Morgunblaðið - 30.12.2004, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 30.12.2004, Qupperneq 50
50 FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Stóra svið Nýja svið og Litla svið BELGÍSKA KONGÓ e. Braga Ólafsson Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki Su 2/1 kl 20, Fö 7/1 kl 20, Fö 14/1 kl 20, Su 16/1 kl 20 HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar eftir vesturfarasögum Böðvars Guðmundssonar Aðalæfing fi 6/1 kl 20 - UPPSELT Frumsýning fö 7/1 kl 20 - UPPSELT Lau 8/1 kl 20 - GUL KORT- UPPSELT Su 9/1 kl 20 - AUKASÝNING - UPPSELT Lau 15/1 kl 20 - RAUÐ KORT Su 16/1 kl 20 - GRÆN KORT Fö 21/1 kl 20 - BLÁ KORT Lau 22/1 kl 20, Lau 29/1 kl 20, Su 30/1 kl 20 LEIKHÚSVEISLA FYRIR HÓPA - UPPSKRIFT AÐ SKEMMTILEGU KVÖLDI NÆRING FYRIR SÁL OG LÍKAMA - BÓKIÐ Í TÍMA Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00 Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Su 2/1 kl 14, Su 9/1 kl 14,Su 16/1 kl 14 Su 23/1 kl 14, Su 30/1 kl 14 HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau Fö 14/1 kl 20, Su 23/1 kl 20 SVIK eftir Harold Pinter Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA. Fö 14/1 kl 20, Fi 20/1 kl 20 AUSA eftir Lee Hall og STÓLARNIR eftir Ionesco - Í samstarfi við LA Frumsýning í kvöld kl 20 - UPPSELT Lau 8/1 kl 20, Su 9/1 kl 20 GJAFAKORT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Áramótaglaðningur við allra hæfi Kl 18:00 Gleðistund í forsal - veitingasalan opin Kl 18:30 Kynnisferð um leikhúsið - kynning á verki kvöldsins Kl 19:00 Matseðill kvöldsins Kl 20:00 Leiksýning kvöldsins Miðasalan er opin kl. 13-18 mán. og þri. Aðra daga kl. 13-20. Símapantanir frá kl. 10 virka daga. www.leikhusid.is • midasala@leikhusid.is Þjóðleikhúsið sími 551 1200 • Stóra sviðið kl. 20:00 DÝRIN Í HÁLSASKÓGI – Thorbjörn Egner Í dag fim. 30/12 kl. 14:00 80. sýning uppselt, sun. 9/1 kl. 14:00,nokkur sæti laus, sun 16/1 kl. 14:00. EDITH PIAF – Sigurður Pálsson Í kvöld fim. 30/12 uppselt, sun. 2/1 uppselt, lau. 8/1 uppselt, sun. 9/1 örfá sæti laus, lau. 15/1 örfá sæti laus, lau. 22/1 örfá sæti laus, ÖXIN OG JÖRÐIN – Ólafur Gunnarsson/leikgerð Hilmar Jónsson 3. sýn. mið. 5/1 örfá sæti laus, 4. sýn. fim. 6/1 örfá sæti laus, 5. sýn. fim. 13/1 örfá sæti laus. ÞETTA ER ALLT AÐ KOMA – Hallgrímur Helgason /leikgerð Baltasar Kormákur Fös. 7/1 nokkur sæti laus, fös. 14/1, nokkur sæti laus, fim. 20/1. • Smíðaverkstæðið kl. 20:00 NÍTJÁNHUNDRUÐ – Alessandro Baricco fös. 7/1, lau. 15/1. Ekki er hægt að hleypa inn í salinn eftir að sýning er hafin. • Litla sviðið kl. 20:00 BÖNDIN Á MILLI OKKAR – Kristján Þórður Hrafnsson Fös. 7/1, nokkur sæti laus, fös. 14/1, fim. 20/1. DÝRIN Í HÁLSASKÓGI 80. SÝNING Í DAG! ☎ 552 3000 ALLRA SÍÐASTA SÝNING • Laugardag 15. janúar kl 20 eftir LEE HALL Loftkastalinn ✦ Seljavegi 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 11-18 KÓNGURINN KVEÐUR! í samstarfi við LEIKFÉLAG AKUREYRAR Ekki missa af Elvis! Ein vinsælasta sýning ársins kveður sviðið. www.loftkastalinn.is LOKASÝNING Í KVÖLD UPPSELT Hárið þakkar frábærar móttökur! 