Morgunblaðið - 30.12.2004, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 30.12.2004, Qupperneq 32
32 FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN A ðfangadagur jóla er mikilvægur tími í huga flestra Íslend- inga. Hann er tími fjölskyldunnar, tími hátíðar og hefða. Allt skal helst vera eins og það hefur alltaf verið. Jólasteikin, jólapakkarnir, jólafötin og jólatréð – allt er þetta ómissandi hluti jólanna. Ég ákvað hins vegar að bregða út af vananum um þessi jól. Fór þó ekki til Kanaríeyja eins og hundruð Íslendinga, heldur til Úkraínu. Nánar tiltekið til Kænugarðs, höfuðborgar Úkr- aínu, og síðan til borgarinnar Zhytomir, sem er rétt vestan við Kænugarð. Ferð mín til þessa framandi lands hlaut misjafnar undirtektir meðal vina og vandamanna. Ekki síst í ljósi þess að nú eru jólin – hin mik- ilvæga fjöl- skylduhátíð. Það þykir með öðrum orðum stór ákvörðun að „sleppa“ jólunum og eyða þeim „aleinn“ á ókunnum slóðum. „Hrikaleg örlög að vera í Kænu- garði um jólin,“ sagði einn kunn- ingi við mig; kannski þó meira í gríni en alvöru. Aðrir voru meira uppörvandi. „Það koma jól eftir þessi jól,“ sagði nákom- inn ættingi hughreystandi. „Að- ventan er í raun stærsti hluti jólanna, þ.e. tilhlökkunin og undirbúningurinn. Dagurinn sem allt snýst um, aðfangadagur jóla, er liðinn áður en maður veit af.“ Það eru orð að sönnu. Með þau orð í farteskinu, einn jóla- pakka, og hlý föt hélt ég af stað til Úkraínu, tveimur dögum fyr- ir aðfangadag. Þar hélt ég eft- irminnileg jól. Þau voru hvorki hvít né rauð – heldur appels- ínugul. Litur byltingarinnar, sem hafnaði niðurstöðum for- setakosninganna í lok nóvember sl. og þrýsti á um endurteknar kosningar, átti eftir að ráða ríkj- um, að minnsta kosti í vestur- hluta landsins. Áður en lengra er haldið má geta þess að Úkr- aínumenn halda flestir jólin há- tíðleg 6. og 7. janúar. Þá daga heldur stórfjölskyldan veislu; hátíðarmatur er borinn á borð og söngvar eru sungnir. Þeir gefa líka hver öðrum gjafir. Þó ekki á jólunum, eins og við, heldur um áramótin. Fjöl- skyldan hittist á gamlársdag, setur pakka undir jólatré, og opnar þá á gamlársdag og ný- ársdag. „Við notum hvert tæki- færi til að fagna og halda veisl- ur,“ útskýrði úkraínsk stúlka. Hljómar óneitanlega kunn- uglega í eyrum Íslendings. Það var lítið sem minnti á að- fangadag jóla, okkar Íslendinga, í borginni Zhytomir, þegar ég kom þangað hinn 24. desember. Þetta var bara ósköp venjulegur föstudagur. Heimamenn voru uppteknir við að sinna sinni hversdagslegu iðju. Einhverjir voru þó augljóslega með hugann við jólin. Af og til mátti til dæm- is sjá konur og karla draga á eftir sér lítið grenitré í snjónum. Miðbærinn hafði líka verið skreyttur örlítið, með einstökum jólatrjám og jólaljósum. En það var ekki bara jólaskraut sem prýddi, ef svo má segja, miðbæ- inn í Zhytomir, fremur en aðra bæi í Úkraínu. Víða mátti sjá appelsínugula og bláa borða, sem minntu á forsetakosning- arnar sem framundan voru. Borðarnir voru hnýttir á trjá- greinar, á útvarpsstangir bíla og á ljósastaura. Þeir sem hafa fylgst með kosningunum í Úkr- aínu vita að litirnir eru tákn for- setaframbjóðendanna; appels- ínuguli liturinn er litur Jútsenkós og blái liturinn er lit- ur Janúkovíts. Einn daginn sá ég krakka hnýta bláa borða á trjágreinar við aðalgötu Zhytom- ir. Næsta dag sá ég aðra krakka taka niður bláu borðana og hnýta appelsínugulu borðana í staðinn. Síðarnefndi liturinn var þó meira áberandi í bænum enda tilheyrir hann vesturhluta lands- ins, þeim landshluta þar sem Jútsenkó