24 stundir - 30.11.2007, Blaðsíða 21

24 stundir - 30.11.2007, Blaðsíða 21
24stundir FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2007 21 „Fyrr má nú rota en dauðrota“ datt mér í hug þegar ég nýverið las grein „háttvirts alþingismanns í fríblaðinu 24 stundir með yf- irskriftinni: „Hverju breytti þetta morð?“ Í greininni fullyrðir þing- maðurinn m.a. að einn fjórði hluti Gyðinga (hvaða gyðingar?) vilji láta banamann Y. Rabins, fyrrverandi forseta Ísraels, lausan úr fangelsi. Ekki kemur fram með einum stafkrók hvaðan þingmað- urinn hefur þessar upplýsingar né aðrar fullyrðingar sem og að landnemabyggðir, sem hann lýsir sem „ömurlegu braggahverfi“ séu reistar til að „storka Palestínu- mönnum“ (er þetta þversögn?), að „Palestínumenn þurfi að aka á öðruvísi og verri vegum“ o.s.fv. Allt vegakerfi um allan heim á það sameiginlegt að vera misgott, það vita að sjálfsögðu allir og þarf ekki að fara langt til að sanna það. Ekki í friðarhugleiðingum En tilurð þessara skrifa minna nú, snýst hins vegar hvorki um morð, vegi eða storkun, sem er ótrúleg orðnotkun yfir svo háal- varlega hluti sem þarna eru að gerast. Hins vegar snúast þau um þá staðreynd að þingmaðurinn, sem hefur þann sið þegar hann flytur erindi á ákveðinni útvarps- stöð að enda mál sitt með því að óska fólki Guðs friðar, þ.e. notar orðtækið „Í Guðs friði“, snýr nú blaðinu við og er ekki í neinum friðarhugleiðingum þar eð hann biður okkur hin að taka þátt í al- gjörri andstæðu við það orðtak, og biður okkur að útiloka alsak- laust ungt fólk frá íþróttavið- burðum og fólk á sviði lista og fræðimennsku ef það á rætur sín- ar að rekja til Ísraels. Allt þetta vegna þess að hann er ekki sáttur við forráðamenn þess ríkis. Þetta vekur ósjálfrátt upp minningar um hryllingsatburðina sem gerð- ust á Ólympíuleikunum í Þýska- landi fyrir allnokkru þar sem al- saklaus ungmenni frá Ísrael voru tekin af lífi, strádrepin með köldu blóði. Hjálpaði það friðarferlinu? Að sjálfsögðu ekki, miklu fremur hið gagnstæða. Þannig að hryll- ingurinn endurtekur sig sífellt, ef ekki á borði þá í orði. Saklaust fólk dregið í dilka Þessi skrif mín eru ekki til orð- in vegna þess að Ísrael á í hlut, ég hefði gert nákvæmlega það sama ef einhver hefði fundið sig knú- inn til að setja Palestínu í stað Ísraels eða eitthvert annað land. Ungt íþróttafólk, hugsuðir á sviði lista eða djúpstæðra fræða eru okkur öllum dýrmæt gjöf til betra lífs, hvar sem þeir eru í heiminn bornir eða brauðfæddir. Ég trúi því ekki að íslensk þjóð taki þátt í að draga saklaust fólk í dilka, þó beiðni um það komi frá þingmanni hins háa Alþingis, því það er ekki leið til friðar. Það er að sjálfsögðu ekki hinn almenni borgari í þeim löndum sem þing- maðurinn fjallar um, sem ræður ferð, heldur pólitísk villa ráða- manna eða ráðaleysi, því málin eru óneitanlega flókin mjög. Kristin siðfræði Guð forði okkur frá hatrinu sem stöðugt eykst í hinum stóra heimi og teygir anga sína til litla Íslands með ógnarhraða. Sá hraði og varnarleysið sem felst þar í gæti einmitt að hluta til stafað af því að við erum að losa okkur við hinn kristna arf. Við erum að taka kristna siðfræði frá börn- unum okkar, sem þó er grund- völlurinn að því besta sem þekk- ist í heiminum öllum, einnig hér á Íslandi. Það myndi fegra og bæta líf okkar allra um ókomna framtíð og minnka vandamálin að fallegu biblíusögurnar yrðu skyldulesning í skólum barnanna okkar og allir foreldrar lærðu að auki utan að: „Þótt ég talaði tungum manna og engla [..] þótt ég vissi alla leyndardóma [..], ætti alla þekking [..] en hefði ekki kærleikann [..] væri ég ekki neitt.“ Þetta stendur í 1. Kor- intubréfi Nýja testamentisins, 13. kafla. Kærleiksleiðin er og mun alltaf verða besta sigurleiðin. Kaupum nýju Biblíuna, lesum hana. Guð leyfir engu að fara þar inn, sem er gegn vilja hans. Bibl- ían er: Meistaraverkið, sem allir geta leitað til alltaf eins og einn af okkur ágætustu rithöfundum komst að orði nýverið. Þökk fyrir það. Í Guðs friði. Höfundur er fyrrverandi yfirljósmóðir Fyrr má nú rota en dauðrota UMRÆÐAN aHulda Jensdóttir Ég trúi því ekki að ís- lensk þjóð taki þátt í að draga sak- laust fólk í dilka, þó beiðni um það komi frá þingmanni hins háa Al- þingis, því það er ekki leið til friðar. Kristni „Við erum að taka kristna siðfræði frá börn- unum okkar.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.