Morgunblaðið - 30.12.2004, Síða 18

Morgunblaðið - 30.12.2004, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT UM 30 manns fórust þegar hús, sem talið var aðsetur íraskra uppreisnar- manna, var sprengt upp í Bagdad í gær. Meðal hinna látnu eru að minnsta kosti sex lögreglumenn en líklegt þykir, að þeir hafi verið ginnt- ir á staðinn. Húsið var sprengt upp þegar lög- reglumennirnir voru komnir inn í það og svo öflug var sprengingin, að sex nærliggjandi hús hrundu til grunna. Segir talsmaður lögreglunn- ar, að húsið hafi augljóslega verið sprengjugildra og líklega hafi verið notuð allt að 800 kg af sprengiefni. Uppreisnarmenn í Mosul sprengdu í gær nokkrar sprengjur og kom þar til átaka við bandaríska hermenn sem felldu minnst 25 menn. Í fyrradag féllu 54 Írakar í árásum uppreisnarmanna, aðallega lög- reglumenn og þjóðvarðliðar. Talsmenn Íraksstjórnar segja, að skæruliðar, sem eru flestir súnnítar, reyni að koma af stað átökum milli súnníta og sjíta, sem eru um 60% landsmanna og vonast til, að kosn- ingarnar í næsta mánuði muni færa þeim völdin í hendur. Hafa þeir lengi verið kúgaðir af minnihluta súnníta. AP Rústir hússins, sem sprengt var í Bagdad í gær. Um 30 manns létust í því og nærliggjandi húsum. Leiddir í sprengjugildru Bagdad. AP, AFP. 55 ára bandarísk kona, sem gekk með þríbura fyrir dóttur sína, varð léttari á þriðjudag. Voru börnin þrjú, tveir drengir og ein stúlka, tekin með keisaraskurði á sjúkra- húsi í Richmond í Virginíu. Konan, sem heitir Tina Cade og er deildarstjóri hjá Richmond- háskóla, gekk með börnin fyrir elstu dóttur sína, sem þjáist af sjúk- dómi sem gerir barneignir ill- mögulegar. Dóttirin, Camille Hammond, og Jason eiginmaður hennar, sem bæði eru læknar við John Hopkins- sjúkrahúsið í Baltimore, höfðu reynt í fjögur ár að eignast barn. Cade fékk hugmyndina um að ganga með barn þeirra og hóf hormónameðferð sl. vetur, en hún var komin úr barneign. Nokkrum mánuðum síðar var þremur fóst- urvísum komið fyrir í legi hennar. Ekki var von á börnunum fyrr en í febrúar en læknar ákváðu að gera keisaraskurð á Cade vegna þess að þeir höfðu áhyggjur af því að hjarta hennar þyldi ekki meðgöng- una. Einnig þjáðist hún af miklum bólgum. Börnin eru á gjörgæsludeild. Þau vógu 7–9 merkur við fæðinguna. Camille Hammond sagðist hafa verið yfir sig glöð þegar hún sá börnin. „Orðin þrjú sem lýsa til- finningum mínum eru: Guð er góð- ur,“ sagði hún. Samkvæmt upplýsingum frá bandarískum heilbrigðisyfir- völdum eignuðust fjórar konur á aldrinum 50–54 ára þríbura í Bandaríkjunum árið 2002. Ekki fengust upplýsingar um barneignir kvenna sem eru 55 ára eða eldri. AP Camille Hammond (fyrir miðju) með eiginmanni sínum, Jason, eftir að móð- ir hennar ól þeim þríbura. Foreldrarnir eru báðir læknar í Baltimore. 55 ára gömul kona ól þríbura fyrir dótturina Richmond. AP. NOTI ung börn leikföng sem kenna þeim ákveðna færni geta áhrifin orðið varanleg og gert þau snjallari en ella á fullorðinsárum, að sögn fréttavefjar BBC. Vitnað er í rann- sóknir sem vísindamenn við Stan- ford-háskóla í Kaliforníu hafa gert á námsgáfum hjá uglum. Hefur komið í ljós að þær muna það sem þær hafa lært mjög ungar og geta notfært sér slíka kunnáttu síðar. Niðurstöðurnar eru birtar á vef- síðu vísindatímaritsins Nature Neuroscience. Margir foreldrar gefa ungum börnum sínum þroska- leikföng sem talin eru ýta undir ým- iss konar færni, til dæmis læra þau að greina á milli ólíkra forma og lita. Prófessor Eric Knudsen, sem stjórn- aði rannsókninni, segir að ákveðnar heilastöðvar verði virkari ef þær fái örvun í æsku. Þótt genaforritin stýri miklu um uppbyggingu heila og tauga geti börn á vissu þroskastigi auðveldlega brugðist við ýmsum ábendingum frá umhverfinu. Taugafrumurnar noti tækifærið til að byggja upp tengingar sem nýt- ist síðar og gott sé að börnin fái leik- föng sem gefi frá sér hljóð og hægt sé að sveigja. Einnig sé gott að barn- ið þurfi að pota í leikfangið eða kreista það til að fá svörun. „Leikföng hvetja [börnin] og ýta undir að þau læri. Mikilvægt er að leika við þau meðan heilinn er mjög ómótaður vegna þess að honum lík- ar vel að gera eitthvað sem hann getur lært af,“ segir Knudsen. Varanlegt gagn að leikföngum RAMSEY Clark, sem var dómsmálaráðherra Banda- ríkjanna í forsetatíð Lyndons B. Johnsons, hefur bæst í hóp þeirra lögfræðinga, sem munu verja Saddam Hussein, fyrr- verandi Íraksforseta, í væntanleg- um réttar- höldum yfir honum á næsta ári. Clark, sem