Morgunblaðið - 30.12.2004, Síða 11

Morgunblaðið - 30.12.2004, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 2004 11 FRÉTTIR Jón á að baki meira en 20 ára samfelltstarf í Iðnaðarbanka og síðar Íslands-banka og kom uppsögnin mörgumstarfsmönnum bankans í opna skjöldu. Frá því í mars á þessu ári hefur Jón verið að- stoðarforstjóri Íslandsbanka og borið að mestu ábyrgð á viðskiptabankastarfseminni hér á landi, með yfirstjórn á nærri 600 starfsmönnum í 30 útibúum, eignastýringu, fyrirtækjasviði, Glitni, lánastýringu og markaðs -og sölumálum. Áður en hann yfirgaf vinnustaðinn í gær- morgun sendi hann samstarfsmönnum sínum orðsendingu þar sem hann kvaddi þá eftir langt og farsælt samstarf. Þegar heim var komið hringdi síminn látlaust og á meðan Morgun- blaðsmenn ræddu við Jón á heimili hans síðdeg- is í gær fékk hann blómasendingu og hlýjar kveðjur frá starfsmönnum bankans. Jón segist hafa orðið fyrir miklum von- brigðum með ákvörðun forstjórans og telur að til þessa hafi ekki þurft að koma. En hvaða skýringar hefur hann á þessum ágreiningi og hvers eðlis er hann? Tveir pólar komu saman Jón svarar því fyrst til að rótina megi vænt- anlega rekja til þeirra miklu breytinga sem orð- ið hafa á bankastarfsemi hér á landi. Margt hafi gerst á skömmum tíma og íslenska bankakerfið sé nýkomið í þann búning sem það sé í í dag. Fyrir stuttu síðan hafi einn banki verið í hluta- félagaformi, hinir verið í eigu ríkisins og svo sparisjóðirnir. Innan bankanna þriggja hafi myndast „viðskiptabankamenning“, þar sem viðskipti við einstaklinga og fyrirtæki voru á grundvelli langtíma samstarfs. Áherslan hafi verið lögð á að tryggja hagsmuni beggja og bankarnir hafi leitast við að þekkja starfsemi og hagi viðskiptavinarins sem best. Einnig hafi at- vinnuvegasjóðirnir komið til sögunnar og með ákvörðun ríkisins um að stofna og síðar selja Fjárfestingabanka atvinnulífsins, FBA, hafi nýr tónn verið sleginn í íslensku banka- samfélagi. „Í ljós kom að þeir menn sem tóku við FBA voru stórhuga og reiðubúnir til að taka mikla áhættu. Þá sást fyrst þessi hugsun fjárfestingabankans sem þróast hefur síðar hér á landi og erlendis. Síðan kom að sameiningu FBA og Ís- landsbanka og þá var orðið til fyrirtæki sem reist var á hin- um gamla merg viðskipta- bankahugsunarinnar annars vegar og hins vegar á snún- ingsliprum fjárfestinga- bankamönnum,“ segir Jón og bætir við að þarna hafi komið saman tveir pólar sem gengu hvor fyrir sínueldsneytinu, þó ekki andstæðir pólar. „Í viðskiptabanka gengur allt út á að gera hlutina eins hagkvæma og einfalda og hægt er, með þeim hætti að viðskiptavinurinn sé sem ánægðastur. Þetta er mannfrek starfsemi, það er dýrt að halda útibúum gangandi með þeirri þjónustu sem þar er veitt. Þess vegna skiptir miklu að allt sé gert af yfirvegun og hugsað langt fram í tímann. Starfsemi fjárfestinga- banka gengur út á aðra þætti, eða að gera við- skipti þegar andinn blæs mönnum það í brjóst. Þannig er hægt að ná í miklar tekjur á stuttum tíma með tiltölulega fáum starfsmönnum, en viðskipti af þessu tagi eru vitanlega áhættusöm og þá viðbúið að hægt sé að tapa stórum fjár- hæðum á skömmum tíma.