24 stundir - 30.11.2007, Page 2

24 stundir - 30.11.2007, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2007 24stundir VÍÐA UM HEIM Algarve 17 Amsterdam 8 Ankara 10 Barcelona 13 Berlín 3 Chicago 1 Dublin 7 Frankfurt 1 Glasgow 9 Halifax 7 Hamborg 5 Helsinki -4 Kaupmannahöfn 5 London 11 Madrid 9 Mílanó 9 Montreal 2 München 3 New York 7 Nuuk -9 Orlando 18 Osló 3 Palma 21 París 5 Prag 4 Stokkhólmur 4 Þórshöfn 5 Norðaustan 13-20, en 18-25 norðvestantil. Talsverð rigning eða slydda á Austurlandi, él norðantil, en þurrt að kalla um landið suð- vestanvert. Hiti 0 til 6 stig, en kólnandi. VEÐRIÐ Í DAG 5 2 1 2 3 Slydda á Austurlandi Norðaustan 8 til 15 metrar á sekúndu. Él, en léttir til sunnanlands sem og vestanlands. Vægt frost víðast hvar á landinu þennan laug- ardaginn. VEÐRIÐ Á MORGUN 5 1 1 1 2 Léttir til sunnanlands „Það eru mikil tíðindi og slæm ef einstakir skólar hafa talið sig þurfa að láta undan kröfum um að hætt verði við að taka á móti Nýja testamentinu í grunnskólum,“ seg- ir Karl Sigurbjörnsson, biskup Ís- lands. Gídeonfélagið hefur fært öllum grunnskólum Nýja testamentið að gjöf á hverju ári í meira en hálfa öld. Nú hafa athugasemdir verið gerðar í tilteknum skólum. Kærkomið hingað til Karl Sigurbjörnsson, biskup Ís- lands, segir að ef rétt sé að Gídeon- félaginu hafi verið meinað að dreifa Nýja testamentinu til grunn- skólabarna þá sé það í fyrsta sinn. „Skólar hafa tekið þessu fagnandi. Kristinfræði er lögbundin í íslensk- um grunnskólum og Nýja testa- mentið er auðvitað grundvallarrit í þeirri fræðslu, þannig að þetta skýtur mjög skökku við.“ Oftúlkanir í gangi Skrifstofa Gídeonfélagsins var lokuð í gær, en Siðmennt telur að Biblíudreifing í grunnskólum sé ekki í samræmi við jafnan rétt trú- félaga. Karl telur Siðmennt hat- römm samtök. Honum finnst ótrúlegt að skólar láti kúga sig til að afþakka kærkomna gjöf. Biskup telur hættulegt ef fólk þorir ekki að tjá hug sinn vegna krafna sterkra afla með aðra sýn. Kirkjan vilji styðja foreldra til að sinna kristi- legu uppeldi. beva@24stundir Gídeonfélagið hefur dreift Biblíum í skólum í meira en hálfa öld Nýja testamentið afþakkað Biskup Kirkjan hefur ekki ákveðið nein viðbrögð við þrýstingi gegn kirkjunni í skólum landsins. Dæmi eru um að sjúklingar og starfsfólk á Landspítala hafi fengið mjög sterk ofnæmisviðbrögð vegna blóma sem gestir koma með á spít- alann, segir Björg Sigurbjörnsdótt- ir aðstoðarhjúkrunarforstjóri spít- alans. Af þessum sökum hafa blóm verið bönnuð „á lungnadeild því sumir sjúklingar þola enga lykt og á heila- og taugaskurðdeild þar sem óvæntur hnerri setur heilsu sjúk- lings í hættu,“ segir hún. Á þeim deildum sem blóm eru bönnuð eru skilti sem tilgreina að ekki skuli koma með jólastjörnur, hýasintur eða liljur. Að sögn Bjarg- ar þykja liljur sérstaklega slæmar þar sem þær eru mjög lyktsterkar og berst lyktin af þeim mjög langt. fifa@24stundir.is Blóm bönnuð á sumum deildum spítala Engar jólastjörnur eða hýasintur Ólafur F. Magnússon hyggst taka sæti í borgarstjórn Reykjavíkur næstkomandi laugardag og stendur til að hann verði kosinn forseti borgarstjórnar á þriðjudaginn. Þetta var tilkynnt á fundi borg- arráðs í gær að sögn Björns Inga Hrafnsson, formanns borgarráðs. Heimildir 24 stunda herma að Ólaf- ur hafi verið beðinn um að skila læknisvottorði til borgarinnar um að hann væri heill heilsu en hann hefur verið í veikindaleyfi frá því skömmu eftir síðustu kosningar. Ákvæði eru um það í kjarasamn- ingum starfsmanna Reykjavíkurborgar að þeir skili læknisvottorði þegar þeir koma aftur til vinnu eftir löng veikindi. Engin fordæmi eru hins veg- ar fyrir því að óskað sé eftir slíku við kjörna fulltrúa. fifa@24stundir.is Ólafur látinn skila vottorði sem Öryrkjabandalagið hefur undirbúið. Útgjöld lífeyrissjóð- anna sem deilan snýst um eru 240 milljónir á ári og á fjárlögum var gert ráð fyrir að 100 kæmu frá ríkinu gegn frestun skerðingar. Ráðherra vonar að sjóðirnir komi aftur til viðræðna um að reyna að hraða málinu, en meira fé sé ekki í boði. beva@24stundir.is Sautján hundruð illa settir ör- yrkjar missa bætur vegna ákvörð- unar lífeyrissjóðanna um að skerða bætur eins og boðað var. Félagsmálaráðherra, Jóhanna Sig- urðardóttir, hefur ekki fleiri ráð í hendi sér. Jóhanna segir mikil vonbrigði að lífeyrissjóðirnir skyldu ekki taka boði hennar um 100 milljóna króna tímabundið framlag rík- isins á móti því að skerðingu bóta yrði frestað þar til lausn fyndist. „Ég hef gert það sem ég get og hef ekkert útspil á móti. Niðurstaðan er sú að sautján hundruð ör- yrkjar úr hópi þeirra sem minnst hafa milli handanna missa nú allt að sjötíu þúsund krónur á mán- uði,“ segir hún. „Ríkisstjórninni er gert erfitt að nota peningana til að bæta kjörin beint, víxlverk- anir skerðinga hafa þau áhrif að ef bætt er við á einum stað er skert á móti á öðrum.