kom í fyrradag til Jórdaníu, þar sem verj- endur Saddams hafa aðsetur, hefur getið sér orð sem vinstrisinnaður lögfræðingur og harður andstæðingur ut- anríkisstefnu Bandaríkjanna. Sótti hann Saddam heim í Bagdad í febrúar 2003, rétt fyrir innrásina, og hann hefur líka komið að vörn Slobodans Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu, en hann svarar nú til saka fyrir stríðsglæpi hjá Alþjóðasakamáladómstólnum í Haag. Clark segir að Bandaríkja- menn eða hernámsyfirvöldin í Írak hafi skipað dómstólinn, sem eigi að dæma Saddam, og því sé hann ólöglegur. Ramsey Clark ver Saddam Ramsey Clark Amman. AFP. HUNDRUÐ úkraínskra stjórnar- andstæðinga sátu í gær um stjórnar- ráðið í Kíev til að koma í veg fyrir að Viktor Janúkovítsj forsætisráðherra gæti haldið þar fund með stjórn sinni. Talsmaður stjórnarinnar sagði að hætt hefði verið við fundinn vegna umsátursins. Viktor Jústsjenko, for- setaefni stjórnarandstöðunnar, hvatti stuðningsmenn sína til að sitja um bygginguna eftir að Janúkovítsj neit- aði að játa sig sigraðan í forsetakosn- ingunum á sunnudaginn var. For- sætisráðherrann kærði framkvæmd kosninganna til hæstaréttar Úkraínu og sakaði andstæðinga sína um kosn- ingasvik. Fréttaskýrendur töldu þó mjög ólíklegt að dómstóllinn féllist á að ógilda kosningarnar. Kosningastjóri Janúkovítsj forsætisráðherra var á sama máli. „Allt hefur verið ákveðið fyrir fram, engar ákvarðanir verða okkur í vil,“ sagði hann. Jústsjenko virðist einnig viss um að dómstóllinn staðfesti úrslit kosning- anna og hann býr sig nú undir að taka við forsetaembættinu. Hann ræddi í fyrradag við helstu ráðgjafa sína um forgangsverkefnin fyrstu hundrað dagana eftir valdatökuna. „Innganga í Evrópusambandið verður meginmarkmið stjórnar minn- ar,“ sagði hann en lagði þó áherslu á að hún þyrfti einnig að reyna að tryggja góð samskipti við stjórnvöld í Rússlandi. Setið um stjórnarráðið uns ný stjórn verður mynduð Júrí Lútsenko, þingmaður Sósíal- istaflokksins, sem styður Jústsjenko, sagði að mótmælendurnir við stjórn- arráðið hefðu verið fullvissaðir um að forsætisráðherrann myndi ekki reyna að komast á skrifstofu sína í dag. Um 1.000 stjórnarandstæðingar tóku þátt í umsátrinu um stjórnarráð- ið, héldu á appelsínugulum borðum og fánum og kröfðust þess að for- sætisráðherrann segði af sér. „Janúkovítsj ætti að skammast sín fyrir að ríghalda í völdin,“ sagði einn mótmælendanna. Lútsenko sagði að stjórnarand- staðan hefði fengið upplýsingar um að forsætisráðherrann hygðist halda ríkisstjórnarfund utan höfuðborgar- innar en ekki yrði reynt að hindra hann. „Við höfum ekki í hyggju að elta Janúkovítsj út um allt land,“ sagði hann. Þing Úkraínu samþykkti tillögu um vantraust á stjórn Janúkovítsj 1. desember. Samkvæmt stjórnar- skránni getur stjórnin starfað í allt að tvo mánuði eftir atkvæðagreiðsluna. Stjórnarandstaðan segir að forsætis- ráðherrann hefði átt að afhenda for- setanum afsagnarbeiðni en hann neit- aði að gera það. Einn mótmælendanna, félagi í hreyfingu úkraínskra þjóðernissinna, sagði að umsátrinu um stjórnarráðið yrði haldið áfram þar til ný stjórn yrði mynduð. Janúkovítsj hóf störf að nýju sem forsætisráðherra á þriðjudag eftir að hafa verið í leyfi frá störfum vegna forsetaframboðsins. Hann kvaðst hafa lagt fram nær 5.000 kvartanir vegna framkvæmdar kosninganna og sagði að 4,8 milljónir manna hefðu ekki getað kosið, aðallega aldrað eða fatlað fólk. Munurinn á fylgi fram- bjóðendanna tveggja var 2,3 milljónir atkvæða. Þing Úkraínu samþykkti reglur, sem takmörkuðu rétt fólks til að kjósa heima hjá sér, og voru þær settar til að koma í veg fyrir að fólk gæti kosið oftar en einu sinni. Stjórnlagadóm- stóll landsins ógilti hins vegar regl- urnar daginn fyrir kjördag og stuðn- ingsmenn Janúkovítsj forsætisráð- herra segja að margir, sem komust ekki á kjörstað, hafi ekki vitað af þeim úrskurði. Vestrænir kosningaeftirlitsmenn segjast ekki hafa orðið varir við nein stórfelld svik. Rússneskir eftirlits- menn gagnrýndu hins vegar skipu- leggjendur kosninganna og vestrænu eftirlitsmennina fyrir „skort á hlut- lægni“. Hindruðu ríkis- stjórnarfund í Kíev Jústsjenko býr sig undir að taka við forsetaembættinu Kíev. AP, AFP. AP Stuðningsmenn Viktors Jústsjenkos, forsetaefnis stjórnarandstöðunnar í Úkraínu, fyrir utan stjórnarráðið í höfuðborginni Kíev þar sem um þúsund manns komu saman í gær til að hindra ríkisstjórnarfund Janúkovítsj.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.