Morgunblaðið - 30.12.2004, Page 14

Morgunblaðið - 30.12.2004, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT TALA látinna eftir náttúruhamfar- irnar í Asíu á sunnudag var í gær komin yfir 80 þúsund og segja emb- ættismenn í löndum við Indlandshaf að hin raunverulega tala sé vafalaust mun hærri, yfir 100.000. Að auki er ljóst að yfir hálf milljón hefur slas- ast, sumir illa, og vaxandi hætta er á sjúkdómum vegna óhreins drykkjar- vatns. „Við erum að fást við náttúru- hamfarir sem eru svo umfangsmikl- ar að þær eiga sér ekki fordæmi,“ sagði Simon Missiri, yfirmaður sam- starfs Alþjóða Rauða krossins og Rauða hálfmánans í Kyrrahafshluta Asíu. „Manntjónið er ægilegt.“ Enn berast samt sem áður fregnir af giftusamlegri björgun. Fílatemj- ari á Phuket-eyju í Taílandi greip til þess ráðs að koma hópi barna fyrir á baki fíls og láta dýrið skokka með þau frá ströndinni áður en flóðbylgj- an skall á staðnum. Talsmaður stjórnar Indónesíu sagði að ljóst væri að minnst 45 þús- und manns hefðu farist þar í landi, að minnsta kosti 22.500 manns létu lífið á Sri Lanka og nærri 11 þúsund á Indlandi. Um 5.000 manns er saknað í Taílandi, þar af er staðfest að um 1800 eru látnir, flestir þeirra erlend- ir ferðamenn. Fjöldi flugvéla með hjálpargögn lenti í gær í löndunum þar sem þörfin er mest aðkallandi, á Sri Lanka og í Indónesíu, en Ind- verjar sögðust hins vegar ekki þurfa erlenda aðstoð. Sendifulltrúi Alþjóða Rauða krossins, Peter Rees, sagði í gær að tala látinna í löndunum öllum gæti farið yfir 100 þúsund þegar búið væri að kanna ástandið á litlum, afskekkt- um eyjum í Indlandshafi. Óttast er að tugir þúsunda manna hafi farist á Andaman- og Nicobareyjum sem til- heyra Indlandi. Mesta manntjónið varð í Indónes- íu. „Skemmdirnar eru gríðarlega umfangsmiklar,“ sagði Endang Suw- arya, hershöfðingi í Aceh-héraði. „Um 75% vesturstrandarinnar eru rústir einar og á sumum stöðum er eyðileggingin alger. Þetta fólk er einangrað og við munum reyna að veita því hjálp,“ sagði hann. Svæðið í kringum hafnarborgina Meulaboh, þar sem búa um 40.000 manns, varð verst úti af völdum jarð- skjálftans og flóðbylgjunnar í kjöl- farið á sunnudag. Fréttamenn flugu yfir vestur- strönd Súmötru í gær og sáu hvar- vetna þorp sem voru þakin aur eftir flóðið. Lítið lífsmark sást, aðeins nokkrir þorpsbúar sem leituðu að mat í brakinu. Fundu 3.000 á lífi í Ampara Bílar og flutningavélar flytja nú mat, vatnshreinsitæki, drykkjarvatn og sjúkragögn til hjálparmiðstöðva á Sri Lanka en í stöðvunum dvelst nú um ein milljón manna eftir flóðið sem skall á suður- og austurströnd landsins. Um 3.000 manns í af- skekktu héraði, Ampara, sem óttast var að hefðu farist, fundust í gær, heilir á húfi, er vél flughersins flaug yfir héraðið. Hefur þegar verið varp- að hjálpargögnum úr lofti til fólks- ins. Fregnir hafa borist af því að sum- um hjálparsendingum, sem áttu að berast fórnarlömbunum, hafi verið rænt. Einnig var skýrt frá umfangs- miklum þjófnaði í ferðamannabæj- um á flóðasvæðinu í