24 stundir - 30.11.2007, Qupperneq 15
24stundir FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2007 15
Þingsköp eru ævinlega meðalhelstu áhugamála alþing-ismanna enda fjalla þau um
reglurnar á leikvelli
þeirra sjálfra eða
lýðræðisins, allt eftir
því hvernig á það er
litið. Deilt var um
ræður og lýðræði á
þingi í gær, en VG
hafnar styttri ræðutíma í drögum
að nýjum þingskaparlögum. Ög-
mundur Jónasson telur fáheyrt
að breyta þingskaparlögum nema
samstaða sé um það.
Bloggarar vilja víst hvorki lang-
ar né stuttar ræður VG. Einn
þeirra vísar til frægra ummæla
Davíðs Oddssonar á Alþingi og
kallar VG þröngan hóp fjallagrasa-
étandi afturhaldskommatitta.
Helgi Hjörvar, þingmaðurSamfylkingar, sem á síðasta
kjörtímabili tók þátt í maraþon-
ræðuhöldum, leggst nú gegn slíku
háttalagi. Helgi telur
langar og leiðinlegar
ræður ekki lýðræð-
inu til framdráttar
og framíköll ekki
heldur. Um Stein-
grím J. Sigfússon
segir Helgi að honum dugi ekki
ræðustóllinn og gjammi líka úr
sal. Sturla Böðvarsson forseti
gerði athugasemd við orðalag
Helga og taldi heppilegra að tala
um framíköll en gjamm, sem aftur
minnir á hið óvenju virðulega
ávarp „háttvirtur yfirgjammari“
sem Hlynur Hallsson VG notaði
um Guðjón Ólaf Jónsson, Fram-
sókn, meðan báðir sátu á þingi á
síðasta kjörtímabili.
Hæstvirtu Alþingi er ekkertóviðkomandi og virknin í
þjóðfélagsumræðu frá fæðingu til
dauða á sér engin takmörk sem
sést á þingmálum
um allt frá klæða-
burði kornabarna
(Kolbrún Halldórs-
dóttir) til varðveislu
kirkjugarða (Ásta R.
Jóhannesdóttir).
Nú má benda alþingismönnum á
pabbapössun í Hagkaupum, þar
sem feður verða settir við skjáinn
að horfa á fótbolta meðan kon-
urnar kaupa inn. Ef Hlynur
Hallsson sæti enn á þingi væru
fjörugar umræður strax hafnar.
Hlynur bloggar um letihaugana og
leggur til að þeir verði skildir eftir
heima að ryksuga. Sóleyju Tóm-
asdóttur líkar væntanlega hug-
myndin. beva@24stundir.is
KLIPPT OG SKORIÐ
Á morgun eru 89 ár liðin síð-
an Ísland varð fullvalda ríki. Á
þeim tíma sem liðinn er hefur ís-
lensk þjóð færst frá örbirgð til
bjargálna og nú í vikunni kom í
ljós að lífskjör eru víst hvergi
betri í heiminum samkvæmt lista
Sameinuðu þjóðanna. Ekki ama-
legur árangur það, þótt þessi listi
sé vissulega ekki gallalaus. Já,
fullveldið hefur sannarlega reynst
okkur vel. Sumir vilja jafnvel
meina að fullveldið sé mikilvæg-
asta auðlind Íslands, mikilvægari
en fiskurinn, fossarnir og jarð-
varminn til samans. Í öllu falli er
fullveldið ansi mikilvægt í hug-
um okkar Íslendinga og flestir
eru sammála um að því megi alls
ekki glata í óvissu umróti nú-
tímans.
Óljóst fyrirbæri
En hvað er fullveldi? Því er
öllu erfiðara að svara. Raunar er
ekkert einhlítt svar til við því
hvað fullveldi er. Fullveldi er ekki
eins og mold fósturjarðarinnar
sem hægt er að koma við, taka á
og róta í. Þótt Íslendingar séu
staðráðnir í að vernda fullveldið
er ekki til neinn sameiginlegur
skilningur á því hvað það merkir
í raun og veru. Við getum þó
skoðað nokkrar skilgreiningar.
Í grunninn tekið felur hug-
takið fullveldi einfaldlega í sér þá
trú að einstaklingarnir ráði sér
sjálfir; semsé fullveldi einstak-
lingsins. Skilningur Íslendinga á
fullveldinu, eins og hann varð til
í sjálfstæðisbaráttunni, hefur þó
frekar snúið að fullveldi þjóð-
arinnar sem heildar. Raunar voru
Íslendingar lengst af ansi tor-
tryggnir á einstaklingsfrelsi, eins
og vistarbandið illræmda var til
marks um. Við erum því hér að
skoða fullveldi þjóða, ekki ein-
staklinga. Sem er raunar enn
flóknara viðfangs. Í slíkum skiln-
ingi merkir fullveldi þó kannski
einna helst tvennt; annars vegar
að ríkið hafi einkarétt á að ráða
málefnum innan eigin landa-
mæra og hins vegar rétt til að
taka þátt í starfi alþjóðastofnana.
