Morgunblaðið - 30.12.2004, Side 15

Morgunblaðið - 30.12.2004, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 2004 15 ERLENT ÓLJÓST var í gær hversu margra Svía væri saknað á hamfarasvæðun- um í Asíu. Margt þótti benda til þess að fleiri Svíar hefðu verið þar á ferð en talið var í fyrstu og sagði Svenska Dagbladet að rúmlega 2.000 Svía væri saknað í Taílandi einu. Þessar tölur staðfestu yfirvöld ekki. Laila Freivalds, utanríkisráðherra Svíþjóðar, sagði í gær að enn væri rúmlega 1.000 Svía saknað á flóða- svæðunum í Asíu. Freivalds kom til eyjarinnar Phuket í Taílandi í gær. Hún sagði ljóst að um „þjóðar- harmleik“ væri að ræða hvað Svía varðaði. Enn hefði ekki tekist að hafa upp á rúmlega 1.000 sænskum ríkisborgurum. Er það lægri tala en yfirvöld höfðu áður birt því sagt hafði verið að ekkert væri vitað um afdrif um 1.500 sænskra ríkisborg- ara. „Ég óttast að marga þeirra finn- um við aldrei,“ sagði utanríkisráð- herrann sem bar harmleikinn í Asíu saman við Estonia-ferjuslysið árið 1994. Allt að 40 þúsund Svíar á svæðinu? Eftir því sem næst verður komist ræðir um 600 Svía sem voru á ferð í Taílandi og um 400 í öðrum löndum. Af þeim 1.000 sem yfirvöld segja að sé saknað lætur nærri að 400 séu börn. Enn hafa yfirvöld í Svíþjóð aðeins staðfest að sex sænskir ríkisborgar- ar hafi týnt lífi í hamförunum. Sænsk dagblöð sögðu í gær að stað- fest væri að 54 Svíar hefðu látið lífið í hamförunum. Talið er að 20 til 30 þúsund Svíar hafi verið í leyfi á ham- farasvæðinu og vera kann að allt að tíu þúsund til viðbótar hafi verið þar á eigin vegum. Af þeim sökum þykir því hugsanlegt að mun fleiri sé í raun saknað en talið var í fyrstu. Tala sú sem Svenska Dagbladet birti tekur mið af þessu. Ljóst þykir að Svíar séu sú vest- ræna þjóð sem misst hefur flesta í náttúruhamförunum í Asíu. Flugfélagið SAS hefur myndað loftbrú milli Taílands og Kaup- mannahafnar til að sækja norræna ferðamenn í Taílandi. Fyrstu leigu- flugvélarnar komu frá Taílandi til Kaupmannahafnar og Malmö á þriðjudagskvöld. Sumir voru ber- fættir og vafðir í ábreiður þegar þeir komu út úr flugvélunum. 19 Dana enn saknað Að sögn talsmanna Rauða kross- ins hafði verið safnað saman hlýjum fötum handa fólkinu, sem margt missti allan farangur sinn í flóð- bylgjunni. Að sögn Jyllandsposten í gær hafði verið staðfest að sex Danir hefðu týnt lífi og 19 var saknað. Frá Taílandi bárust þær fréttir að tíu Danir væru fundnir þar látnir. Danska ríkisstjórnin hefur verið gagnrýnd fyrir viðbrögð sín við hamförunum og var frá því skýrt í gær að stjórnvöld hefðu ákveðið að leggja fram 85 milljónir danskra króna í formi neyðaraðstoðar til við- bótar við þær tíu sem þegar hafði verið tilkynnt um. Finnar óttast mikið manntjón Stjórnvöld í Finnlandi óttast að um 200 Finna sé saknað en ferða- skrifstofur segjast ekki hafa náð sambandi við tæplega 500 Finna á hamfarasvæðunum. Staðfest er að tveir Finnar fórust. Stjórnvöld ótt- ast að margir finnskir ferðamenn hafi týnt lífi. Um 1.500 Norðmenn á svæðinu Jan Petersen, utanríkisráðherra Noregs, sagði í gær að 446 norskra ríkisborgara væri saknað í Taílandi. Talið væri að 930 Norðmenn til viðbótar hefðu verið á hamfara- svæðinu en ekki væri vitað hvar þetta fólk væri nú niður komið. Alls ræddi því um 1.376 norska ríkis- borgara sem ekkert væri vitað um en af þeim væri 446 nú formlega saknað. Yfirvöld hafa staðfest að 13 Norð- menn hafi týnt lífi í flóðunum. Tvö norsk börn, 12 og 3 ára fundust í gær látin í Taílandi. Þá komu tveir bræður, 8 og 10 ára, heim til Noregs í gær frá Taílandi. Foreldrar þeirra eru í hópi þeirra sem saknað er. Rúmlega 2.000 Svía saknað í Taílandi? Ekkert vitað um afdrif tæplega 450 Norðmanna í Taílandi Reuters Svíinn Olof Carlsson huggar taílenska unnustu sína, Oi, og fjölskyldu hennar er brennt var lík eins ættingja þeirra sem var meðal fórnarlamba flóðbylgjunnar í Thap Lamu, um 900 km sunnan við höfuðborgina Bangkok. JARÐSKJÁLFTINN við Súmötru sem olli flóðunum við Indlandshaf var einn af þeim sterkustu sem mælst hafa eða níu stig á Richter-kvarða. Að sögn AFP-fréttastofunnar var hann svo kröftugur að Súmatra færðist til suðvesturs um 36 metra. Súmatra er rösklega fjórum sinn- um stærri en Ísland. Jarðskjálftar verða gjarnan á svonefndum fleka- mótum í jarðskorpunni. „Jarðskjálft- inn hefur breytt heimskortinu,“ sagði Ken Hudnut, jarðeðlisfræðingur við Jarðfræðistofnun Bandaríkjanna í Los Angeles. Hann segir að auk færslunnar á Súmötru hafi margar litlar eyjar á Indlandshafi sennilega færst til um 20 metra. Heimskortið breyttist

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.