24 stundir - 30.11.2007, Page 3
Vísindaheimurinn
Glæsilegar bækur um náttúrufræði fyrir börn og unglinga
Í fyrra komu fyrstu fjórar bækurnar í þessum flokki út og njóta þær
mikilla vinsælda. Nú bætast þrjár við og snemma á næsta ári koma þrjár
síðustu bækurnar út. Þær eru einkum sniðnar að þörfum 10-14 ára barna
og eru gífurlegur þekkingarbrunnur sem allir geta haft gagn og gaman
að. Glæsilegt myndefni og lífleg framsetning. Frábærar bækur handa
fróðleiksþyrstum krökkum.
[Nú] birtast á íslensku tíu bækur um
vísindaheiminn sem mér finnst svo vel unnar að
nýta ætti þær við kennslu í grunnskólum. Hver
þeirra fjallar á aðgengilegan hátt um jörðina,
geiminn, plöntur, dýr og mannslíkamann,
eðlisfræði, vélar og tækni, merka vísindamenn
og uppfinningar. ... Myndefnið er skýrt og
lipurlega ofið saman við textann og þýðendur
hafa vandað sig. ... bækurnar má annars vegar
lesa eftir einum samfelldum þræði og hins
vegar fylgja tilvísunum í texta sem benda á
margþættar slóðir um vísindaheiminn. Þannig
kenna bækurnar vísindaleg vinnubrögð auk
þess að auka þekkingu.
– Helgi Björnsson, jöklafræðingur Mbl.
Þessar bækur komu út í fyrra og má enn nálgast
þær í bókaverslunum og hjá forlaginu.
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík
s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is
www.skrudda.is
Síðustu bækurnar í flokknum
koma út snemma á næsta ári: