Morgunblaðið - 30.12.2004, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Framkvæmdir viðsteyptan sökkulaðalstíflu Kára-
hnjúkavirkjunar, svokall-
aðan távegg, eru nú orðn-
ar um fjórum mánuðum á
eftir áætlunum en aðrir
verkþættir ganga vel og
eiga þessar tafir að
óbreyttu ekki að raska
tímaáætlun fyrir fram-
kvæmdir við Kárahnjúka í
heild. Til stóð að Impregilo
myndi ljúka við að hlaða
stífluna í apríl í vor og er
nú unnið við steypuvinnu
undir sérstöku segltjaldi
svo standa megi við áætl-
anir en upphaflega stóð
ekki til að að vera við
steypuvinnu yfir háveturinn. Þrátt
fyrir að menn reyni nú að steypa
undir seglinu er talið óhjákvæmi-
legt að tafir kunni að verða í vetur
við steypuframkvæmdirnar ef
gerir mjög vond veður eða
grimmdarfrost.
Táveggurinn sjálfur er mikill að
vöxtum, í raun gegnheilt steypu-
stykki um 60 metra langt, allt að
45 metra hátt og allt að 20 metrar
að þykkt og var gert ráð fyrir að í
távegginn færu um 66 þúsund
rúmmetrar af steypu. Aðalstíflan
sjálf verður svo 193 metra há og
730 metra löng en mun lægri og
lengri stíflur verða síðan beggja
vegna hennar. Stíflurnar verða
gerðar úr grjóti og þjöppuðu mal-
arefni en síðan verður steypt járn-
bent kápa með sérstökum skrið-
mótum en ekki er hægt að steypa
hana á meðan frost er. Kápan
verður um 60–70 sentimetra þykk
neðst en þynnist síðan og verður
um 30 sentímetrar efst.
Ástæður tafa við framkvæmdir
við távegginn voru þær að þegar
búið var að veita Jöklu úr farveg-
inum í hjáveitugöng kom í ljós að
mun lengra var niður á fast und-
irlag en menn höfðu gert ráð fyrir
eða um sjö metrum lengra og allt
að tólf metrum lengra undir stífl-
unni sjálfri. Táveggurinn var því
„hækkaður“ niður á við sem þessu
nam og öll vinna við hann varð um-
fangsmeiri. Þá bættist við að mis-
gengissprunga reyndist vera í
botninum, skáhallt yfir gilið, og
gera þurfti sérstakar ráðstafanir í
steypuvinnunni til þess að tryggja
að ekki læki vatn eftir misgenginu
og undir stífluna. Þá voru einnig
settir sérstakir þéttiborðar o.fl. til
þess að tryggja að mannvirkið
þyldi hugsanlegar hreyfingar í
misgengissprungunni. Hanna
þurfti mannvirkið að hluta til upp
á nýtt vegna þessa. Þá má einnig
nefna að flóðið sem varð í Jöklu
seint í sumar tafði verkið um allt
að tvær vikur auk þess sem líka
urðu tafir vegna slyss en í kjölfar
þess var ráðist í að hindra hrun úr
gljúfrinu. Þannig að segja má að
ýmsir þættir hafi átt þátt í að tefja
framgang verksins.
Þarf að endursemja
sérstaklega við Impregilo
Sigurður Arnalds, talsmaður
Landsvirkjunar, segir að þegar
vandamál af þessu tagi komi upp
þurfi að endursemja sérstaklega
við Ítalina. „Þannig er þetta alltaf í
öllum svona mannvirkjanafram-
kvæmdum, þau eru ekki fullhönn-
uð fyrr en eiginlega jafnóðum og
þá koma iðulega upp tilvik sem
þarf að semja sérstaklega um. Það
var reyndar gert mikið átak í því
núna fyrir áramótin að hreinsa allt
slíkt upp við Impregilo og ganga
frá samningum um allan kostnað
og að vinna upp þessa áætlun í
framhaldinu. Þannig að það er frá-
gengið,“ segir Sigurður.
Spurður um kostnað vegna
þessa segir Sigurður að hann vegi
ekki hlutfallslega mjög þungt en
verkið sé hins vegar það stórt að
allar breytingar af þessu tagi kosti
umtalsvert fé.
