Morgunblaðið - 30.12.2004, Page 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
Heilsukoddar
Heilsunnar vegna
DANSKI stórmeistarinn Henrik Danielsen
hafði í nógu að snúast þegar hann tefldi fjöltefli
við gesti Kringlunnar í Reykjavík, sem voru á
öllum aldri, í gær. Tefldi Henrik 40 skákir og
bar hann sigur úr býtum úr 38. Örvari Karls-
syni og Jóhanni Gunnarssyni tókst hins vegar
að ná jafntefli. Henrik er því með 39 vinninga á
móti einum vinningi Kringlugesta.
Í dag heldur Henrik fjölteflinu áfram við
verslun Bónuss í Kringlunni milli 14 og 18. Að
því stendur taflfélagið Hrókurinn í samstarfi
við Bónus.
Morgunblaðið/Ómar
Vann 38 manns í fjöltefli í Kringlunni
FIMM ára gömul stúlka var flutt á sjúkra-
hús með heilahristing eftir að keyrt var á
hana á Ísafirði um klukkan átta í gærkvöld.
Stúlkan var að renna sér á sleða í brekku of-
an við Seljalandsveg þegar hún rann niður á
veginn og lenti á vinstra framhorni bifreiðar
sem ók hjá. Að sögn lögreglunnar á Ísafirði
var stúlkan látin gista yfir nótt á sjúkrahús-
inu á Ísafirði þar sem fylgst var með líðan
hennar.
Fimm ára stúlka
varð fyrir bíl
BANKARÁÐ Íslandsbanka hefur
verið boðað til aukafundar í dag í
kjölfar ákvörðunar Bjarna Ár-
mannssonar, forstjóra bankans, um
að vísa aðstoðarforstjóranum, Jóni
Þórissyni, úr starfi. Jón yfirgaf
bankann í gær og kvaddi samstarfs-
menn sína til fjölda ára. Í tilkynn-
ingu bankans til Kauphallarinnar
segir að ágreiningur hafi komið upp
milli Bjarna og Jóns sem ekki verði
brúaður, eins og það er orðað.
Í viðtali við Morgunblaðið í dag
rekur Jón Þórisson það sem hann
telur vera aðdraganda að brott-
rekstrinum. Hann telur ákvörðun
Bjarna hafa fyrir löngu legið fyrir
og ráðning á nýjum útibússtjóra við
Lækjargötu sé eingöngu tylli-
ástæða fyrir brottrekstrinum. Tel-
ur Jón sig ekki hafa borið skylda til
þess að bera ráðninguna undir
Bjarna.
Að mati Jóns má rekja ástæðuna
til ummæla sem hann lét falla í fjöl-
miðlum í haust um að sameining Ís-
landsbanka og Landsbanka væri
vel möguleg. Þetta hafi vakið upp
„ólund“ hjá forstjóra og formanni
bankaráðs Íslandsbanka.
Einar Sveinsson, formaður
bankaráðsins, staðfesti í samtali við
Morgunblaðið að aukafundurinn
hefði verið boðaður í dag. Hvaðan
sú ósk kom sagði Einar að það hefði
verið „sameiginleg niðurstaða okk-
ar“ að halda fund. Aðspurður sagði
hann Bjarna hafa tilkynnt sér um
brottrekstur aðstoðarforstjórans,
áður en hann var gerður opinber.
Hvort öðrum bankaráðsmönnum
hefði verið greint frá ákvörðun for-
stjórans vildi Einar ekki svara til
um.
Bjarni Ármannsson, forstjóri Ís-
landsbanka, sagðist í samtali við
Morgunblaðið engu hafa við yfirlýs-
ingu bankans að bæta sem send var
Kauphöll Íslands í gær, en þar segir
eingöngu:
„Ákveðið hefur verið að Jón Þór-
isson, aðstoðarforstjóri Íslands-
banka, hætti störfum í bankanum.
Ágreiningur varð milli forstjóra og
Jóns sem ekki varð brúaður. Ís-
landsbanki vill þakka Jóni fyrir vel
unnin störf á starfstíma hans hjá
bankanum.“
Brottreksturinn löngu ákveðinn, segir aðstoðarforstjóri Íslandsbanka
Ummæli/11
VEGINUM um Óshlíð og Súðavíkurhlíð var
lokað vegna snjóflóða sem féllu skömmu eftir
hádegi í gær. Ekki urðu slys á fólki. Fyrsta
flóðið, sem jafnframt var hið stærsta, féll á
Óshlíðarveg um klukkan 13 og var það veg-
farandi sem tilkynnti atburðinn lögreglunni
á Ísafirði. Talið var að flóðið hefði verið allt
að 4 metra hátt. Í kjölfarið féllu tvö önnur
flóð og um svipað leyti féllu flóð á veginn
undir Súðavíkurhlíð. Umferð um veginn var
lokað á meðan Vegagerðarmenn könnuðu að-
stæður. Um klukkan rúmlega 17 var Súða-
víkurhlíðin opnuð aftur og stuttu síðar var
vegurinn við Óshlíð opnaður.
