24 stundir - 30.11.2007, Page 44
44 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2007 24stundir
MENNINGBÆKUR
menning@24stundir.is a
Í lífi höfunda skiptast á skin og
skúrir og flestir ganga í gegnum
miklar sveiflur þegar þeir setja saman
skáldverk.
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
sigbogi@simnet.is
„Í daglegu starfi fáumst við öll við
sköpun, hvert með sínu móti. Ein-
mitt þess vegna er þessi bók for-
vitnileg, því ferlið frá því rithöf-
undur fær hugmynd uns hún er
orðin að fullmótuðu verki í bók er
býsna merkilegt,“ segir Pétur Blön-
dal, blaðamaður og rithöfundur,
sem sent hefur frá sér bókina
Sköpunarsögur. Í bókinni ræðir
Pétur við tólf kunna rithöfunda
um sköpun og tilurð verka þeirra
og þær persónur og atvik sem þeir
gera sér að yrkisefni. Ljósmyndir af
viðmælendunum eru eftir Kristin
Ingvarsson.
Tólf höfundar
Pétur Blöndal hefur starfað á
Morgunblaðinu með hléum allt frá
árinu 1994. Sú ögrun að glíma við
bókaskrif leitaði á hann í fyllingu
tímans og loks afréð hann að taka
glímuna og ræða við rithöfundana
Hannes Pétursson, Kristján Karls-
son, Kristínu Marju Baldursdóttur,
Einar Kárason, Guðrúnu Evu Mín-
ervudóttur, Guðrúnu Helgadóttur,
Sigurð Guðmundsson, Vigdísi
Grímsdóttur, Steinunni Sigurðar-
dóttur, Sjón, Elías Mar og Þorstein
Gylfason en tveir þeir síðastnefndu
eru nú fallnir frá.
„Fyrstu drög að bókinni lagði ég
í kringum aldamótin þegar ég
ræddi við Elías Mar, sem var
reyndar svo skemmtilegur að við
hittumst margsinnis og ég var sí-
fellt að bæta inn í viðtalið og um-
skrifa það. Ég vildi vinna fyrsta
viðtalið til hlítar og finna með því
þráðinn fyrir bókina. Meginreglan
var annars sú að ég hitti hvern höf-
und tvisvar. Í fyrsta samtali fannst
mér ágætt að koma með undir-
búnar spurningar en leyfa samtal-
inu annars að flæða fram. Taka síð-
an stöðuna, sjá hvað þyrfti að
spyrja viðkomandi nánar út í og á
hverju þyrfti að dýpka,“ segir Pét-
ur.
Apparat á útmánuðum!
Í viðtölunum tólf lagði Pétur
talsvert upp úr því að þau væri
annað og meira en bara einræða,
heldur brygðu einnig ljósi á um-
hverfi og samtíð. „Þetta er eins og
Sjón segir: öll viðtöl hverfast um
ákveðið augnablik. Þau eru heim-
ild um þá stund,“ segir Pétur sem
kveðst hafa lært býsna margt for-
vitnilegt af viðmælendum sínum.
„Höfundarnir eru hver öðrum
ólíkari. Í viðtalinu við Einar Kára-
son hjó ég til dæmis eftir því hvað
hann var, nánast frá barnsaldri,
ákveðinn í að verða rithöfundur,
og hve einbeittur hann var í að
þroska hæfileika sína. Og það
leynir sér ekki í viðtalinu hve mik-
ill sagnamaður hann er, hver
spurning gat af sér sögu. Samtalið
við Hannes Pétursson er mér eft-
irminnilegt og ég var lengi að
manna mig upp í að bera upp er-
indið við hann, enda ræðir hann
sjaldan við fjölmiðlamenn. Við töl-
uðum saman í lok nóvember 2005
og hann tók erindi mínu ekki illa
en bað mig um að senda sér bréf
með spurningum. Ég tók því næsta
mánuðinn í að lesa aftur bækurnar
hans, og aftur og aftur, og leitaðist
við að semja það góðar spurningar
að hann gæti ómögulega hafnað
erindi mínu. Það gekk eftir. „Úr
því þú ert kominn með öngulinn í
mig þá getur þú komið til mín með
apparatið á útmánuðum,“ sagði
Hannes og með það hélt ég suður á
Álftanes.“
Sveiflur og hyldýpi
Í nýútkominni ævisögu Davíðs
Stefánssonar sem Friðrik G. Ol-
geirsson sagnfræðingur skráði seg-
ir frá þeirri einsemd sem skáldið
góða frá Fagraskógi valdi sér og bar
við að ekki væri leggjandi á aðra
manneskju að búa með skáldi sem
oft lifði mikla þjáningu í sköpun-
arstarfi sínu.
„Í lífi höfunda skiptast á skin og
skúrir og flestir ganga í gegnum
miklar sveiflur þegar þeir setja
saman skáldverk. Þeir kalla það
ýmsum nöfnum, svo sem hyldýpi,
þar sem ekkert nema verkið sem
þeir fást við þá stundina kemst að
dögum og vikum saman. Kristín
Marja segir til dæmis frá því í bók-
inni þegar hún var að glíma við
skáldsögu og var orðin svo djúpt
sokkin í viðfangsefnið að hún var
komin hálfa leið út í laug með
sundbolinn í hendinni. Þá rankaði
hún við sér og sá að þetta gekk ekki
lengur. Og Vigdísi Grímsdóttur
finnst best að fara upp í sumarbú-
stað í slíkum törnum. Þá segir vin-
ur hennar við hana: Ertu nú að
fara að brenna upp.“
Með góðum endi
„Ég hef notið góðs af því á
Morgunblaðinu að vinna með við-
talshöfundum í fremstu röð, svo
sem Elínu Pálmadóttur, Matthíasi
Johannessen, Kristínu Marju Bald-
ursdóttur og Freysteini Jóhanns-
syni sem tók einmitt viðtal við mig
nýverið út af bókinni. Mér fannst
gaman að sitja hinum megin við
borðið og fylgjast með vinnu-
brögðum Freysteins, sem skrifaði
ekki hjá sér nema eitt og eitt stikk-
orð og setningar hér og þar. En
þegar ég las viðtalið hafði hann
hins vegar botnað brotakenndar
sögur og margt var orðað miklu
betur en ég hefði nokkru sinni
sagt. Slíkt er sköpunarsaga með
góðum endi.“
Pétur Blöndal spyr tólf rithöfunda um sköpunina
Fá viðmælendur virkilega í blóðið
Út er komin bókin Sköp-
unarsögur þar sem Pétur
Blöndal blaðamaður spyr
tólf höfunda um verk
þeirra og sköpun. „Flestir
ganga í gegnum miklar
sveiflur þegar þeir setja
saman skáldverk,“ segir
höfundurinn.
Tólf viðmælendur „Í daglegu
starfi fáumst við öll við sköp-
un,“ segir Pétur Blöndal.
➤ Höfundarnir sem Pétur ræðirvið eru hver öðrum ólíkari,
meðal annarra Hannes Pét-
ursson og Guðrún Eva Mín-
ervudóttir.
➤ Ferlið frá hugmynd að full-mótuðu verki er oft býsna
merkilegt.
SKÖPUNARSÖGUR
Landsins mesta úrval af
páfagaukaleikföngum -
yfir 200 gerðir!
Borgarholtsbraut 20, 200 Kóp
S: 581 1191 / 699 3344
578-2008
Hágæða Proformance
hundafóðrið komið aftur
Lægsta verð miðað við gæði
Borgarholtsbraut 20, 200 Kóp
S: 581 1191 / 699 3344