Morgunblaðið - 30.12.2004, Side 23

Morgunblaðið - 30.12.2004, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 2004 23 MINNSTAÐUR ÁRBORGARSVÆÐIÐ Selfoss | „Mér finnst fólk hafa góða vitund gagnvart umhverfisvernd og það tekur vel eftir þeim áróðri og áherslum sem við setjum fram um þessi mál í fréttatilkynningum og bæklingum,“ segir Guðmundur Tryggvi Ólafsson, umhverfisfræð- ingur Sorpstöðvar Suðurlands, en hann tekur við starfi fram- kvæmdastjóra stöðvarinnar eftir áramótin. Hann segir starfið leggj- ast vel í sig en fyrirliggjandi er samkomulag um starfsemi stöðv- arinnar og finna þarf lausn á urð- unarmálum fyrir mitt ár 2008. Guðmundur Tryggvi er menntað- ur umhverfisfræðingur frá Dan- mörku og undanfarin ár hefur starfssvið hans verið ráðgjöf og fræðsla til fyrirtækja og almennings varðandi úrgangsstjórnun. Hann er því vel að sér um verkefni Sorp- stöðvar Suðurlands og starfsvett- vang. „Þetta snýst um meðhöndlun á úrgangi, að fara að lögum og reglum og fylgja eftir þeim mögu- leikum sem eru og kanna nýja far- vegi. Svo er stöðugt unnið að því að halda betur utan um tölfræðina sem sýnir árangur íbúanna en það er stjórntæki við að greina kostnað og leggja mat á þær leiðir sem fyrir hendi eru, bæði það sem fer til end- urvinnslu og það sem fer til eyð- ingar. Við fylgjum vel eftir þeim ferlum sem byrjað hefur verið á svo sem varðandi pappírinn, að hann fari alla leið í endurvinnslu. Sama er að segja um fernurnar. Þetta er mikilvægt til að skapa tiltrú fólks á endurvinnslunni. Við erum alltaf að ná betur og betur utan um tölfræðina svo sem að vita hvar úrgangur fellur til og í hve miklum mæli. Þetta er í raun ákveðin auðlindastjórnun og með réttri verðlagningu á auðlindunum eru meiri líkur til að efnin, það er að segja auðlindirnar, skili sér til endurvinnslu. Það má og segja að sorpið sé auðlind, í því eru efni sem eru tiltæk og við þurfum að finna leiðir til að nýta þau. Brotajárn er til dæmis stór þáttur í úrgangi frá fyrirtækjum en um þrjú þúsund tonn af járni koma af svæðinu á ári og fyrirtæki svara vel gagnvart þessum þætti, menn skynja verð- mætið í járninu. Svo erum við hér á svæðinu með mikinn kjötiðnað og eðlilega mikinn úrgang af því tag- inu,“ segir Guðmundur Tryggvi og bætir við að næsta verkefni Sorp- stöðvarinnar sé að gera svæðis- áætlun um meðhöndlun úrgangs og lýsingu á stöðu mála. Vill upplifa landið „Svo er sveitarfélögunum ætlað að ná árangri við meðhöndlun úr- gangs og þess er krafist að þau geri áætlun um hvernig þau ætla að ná þessum árangri.“ „Ég held að ég sé með græn gen og hef alltaf verið í góðum tengslum við náttúruna. Afar mínir voru ræktunarmenn og í ættinni er nátt- úrufólk, hestamenn og fuglaskoð- arar. Ég var á mínum yngri árum heilu sumrin í sumarbústað foreldra minna og fór í fuglaskoðunarferðir með afa mínum. Náttúran togar alltaf í mig, á sumrin eru það fjöllin en síðustu þrjú árin hef ég ferðast mikið um hálendið á mótorhjóli. Maður sækist eftir að upplifa landið og skoða það sem fyrir augu ber. Ég byrja hvert sumar á því að fara í Bjarnarey og síga eftir eggjum. Lundaferð til Vestmannaeyja er síðan alltaf á dagskrá á hverju ári. Þannig er töluverður veiðimaður í mér, ég fer auk þessa á rjúpu, gæs, í stangaveiði og líka á hrein- dýraveiðar. Þetta tengist allt því að upplifa náttúruna og maður finnur fyrir tómleika að geta ekki farið á rjúpu en þá saknar maður göng- unnar um fjöllin,“ segir Guðmundur Tryggvi þegar hann segir frá sjálf- um sér og áhugamálunum en hann lætur ekki staðar numið við úti- vistina. Hann er vel liðtækur júdó- maður og stundar júdó sem heilsu- rækt á veturna og hefur líka kennt júdó til að viðhalda greininni á Sel- fossi þar sem 30–50 manns iðka júdó reglulega. Hann hefur einnig starfað í björgunarsveit, róið á kaj- ak og fengist við köfun. „Það er svo aftur á móti mjög gott að geta skilið vinnuna eftir á vinnustaðnum þó svo auðvitað vaki umhverfisvitundin alltaf með manni. Maður fer heim til fjölskyldunnar og þá á hún hug manns allan og annað víkur,“ segir Guðmundur Tryggvi Ólafsson, verðandi fram- kvæmdastjóri Sorpstöðvar Suður- lands, sem er nýorðinn tveggja barna faðir og býr á Selfossi. Verðandi stjóri Sorpstöðvar Suðurlands þeysist á mótorhjóli um hálendið, veiðir lunda og æfir júdó Náttúran togar alltaf í mig Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Umhverfið Guðmundur Tryggvi Ólafsson, verðandi framkvæmdastjóri Sorpstöðvar Suðurlands, við yfirlitskort um móttökustöðvar á Suðurlandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.