Morgunblaðið - 30.12.2004, Síða 53
Kristján í miðið, fremstur meðal jafningja í sveitinni Delicia Mini sem vakið hefur athygli í Danmörku undanfarið.
KRISTJÁN Eggertsson fann lítið
hljómborð af gerðinni „Delicia Mini“
á för sinni um Tékkland árið 1999.
Árið eftir kom hann „heim“ til Árósa
í Danmörku, þangað sem hann hafði
flutt frá Íslandi árið 1997, og stofn-
aði þá hljómsveit með þessu nafni,
Delicia Mini. Sveit sú hefur fengið
afbragðs dóma fyrir fyrstu skífu
sína, Skuggi.
Meðal annars fékk platan fimm
stjörnur af sex mögulegum í einu
helsta tónlistarblaði Dana, Gaffa, og
sömu einkunn hjá danska ríkis-
útvarpinu, DR. Þá hefur hún verið
ofarlega á árslistum í Danaveldi;
m.a. valin fjórða besta danska plata
ársins hjá Musikprogrammet á DR.
Einnig var Delicia Mini „nafn mán-
aðarins“ hjá DR í nóvember. Delicia
Mini er á mála hjá einu framsækn-
asta og umtalaðasta útgáfufyrirtæki
Danmerkur, Morningside Records.
Arkitekt að mennt
Kristján er menntaður arkitekt
og í fullu starfi sem slíkur. „Þetta
byrjaði eiginlega árið 1997, þegar ég
hitti trommuleikarann, sem var líka
að læra arkitektúr í Árósum. Við
byrjuðum á því að vinna með
„instrúmental“ tónlist, sem dúett.
Árið 2000 fengum við svo gítar- og
bassaleikara til liðs við okkur og þá
bættust söngur og textar við lögin,“
segir Kristján, sem spilar á gítar og
hljómborð, auk þess að syngja.
Áður en nýja platan, Skuggi, kom
út, hafði Delicia Mini sent frá sér
tvær stuttskífur, aðallega á Netinu,
þannig að Skuggi er í raun fyrsta
„alvöru“ útgáfa hljómsveitarinnar,
en sem fyrr segir gefur Morningside
Records plötuna út. „Þetta er lítið,
„óháð“ fyrirtæki, u.þ.b. tveggja ára
gamalt, og hefur fengið mikla og já-
kvæða umfjöllun að undanförnu,“
segir Kristján.
Gengur framar vonum
Hann segir að gengi plötunnar sé
framar vonum, en hún kom út í byrj-
un nóvember. „Við fengum í raun
miklu betri viðtökur en við höfðum
vonast til. Eitt lagið fór beint í ann-
að sætið á stærsta óháða vinsælda-
listanum hér í Danmörku og komst
svo á toppinn. Annað lagið á plöt-
unni var smáskífa vikunnar hjá Dan-
marks Radio og svona má áfram
telja.“ Kristján segir að sölutölur
liggi ekki fyrir, „við gáfum hana
bara út í 1.000 eintökum til að byrja
með og ég veit að platan var uppseld
hér í Árósum fyrir jól.“
Spilar með Teiti
hinum færeyska
Áður en Kristján fluttist til Dan-
merkur var hann í hljómsveitinni
Neol Einsteiger, sem sendi frá sér
plötuna Heitur vindur til minningar
um vin hans, Pétur Inga Þorgilsson,
árið 1994. Þeir höfðu verið saman í
hljómsveitinni Invictus, en Pétur
Ingi lést af slysförum ári áður en
platan kom út.
Delicia Mini er að fara í stutta
tónleikaferð um Danmörku í febr-
úar, þar sem sveitin spilar m.a. með
Teiti hinum færeyska. „Svo erum
við að vonast til þess að geta gefið
Skugga út á Íslandi; viðræður
standa yfir við dreifingarfyrirtæki
um það,“ segir hann. Vonir standa
einnig til þess að hægt verði að gefa
plötuna út í Englandi, með tilheyr-
andi tónleikahaldi, „en það er ekkert
fast í hendi með það,“ segir Krist-
ján.
Aðspurður segist Kristján ekki
ætla að hætta starfi sínu sem arki-
tekt, þótt velgengnin hafi knúið dyra
í tónlistinni. „Ætli ég gefi samt tón-
listinni ekki aðeins meiri tíma en áð-
ur. Vonandi hefjum við upptökur á
nýrri plötu seinna á árinu. Það er al-
veg þess virði að láta á þetta reyna.“
Tónlist | Hljómsveit Kristjáns Eggertssonar, Delicia Mini, fær afbragðs dóma í Danmörku
Skuggi kemur í ljós
Hljómsveit Kristjáns Eggertssonar, Delicia Mini, hefur gert það gott
hjá frændum okkar Dönum með frumburð sinn, plötuna Skugga.
Danska ríkisútvarpið valdi hana m.a. fjórðu bestu dönsku plötu ársins.
Ívar Páll Jónsson sló á þráðinn til Kristjáns á heimili hans í Árósum.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 2004 53
FM957 og EGO kynna í samvinnu við Concert
BEINT
FRÁ ÍRLANDI
Í KVÖLD 30. DES.
Michelle, Tom
& friends
DUBLINER
SPILAR
KL. 21:00
-
:
:
:
!
1(
1(
9/
9/
1(
9/
1(
9/
9/
9/
9/
9/
9/
2/
9/
9/
9/
9/
9/
1(
! "
#$%
&'
('
))
(*
+,)-*
. /' )0
& ,.
' ./ 1, ),), ) 0 )
",-
"2
3
)*
3
3(
,
+
% -
4,
. ,' ",)
1, -5 ,) 5
6