Taílandi. Opinberir starfsmenn á Sri Lanka segja að enn sé verið að draga lík upp úr braki, ám og lónum. Ljóst er að yfir 800 farþegar fórust þegar flóðbylgjan skall á járnbrautarlest við smáþorpið Hikkaduwa og var enn verið að finna lík í brakinu í gær. Lestin var á leið frá höfuðstaðnum Colombo til hafnarborgarinnar Galle í suðurhluta landsins. Ekki er alveg ljóst hve margir voru í lestinni, sem nefndist Drottning hafsins, en seldir voru um 1.000 miðar. Hinir látnu voru grafnir í fjöldagröf við braut- arteinana. „Við gátum ekki gert ann- að,“ sagði búddamunkur á staðnum. „Líkin voru farin að rotna.“ Yfir 1.000 Þjóðverja saknað Ljóst er að minnst 26 Þjóðverjar fórust og um 1.000 er saknað eftir hamfarirnar, að því er Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, skýrði frá í gær. Schröder bætti við að líklega hefðu nokkur hundruð Þjóðverjar farist af völdum hamfar- anna. Þýskar ferðaskrifstofur hafa greint frá því að um 380 Þjóðverja sem staddir voru í Phuket og Khao Lak í Taílandi væri saknað. Schröder sagði að hann myndi leggja til við auðugar þjóðir sem til- heyra hinum svonefnda Parísar- klúbbi bjóði tveim fátækum ríkjum, Indónesíu og Sómalíu, að fresta greiðslu erlendra lána svo þau geti látið meira fé renna til neyðaraðstoð- ar og uppbyggingar. Lítil efnahagsáhrif Eignatjónið við Indlandshaf nem- ur milljörðum dollara en áhrifin á efnahagslífið í löndunum virðast ekki ætla að verða mikil. Í Taílandi er tal- ið að hagvöxtur muni aðeins minnka um 0,1–0,3% vegna hamfaranna. Þar er ferðaþjónusta mikilvægasta tekjulindin og voru yfirvöld sökuð um að hafa sleppt því að vara við hugsanlegri flóðbylgju af ótta við að ferðamenn myndu þá hika við að fara til landsins. Ríkisstjórnin hefur nú fyrirskipað rannsókn á málinu. Flest innlendu fórnarlömbin við Indlandshaf voru fátæklingar sem eru meira eða minna á jaðri sam- félagsins, hafa lítil áhrif á hagtölur og tryggja ekki eigur sínar. Geng- isvísitalan hækkaði á mörkuðum í Indónesíu eftir að ógæfan reið yfir og hefur sjaldan verið hærri. Mun ástæðan vera að ljóst þyki að trygg- ingafélög hafi ekki orðið fyrir mikl- um skelli. Einnig rauk gengi í bygg- ingafyrirtækjum og sementsverk- smiðjum upp. Talið líklegt að meira en 100.000 hafi farist  Vesturströnd Súmötru rústir einar  Hátt í þúsund fórust með lestinni á Sri Lanka  Fílatemjari bjargaði hópi barna í Phuket Banda Aceh, Colombo. AP, AFP. Reuters Tvær konur í Banda Aceh í Indónesíu gráta og bíða eftir að fá meðhöndlun á herspítala í gær. Tugir þúsunda manna fórust í hamförunum í Aceh-héraði sem er á Súmötru. Blóðug átök hafa verið síðustu árin í Aceh. BJÖRGUN hinnar þriggja vikna gömlu S. Tulasi þykir ganga kraftaverki næst. Flóðbylgjan á sunnudag hreif barnið frá foreldr- unum sem voru við vinnu sína á veitingastað á eynni Penang í Mal- asíu. Tulasi fannst á lífi í fyrradag á fljótandi dýnu og mun ekki hafa slasast. Fleiri komust af með ótrúlegum hætti. Meghna Rajshekhar, 13 ára stúlka, flaut á hurð í tvo daga eftir að