„En við höfum aldrei viljað gefa
upp niðurstöður varðandi einstök
atriði í svona samningum, það er
litið á það sem viðskiptaleynd. Það
er fyrst og fremst vegna sam-
keppnisaðstöðu gagnvart öðrum
verktökum, menn vilja ekki spila
alla hluti fyrir opnum tjöldum.“
Aðspurður segir Sigurður það
ekki rétt, eins og haldið hafi verið
fram í fjölmiðlum, að meginástæð-
an fyrir töfum sé að ekki hafi náðst
þau afköst með mannskapnum við
Kárahnjúka sem stefnt hafi verið
að. „Auðvitað var það einn þátt-
urinn að þeim gekk hægar að ná
upp afköstum í þessari steypu-
vinnu en við höfðum vonað en það
var ekki aðalástæðan.“
Sigurður tekur fram að vinna
við távegginn sé aðeins einn af
mjög mörgum þáttum í þessum
miklu framkvæmdum, allir aðrir
verkþættir séu á góðu róli og jafn-
vel á undan áætlun.
Spurður um áhrif tafanna við tá-
vegginn á heildarframvindu fram-
kvæmdanna við Kárahnjúka segir
Sigurður að eins og staðan sé í dag
sé planið að komast nokkurn veg-
inn á rétt ról með framkvæmdirn-
ar næsta sumar. Aðalmálið sé að
menn geti byrjað að safna vatni 1.
september 2006 en vetrarrennslið
í lónið eigi að duga til að fylla svo-
kallað dauðarými, þ.e. rýmið fyrir
neðan lægsta rekstrarvatnsborð
þannig að 1. apríl verði komið nóg
vatn til þess að setja af stað fyrstu
vélina af sex. Í vorleysingum haldi
lónið svo áfram að fyllast, vélarnar
fari smám saman í gang þangað til
virkjunin verði komin í fullan
rekstur í október 2007.
Fréttaskýring | Kárahnjúkavirkjun
Verkið verði
á áætlun í vor
Vinna Impregilo við távegg undir stíflu
um fjórum mánuðum á eftir áætlun
Vinna við stóru stífluna hefur tafist talsvert.
Margir ytri þættir hafa
tafið framgang verksins
Ástæður tafa á framkvæmdum
við sökkul stíflu virkjunarinnar
eru einkum þær að mun lengra
var niður á fast undirlag en
menn höfðu gert ráð fyrir. Auk
þess reyndist vera misgengis-
sprunga í botninum, skáhallt
yfir gilið, og gera þurfti sér-
stakar ráðstafanir í steypuvinn-
unni til þess að tryggja að ekki
læki vatn eftir misgenginu og
undir stífluna. Þá tafði flóð í
Jöklu seint í sumar verkið um
allt að tvær vikur.
arnorg@mbl.is
STRAUMUR fór af stóriðjuverun-
um á Grundartanga; álveri Norður-
áls og járnblendiverksmiðju í fyrri-
nótt og lá framleiðsla þar niðri í
tæpa klukkustund. Orsök þessa
voru bilanir sem urðu í raforku-
dreifingarkerfi Landsvirkjunar í
kjölfar ísingar og seltu. Þessi trufl-
un var yfirstaðin tæpri klukku-
stund seinna og var stóriðjunni
gefið leyfi til að taka upp fullt álag
aftur upp úr klukkan hálffimm í
gærmorgun.
Að sögn Þórhalls Hrafnssonar,
verkfræðings í kerfisstjórn Lands-
virkjunar, voru bilanirnar tvær
sem báðar mátti rekja til ísingar á
línum. Annars vegar varð raf-
magnslaust á Suðurlandi á öðrum
tímanum í nótt en rafmagn fór
meðal annars bæði af á Selfossi og
í Hveragerði. Var allt komið í samt
lag innan við klukkustund seinna.
Rétt fyrir klukkan fjögur í fyrri-
nótt varð svo viðameiri truflun er
rafmagn fór af öllu Vesturlandi,
Vestfjörðum og norður og austur
um að Laxárvatni við Blönduós.
Þórhallur sagði í samtali við
Morgunblaðið að frumorsök bilun-
arinnar hefði verið ísing og selta.
„Ísing og sennilega einhver selta
olli yfirslætti í stöð Landsvirkjunar
á Brennimel. Allt er nú í fullum
rekstri nema sú eining á Brenni-
mel þar sem sló út á svokölluðum
þétti. Það sem var sérstakt við
veðrið í nótt var ísingarástandið en
hvassviðrið sem slíkt
hefur ekki þessi áhrif
og útheimtir ekki
sérstakan viðbúnað
af okkar hálfu.“
Að sögn Þórhalls
hafði bilunin ekki
teljandi tjón í för
með sér annað en
það að framleiðslu-
tap varð í stóriðj-
unni. „Þá hafði raf-
magnsleysið í för
með sér óþægindi
fyrir viðskiptavini.“
Talsverðar raf-
magnstruflanir urðu
á veitusvæði Orku-
veitu Reykjavíkur.