“ Hugsjón fjárfestingabankans ofan á við brotthvarf Vals Valssonar Við þessar ólíku aðstæður hljóti að koma upp einhver núningur milli þessara eininga. Það sé í raun eðlilegt. „Það verður að segjast eins og er að með brotthvarfi Vals Valssonar úr Íslandsbanka í ársbyrjun 2003 þá varð fjárfestingabanka- hugsjónin ofan á. Valur Valsson var og er minn lærifaðir í bankafræðunum, kenndi mér meira en nokkur annar og sýndi mér trúnað og traust sem ég er mjög þakklátur fyrir,“ segir Jón. Eftir að Valur hættir er ákveðið að hafa einn forstjóra yfir bankanum, Bjarna Ármannsson, sem áður hafði veitt FBA forstöðu og komið þaðan úr Kaupþingi. Jón hafði m.a. verið úti- bússtjóri í Íslandsbanka, borið ábyrgð á sölu- málum bankans um tveggja ára skeið, verið framkvæmdastjóri útibúasviðs og í mars sl. réð bankaráð Íslandsbanka hann aðstoðarforstjóra bankans og jafnframt staðgengil forstjórans, að tillögu Bjarna Ármannssonar. Með því var hug- myndin að auka kraft í útrás bankans, sem Bjarni átti að einbeita sér að, á meðan Jóni var ætlað að stjórna viðskiptabankastarfseminni hér á landi. Afdrifarík ummæli „Við þessar aðstæður reynir verulega á að menn hafi skilning á verkefnum og verksviði hvor annars. Eftir því sem verkefnin eru meira framandi þurfa menn að leggja sig meira fram um að skilja þau. Inn í þetta blandast svo um- ræða um hagræðingu í bankakerfinu,“ segir Jón og telur að ummæli sem hann lét falla í fjölmiðlum í haust í kjölfar fundar grein- ingardeildar Íslandsbanka, þess efnis að sameining bank- ans og Landsbankans væri ekki útilokuð, hafi verið vendi- punkturinn í samskiptum hans og Bjarna Ármanns- sonar. „Ég hef deilt þeirri skoðun með fjölda annarra að banka- kerfið sé hægt að reka með hagkvæmari hætti en gert er í dag, viðskiptavinum bankans og hluthöfum til hagsbóta, það sé verulegt hag- ræði óinnleyst í íslensku bankakerfi,“ segir Jón og vísar til reynslu Íslandsbanka af þeim ár- angri sem náðst hefur á þessu sviði. Þannig hafi til dæmis tekist á árunum 1995 til 2000 að fækka fermetrum í notkun í útibúaneti bankans um tíu þúsund. Hagræðingin hafi síðan haldið áfram og tekist hafi að veita þjónustuna á hag- kvæmara verði. „Ég hef alltaf verið hlynntur því að menn leiti leiða til að hagræða í bankarekstri á Íslandi og tækifærin til þess eru mýmörg. Á þeim nótum talaði ég á fundi greiningardeildar bankans í september síðastliðinn. Í framhaldi af þeim fundi nefndi ég í viðtölum við fjölmiðla að við blasti að til frekari sameininga eða uppstokk- unar gæti komið í íslensku fjármálalífi. Þar var ég ekkert að finna neitt upp, þetta höfðu margir mætir menn sagt á undan mér. Ljóst er að þessi ummæli mín vöktu upp ólund hjá forstjóra bankans [Bjarna Ármannssyni] og stjórnarfor- manni [Einari Sveinssyni]. Ég sá engin mál- efnaleg rök fyrir því og taldi mig hafa skýrt mín sjónarmið málefnalega,“ segir Jón. Bjarni langdvölum erlendis Í kjölfar kaupa KB banka á FIH-bankanum í Danmörku segir Jón að þrýstingur hafi vaxið á Íslandsbanka að taka þátt í útrás íslensku bankanna, m.a. frá nýjum hluthöfum. Íslands- banki hafi tekið þátt í kapphlaupinu um FIH en orðið undir og hafi það orðið mönnum nokkuð áfall. Yfirlýsing hafi legið fyrir um að vaxta- möguleikar hér á landi væru takmarkaðir og að bankinn ætlaði að hasla sér völl í alþjóðlegum sjávarútvegi. Fljótlega hafi böndin borist að Noregi og niðurstaðan orðið sú að Íslandsbanki keypti Kredittbanken og BN-banka. „Þetta útheimti mikið af stjórnendum bank- ans og mæddi auðvitað mest á Bjarna Ár- mannssyni. Hann var langdvölum erlendis og á meðan bar ég meginábyrgð á starfsemi bank- ans á Íslandi. Það var því eðlilegt að ég leysti úr mörgum daglegum viðfangsefnum og ekki hjá því komist að ég kæmi stundum fram fyrir hönd bankans.