Morgunblaðið - 30.12.2004, Síða 21

Morgunblaðið - 30.12.2004, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 2004 21 MINNSTAÐUR AUSTURLAND Djúpivogur | Þær Ásdís Heiðdal, Sara Dís Tumadóttir, Ragnhildur Kristjánsdóttir og Karen Sveins- dóttir úr tíunda bekk Grunnskóla Djúpavogs tóku sig til á milli há- tíða og buðu upp á gluggaþvott gegn vægu verði. Full þörf var á að þrífa glugga eftir óveðrið dagana á undan og tóku margir stúlkunum fegins hendi. Ágóðinn rennur í ferðasjóð nemenda í tíunda bekk sem stefna að því að fara í skemmtiferð erlendis eftir að skóla lýkur í vor. Morgunblaðið/Sólný Pálsdóttir Dugmiklar stúlkur Djúpivogur | Það hefur ríkt sannkall- aður jólafriður á Djúpavogi nú á milli hátíðanna. Eftir óveðrið um jólin datt allt í dúnalogn og veðrið hefur verið stillt og fallegt síðan. Gömul hús hafa alltaf sinn sjarma og það gildir um Triton, gamalt versl- unar- og útgerðarhús sem stendur við Voginn á Djúpavogi. Húsið var byggt árið nítján hundruð tuttugu og fjögur af norskum manni, Tanke Hjemgaard, sem kom frá Seyðisfirði og setti upp verslun. Húsinu hefur verið haldið ágætlega við og tók sig sérstaklega vel út í tunglskininu á fal- legu kvöldi milli jóla og nýárs. Morgunblaðið/Sólný Pálsdóttir Friðsælt á Djúpavogi Vopnafjörður | Þor- steinn Jósef Stef- ánsson á Vopnafirði varð 100 ára annan jóladag. Þorsteinn fæddist á Rauðhólum í Vopna- firði og voru foreldrar hans Stefán Stef- ánsson og Aðalbjörg Þorsteinsdóttir. Þor- steinn var yngstur þriggja barna þeirra Stefáns og Aðal- bjargar, sem upp komust. Eldri systk- ini hans voru Sigurjón og Valborg Stefanía, sem bæði eru látin. Þorsteinn stundaði vinnumennsku, en starfaði síðar einkum við smíðar, m.a. brúarsmíðar í mörg ár. Hann var vigtarmaður á bílavog á vegum hreppsins í nokk- ur ár og ennfremur vann hann á skrifstofu Kaupfélags Vopnfirð- inga. Þorsteinn sat í hreppsnefnd í fjögur ár, í mörg ár var hann í skólanefnd Vopnafjarðarskóla og sömuleiðis í sókn- arnefnd Vopnafjarð- arkirkju. Þá söng hann um árabil í kirkjukór Vopnafjarð- arkirkju. Hann var einn af stofnendum Kiwanisklúbbsins Öskju og var gerður að heiðursfélaga klúbbsins. Þorsteinn er tví- kvæntur. Fyrri kona hans var Sigrún Guð- mundsdóttir og eign- uðust þau tvær dætur. Sigrún lést 1945. Síð- ari kona Þorsteins var Þuríður Jónsdóttir frá Læknesstöðum á Langanesi. Hún lést árið 1993. Þorsteinn átti lengst af heima á Jaðri í Vopna- fjarðarkauptúni, en það er eitt elsta hús í Vopnafirði, byggt árið 1880. Aldargamall Vopnfirðingur Aldinn heiðursmaður Þorsteinn Jósef Stef- ánsson hélt upp á hundrað ára afmælið á annan dag jóla. Afgrei›slutímar Vínbú›a yfir hátí›irnar Höfu›borgarsvæ›i› Fimmtudagurinn 30.12. Föstudagurinn 31.12. Opnar Lokar Opnar Lokar Austurstræti 10:00 20:00 10:00 13:00 Dalvegur 11:00 20:00 10:00 14:00 Ei›istorg 10:00 20:00 10:00 13:00 Gar›abær 12:00 20:00 10:00 13:00 Hafnarfjör›ur 10:00 20:00 10:00 13:00 Hei›rún 09:00 20:00 09:00 13:00 Holtagar›ar 11:00 20:00 09:00 13:00 Kringlan 10:00 20:00 09:00 13:00 Mjódd 11:00 20:00 10:00 13:00 Mosfellsbær 11:00 20:00 09:00 13:00 Smáralind 11:00 19:00 09:00 13:00 Spöngin 11:00 20:00 09:00 13:00 Landsbygg›in Fimmtudagurinn 30.12. Föstudagurinn 31.12. Opnar Lokar Opnar Lokar Akranes 11:00 19:00 10:00 13:00 Akureyri 11:00 20:00 9:00 13:00 Blönduós 11:00 19:00 9:00 12:00 Borgarnes 11:00 19:00 10:00 13:00 Bú›ardalur 16:00 19:00 9:00 12:00 Dalvík 13:00 19:00 9:00 12:00 Djúpivogur 16:00 19:00 9:00 12:00 Egilssta›ir 11:00 19:00 10:00 12:00 Fáskrú›sfjör›ur 16:00 19:00 10:00 12:00 Grindavík 11:00 19:00 10:00 12:00 Grundarfjör›ur 16:00 19:00 9:00 12:00 Hólmavík 16:00 18:00 10:00 12:00 Húsavík 13:00 20:00 9:00 12:00 Hvammstangi 16:00 18:00 9:00 12:00 Hvolsvöllur 14:00 19:00 10:00 12:00 Höfn 11:00 19:00 10:00 13:00 Ísafjör›ur 11:00 19:00 9:00 12:00 Keflavík 11:00 19:00 9:00 12:00 Kirkjubæjarklaustur 16:00 19:00 10:00 13:00 Neskaupsta›ur 11:00 19:00 9:00 12:00 Ólafsvík 11:00 19:00 10:00 12:00 Patreksfjör›ur 13:00 19:00 10:00 12:00 Sau›árkrókur 11:00 19:00 9:00 12:00 Selfoss 11:00 19:00 9:00 12:00 Sey›isfjör›ur 16:00 19:00 9:00 12:00 Siglufjör›ur 10:00 19:00 9:00 12:00 Stykkishólmur 14:00 18:00 9:00 12:00 Vestmannaeyjar 11:00 19:00 9:00 12:00 Vík í M‡rdal 16:00 19:00 9:00 12:00 Vopnafjör›ur 16:00 19:00 9:00 12:00 fiorlákshöfn 16:00 19:00 10:00 12:00 fiórshöfn 16:00 19:00 9:00 12:00 Nánari uppl‡singar um afgrei›slutíma er a› finna á vinbud.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.