sækir helst fylgi sitt. Janúkóvíts sækir meira fylgi til austur- og suðurhluta landsins. En aftur að jólunum. Þrátt fyrir að Úkraínumenn haldi ekki upp á jólin 24. desember kom ekki annað til greina, í mínum huga, en að gera sér glaðan dag, þá um kvöldið. Eftir að hafa komið mér fyrir á hótelherberginu í Zhytomir (sem var svo kalt að það tók því ekki að setja vatns- flöskurnar inn í ísskáp – hita- stigið í herberginu hélt þeim köldum) ákvað ég, ásamt hópi útlendinga, að finna veitingastað þar sem hægt yrði að halda upp á jólin að okkar hætti, og borða „jólamáltíðina“. Eini staðurinn sem var laus var ítalskur veit- ingastaður, af öllum, í mið- bænum. Niðurstaðan var semsé þessi: aðfangadagur á ítölskum pitsustað í Úkraínu. Er hægt að hugsa sér meiri þversögn? Ég verð alltént að viðurkenna að jólastemningin var ekki sér- staklega mikil. Tveimur dögum síðar rann annar veruleiki upp. Úkraínumenn kusu sér forseta og hinn 27. desember kom í ljós að Jútsenkó hafði hlotið meiri- hluta atkvæða. Þúsundir fylg- ismanna hans söfnuðust saman í miðborg Kænugarðs til að fagna úrslitunum þá um kvöldið. Nánir stuðningsmenn Jútsenkós héldu sigurræður og fólk hrópaði nafn hans; Jútsenkó, Jútsenkó. App- elsínuguli liturinn var ríkjandi, en lítið bar á bláa litnum. Götusölumennirnir sáu sér leik á borði. Gömlu trébabúsk- unum og öðrum hefðbundnum söluvarningi var ýtt til hliðar fyrir appelsínugular vörur; trefla, húfur, rósir og jafnvel kanínueyru. Aldnar sölukonar og sölukarlar, sem sennilega muna tímana tvenna, höfðu skyndilega nóg að gera. Biðraðir mynduðust fyrir framan sölubásana, flestir vildu eignast appelsínugular vörur. Verðið hækkaði líka eftir því sem eftirspurnin varð meiri. Þrátt fyrir fjöldann var and- rúmsloftið rólegt. Fólk spókaði sig um með appelsínugula tákn- ið, var glaðlegt á svip og batt greinilega miklar vonir við nýjan forseta, t.d. væntingar um betri lífskjör. Hvort þær væntingar eiga eftir að verða að veruleika verður tíminn einn að leiða í ljós. Appelsínu- gul jól „Gömlu trébabúskunum og öðrum hefð- bundnum söluvarningi var ýtt til hliðar fyrir appelsínugular vörur; trefla, húfur, rósir og jafnvel kanínueyru.“ VIÐHORF Eftir Örnu Schram arna@mbl.is EFTIR að Framsóknarflokkur- inn tók við völdum í stjórnarráðinu má fullyrða að efnahagsstjórnunin hafi farið halloka. Seðlabanki Ís- lands heyrir undir forsætisráðu- neytið. Þrátt fyrir út- rás bankanna á innlendum fasteigna- markaði hefur rík- isstjórn Íslands ekk- ert aðhafst í málinu. Seðlabankinn vinnur eftir pólitískri stefnu sem ríkisstjórnin set- ur stofnuninni og má því fullyrða að rík- isstjórn Íslands fái falleinkunn í aðgerða- leysi sínu á ein- hverjum mestu þenslutímum í sögu íslensku þjóðarinnar. Það hlýtur að teljast athugsunarvert þegar for- stjóri eins stærsta fjármálafyr- irtækis þjóðarinnar stígur fram á sviðið og gagnrýnir óbeint rík- isstjórnina, fjármálaeftirlitið og Seðlabanka Íslands fyrir þann ótrúlega dofa að láta íslenskar bankastofnanir komast upp með innspýtingu fjármagns (erlent lánsfé) í eins miklum mæli og raunin hefur verið á undanförnum misserum. Gagnrýni forstjórans ætti í raun að hafa komið úr hinni áttinni, frá ríkisstjórninni. Það myndi margur hvá við ef Emil vin- ur okkar í Kattholti myndi taka föður sinn karlinn á teppið fyrir skamma sig ekki fyrir asnaprikin. Í stað þess að viðhalda stöðugleika í efnahagsmálum þjóðarinnar ákvað ríkisstjórn Íslands að elta framsóknarloforðið um 90% hús- næðislánin. Og það þrátt fyrir að fjármálafyrirtæki á markaði væru þegar farin