Morgunblaðið - 30.12.2004, Side 38

Morgunblaðið - 30.12.2004, Side 38
38 FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ RagnheiðurMagndís Guðrún Finnbogadóttir ljós- móðir fæddist á Þið- riksvöllum í Stranda- sýslu 7. september 1915. Hún andaðist á Heilbrigðisstofnun Bolungarvíkur 19. des. síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Finnbogi Jón Guð- mundsson, f. 17. sept. 1884, d. 2. sept. 1948, og Steinunn Magnús- dóttir frá Hrófbergi í Steingrímsfirði, f. 10. júní 1883, d. 18. apríl 1938. Systkini Guðrúnar: Bernódus, f. 1911, d. 1998, Sigurvin, f. 1918, d. 2001, Sig- urgeir, f. 1922, d. 1993, Steinunn, f. 1924 og Magnús, f. 1927. Guðrún giftist 14. júní 1941 Gunnlaugi Halldórssyni, sýsluskrif- ara á Ísafirði, f. 28. nóv. 1906, d. 16. júlí 1962. Börn þeirra: Steinunn Finnborg, Ármann, Sigríður, Elísa- bet María og Pétur Yngvi. Fyrri kona Gunnlaugs var Anna Guðrún Jónsdóttir, f. 1909, d. 1952 og eign- uðust þau einn son, Halldór, f. 1930, d. 1977, maki Sigrún Óskarsdóttir og eiga þau sex börn og átta barna- börn. Afkomendur Guðrúnar og Gunn- laugs eru: 1) Steinunn Finnborg skrifstofumaður, f. 1939, maki Árni Guðjónsson lögfræðingur, f. 1928, d. 2003, börn: A) Sigríður, f. 1959, fyrri maki Þorsteinn Pálsson, f. 1955, börn: a) Steinunn, f. 1977, 1966, börn: Sigurbjörn, f. 1994 og Petra Ísold, f. 2000. C) Ingvar Örn, f. 1973, maki Eyrún Rafnsdóttir, f. 1971, barn: Gunnlaugur Rafn, f. 2003. 4) Elísabet María leikskóla- kennari, f. 1945, maki Finnbogi Jó- hann Jónasson harðfiskframleið- andi, f. 1940, börn: A) Gunnlaugur Ármann, f. 1965. B) Guðrún Anna, f. 1970, maki Steinar Ríkharðsson, f. 1973, börn: Finnbogi, f. 1999 og Ríkharður Ingi, f. 2003. C) Jónas Hallur, f. 1971, barnsmóðir: Bettina Kristiansen, f. 1977, barn: Grímur Dion, f. 1997. D) Grímur Freyr, f. 1972. 5) Pétur Yngvi prentsmiður, f. 1948, fyrri maki Helga Játvarð- ardóttir, f. 1940, barn: A) Rósa, f. 1973, maki Eiríkur Sigurðsson, f. 1974, barn: Heimir Yngvi, f. 2004, seinni maki Ágústína Guðmunds- dóttir meinatæknir, f. 1945, barn: B) Finnbogi Jökull, f. 1988. Guðrún ólst upp í Bolungarvík. Hóf nám 1935 í Ljósmæðraskóla Ís- lands og lauk námi 30. sept. 1936. Strax að loknu námi var hún skipuð ljósmóðir í Bolungarvík. Fluttist til Ísafjarðar 1941 og sinnti búi og börnum auk þess að leysa ljósmæð- ur á Ísafirði af 1941–1965. For- stöðumaður Sjúkraskýlisins í Bol- ungarvík og ljósmóðir þar 1965–1968; ljósmóðir á Sólvangi, Hafnarfirði 1970–74. Forstöðumað- ur Elliheimilis Ísafjarðar 1974– 1981. Formaður barnaverndar- nefndar Ísafjarðar 1956–1960 og formaður mæðrastyrksnefndar þar um skeið. Hún starfaði í Kvenfélag- inu Hlíf, með Leikfélagi Ísafjarðar og Átthagafélagi Strandamanna. Guðrún var félagi í Sósíalistafélagi Ísafjarðar. Guðrún verður jarðsungin frá Ísafjarðarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. maki Garðar Örn Ró- bertsson, f. 1977, börn: Þorsteinn Orri 1998 og Þórunn Harpa 2002. b) Guðjón Örn, f. 1979, maki Drífa Gunn- björnsdóttir, f. 1979, barn: Árni Páll, f. 2004. c) Anna, f. 1989, seinni maki Sigríðar Ari Gunnarsson, f. 1963, börn: d) Þórey Björk, f. 1996 og e) Guðrún Gígja, f. 1998. B) Elísabet, f. 1960, fyrrverandi maki Ás- geir Vilhjálmsson, f. 1957, börn: Árni Stefán, f. 1982, Rebekka Dagmar, f. 1986 og Vil- hjálmur, f. 1988. C) Guðjón, f. 1964, maki Sólveig Pétursdóttir, f. 1965, börn: Hulda, f. 1985, Árni, f. 1988, Ingi Freyr, f. 1991 og Þórey, f. 1996. D) Árdís Gunnur, f. 1966, barnsfaðir: Einar Sverrir Einars- son, f. 1944: a) Einar Ágúst, f. 1984, maki Árdísar Stefán Jóhann Bald- vinsson, f. 1953, börn: b) Atli Steinn, f. 1988 og Sigurður Árni, f. 1993. E) Halldór, f. 1970. 