“ Skynjaði vaxandi tómlæti Bjarna í sinn garð og áhugaleysi á samskiptum Að mati Jóns liggur væntanlega fleira að baki ákvörðun forstjórans um að reka sig en þessi ummæli í fjölmiðlum. Í kjöl- far hluthafafundar Íslands- banka 3. nóvember sl. segist hann hafa skynjað vaxandi tómlæti Bjarna í sinn garð og áhugaleysi á samskiptum og þeim verkefnum sem við- skiptabankasviðið hafði á sinni könnu. Smám saman segist Jón hafa gert sér það ljóst að Bjarni gæti vel hugs- að sér að losna við sig úr bankanum og myndi væntanlega leita fyrsta færis að finna átyllu til þess. „Það er ærinn starfi að reka 600 manna ein- ingu með 300 milljarða króna í útlánum í 30 útibúum og því enginn tími aflögu til að vera stöðugt í einhverju plotti. Þannig var það alls ekki. Ég hef einfaldlega verið að vinna fyrir hluthafa Íslandsbanka og gert það samkvæmt bestu samvisku og velti þessari stöðu ekki mik- ið fyrir mér þá.“ Hluthafafundurinn var haldinn í kjölfar breytinga á eigendahópi bankans. Steinunn Jónsdóttir úr Byko-fjölskyldunni keypti hluti, Karl Wernersson jók sinn hlut og Lífeyris- sjóður verslunarmanna seldi af sínum hluta. Að sögn Jóns var í aðdraganda fundarins tekist á um niðurstöðu hans. Sjálfkjörið var í bankaráð- ið og segir Jón að í framhaldi fundarins hafi orð- ið vatnaskil í samskiptum hans og Bjarna Ár- mannssonar, enda hafi staða Bjarna styrkst. „Bjarni lýsti því sjálfur að undanfarna tvo mánuði hefði samskiptum okkar hrakað mjög. Kjarni málsins er sá að hann vildi draga úr sam- skiptum við mig en var á sama tíma meira og minna í Noregi vegna verkefna sinna við yfir- töku á Kreditbanken og síðar BN-bankanum. Ég taldi mig vera að vinna þá vinnu sem ég hafði umboð til og ekki hafa verið gerðar at- hugasemdir við þar til nú.“ Ráðning útibússtjóra í Lækjargötu tylliástæða fyrir brottrekstrinum Þegar Jón leitaði skýringa hjá Bjarna Ár- mannssyni á brottrekstrinum var nefnd nýleg ráðning hans í stöðu útibússtjóra Íslandsbanka í Lækjargötu. Staðan var auglýst nýlega og tók Jón þá ákvörðun að velja Svein Hannesson, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, úr hópi 60 umsækjenda. Á Sveinn að hefja störf eftir áramótin, ef ákvörðun Jóns gengur eftir. Var hún ekki borin undir Bjarna en Jón telur sig ekki hafa borið skyldu til þess, ekki síst þar sem Bjarni hafi verið lengi fjarverandi frá banka- starfseminni hér á landi og að auki verið í fæð- ingarorlofi þegar ráðningin fór fram. Þá hafi Bjarni aldrei spurst fyrir um framvindu máls- ins, hvaða umsækjendur kæmu helst til greina. „Það er mjög óheppilegt að nafn Sveins blandist inn í þessa umræðu því Sveinn er hinn mætasti maður. Mér fannst það blasa við að hann væri fremstur meðal margra hæfra um- sækjenda. Út af fyrir sig eru athugasemdir ekki gerðar við hann, hann á að baki mikla reynslu úr atvinnulífinu og það væri