“ Jóhanna harmar að eina leiðin virðist nú vera dómstólaleiðin Bætur 1700 öryrkja lækka Eftir Björgu Evu Erlendsdóttur beva@24stundir.is Íslenska þjóðkirkjan og stjórnvöld hafa eytt misskilningi um stöðu kristinnar trúar inni í grunnskól- um landsins. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráð- herra segir alveg ljóst að bréf sem sent var skólastjórnendum hafi ekki átt að girða fyrir fermingar- ferðir grunnskóla. Bréfið hafi átt að árétta að fermingarfræðsla sé ekki hluti af skóladagatalinu. Áfram verði heimilt að skipuleggja ferm- ingarferðir eins og áður, í samráði við foreldra. Áfram á kristnum grunni Ráðherra segir Siðmennt mis- skilja ef félagið heldur að kristin gildi og menning eigi að víkja úr grunnskólum. Þorgerður Katrín segir að það sé algjör fásinna, kristnin sé hluti af íslensku sam- félagi. „Það stendur ekki til að yf- irgefa kristin gildi, við eigum ekki að vera feimin við þau. Ætla menn að banna litlu jólin og afnema jólafrí og páskafrí? Jólin eru hluti af okkar samfélagi, en ekki kjara- samningsatriði. Hér er þjóðkirkja og við erum ekki að hverfa frá kristnum gildum. Þá er rangur skilningur að skólar megi ekki fara með börnin til kirkju.“ Bókstafstrú trúleysis Þorgerður Katrín telur ekki óeðlilegt að biskup hafi áhyggjur af að þrengt sé að kirkjunni. En hún þurfi ekki að falla í örvilnan þótt mál séu rædd. Menntamálaráð- herra varar við rétttrúnaði trú- lausra. Karl Sigurbjörnsson biskup segir augljóst að sterkar raddir vilji loka kirkjuna úti frá skólum og leikskól- um. En foreldrar styðji það ekki. Fámennur, sterkur minnihluta- hópur geri nú atlögu að kirkjunni. „Þetta eru hatrömm samtök sem vilja að öllu leyti stöðva aðkomu trúarinnar í skólum.“ Biskup skynjar viðbrögð for- eldra þannig að þeim ofbjóði frekjugangur hinna fáu. Mennta- málaráðherra hafi sýnt stuðning við trúna í orði og verki. Karl Sig- urbjörnsson biskup efast ekki um að sá misskilningur sem bréf vegna fermingarferða hefur valdið í grunnskólum verði leiðréttur. Trúboð gegn kristni í skólum  Menntamálaráðherra segir fásinnu að vilja kristni úr skólum.  Biskup treystir á foreldra gegn frekju hinna fáu Menntamálaráðherra Þor- gerður Katrín segir að kristin gildi og menning eigi ekki að víkja úr grunnskólum. ➤ Menntamálaráðherra og bisk-up Íslands hafa gert út um misskilning vegna ferming- arferða grunnskóla. ➤ Ferðirnar verða áfram farnará skólatíma svo framarlega sem skólar, foreldrar og kirkja koma sér saman um þær. SAMSTAÐA UM SKILNING 24stundir/Golli STUTT ● Forseti Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Náttúrufræðistofn- unar, var í gær kosinn forseti Bernarsamningsins á aðild- arríkjafundi samningsins. Samningurinn fjallar um verndun villtra plantna og dýra í Evrópu. ● Kjaramál Verkalýðsfélag Akraness er ekki tilbúið að slá af þeim kröfum sem fram hafa verið lagðar til Samtaka at- vinnulífsins. Félagið vonast eftir sátt innan SGS um að standa fast við kröfurnar. ● Eftirlit 90 ökumenn voru myndaðir vegna hraðaksturs á Eiðsgranda eftir hádegi í gær. Leiðrétt Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina, sem kann að vera missagt í blaðinu. Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2. LJÓÐMYNDALINDIR Einstök bók þar sem Gísli Sigurðsson, fyrrv. ritsjóri fléttar saman ljóðum og úrvali málverka sinna. SKRUDDA Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is www.skrudda.is „Hver myndin annarri fallegri og skemmtilegri blasir við og þegar ég gríp niður í ljóðin sé ég að þar er margt áhugavert.“ Guðrún Guðlaugsdóttir, Morgunblaðinu.

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.