2) Ármann bifvéla- virki, f. 1942, maki Katrín Eyjólfs- dóttir skrifstofumaður, f. 1943, börn: Eyjólfur, f. 1965 og Ragnheið- ur Jóna, f. 1969, maki Trond Are Schelander, f. 1973, börn: Ármann, f. 1998 og Knut Egil, f. 2000. 3) Sig- ríður skrifstofumaður, f. 1943, maki Sigurbjörn Bjarnason bif- reiðasmiður, f. 1942, börn: A) Gunn- laugur, f. 1963, d. 1996. B) Bjarni, f. 1966, maki Sóley Jakobsdóttir, f. Stormur og snjókoma. Norðanbálið nístir í gegnum merg og bein. Ung kona með stóra tösku á bakinu brýst áfram í óveðrinu. Rúm- lega tvítug ljósmóðir í Bolungarvík vestur. Sumar sem vetur gengur hún í hús- in í þorpinu og tekur á móti börnum. Svo er hún líka kölluð til ef eitthvað annað bjátar á. Þessi stúlka er hún mamma okkar. Við munum eftir ljósmóðurtöskunni – dýrgrip sem lendir síðar suður í Afr- íku. Auðvitað lætur hún töskuna af hendi þegar á þarf að halda. Það er hennar stíll. Ungur maður á Ísafirði rennir hýru auga til léttfættu ljósmóðurinnar í Víkinni og áður en við er litið hafa þau sett saman bú og börnin koma hvert af öðru. Hún stendur við eldavélina, hellir upp á könnuna, brosir að sprellinu í pabba. Þau eru svo oft skemmtileg, mamma og pabbi. Pabbi veikur. Við vitum minnst um það litlar manneskjur. Það vantar hjúkrunarfólk á spítal- ann en mamma – með yngsta soninn í fanginu segir við lækninn: „Ég get komið og hjúkrað honum.“ Pabbi fær pláss á spítalanum og við krakkarnir hjá fólkinu okkar. Það eru nokkrir dagar til jóla. Við rúmgaflinn eru pressuð pils og peysur til að vera í á litlu jólunum. Mamma hefur vakað alla nóttina til að ljúka við fötin á litlu stelpurnar. Glaði góði pabbi okkar er dáinn. Mamma missir manninn sinn, hún grætur ekki. Sárið blæðir inn. Hennar kynslóð ber harm sinn í hljóði. Og samt er hún svo viðkvæm, hún mamma. Fjörutíu og átta ára orðin ekkja. Lætur ekki deigan síga. Ræður sig í vinnu út í Bolungarvík. Vinnur sem forstöðukona og ljós- móðir. Fer fræga ferð til sængurkonu á vélsleða milli Ísafjarðar og Bolungar- víkur. Ein af fyrstu ferðunum sem farin er á þvílíku tæki á Vestfjörðum. Í minnum er hafður útbúnaðurinn á frúnni þegar hún var bundin á sleð- ann. Árin líða, mamma flytur suður um tíma og vinnur á ýmsum stöðum. En römm er sú taug – stendur ein- hvers staðar og á áttunda áratugun- um er hún aftur komin vestur. Nú sem forstöðukona Elliheimilisins á Ísafirði og þar lætur hún hendur standa fram úr ermum í endurbótum. Skellir sér í málningargalla, lagar til á lóðinni, gerir það sem gera þarf eins og henni einni er lagið. Starfsdegi lýk- ur snögglega þegar hún dettur í hálku, hún brotnar illa og nær sér aldrei eftir það. Hugurinn er samt mikill og nú fara kraftarnir í keramik og ýmiskonar hannyrðir og málun. Hvort sem hún er sunnan lands eða vestan er hún óð- ar komin á námskeið. Býr í íbúðinni sinni í Hamraborg í Kópavogi um árabil og síðar í Reyni- hvammi í Kópavogi þar sem hún býr með yngsta syni sínum og tengda- dóttur. En síðasti flutningur hennar vestur á land er í mars 1992 þegar hún flytur alfarin á Ísafjörð og kaupir sé íbúð á Hlíf. Efri árin taka við og eins og oft vill verða ríða áföll yfir fjöl- skylduna. Það er henni þungt en áfram stendur hún bein í baki. Ellin sækir á og um síðir flytur hún inn á Heilbrigðisstofnun Bolungar- víkur, hún er komin á staðinn þar sem hún undi forðum, full af starfsgleði og þrótti. Og það er hugsað um hana af sömu nærgætninni og alúðinni og hún sýndi sjálf. Þar sofnar