000. Vöruðu
erindrekar Rauða krossins við því
að 30 þúsund manns kynnu að hafa
farist á indversku eyjaklösunum
Andaman og Nicobar en erfiðlega
hefur gengið að fá fréttir þaðan.
Manntjón varð mest í Indónesíu,
raunar fórust 45.268 í Aceh einu og
sér, en Aceh er vestast í Indónesíu.
Hafa heitið 15 milljörðum
Auðugustu ríki heims hafa heitið
samanlagt meira en 250 milljónum
dollara, um 15 milljörðum ísl.
króna, til neyðaraðstoðar. Samein-
uðu þjóðirnar hafa boðað ríkjaráð-
stefnu vegna hamfaranna 6. janúar
nk. og sagðist Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóri SÞ, vona að þar létu
þjóðir heimsins fé af hendi rakna.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti tilkynnti í gær að Bandaríkin,
Indland, Ástralía og Japan hefðu
myndað bandalag um að skipu-
leggja hjálpar- og uppbyggingar-
starf á hamfarasvæðunum. Hann
varði jafnframt framlög Banda-
ríkjastjórnar til neyðaraðstoðar-
innar en upphaflega tilkynntu
bandarísk stjórnvöld að þau hygð-
ust láta 15 milljónir Bandaríkja-
dala af hendi rakna.
Tuttugu milljónum dollara hefur
nú verið bætt við þá upphæð og
Bush sagði í gær ósanngjarnt að
tala um að auðugari ríki heimsins
hefðu sýnt „nísku“ í þessum efn-
um.
Hjálpargögn tekin að
berast á hamfarasvæðin
Tala látinna komin í 80.789 Heildarmanntjón gæti farið
vel yfir 100.000 Þjóðir heimsins heita fé til neyðaraðstoðar
Reuters
Íbúar í Cuddalore, 180 km suður af Madras á Indlandi, hópuðust að flutningabílum hjálparstofnana sem í gær
voru að dreifa mat og fatnaði til þeirra sem eiga um sárt að binda af völdum náttúruhamfaranna á sunnudag.
Sjá bls. 6, 14–15, 30–31
ÞAÐ hefur vakið nokkra furðu á Sri Lanka, að ekki er að sjá, að villt dýr
á hamfarasvæðunum þar í landi hafi orðið flóðbylgjunni að bráð. Túlka
margir það þannig, að þau hafi skynjað hættuna í tíma og forðað sér.
Þyrla flaug yfir Yala-þjóðgarðinn á austurströnd Sri Lanka í gær og
var hvergi að sjá dauða skepnu þótt flóðið hefði upprætt skóginn næst
ströndinni. Mikið var þar hins vegar af sprelllifandi fílum, bufflum og alls
konar hjartardýrum. „Þetta sýnir kannski það, sem sagt er, að dýrin búi
yfir sjötta skilningarvitinu,“ sagði Gehan de Silva Wijeeyeratne en hann
rak hótel í þjóðgarðinum. Er það nú rústir einar.
Skynjuðu dýrin hættuna?
Yala-þjóðgarðinum. AP
Viðskipti, Úr verinu og Íþróttir
MARK Viravan, vararæð-
ismaður Íslands í Taílandi,
heimsótti hamfaraslóðir á
Phuket-eyju í gær. Hann fór
m.a. á sjúkrahús þar sem
dvelja 4–5 þúsund manns og
fullvissaði sig um að þar
væru engir Íslendingar.
Viravan heimsótti einnig
Phang-Nga-svæðið á megin-
landinu, sem varð verst úti,
og telur að mun fleiri hafi
farist þar en taílensk stjórn-
völd hafa áætlað opinberlega.
Þota Loftleiða Icelandic
lenti í gær á Phuket-eyju.
Flutti vélin m.a. níu tonn af
vatni og teppi til hjálpar-
starfsins. Áætlað var að hún
flygi með 200 sænska ferða-
menn í nótt til Stokkhólms.
Vísbendingar þykja komn-
ar fram um að fimm Íslend-
ingar sem leitað hefur verið
að í Taílandi séu ekki í hættu.
Utanríkisráðuneytið mun þó
ekki taka fólkið af lista yfir
týnda, né heldur fimm manna
fjölskyldu sem talið er að hafi
farið til Balí, fyrr en náðst
hefur samband við fólkið.
Friðrik Árnason prent-
smiður og fjölskylda eru enn
ásamt fleiri Íslendingum á
Phuket-eyju. Þau voru ekki
farin á ströndina morguninn
sem flóðið kom og kann það
að hafa orðið þeim til bjarg-
ar.
Vísbendingar hafa komið fram um að Íslendingar sem leitað hefur verið að séu úr hættu
Morgunblaðið/Sverrir
Friðrik Árnason og kona hans Díana Lanthom ásamt syni sínum Tómasi Pálma Friðrikssyni
virða fyrir sér staðinn á Patong-ströndinni þar sem þau voru vön að liggja í sólbaði.
Engir Íslendingar á
sjúkrahúsum í Phuket