sérkennileg ráð- stöfun af hálfu Íslandsbanka að ætla að senda öllu því fólki sem treysti honum til trún- aðarstarfa um langt árabil kaldar kveðjur með því að vinda ofan af minni ákvörðun. Bjarni hafði fyrst og fremst athugasemdir við það að ég skyldi ekki hafa ráðfært mig við hann um þetta. Þau viðbrögð komu mér verulega á óvart því ég hafði áður staðið að fleiri ráðningum með sama hætti,“ segir Jón og telur ráðningu Sveins vera tylliástæðu forstjórans fyrir brottrekstr- inum. „Það er verið að leita að einhverju sem hægt væri að nota til að ná fram þessari nið- urstöðu, sem mér virðist hafa verið búið að ákveða löngu áður. Ég held að Bjarni hafi verið búinn að einsetja sér að koma mér út úr bank- anum og það skyldi þá gert við fyrsta hent- ugleika. Þarna hefur hann talið tækifæri vera komið sem hann ákvað að nýta sér. Annars verður Bjarni þá að skýra betur út í hverju ágreiningur okkar er fólginn, sem hann nefnir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.“ Brottreksturinn mikil vonbrigði Jón segir að andrúmsloftið síðustu vikur og mánuði hafi vissulega verið sérkennilegt en hann hafi einbeitt sér að því að ná eins miklum árangri og hægt var á því sviði sem honum var falið að stýra. Hann hafi notið til þess trúnaðar og trausts sinna nánustu samstarfsmanna. „Að sjálfsögðu er brott- reksturinn mikil vonbrigði fyrir mig. Ég hef helgað bank- anum og forvera hans starfs- krafta mína í meira en 20 ár, allt frá því að ég fór út á vinnumarkaðinn. Ég er stolt- ur af mínum ferli og ánægður með margt af því sem áunnist hefur í bankanum í góðu sam- starfi við fjöldann af mjög hæfu samstarfsfólki. Banka- starfsemi snýst um fólk, venjulegt fólk að eiga viðskipti við venjulegt fólk. Það hefur verið minn útgangspunktur,“ segir Jón undir lok samtals okkar. Spurður um hvað taki við segist hann ekkert hafa hugsað út í það. Þegar í gær hafi honum borist aragrúi símtala sem hann hafi ekki náð að svara. Hvort það hafi m.a. verið frá hinum bönk- unum, keppinautum Íslandsbanka, vill Jón Þór- isson engu svara. „Nú draga menn bara andann en það hlýtur að koma að því að ég freisti gæf- unnar á nýjum slóðum. Ég hef ekki stórar áhyggjur.“ Jón Þórisson, aðstoðarforstjóri Íslandsbanka þar til í gær, telur brottrekstur sinn hafa verið ákveðinn fyrir löngu af hálfu forstjórans, Bjarna Ármannssonar Ummæli um mögulega banka- sameiningu vöktu upp ólund Morgunblaðið/Kristinn „Það er verið að leita að einhverju sem hægt væri að nota til að ná fram þessari niðurstöðu, sem mér virðist hafa verið búið að ákveða löngu áður,“ segir Jón Þórisson m.a. í viðtali við Morgunblaðið um brottrekstur hans frá Íslandsbanka. Vegna ágreinings sem „ekki varð brúaður“ ákvað for- stjóri Íslandsbanka, Bjarni Ármannsson, að víkja að- stoðarforstjóranum, Jóni Þórissyni, úr starfi. Jón yf- irgaf bankann í gær og rek- ur í samtali við Björn Jó- hann Björnsson skýringar sínar á brottrekstrinum og aðdraganda hans. bjb@mbl.is ’Ég taldi mig veraað vinna þá vinnu sem ég hafði umboð til og ekki hafa verið gerðar athugasemdir við þar til nú.‘ ’Ég held að Bjarnihafi verið búinn að ein- setja sér að koma mér út úr bankanum og það skyldi þá gert við fyrsta hentugleika. ‘

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.