hún svefninum langa hinn 19. desember sl. Við börn- in hennar þökkum því frábæra fólki sem hugsaði um hana. Sérstakar kveðjur fyrir samveru á aðventu til starfsfólksins á Heilbrigð- isstofnun Bolungarvíkur með kærri þökk. Börnin. Það er komið að leiðarlokum, mik- ilhæf kona er gengin og margs er að minnast. Guðrún Finnbogadóttir tengdamóðir mín til yfir fjörutíu ára var kjarnakona, vel gefin og fróð um margt. Hún mundi tímana tvenna og hafði ákveðnar skoðanir á lífinu og til- verunni. Hún hafði stórt hjarta, sem rúmaði mikla umhyggju og kærleika. Hún þoldi ekki óréttlæti og bar hag lítilmagnans sífellt fyrir brjósti og gekk ótrauð fram fyrir skjöldu til varnar og hjálpar skjólstæðingum sínum. Hún var farsæl í starfi sínu sem ljósmóðir og einnig í öðrum þeim störfum sem hún gegndi, hvort sem það var starf forstöðumanns á sjúkra- GUÐRÚN FINNBOGADÓTTIR Elskuleg móðir okkar, KRISTÍN HALLDÓRSDÓTTIR frá Þrasastöðum í Stíflu, síðast til heimilis á Ásvegi 15, Akureyri, lést á hjúkrunarheimilinu Hlíð, Akureyri, þriðju- daginn 28. desember. Jarðarförin auglýst síðar. Börnin. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GYÐA KARLSDÓTTIR, lést á Landspítala við Hringbraut mánudaginn 27. desember. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 5. janúar kl. 15.00. Guðrún Þorvarðardóttir, Helga Þorvarðardóttir, Margrét Þorvarðardóttir, Vilhelmína Þóra Þorvarðardóttir, Þorvarður Karl Þorvarðarson og fjölskyldur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSDÍS ÞÓRÐARDÓTTIR, Brúarlandi, Fellabæ, lést á sjúkrahúsinu í Neskaupstað mánu- daginn 27. desember. Útför hennar fer fram frá Egilsstaðakirkju mánudaginn 3. janúar kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á líknarstofnanir. Brynjólfur Vignisson, Hanna Eiríksdóttir, Sólveig Vignisdóttir, Einar Ólafsson, Þóra V. Vignisdóttir, Guðmundur Þorgrímsson, Gunnar F. Vignisson, Birna Jónasdóttir, Vignir Elvar Vignisson, Björg Skúladóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, MAGNÚS KRISTJÁNSSON, Skipagötu 10, Ísafirði, lést á gjörgæsludeild Landspítala Hringbraut þriðjudaginn 28. desember. Útförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugardag- inn 8. janúar kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Hildur Jósefsdóttir, Grétar Þór Magnússon, Jónína Þorkelsdóttir, Edda Björk Magnúsdóttir, Steinþór Auðunn Ólafsson, Hilmar Magnússon, Árni Magnússon, Erna Fannbergsdóttir og barnabörn. Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir, HALLDÓRA G. MAGNÚSDÓTTIR, Hávarðarkoti, Þykkvabæ, lést á dvalarheimilinu Lundi, Hellu, þriðju- daginn 28. desember. Útförin verður auglýst síðar. Gíslína Sigurbjartsdóttir, Hafsteinn Einarsson, Hjördís Sigurbjartsdóttir, Páll Guðbrandsson, Guðjón Ólafur Sigurbjartsson, Guðrún Barbara Tryggvadóttir. Látinn er á Hrafnistu í Hafnarfirði KRISTINN GUÐJÓNSSON fyrrverandi skipstjóri frá Sandgerði. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Fyrir mína hönd og annarra aðstandenda, Ragnheiður Magnúsdóttir. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, ERLA HALLDÓRSDÓTTIR, Hjallaseli 11, Reykjavík, lést á aðfangadag á gjörgæsludeild Landspítala í Fossvogi. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, fimmtudaginn 30. desember, kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast Erlu er bent á félagið Alnæmisbörn, bankareikningur 1155-15-40733, kennitala 560404-3360. Fyrir hönd aðstandenda, Gestur Gíslason, Ragnar Gestsson, Hildur Gestsdóttir, Oscar Aldred og Unnur Aldred.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.