24 stundir - 30.11.2007, Blaðsíða 48

24 stundir - 30.11.2007, Blaðsíða 48
48 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2007 24stundir Jól fyrri tíma Fjölskylduskemmtun Á Ár- bæjarsafni gefst fólki tækifæri til að upplifa jólahald fyrri tíma á sunnudag. Gömlu og kenjóttu jólasveinarnir verða á staðnum og börn og fullorðnir geta föndrað saman, smakkað á nýsoðnu hangi- kjöti eða skorið út laufabrauð. Rithöfundar á Gljúfrasteini Upplestur Rithöfundarnir Einar Kárason, Gerður Kristný, Einar Már Guðmundsson og Árni Þórarinsson lesa upp úr nýútkomnum bókum sínum á Gljúfrasteini næstkomandi sunnudag. Upplesturinn hefst kl. 16 og er aðgangur ókeypis og öllum opinn. Tröllapera frumsýnd Leiklist Áhugaleikfélagið Peðið frumsýnir leikritið Tröllaperu á Grand Rokk 1. desember kl. 16. Leikritið lýsir daglegum raunum trölla og jólasveina. Það besta í bænum Jól í gamla daga Jól fyrri tíma verða rifjuð upp á Árbæjarsafni. Eftir Einar Jónsson einarj@24stundir.is Örn Árnason leikari og Soffía Karlsdóttir söngkona blása lífi í gömul revíulög í Iðnó um helgina þar sem ófáar revíusýn- ingar voru settar upp á árum áð- ur. Stúkubræður detta í það „Við ætlum að taka nokkur þekkt lög í lok dagskrárinnar en til að byrja með syngjum við lög sem hafa ekki hljómað frá því að þau voru frumflutt og elsta lagið sem við erum með er frá árinu 1902,“ segir Örn. „Þetta kvæði heitir Gúttar á gamlárskvöld og fjallar um tvo stúkubræður sem duttu óvart í það. Það var gert gamankvæði um atburðinn og gefið út á nótum en einn stúkubróðirinn keypti allt upplagið. Honum fannst svo mik- il skömm að þessu. En hann gleymdi einu eintaki og það er til á Þjóðarbókhlöðunni,“ segir Örn og tekur undir að þau Soffía hafi þurft að leggjast í smárannsókn- arvinnu fyrir sýninguna. Sett í sögulegt samhengi „Við segjum aðeins frá því um hvað og hverja er verið að syngja því að þarna koma náttúrlega fram ýmis nöfn og vísbendingar sem enginn skilur í dag. Við segj- um aðeins frá því þannig að fólk sé einhverju nær en fyrst og fremst fær tónlistin að njóta sín.“ Revíurnar sýndu gjarnan sam- félagið í spaugilegu ljósi ekki ólíkt því sem Örn og félagar hans í Spaugstofunni gera nú. „Reví- urnar voru Spaugstofa þess tíma. Það er ekki nokkrum blöðum um það að fletta en grínið er nátt- úrlega allt öðruvísi,“ segir Örn að lokum. Revíulög lifna við á fjölum Iðnó Revíurnar voru Spaugstofa síns tíma Gamlar revíuperlur lifna við á fjölum Iðnó um helgina. Örn Árnason og Soffía Karlsdóttir láta sér ekki nægja að syngja lög- in heldur rifja þau upp sögurnar á bak við þau. Klædd í stíl Örn Árnason og Soffía Karlsdóttir klæða sig í anda tímabilsins á rev- íudagskrá í Iðnó. ➤ Sýningar verða föstudags-,laugardags- og sunnudags- kvöld og hefjast kl. 20 öll kvöldin. ➤ Söngvarnir sem fluttir verðaeru frá árunum 1902-1950. ➤ Boðið verður upp á smörre-bröd og kaffi. REVÍULÖG Í IÐNÓ Klassík við kertaljós er yfirskrift tónleika Tríós Reykjavíkur sem fram fara í Hafnarborg, menn- ingar- og listastofnun Hafnarjarðar, sunnudaginn 2. desember kl. 20. Klassík við kertaljós er árviss viðburður í tónleikaröð tríósins og miðast efnis- skráin við að veita bæði birtu og yl inn í vitund áheyrenda. Leitast er við að skapa sérstaka stemn- ingu við hlustun fagurrar tónlistar í svartasta skammdeginu. Á efnisskránni verða sónata op. 38 eftir Brahms, Vocalise eftir Rachmaninoff og sónata op. 40 eftir Shostakovits. Tónleikarnir eru tileinkaðir minningu selló- snillingsins og hljómsveitarstjórans Mstislav Rost- ropovits sem lést í apríl síðastliðnum. Rostropo- vits var einn allra áhrifamesti tónlistarmaður sögunnar og áhrifa hans gætti langt út fyrir svið tónlistar. Klassík við kertaljós í Hafnarborg Á notalegum nótum Tríó Reykjavíkur leikur við kertaljós í Hafnarborg. LÍFSSTÍLLHELGIN helgin@24stundir.is a Við ætlum að taka nokkur þekkt lög í lok dagskrárinnar en til að byrja með syngjum við lög sem hafa ekki hljómað frá því að þau voru frumflutt. Mikið úrval af handklæðum og baðmottum Feim Lene - Bjerre Bæjarlind 6 www.feim.is opið virka daga 10 - 18 og Laugardaga 11 - 16 Veiðikortið veitir aðgang að 31 vatnasvæði vítt og breitt um landið og kostar aðeins 5000 kr. K R A FT A V ER K Fæst hjá N1, veiðibúðum og á www.veidikortid.is Frí heimsending þegar verslað er beint á vefnum ECC Bolholti 4 Sími 511 1001 www.ecc.is Vinsælasta lofthreinstitæki á Íslandi! Hvað ætlar þú að gera í dag? - kemur þér við
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.