að bjóða 100% lán og oftast á lægri vöxtum. Fram- leiðslufyrirtæki, útflutningsfyr- irtæki og margvíslegur iðnaður í landinu verður fyrir barðinu á þessum asnaprikum ríkisstjórn- arinnar. Gengi krónunnar er í dag útflutningsatvinnuvegunum mjög óhagstætt. Hinn vinnandi maður, sjómaðurinn, fiskverkunarkonan, hátæknifyrirtæki í framleiðslu eins og Marel, Össur og fleiri fá þungar byrðar af þessu framsókn- arsukki og bulli eins og ég leyfi mér að kalla aðgerðir rík- isstjórnarinnar. Hvernig geta sannir sjálfstæðismenn sætt sig við þessa þróun? Ríkisstjórnarsam- starfið hlýtur að vera þeim erfitt í dag. Það er Framsóknarflokk- urinn sem dregur vagninn í ranga átt og er við stjórnvölinn í ríkisstjórn- arsamstarfinu í dag. Snúum vörn í sókn Í stað þess að spila varnarleik við fyrirtækin í landinu, rétt eins og Íbúðalánasjóður gerir á fast- eignamarkaði við fjármálafyrirtæki á markaði, tel ég aðrar leiðir betri og skynsamlegri. Í fyrsta lagi ber okkur að vinna með fyrirtækjunum í stað þess að berjast við þau. Endurskoðum hlutverk Íbúðalána- sjóðs og tryggjum að félagið keppi ekki á sama markaði og önnur frjáls fjármálafyrirtæki í landinu. Í annan stað vil ég sjá samleið og samvinnu milli íslenskra yfirvalda og íslenskra stórfyrirtækja í útrás. Sjálfstæðismenn eiga að hengja orðu á Jón Ásgeir Jóhannesson í stað þess að elta hann uppi og finna honum allt foráttu. Fyrirtæki hans hefur unnið stórvirki um víð- an völl. Er ekki gáfulegt að ís- lenskur iðnaður, íslensk fram- leiðsla og íslenskur útflutningur fái tækifæri með eins öflugum fé- lögum og Baugur Group & Big Food Group? Í þriðja lagi ber okk- ar að stórefla nýsköpun í þessu landi. Skilyrði er að framsókn- armenn komi þar ekki að dreifingu fjármagns heldur að hvati frá rík- isstjórninni verði settur fram til fjármálafyrirtækja á markaði að fjárfesta tímabundið í óskráðum félögum. Er hugsanlegt að lífeyr- issjóðirnir eigi þar hlutverki að gegna? Við getum ekki sett alla ábyrgðina á stóriðjufyrirtæki í eigu erlendra aðila. Í fjórða lagi ber okkur að opna á rannsóknir og vísindi í íslenskum sjávarútvegi. Það verður að viðurkenna þá hörmung sem fylgt hefur aðferða- fræði HAFRÓ og Árna Mathiesen ráðherra. Stöðnun eða miklu frek- ar afturför er raunin að óbreyttu. Tekjurnar er rígbundnar í úrelt vísindi sem eiga ekkert erindi við umhverfið okkar og þær sí- breytilegu aðstæður sem koma upp hverju sinni í umhverfinu. Ís- lensk þjóð getur stóraukið tekjur sínar af sjávarútvegi með því einu að gefa hafrannsóknir frjálsar. Þessu verðum við að breyta. Þó það verði mitt síðasta verk mun ég berjast af alefli fyrir breyttum áherslum á þessu sviði. Hér er um að ræða eitt stærsta og veigamesta mál sem lýtur að efnahagsmálum þjóðarinnar. Til allrar lukku virð- ast landsmenn, fleiri og fleiri, styðja þá fullyrðingu að HAFRÓ og Árni Mathiesen hafa brugðist hlutverki sínu. Það er kominn tími til að fjölmiðlar vakni fyrir málinu og sinni því af krafti. Það á engan að undra þegar sagt er að sjálfstæðismenn, í sinni vinstri sveiflu, tryggi að Frjáls- lyndi flokkurinn sé eina heilbrigða hægra aflið í íslenskum stjórn- málum í dag. Sókn er besta vörnin Gunnar Örlygsson fjallar um stjórnmál ’Þó það verði mitt síð-asta verk mun ég berj- ast af alefli fyrir breytt- um áherslum á þessu sviði.