24 stundir - 30.11.2007, Blaðsíða 56

24 stundir - 30.11.2007, Blaðsíða 56
56 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2007 24stundir Leikstjórinn Sam Raimi mun ekki koma neitt við sögu hand- ritsgerðar fjórðu Spiderman- myndarinnar. Raimi sagði í við- tali við Comic Book Resources að söguþráður myndarinnar myndi ráðast alfarið af því sem hand- ritshöfundurinn dregur upp úr hattinum. Raimi sagði að þetta gilti jafnt um söguþráðinn, per- sónur sem og allt annað. vij Ræður engu um Spiderman Leikkonan Keri Russell hefur samþykkt að leika aðalhlutverkið á móti Adam Sandler í Disney- myndinni Bedtime Stories sem verður frumsýnd um jólin 2008. Myndin fjallar um fasteignasala sem lendir í þeirri óvenjulegu að- stöðu að allar sögurnar sem hann hefur sagt frændsystkinum sín- um á kvöldin, lifna skyndilega við. Þá fyrst hefst ævintýrið. vij Sögumaðurinn Adam Sandler Universal-kvikmyndaverið er um þessar mundir að undirbúa gerð kvikmyndar um ævi ruðnings- hetjunnar Joe Namath. Sam- kvæmt öruggum heimildum mun Jake Gyllenhaal sjá um að leika leikstjórnandann Namath en hann var gríðarlega vinsæll leik- maður á sjöunda áratugnum og þykir einn af betri leikstjórn- endum NFL-deildarinnar. vij Gyllenhaal er ruðningshetja Nintendo Wii er kannski krúttleg- asta leikjatölvan á markaðnum en hún er einnig sú sem er skaðlegust umhverfinu. Þetta er nið- urstaða Green- peace sem nýverið birti lista yfir þau fyrirtæki í hátækni- og tölvu- iðnaðinum sem menga hvað mest. Fyrirtækin fengu einkun á bilinu 0 og upp í 10 og af leikja- tölvuframleiðendunum fékk Sony hæstu einkunnina 7,3 á meðan Microsoft var töluvert neðar með 2,7 í einkunn. Nin- tendo rak hins vegar lestina með 0 í einkunn en góðu fréttirnar fyrir Nintendo eru þær að nú liggur leiðin bara upp á við. vij Nintendo-menn eru ekki grænir 24LÍFIÐ 24@24stundir.is a Jú, auðvitað erum við ánægð með þetta en ég er ekki ánægður með það að vera ekki ódýrastur alls staðar. Eftir Viggó I. Jónasson viggo@24stundir.is Verðkönnun Gameover.is nær til allra gerða leikjatölva og var verðið kannað á völdum hópi leikja í flest- um þeim verslunum sem selja tölvuleiki. Könnunin leiddi í ljós að verslanir BT eru í nær öllum til- fellum með hæsta verðið. Sláandi verðmunur „Þetta byrjaði þannig að við vor- um í Skeifunni að skoða verð hjá Elko og BT og sáum hvað það var alveg fáránlegur munur á milli þeirra. Því ákváðum við að bera verðið saman opinberlega; gera al- mennilega verðkönnun,“ segir Úlfar Thoroddsen, einn aðstandenda Ga- meover.is, sem er íslensk vefsíða sem fjallar um tölvuleiki, um ástæð- ur þess að aðstandendur síðunnar ákváðu að ráðast í þessa verðkönn- un. Sem fyrr segir var verðið kannað á fjölmörgum titlum fyrir allar gerðir leikjatölva og var verðmun- urinn á sumum tölvuleikjum býsna mikill á milli þess hæsta og lægsta. Leikurinn Sims 2: Castaway fyrir Playstation 2 kostar til dæmis 6.799 krónur í verslunum BT á meðan sami leikur kostar 4.495 krónur í verslunum Elko. Þarna er verðmun- urinn 2.304 krónur, eða 33,9 pró- sent. Annar leikur þar sem mikill munur er á hæsta verði og því lægsta er leikurinn Ratchet & Clank: Tools of Destruction fyrir Playsta- tion 3. Í BT kostar leikurinn 6.999 krónur en í Elko kostar hann 5.395 krónur. Þarna er verðmunurinn 1.604 krónur eða 22,9 prósent og þessar tölur eru ekki einsdæmi. „Ég er ekki ánægður með það að vera ekki ódýrastur alls staðar,“ seg- ir Örn Ægir Barkarson, innkaupa- fulltrúi afþreying- arefnis hjá Elko. Munurinn í álagning- unni Örn er ekki í vafa um að verð- munirinn liggi ein- vörðungu í álagning- unni á leikjunum. „Spurningin er bara: Viltu græða 300 kall á hverju seldu eintaki eða viltu græða 2500 kall?“ Ekki náðist í fulltrúa versl- ana BT. Könnunin var gerð 24. nóv- ember. Verðkönnun Gameover.is Leikirnir eru dýrastir í BT VERÐKÖNNUN Á TÖLVULEIKJUM Innkaupakerran BT ELKO MAX 38.276,- 30.160,- 31.434,- Leikirnir í innkaupakerrunni Crysis (PC) Guitar Hero (PS3) Rachet & Clank (PS3) SIMS 2: Cast- away (PS2) The Simpsons Game (PSP) Bioshock (PC) BT ELKO MAX 4.999 3.795 3.989 BT ELKO MAX 9.990 8.495 8.989 BT ELKO MAX 6.799 4.495 4.989 BT ELKO MAX 6.999 5.395 5.489 BT ELKO MAX 3.999 3.995 3.989 BT ELKO MAX 5.490 3.985 3.989 Stakir leikir Ratchet & Clank (PS3) BT: 6.999 ELKO: 5.395 JUST4KIDS: 6.799 MAX: 5.489 SKÍFAN: 6.999 TÖLVUVIRKNI: 5.860 Mass effect (360) BT: 6.999 MAX: 5.789 TÖLVUVIRKNI: 5.860 Crysis (PC) BT: 5.499 ELKO: 3.795 MAX: 3.989 ➤ Leikir fyrir Nintendo Wii ogDS voru oftast ódýrastir í verslunum Ormsson og Elko. ➤ Tölvuvirkni og Max voru oftmeð næstódýrasta verðið. ➤ Könnunina má sjá í heildsinni á www.gameover.is en einnig var kannað vöru- framboð verslana. VERÐKÖNNUNSamkvæmt verðkönnun leikjasíðunnar Gameover- .is eru tölvuleikir nær undantekningarlaust dýrastir í verslunum BT á meðan Elko býður oftast ódýrustu leikina. Úlfar Thoroddsen og Vilhelm Smári Framkvæmdaraðilar verð- könnunarinnar. Maður að nafni Randy Nunez hefur höfðað mál á hendur bæði Microsoft og Bungie vegna tölvuleiksins Halo 3. Nunez segir að Halo 3 virki ekki með Xbox 360-tölvunni hans og það séu hrein og klár svik því leikurinn sé auglýstur til að virka með Xbox. Reyni Nu- nez að spila leikinn frjósi tölvan. Nunez krefst skaðabóta. vij Halo 3 eyðilagði tölvuna mína New Line-kvikmyndaverið er um þessar mundir að vinna að gerð myndarinnar Man That Rocks the Cradle og mun Samuel L. Jackson vera sterklega orðaður við aðalhlutverkið. Myndin fjallar um önnum kafinn, fjög- urra barna föður sem ræður barnfóstru til að hugsa um börn- in allan sólarhringinn. Jackson mun leika barnfóstruna, barna- hvíslarann Marion Delacroix. vij Barnahvíslarinn Sam Jackson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.