flóðbylgjan hafði lent á heimili hennar á indversku eynni Car Nicobar og síðan hrifið hana, fjöl- skyldu hennar og marga aðra með sér út í sjó. Indverska dagblaðið Hindustan Times sagði, að Meghna hefði 11 sinnum hrópað og reynt að vekja athygli á sér þegar þyrlur flugu yfir án þess að það bæri árangur. Kvaðst hún alltaf hafa vitað í hvaða átt landið var og að lokum hefði sjórinn skilað henni upp á ströndina. Foreldrar Meghnu fórust ásamt þúsundum annarra í Andaman- og Nicobar-eyjaklösunum, sem eru alls 572 eyjar og er Car Nicobar ein þeirra. AP Malasíukonan Annal Mary, móðir hinnar liðlega 20 daga gömlu S. Tulasi, kyssir barnið sitt í gær. Sorg en líka nokkur kraftaverk                                      !"#$ %            ! " #   $   % &   '  (%  ) $      &#*  &  '   (") #  *   $     + , ! -./0  *  $   #!                     1 '$ $ + 2  3 +   *  * 4 $  * (                            +  5 #  %  ,*    ( + $  + % $  6  !    "#"$ %!&$        &  ,**  5    $  , *  *(    & -* (   $ $   + *   .    * /   + , $,  (  $     #/- %0/123453 /#4-67%(81 -67%(81 / JARÐSKJÁLFTAR, skriðuföll og flóðbylgjur hafa valdið dauða og eyðileggingu svo lengi sem sögur kunna frá að greina. Átti sá mann- skæðasti sér stað í Shensi-héraði í Kína árið 1556 en talið er, að hann hafi valdið dauða 830.000 manna. Annar mannskæðasti skjálftinn er líklega Antíokkíu-skjálftinn í Sýrlandi árið 526, sem varð um 300.000 manns að bana, og sá þriðji mannskæðasti varð í borg- inni Tangshan í Kína 1976. Þá fór- ust um 250.000 manns. Í Mikla Kanto-jarðskjálftanum árið 1923, sem átti upptök sín rétt við Tókýó í Japan, fórust 142.800 manns og skjálftinn mikli í Lissa- bon í Portúgal 1755 olli dauða um 100.000 manna, þar, annars staðar í landinu og í Marokkó. Fylgdi honum gífurleg flóðbylgja og síð- an eldar, sem brunnu í marga daga. Í Messína á Ítalíu fórust allt að 100.000 manns 1908. Um 66.000 manns fórust í skriðuföllum af völdum jarð- skjálfta í Perú 1970. Um 40.000 týndu lífi í miklum jarðhræringum í héraðinu Gilan í Íran 1990 og fyr- ir réttu ári hrundi íranska borgin Bam til grunna. Fórust þá að minnsta kosti 26.000 manns. Jarðskjálftinn í Armeníu 1988 kostaði 25.000 manns lífið og 20.000 manns fórust í Gujarat- héraði á Indlandi 2001. Í jarðskjálfta í Tyrklandi 1999 fórust um 17.000 manns og í Mexíkóborg 1985 og í Managva í Níkaragva 1972 10.000 manns í hvorri borg. Tölur yfir mannfall í öðrum skjálftum á síðustu öld og það, sem af er þessari, eru lægri en nefna má, að jarðskjálftinn í Kobe í Japan 1995 kostaði 6.430 manns lífið. Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru og nefna má, að í tveimur skjálftum í Kína á síðustu öld, 1920 og 1927, fórust samtals 400.000 manns. Í öflugasta jarðskjálfta, sem vit- að er um, sem var 9,5 á Richter- kvarða og átti sér stað í Alaska 1964, fórust aðeins rúmlega 100 manns og í jarðskjálftanum fræga í San Francisco 1906 var mann- tjónið um 3.000. Mannskæðustu jarðskjálftarnir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.