‘ Gunnar Örlygsson Höfundur er alþingismaður. MÉR blöskra skrif Sverris Her- mannssonar um Íraksmálið og sú blinda heift sem hann virðist hald- inn í garð forsætis- og utanrík- isráðherra, t.d. í Morgunblaðinu 23. desember sl. Ég ætla að halda áfram í góða ímynd af Sverri þegar hann var öflugur málsvari Austfirðinga sem þingmaður kjördæm- isins. Við erum mörg sem erum Sverri þakklát fyrir vel unn verk hans, ekki síst þegar hann barðist fyrir stóriðju á Reyð- arfirði og virkjun hér fyrir austan. Viðsnún- ingur hans afstöðu til þeirra mála virðist eitt dæmi af mörgum um heift í garð forsætis- og utan- ríkisráðherra. Mér leist ekki á blikuna þegar Sverrir, sem bankastjóri Lands- banka Íslands, stóð að því að ákveða hærri vexti í Landsbanka Íslands, en ríkisstjórn og Seðla- banki höfðu þá ákveðið! Þá skrifaði Davíð sem forsætisráðherra Sverri áminningarbréf – sem Sverrir lét svo birta opinberlega. Auðvitað hafði Sverrir ekkert umboð, sem bankastjóri ríkisbanka í 100% eigu ríkisins, til að ákveða hærri vexti en ríkisstjórn og Seðlabanki. Svo hætti Sverrir sem bankastjóri og síðan þá virðist hann óstöðvandi í blindum hefndaraðgerðum gagn- vart forsætis- og utanríkis- ráðherra. Mér þykir nóg komið! Þegar utanríkis- og forsætisráð- herra leiddu ákvarðanatöku í Íraksmálinu höfðu þeir ekki bara fullt umboð sem æðstu handhafar framkvæmdavaldsins, heldur ríkar skyldur til athafna í samræmi við varnarsamning okkar við Bandaríkin og að- ild Íslands að NATO. Ráðherrar og rík- isstjórn höfðu fullt umboð og skyldur til að starfa, með meiri- hluta vestrænna lýð- ræðisríkja gegn hryðjuverkum og ógn- arstjórnum. Að halda öðru fram er ekki bara pólitískur þvætt- ingur heldur rógburð- ur! Þeir sem eru póli- tískt á móti vestrænu samstarfi í varnar- og öryggis- málum og á móti alþjóðlegu sam- starfi gegn hryðjuverkum – þeir um það. En ég er búinn að fá upp í háls af þvættingi um að ríkisstjórn Íslands hafi ekki haft umboð til að setja Ísland á lista hinna staðföstu þjóða. Þeir höfðu fullt umboð skv. stjórnskipun lýðveldisins! Þeir sem nú ætla að birta auglýsingu í New York Times – til að reyna að vera okkur öllum til skammar – verða að skýra með staðfestum hætti, hve margir standa að þeirri aug- lýsingu og hve stór hundraðshluti þjóðarinnar það er! Hópur minni- hluta þjóðarinnar hefur ekkert umboð til að stunda óhróður með auglýsingum um ráðherra í rík- isstjórn Íslands á opinberum vett- vangi erlendis. Leiðtogar núver- andi ríkisstjórnar eru að slá hvert metið af öðru í alþjóðlegum sam- anburði í stjórn efnahagsmála og bættum lífskjörum hérlendis. Fyr- ir það ber að þakka – með öðrum hætti en óhróðri og rógburði! Nú hugsar einhver að mér væri nær að þegja, manninum sem er sífellt röflandi yfir því að ekki megi veiða meiri þorsk. Það kann að vera réttmæt athugasemd, en ég er ekki svo staurblindur út af mínum vel rökstuddu sjónarmiðum í þorskveiði að ég geti ekki þakkað það sem vel er gert á öðrum vett- vangi! Ég tel það skyldu mína sem ábyrgur þjóðfélagsþegn að verja ráðherra í ríkisstjórn Íslands þeg- ar að þeim er vegið með óþverra- legum og rætnum óhróðri – að þeir hafi ekki umboð til að stjórna landinu í samræmi við stjórn- skipum lýðveldisins og samninga okkar um varnarsamstarf vest- rænna lýðræðisríkja! Það vill eng- inn stríð! En það er einfaldlega skylda okkar að taka þátt í al- þjóðlegri baráttu gegn hryðjuverk- um og ógnarstjórnum. Nóg komið hjá Sverri og fleirum Kristinn Pétursson fjallar um málflutning ýmissa aðila og stefnu ríkisstjórnarinnar ’Ég tel það skyldu mínasem ábyrgur þjóðfélags- þegn að verja ráðherra í ríkisstjórn Íslands þeg- ar að þeim er vegið með óþverralegum og rætn- um óhróðri …‘ Kristinn Pétursson Höfundur er fiskverkandi á Bakkafirði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.