Morgunblaðið - 30.12.2004, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
69
40
1
2/
20
04
www.urvalutsyn.is
2 vikur – Verð frá:
54.900 kr.*
M.v. 4 í smáhýsi með
2 svefnherb. í 14 nætur
Bahia Meloneras smáhýsi
1 vika – Verð frá:
39.900 kr.*
M.v. 4 í smáhýsi með
2 svefnherb. í 7 nætur
*Innifalið: Flug, gisting, íslensk fararstjórn
og flugvallarskattar.
Verð m.v. að bókað sé á netinu.
Ef bókað er símleiðis eða á skrifstofu
bætist við 2.000 kr. bókunar- og
þjónustugjald á mann.
Brottfarir
5., 12. og 26. janúar - Aukaflug
19. janúar - Örfá sæti laus
2. og 9. febrúar
Fáðu ferðatilhögun, nánari upp-
lýsingar um gististaðina og reiknaðu
út ferðakostnaðinn á netinu!
Nánari u
pplýsing
ar
á www.u
rvalutsy
n.is
MIKLAR breytingar eiga sér stað á
raforkumarkaðnum hér á landi um
áramótin, sem rekja má til nýrra raf-
orkulaga sem tóku gildi á síðasta ári.
Með breytingunum á sér stað aðskiln-
aður á framleiðslu, flutningi, dreif-
ingu og sölu á raforku og liður í þessu
er stofnun sérstaks flutningsfyrir-
tækis, Landsnets, sem er í eigu
Landsvirkjunar, RARIK og Orkubús
Vestfjarða. Hyggjast Hitaveita Suð-
urnesja og Orkuveita Reykjavíkur
leigja sín flutningsmannvirki til
Landsnets fyrir um 200 milljónir á
ári. Um áramótin verður því opnað
fyrir samkeppni í raforkuvinnslu og
-sölu og þá geta þau fyrirtæki og
stofnanir, sem eru aflmæld og nota
meira en 100 kílóvött af raforku, valið
sér orkusala. Eftir ár munu allir raf-
orkukaupendur geta gert slíkt hið
sama.
Klippt verður formlega á nafla-
strenginn frá Landsvirkjun hvað
flutningssviðið varðar í dag, með at-
höfn sem fram fer í nýjum húsakynn-
um Landsnets við Hestháls í Reykja-
vík. Ávörp verða flutt og að auki mun
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráð-
herra opinbera merki Landsnets og
opna heimasíðu þess. Um 70 manns
munu starfa hjá fyrirtækinu til að
byrja með, sem flestir komu frá flutn-
ingssviði Landsvirkjunar, en auk höf-
uðstöðva við Hestháls mun Landsnet
reka stjórnstöðina við Bústaðaveg,
sem Landsvirkjun hefur starfrækt til
þessa.
Þessi breyting á raforkulögunum
er til komin vegna tilskipunar Evr-
ópusambandsins um sameiginlegan
innri markað, þar sem mælt er fyrir
um samkeppni í framleiðslu og sölu á
raforku. Samkvæmt raforkulögunum
er það hlutverk Landsnets að annast
flutning raforku og kerfisstjórnun og
er fyrirtækinu óheimilt að stunda
aðra starfsemi. Allar dreifiveitur og
stórnotendur tengjast flutningskerfi
Landsnets, en kerfið felur í sér öll
flutningsvirki á spennu sem er 66
kílóvött eða meiri. Nokkur flutnings-
virki á 33 kV spennu tilheyra einnig
flutningskerfinu en öllum virkjunum
stærri en 7,5 MW ber að tengjast því
frá áramótum.
Notendur fá sundurliðaða
reikninga frá og með áramótum
Frá áramótum ber seljendum raf-
orku að skila viðskiptavinum sínum
sundurliðuðum reikningum, þar sem
fram kemur verð á orkunni sjálfri,
flutningnum á henni og dreifingu.
Hafa sölufyrirtækin ýmsum skyldum
að gegna, m.a. að afla þeirrar orku
sem þau endurselja, þeim ber að
tryggja að jafnvægi sé á milli orkuöfl-
unar og orkusölu á hverjum tíma og
gera skriflegan samning við kerfis-
stjórn Landsnets sem ábyrgðaraðila
á jöfnunarorku.