Ástæður truflananna
má rekja til sam-
sláttar á háspennu-
línum, sem urðu til
þess að háspennurof-
ar í aðveitustöðvum leystu út og
ollu rafmagnsleysi á nokkrum stöð-
um. Að sögn Guðmundar Sigur-
vinssonar, upplýsingafulltrúa
Orkuveitunnar, varð ekkert tjón á
veitusvæðinu. „Við erum með okk-
ar veitusvæði undir stöðugu eft-
irliti allan sólarhringinn og það
kemur fljótt fram ef einhver út-
sláttur verður og þá er gripið til
viðeigandi ráðstafana.“
Upp úr kl. 2 eftir miðnætti fór
rofi í aðveitustöð við Korpu út
vegna samsláttar í Korpulínu og
varð rafmagnslaust í hluta Graf-
arvogshverfis í um það bil 30 mín-
útur. Rofi í aðveitustöð í Elliðaár-
dal fór út og varð rafmagnslaust á
Vatnsendasvæði, í Bláfjöllum og
Hveradölum í nokkrar mínútur.
Rofi í aðveitustöð í Mosfellsbæ fór
út og varð rafmagnslaust í Helga-
dal og Mosfellsdal í stuttan tíma.
Um fjögurleytið varð rafmagns-
laust á Akranesi í rúmlega 30 mín-
útur.
Miklar truflanir urðu einnig í
hitaveitum Orkuveitunnar á Suður-
landi vegna útleysinga í landskerf-
inu en að sögn Guðmundar stóðu
þær stutt yfir og ollu engu tjóni.
„Við búumst ekki frekar við
áframhaldandi truflunum en þegar
veðrið er með þessum hætti er við-
búnaðurinn þó meiri,“ sagði Guð-
mundur.
Ísing og selta olli rafmagnsleysi sunnanlands og vestan
Straumur fór af stóriðju-
verunum á Grundartanga
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Rafmagnstruflanir urðu víða í fyrrinótt á Suðvest-
urlandi vegna óveðurs, einkum seltu og ísingar.
MIKIÐ snjóaði á Akureyri um jólin og enn er unnið að
því að koma öllum snjónum burt. Þessi vélskófla og
vörubíll voru að athafna sig í Norðurgötunni á Oddeyri
þegar ljósmyndari átti þar leið um. Af nógu er að taka í
bænum, bílhlössin líklega orðin óteljandi og eins gott
að Pollurinn er stór – og tekur endalaust við.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Snjómokstur á Akureyri
INGI Örn Pétursson varði dokt-
orsritgerð sína við stærðfræðideild
University of Warwick 2. desember
2003. Andmælendur voru dr.
McKenzie Wang,
prófessor við
McMaster Uni-
versity, Hamilton
og dr. John
Rawnsley, pró-
fessor við Uni-
versity of War-
wick. Leiðbein-
andi var dr.
Mario Micallef,
prófessor við University of Warwick.
Heiti ritgerðarinnar er „Almost
positive isotropic curvature and
surgery“. Hún tilheyrir því und-
irsviði diffurrúmfræði sem kallast
riemönsk rúmfræði (eftir þýska
stærðfræðingnum Bernard Rie-
mann). Það er grundvallar viðleitni í
riemannskri rúmfræði að finna
tengsl milli krappa skilyrða og
grannfræði.
Í doktorsritgerðinni er rannsakað
krappa skilyrði sem fæst með því að
veikja jákvæða krappa skilyrðið; og
það skilyrði kallað „næstum jákvæð-
ur“ krappi. Aðalniðurstaða dokt-
orsritgerðarinnar er sönnun á að ef
gerður er rúmfræðilegur skurður á
víðáttu sem hefur næstum jákvæðan
krappa þá hefur sú víðátta sem fæst
eftir skurðinn líka næstum jákvæð-
an krappa.
Ingi Örn Pétursson lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum í Reykja-
vík 1992, BS-gráðu í stærðfræði við
Háskóla Íslands 1998 og MSc í
stærðfræði við University of War-
wick 1999. Hann hefur haldið áfram
rannsóknum sínum við Institut
Fourier í Grenoble, Frakklandi.
Hann er sonur Péturs Ingimund-
arsonar og Margrétar Halldóru
Ingadóttur.
Doktor í stærðfræði