Vegurinn um Ólafsfjarðarmúla lokaðist
sömuleiðis vegna snjóflóðs sem þar féll um
sexleytið í gærkvöldi. Enginn slasaðist en
björgunarsveitin Dalvík var á staðnum og
beindi umferð frá svæðinu. Vegurinn var svo
ruddur og opnaður á nýjan leik fljótlega.
Mikil hálka var á vegum víða um land í
gær og lagði Vegagerðin áherslu á hálku-
varnir. Víða voru vegir ófærir, t.a.m. var
ófært um Öxnadalsheiði, Fjarðarheiði milli
Seyðisfjarðar og Egilsstaða og ófært var um
Breiðdalsheiði. Umferð gekk þó stórslysa-
laust fyrir sig þrátt fyrir fljúgandi hálku.
Búist er við vestlægum áttum víða á land-
inu í dag með vindstyrk á bilinu 8–15 m/s.
Hiti verður víða í kringum frostmark.
Snjóflóð í
Óshlíð og
Ólafsfjarð-
armúla
MIKLAR líkur eru á því að fisk-
neyzla í Bandaríkjunum eigi eftir
að aukast verulega á næstu árum.
Skýringin er sú að „Manneldisráð“
Bandaríkjanna mun að öllum lík-
indum leggja til að hvert manns-
barn borði tvær fiskmáltíðir í viku.
Opinberir aðilar munu þá líklega
fylgja þessum ráðleggingum í
mötuneytum sínum, en þar matast
daglega tugir milljóna manna.
Ráðgjafarnefnd fyrir þá stofnun
kemur með ráðleggingar um mat-
aræði og leggur þetta til á grunni
hollustu fiskáts.
Opinberar viðurkenningar á
hollustu fiskáts liggja fyrir og því
að omega-3 fitusýrurnar geti
dregið úr hættunni á hjartasjúk-
dómum. Árlega deyr um hálf
milljón manna úr hjartasjúkdóm-
um í Bandaríkjunum.
Gangi þetta eftir munu að öllum
líkindum 26 milljónir skólabarna
ustan ræður mun minna. Það er
þess vegna undir okkur fisksöl-
unum komið að bjóða neytendum
ferskan, frosinn og ófrosinn, og
bragðgóðan fisk. Við teljum okkur
náttúrlega vera að gera það, en
það má sjálfsagt alltaf gera betur.
Það má vissulega búast við auk-
inni fiskneyzlu í kjölfar þessa, en
sú aukning sem verið hefur und-
anfarin ár, er nánast öll úr rækt-
uðum fiski og svo verður vafalítið
áfram,“ segir Magnús.
fá fisk eða aðrar sjávarafurðir í
matinn tvisvar í viku og milljónir
hermanna og opinberra starfs-
manna. Þá má gera ráð fyrir auk-
inni fiskneyzlu almennings á
grunni þess hve lítið fitandi fisk-
urinn er en mjög margir Banda-
ríkjamenn eiga við offitu að stríða.
„Þetta eru góðar fréttir og
hjálpa svo sannarlega til við að
selja fiskinn,“ segir Magnús Gúst-
afsson, forstjóri Icelandic USA í
Bandaríkjunum. „Hins vegar er
það svo að þegar fólk kaupir mat,
ræður bragðið langmestu. Holl-
Leggja
til tvær fiskmáltíðir á viku
Yfirvöld/Úr verinu
EIÐUR Smári Guðjohnsen, knatt-
spyrnumaður hjá Chelsea og fyrirliði ís-
lenska landsliðsins, var í gærkvöldi út-
nefndur íþróttamaður ársins af Samtökum
íþróttafrétta-
manna. Eiður
Smári er fimmti
knattspyrnumað-
urinn sem hlýtur
þennan titil en
styttan sem honum
fylgir var nú afhent
í 49. sinn. Eiður
Smári hlaut 329
stig af 400 mögu-
legum, Þórey Edda
Elísdóttir frjáls-
íþróttakona varð
önnur með 246 stig og Rúnar Alexand-
ersson fimleikamaður þriðji með 162 stig.
Síðast var knattspyrnumaður valinn
fyrir 17 árum þegar faðir Eiðs Smára,
Arnór Guðjohnsen, var valinn, þá 26 ára
gamall, jafngamall Eiði Smára. Áður
höfðu Guðni Kjartansson (1973), Ásgeir
Sigurvinsson (1974 og 1984) og Jóhannes
Eðvaldsson (1975) verið valdir. Allir eiga
þeir það sameiginlegt að hafa verið fyr-
irliðar íslenska landsliðsins./Íþróttir
Eiður Smári
íþróttamaður
ársins
Eiður Smári Guðjohnsen
♦♦♦
♦♦♦
Jón ÞórissonBjarni Ármannsson
Bankaráðið boðað
til aukafundar í dag