Stjórn innanlands
Samkvæmt hefðbundnum
skilningi felur fullveldið semsé í
aðra röndina í sér að ríki eigi að
ráða sínum innanlandsmálefnum
sjálft, án utanaðkomandi íhlut-
unar. Á undanförnum áratugum
hefur hnattvæðing viðskipta,
menningar og vísinda hins vegar
gert ríki heims gagnkvæmt háð
hvert öðru (e. interdependent). Í
samræmi við það hefur skiln-
ingur manna á fullveldishugtak-
inu breyst. Um daginn gerðist
það til að mynda að vandræða-
gangur á húsnæðislánamarkaði í
Bandaríkjunum varð til þess að
fella gengi hlutabréfa í Kauphöll
Íslands. Ekkert frekar en að ís-
lenska ríkið ráði gengi hlutabréfa
á markaði getur það ákveðið að á
Íslandi skuli vera hreint loft,
allavega ekki ef mengunin berst
hingað frá öðrum löndum. Ríki
heims geta með öðrum orðum
ekki orðið fullvalda í umhverf-
ismálum nema með því að vinna
saman að mengunarvörnum.
Þess vegna þurfum við Kyoto.
Það er líka þess vegna sem ríki
heims hafa í síauknum mæli kos-
ið að deila fullveldi sínu í sam-
eiginlegum stofnunum til að tak-
ast á við sameiginleg
viðfangsefni.
Þátttaka í alþjóðastofnunum
Fullveldi ríkja í hnattvæddum
heimi felst því núorðið fyrst og
fremst í réttinum til að taka þátt
í starfi alþjóðastofnana, þar sem
ákvarðanir einstakra svæða og
heimsbyggðarinnar allrar eru
teknar. Texas og Bæheimur eru
ekki fullvalda ríki og geta því
ekki tekið þátt í starfi alþjóða-
stofnana, nema í gegnum rík-
isstjórnir sínar. Ísland er hins
vegar frjálst og fullvalda ríki og
hefur í krafti þeirrar stöðu fulla
heimild til að taka þátt í starfi al-
þjóðastofnana sem hafa mótandi
áhrif á lífið hér heima á Íslandi.
Það er því ekki síst með virkri
þátttöku í alþjóðlegu samstarfi
sem við tryggjum fullveldi Ís-
lands á tuttugustu og fyrstu öld-
inni.
Höfundur er stjórnmálafræðingur
Fullveldi
VIÐHORF aEiríkur Bergmann Einarsson
Ísland er hins
vegar frjálst
og fullvalda
ríki og hefur í
krafti þeirrar
stöðu fulla
heimild til að
taka þátt í starfi al-
þjóðastofnana sem hafa
mótandi áhrif á lífið hér
heima á Íslandi.
Hjá Jónum Transport bjóðum við upp á alhliða þjónustu varðandi inn- og útflutning.
Við komum sendingunum örugglega frá upphafsstað til endastöðvar, í sjó- eða flugfrakt,
ásamt tilheyrandi pappírsvinnu. Þú bara hringir og Jón sér um málið.
Jón sér um málið
Olga Björt „Jón“ Þórðardóttir – Starfsmaður Jóna Transport
Heimsferðir bjóða frábært tilboð til Kanarí 23. eða 30. janúar. Njóttu lífsins á
þessum vinsæla áfangastað við góðan aðbúnað í 1 viku eða lengur. Bjóðum nú
takmarkaðan fjölda íbúða á mörgum af okkar vinsælustu gististöðum á frábæru
sértilboði, m.a. Los Tilos, Roque Nublo, Jardin Atlantico, Dorotea og Liberty.
Einnig okkar vinsælu smáhýsi Parque Sol og Dunas Esplendido. Góðar gisting-
ar og frábær staðsetning.
Ath. takmarkaður fjöldi íbúða á þessu frábæra tilboðsverði.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 34.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og tvö börn í íbúð á Dorotea, Roque Nublo, Los Tilos, Jardin
Atlantico, Liberty, Parque Sol eða Dunas Esplendido í viku. Aukavika kr. 12.000.
Verð kr. 44.990
Netverð á mann, m.v. 2 í íbúð á Roque Nublo, Los Tilos, Dorotea, Jardin Atlantico, Liberty,
Parque Sol eða Dunas Esplendido í viku. Aukavika kr. 12.000.
Kanaríveisla
Mjög takmarkaður fjöldi íbúða í boði!
23. og 30. janúar
frá kr. 34.990
Frábær sértilbo
ð á góðri gistin
gu!
M
bl
9
42
07
1
Auglýsingasíminn er
510 3744
stundir