4 600 200 leikfelag.is Miðasölusími ÓLIVER! Tryggðu þér miða Óliver! Eftir Lionel Bart 30.12 kl 16 Aukas. UPPSELT 30.12 kl 21 3. kortas. UPPSELT 02.01 kl 14 Aukas. UPPSELT 02.01 kl 20 4. kortas. UPPSELT 06.01 kl 20 5. kortas. UPPSELT 08.01 kl 20 6.kortas. UPPSELT 09.01 kl 20 7.kortas. Örfá sæti 13.01 kl 20 Örfá sæti 15.01 kl 20 Örfá sæti 16.01 kl 20 Nokkur sæti Sýnt í Reykjavík: Eldað með Elvis, Svik og Ausa og stólarnir Jólasöngvar Kórs Menntaskólans í Reykjavík Kór Menntaskólans í Reykjavík heldur sína árlegu jólatónleika fimmtudaginn 30. desember kl. 20.30 í Dómkirkjunni. Aðgangur er ókeypis LISTVINAFÉLAG HALLGRÍMSKIRKJU Hátíðarhljómar við áramót Festive Sounds at New Year Gamlársdag 31. desember 2004 kl. 17:00 New Year’s Eve 31st December 2004 at 5 PM Ásgeir H. Steingrímsson, trompet Eiríkur Örn Pálsson, trompet Hörður Áskelsson, orgel Verk eftir / Works by: Bach, Vivaldi, Holloway, Albinoni og Pezel Aðgangseyrir / Admission: 1.500 kr. Miðasala í Hallgrímskirkju Box Office in Hallgrímskirkja MEÐ þessum tónleikum slógu flytj- endur á strengi gleði, hátíðleika og angurværðar í brjóstum tónleika- gesta, sem troðfyllt höfðu Dalvík- urkirkju. Bljúgir hörpustrengir slegnir í fyrsta lagi í samræmi við boðun texta í sálmi Bach og síðar strengir kátínu í bland við glit minn- inga. Efnisskráin var í stórum drátt- um tvískipt; fyrir hlé voru lög tengd hátíðleik og andakt jóla í bland við léttar jólaglettur. Síðari hluti efnisskrárinnar var tengdari nálægum áramótum með minningakvæðum, tímamótahugleið- ingum og leikrænum frásögnum. Hinn bráðgóði tenór, Hlöðver Sig- urðsson, hafði sungið fallega með kórnum fyrir hlé, bæði Ave Maríu Kaldalóns og Hljóða nótt eftir Adams. Hann hóf raust sína eftir hlé með Í fjarlægð eftir Karl O. Runólfs- son við píanóleik Daníels Þorsteins- sonar. Síðan þrjú önnur einsöngslög, reyndar fjögur ef Draumalandið, sem hann söng sem aukalag er talið með. Mér fannst Hlöðver ekki í sínu besta formi fyrr en í lokalaginu Sjá dagar koma, en það fluttu hann, kór og einleikari á stórglæsilegan og hrífandi hátt. Mér fannst La donna e mobile ekki eiga heima í efnisskránni og var fremur illa sett á þessum stað. Hlöðver, sem nú syngur og nemur í Salzburg, er án nokkurs vafa prýð- issöngvari og hefur einkar fallega tenórrödd með létta og fína tónhæð og það sem gerir útslagið er einlægni hans í túlkun og smekkvísi. Guðmundi Óla hefur tekist mjög vel upp við þjálfun síns kórs. Hann er reyndar lánsmaður að vera í „raddparadís“ á Dalvík, en það er ekki nóg. Ekki er til það gæðings- efni, sem ekki þarf að temja! Þarna liggur galdurinn, hann er sá að bæta það góða. Tveir af mörgum kostum kórsins eru: þanþolið úr veikasta söng til hins sterkasta, þannig að einstakar raddir aðgreinast ekki, sbr. lag Guðmundar Óla, Mál er í meyjarhvílu, og einnig einstök takt- vísi og nákvæmni í áherslum, eins og í Þjóðlífsmyndum eft- ir Jón G. Ásgeirsson. Framsögn texta er enn sem fyrr með ágætum. Guðmundur Óli samdi þrjá söngva er fluttir voru, auk fjöl- margra útsetninga sem hann hafði gert. Það er mikill styrkur fyrir kór að eiga stjórnanda sem getur jöfnum höndum stýrt, samið og útsett. Út- setningar Guð- mundar Óla eru bæði vandaðar og skemmtilegar. Út- færsla fjórhents píanós í lögunum: Þá nýfæddur Jesús og Það á að gefa börnum brauð (lag Jórunnar Viðar) var mjög áhrifamikil áheyrnar. Við vöggu dóttur minnar, ljóð Hjalta heitins Haraldssonar, hljómaði þarna í fyrsta skipti með nýju lagi stjórnandans og var einkar ljúft og flutt af miklu næmi. Áhrifamest af lögum Guðmundar Óla fannst mér vera fyrrnefnt lag, Mál er í meyjar- hvílu. Þriðja lagið Ljúflingsmál er einkar vel samið og útsett, en mjög viðkvæmt og vandasamt í flutningi og naut sín ekki sem skyldi. Daníel Þorsteinsson er ekki ein- asta einstaklega góður píanóleikari, því hann er líka píanóskáld. Í lagi Sigfúsar Vegir liggja til allra átta náði hann með eigin píanóforspili og píanórödd að gæða lagið nýju suð- rænu tangólífi. Það er gott að horfa til áramóta eftir svona tónleika. Karlakór Dalvíkur slær á jólastrengi TÓNLIST Dalvíkurkirkja Sönglög eftir: J.S. Bach, Praetorius, W.J. Kirkpatrick, Irvin Berlin, F. Bernard, Autry, Jórunni Viðar, Sigvalda Kaldalóns, A. Adam, Karl O. Runólfsson, Verdi, Sigurð Þórðarson, Jón Ásgeirsson, Guð- mund Óla Gunnarsson, Sigfús Hall- dórsson og Gunnar Þórðarson. Flytjendur: Karlakór Dalvíkur. Einsöngur: Hlöðver Sigurðsson, tenór. Píanóleikari: Daníel Þorsteinsson. Stjórnandi: Guðmundur Óli Gunnarsson. sunnudaginn 27. des. 2004 kl. 20.30. Hátíðartónleikar Jón Hlöðver Áskelsson Guðmundur Óli Gunnarsson Hlöðver Sigurðsson ÆVINTÝRI H.C. Andersens þarf vart að kynna fyrir Íslendingum. Allt frá því að Steingrímur Thorsteinsson þýddi ævintýri hins danska rithöf- undar í byrjun 20. aldarinnar, hafa þau lifað með Íslendingum og hjálpað okkur að sjá ýmsar hliðar á tilver- unni. Síðan hafa margir lagt sig eftir að þýða ævintýrin yfir á íslensku, og nú bætist þýðing Sigrúnar Árnadótt- ur við á tólf ævintýrum Andersens, mörg hver meðal þeirra þekktustu og vinsælustu. Þýðingin á ævintýrunum er í flesta staði vel heppnuð. Málfarið er yfir- leitt bæði fallegt en þó lipurt, og oft á tíðum mjög eðlilegt og nútímalegt. Þó er ekki annað hægt en að hvá yfir nýjum titli á því sem venjulega þekk- ist sem Litla stúlkan með eldspýt- urnar, núna heitir ævintýrið Litla stelpan með eldspýturnar. Pælingin á bakvið þessa breytingu gæti verið að þýðandanum hafi þótt að Andersen hafi fremur átt við stelpu en stúlku í ævintýri sínu, og hafi viljað draga fram þann blæbrigðamun sem felst í þessum tveimur orðum. Það gæti líka verið að hér sé á ferðinni almenn til- raun til nútímavæðingar málfars bók- arinnar, eða að gera það auðskilj- anlegra fyrir börn. Eigi hið seinna við, skýtur þó skökku við að í bókinni er að finna ýmis önnur orð sem hefði einmitt fremur mátt færa til auðveld- ari íslensku, sbr. hnúðkörtuna á bls. 15 og aldinborann á bls. 20. Brot bókarinnar er stórt og veg- legt, og mjög fallega myndskreytt. Það er danski myndskreytirinn Svend Otto S. sem hefur málað vatns- litamyndir og gert blýantsteikningar við ævintýrin, sem eru sígildar og hæfa sögunum vel. Myndirnar eru vandaðar og klassískar, og einhvern veginn alveg eins og maður ímyndar sér að ævintýri séu myndskreytt. Hins vegar bæta þær litlu við þá mynd sem þegar hefur verið dregin upp af H.C. Andersen-ævintýrunum og ljá þeim enga nýja merkingu, eins og hugsanlega væri auðvelt og jafnvel æskilegt að gera. Þá leiddist mér að letrið á kili bókarinnar, sem mér hafði virst svo vönduð við fyrstu sýn, hafði máðst af að hluta eftir sáralitla notk- un. Ekkert af ofangreindu breytir þó þeirri staðreynd að þetta er eiguleg bók, sem ég hefði sjálf gjarnan viljað eiga sem barn og margir munu ef- laust njóta þess að lesa og skoða. Það er hið besta mál að út komi margar og ólíkar útgáfur af ævintýrum H.C. Andersens, bæði fyrir þær sakir að 200 ára afmælis hans verður fagnað næsta vor og gott að nýta það tæki- færi til að vekja aftur áhuga á höf- undinum, og vegna þeirrar einföldu staðreyndar að ævintýrin hans eru bæði lærdómsrík og bráðskemmtileg. Litla stelpan …? BÆKUR Ævintýri Þýðandi: Sigrún Árnadóttir. Myndskreyt- ingar: Svend Otto S. 224. bls. Vaka- Helgafell 2004. Úrvalsævintýri H.C. Andersens Inga María Leifsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.