Stjórnunarlegur aðskilnaður mun
ríkja á milli Landsnets og eigenda
þess og mun flutningsverð raforku
frá áramótum byggjast á opinberri
gjaldskrá sem grundvölluð er á tekju-
ramma, sem háður er verðlagseftirliti
Orkustofnunar, samkvæmt breyttum
raforkulögum. Verður tekjuramminn
endurskoðaður með reglubundnum
hætti. Rafveiturnar munu greiða
Landsneti fyrir flutning raforku eftir
þeirri gjaldskrá.
Sýni endurskoðun eftir hvert ár að
Landsnet hafi fengið hærri tekjur en
Orkustofnun heimilaði þá ber fyrir-
tækinu að lækka gjaldskrána ári
seinna, þannig að engin hætta sé á því
að Landsnet, frekar en önnur sérleyf-
isfyrirtæki, geti hækkað gjaldskrár
sínar umfram heimildir.
Landsnet tekur til starfa um áramótin í nýju raforkuumhverfi
Klippt á naflastrenginn
frá Landsvirkjun í dag
Morgunblaðið/Þorkell
Frá stjórnstöð Landsvirkjunar við Bústaðaveg, sem frá áramótum verður rekin af flutningsfyrirtækinu Landsneti.
Á GAMLÁRSDAG
mun nýr yfirmaður
taka við stjórn flugvall-
arins í Kabúl. Lárus
Atlason tekur þá við af
Garðari Forberg sem
gegnt hefur starfinu
frá því í lok nóvember.
Lárus verður yfirmað-
ur flugvallarins fram til
1. febrúar en þá taka
Tyrkir við stjórninni.
Þorbjörn Jónsson,
sendifulltrúi á skrif-
stofu Íslensku friðar-
gæslunnar, segir að
Garðar hafi óskað eftir
að fá að láta af störfum
þar sem hann muni taka við starfi
framkvæmdastjóra sölu- og mark-
aðssviðs hjá Avion-group. Mikil
ánægja hafi verið með störf hans á
flugvellinum. Garðar tók við flugvall-
arstjórninni í nóvember eftir að
Hallgrímur Sigurðsson var kallaður
heim.
Lárus Atlason hélt af stað til
Kabúl í fyrradag. Hann hefur lítinn
tíma til að setja sig inn í starfið því
hann tekur við því daginn eftir að
hann kemur til Kabúl og Garðar
heldur heim á leið 1. janúar. Þor-
björn segir alveg ljóst
að þetta sé ekki eins og
best verði á kosið. Lár-
us hafi á hinn bóginn
aflað sér töluverðrar
þekkingar á rekstri
flugvallarins og verið í
góðu sambandi við
Garðar.
Á Kabúl-flugvelli eru
nú 15 íslenskir friðar-
gæsluliðar og þeir
verða 13 frá og með 1.
febrúar 2005 þegar Ís-
lendingar láta af stjórn
flugvallarins. Þorbjörn
segir að gert sé ráð fyr-
ir að þeir hverfi á brott
1. júní, eins og um hafi verið samið.
Lárus Atlason er verkefnastjóri
hjá Atlanta og hefur m.a. haft um-
sjón með stofnun dótturfélaga fé-
lagsins erlendis. Á árunum 2000–
2002 var hann framkvæmdastjóri
flugrekstrarsviðs Atlanta og í 14 ár
þar á undan var hann deildarstjóri
flugrekstrar- og flugöryggisdeildar
Flugmálastjórnar Íslands. Áður
starfaði hann hjá Arnarflugi sem
flugvélstjóri, yfirflugvélstjóri og
tæknistjóri. Lárus er flugvélstjóri og
flugrekstrarstjóri að mennt.
Íslenska friðargæslan
Lárus Atlason
Nýr yfirmaður
Kabúl-flugvallar
LÍKLEGT er að allmargir verði
yfirheyrðir með réttarstöðu grun-
aðra hjá lögreglunni í Keflavík
vegna brennufársins í Grindavík á
jóladagskvöld. Rannsókn málsins
heldur áfram og mun lögregla fljót-
lega boða menn til yfirheyrslna.
Karl Hermannsson yfirlögreglu-
þjónn segir að rannsóknin sé um-
fangsmikil enda taki hún til fjölda
manna. Margir megi eiga von á
ákæru, t.d. fyrir að hindra opinbera
starfsmenn í störfum, hlýða ekki
fyrirmælum lögreglu.
Boðaðir í yfir-
heyrslur fljótlega
PILTURINN sem slasaðist alvarlega
á baki í vélsleðaslysi á Ólafsfjarð-
arvegi við Hauganesafleggjara 19.
desember sl. liggur nú á barnadeild
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri.
Fengust þær upplýsingar að hann
væri ekki í lífshættu og að líðan hans
væri eftir atvikum. Hann er 15 ára.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Akureyri varð slysið með
þeim hætti að pilturinn og félagi
hans voru að leika sér að því að
stökkva yfir veginn á vélsleðum.
Pilturinn sem slasaðist sat á kyrr-
stæðum sleða þegar félagi hans, 13
ára, stökk á sínum sleða yfir veginn
en svo hörmulega vildi til að sleði
hans lenti á kyrrstæða sleðanum.
Þykir mildi að hann skuli hafa slopp-
ið lifandi.
Líðan piltsins
eftir atvikum
ÞRÍR voru með sex rétta í útdrætti
gærkvöldsins í Víkingalottói og
hlaut hver þeirra rúmlega 21 milljón
íslenskra króna í sinn hlut en enginn
þeirra er Íslendingur. Dani, Norð-
maður og Eistlendingur voru þeir
sem duttu í lukkupottinn í þetta
sinn. Enginn fékk annan vinning,
fimm tölur réttar og bónustölu, en
fjórir voru með fimm tölur réttar og
fá þeir 97 þúsund krónur hver.
Einn Íslendingur hlaut allar tölur
réttar í jókernum og fékk hann 1,5
milljónir en miðinn var keyptur í
Biðskýlinu á Kópavogsbraut 115 í
Kópavogi.
Einn Íslendingur
með allar tölur
réttar í jókernum
Í BYRJUN árs 2005 eru áætluð
verðmæti í flutningskerfi Lands-
nets um 70 milljarðar að stofnvirði
en bókfært virði um 32 milljarðar
króna. Meginverðmæti eru í há-
spennulínum, alls nærri þrjú þús-
und kílómetra löngum um allt land,
og 66 tengivirkjum, þar sem raf-
magn er sett inn eða tekið út af
kerfinu.
Stjórn Landsnets skipa Páll
Harðarson, formaður, Auður Finn-
bogadóttir og Kristján Jónsson.
Forstjóri nýja fyrirtækisins er
Þórður Guðmundsson.
Bókfært virði
32 milljarðar
TRYGGINGAFÉLAGIÐ VÍS hefur
ákveðið að bæta viðskiptavinum sín-
um á flóðasvæðum Suðaustur-Asíu
tiltekið tjón sem þeir kunna að hafa
orðið fyrir þar, þrátt fyrir ákvæði í
ferðatryggingum, þar á meðal sem
felast í F+ fjölskyldutryggingunni,
um að þær taki ekki til tjóns af völd-
um náttúruhamfara. Þetta kemur
fram í tilkynningu frá félaginu.
VÍS mun greiða kostnað við-
skiptavina sinna erlendis vegna
sjúkrahúsvistar, læknishjálpar, lyfja
eða annarrar sambærilegrar aðstoð-
ar. Kostnaður við sjúkraflutning
verður einnig greiddur ef slíkur
flutningur telst nauðsynlegur og
beiðni þar að lútandi er staðfest af
lækni SOS International eða umönn-
unarlækni. Ofangreint verður af-
greitt samkvæmt skilmálum.
Bent á neyðarsíma
VÍS bendir viðskiptavinum sínum,
sem þurfa á brýnni aðstoð að halda,
að hringja í neyðarsíma SOS Int-
ernational, þjónustuaðila VÍS, í núm-
er + 45 70 10 5050. Á vegum SOS
International eru læknar og annað
hjálparlið á hamfarasvæðunum sem
liðsinna eftir megni þeim sem á
þurfa að halda.
VÍS bætir
sjúkra- og
læknis-
kostnað