24 stundir - 30.11.2007, Blaðsíða 58
58 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2007 24stundir
Eftir Viggó I. Jónasson
viggo@24stundir.is
Þetta mun verða fjórða myndin
um ævintýri fornleifafræðingsins
dr. Jones en síðasta myndin, In-
diana Jones and the Last Crusade,
var frumsýnd árið 1989.
Líkt og í fyrri myndum er
myndin samstarfsverkefni leik-
stjóranna Steven Spielberg og
George Lucas og sem fyrr mun
Spielberg sjá um leikstjórn mynd-
arinnar.
Til þess að fanga andrúmsloft
gömlu Indiana Jones-myndanna
enn betur hafa aðstandendur
myndarinnar ákveðið að halda
tölvugerðum atriðum í lágmarki
og því verður mestmegnis treyst á
áhættuleikara. Það mun líklega
koma mörgum á óvart að Harrison
Ford sér sjálfur um öll sín áhættu-
atriði í myndinni sem verður að
teljast nokkuð gott fyrir mann sem
er farinn að nálgast sjötugt.
Morðóðir kommar
Lítið hefur verið staðfest um
söguþráð myndarinnar fyrir utan
það að Indy er að eltast við ein-
hvern stórmerkilegan forngrip sem
morðóðir Sovétmenn hafa einnig
augastað á. Ungstirnið Shia
LaBeouf fer með stórt hlutverk í
myndinni og er talið líklegt að
hann muni leika son hins aldna
fornleifafræðings.
Myndefni frá framleiðslu mynd-
arinnar hefur verið af skornum
skammti en nú hafa lekið á netið
myndir úr hinni væntanlegu stór-
mynd og er ekki annað að sjá en
Harrison Ford líti enn vel út í hlut-
verki hins fræga dr. Indiana Jones.
Harrison Ford er enn flottur
Indiana Jones
snýr aftur
➤ Fyrsta myndin, Raiders of theLost Ark, kom út árið 1981.
➤ Sean Connery lék föður In-diana í Indiana Jones and the
Last Crusade.
INDIANA JONESIndiana Jones and the
Kingdom of the Crystal
Skull er án efa stórmynd
næsta árs. Nýbirtar
myndir úr myndinni sýna
að Harrison Ford hefur
engu gleymt.
Harrison Ford hefur
alls engu gleymt.
Indy og sonur? Harrison
Ford og Shia LaBeouf í
hlutverkum sínum.
Þetta listaverk eftir Betty Dod-
son, sem minnir um margt á
gamalt Spaugstofuatriði, hefur
eflaust sært blygðunarkennd
margra, en samkvæmt Betty er
markmiðið að fá konur til að taka
líkama sinn í sátt. Betty segir
margar konur ekki treysta nátt-
úrunni fyrir umhirðu píkunnar
og freistast til að nota sápu sem
getur sett sýrustig legganganna í
uppnám. tsk
Vekur athygli
með leggöngum
Samkvæmt
rannsókn evr-
ópskra vísinda-
manna, sem
kynnt var á ár-
legri ráðstefnu
um daginn,
inniheldur bjór
töluvert magn af
kvenhormónum.
Prófanir voru gerðar á 100
mönnum yfir ákveðið tímabil.
Allir mennirnir þyngdust nokk-
uð, fundu þörf til að tala fram úr
hófi án þess að hafa eitthvað að
segja, urðu óvenju tilfinn-
inganæmir, gátu ekki keyrt né
hugsað rökrétt, rifust yfir engu,
settust við þvaglát, neituðu að
biðjast afsökunar þegar þeir
höfðu á röngu að standa og stóðu
sig verr í rúminu. tsk
Bjór breytir
körlum í konur
Breskir kvikmynda- og sjón-
varpsmyndahöfundar sýndu banda-
rískum kollegum sínum samstöðu í
gær með táknrænum mótmælum í
London. Kölluðu þeir hástöfum:
„Við styðjum bandaríska höfunda-
sambandið.“ Eins og sjónvarps-
aðdáendum ætti að vera ljóst hefur
bandaríska sambandið, WGA, verið
í verkfalli frá 5. nóvember, sem hef-
ur lamað alla sjónvarps- og kvik-
myndaframleiðslu í Hollywood.
Svipuð mótmæli hafa átt sér stað í
París, Berlín og fjórum áströlskum
borgum. Helsta baráttumálið er að
fá hluta ágóðans sem hlýst af net-
sölu, en áhorf á kvikmyndir fer að
miklu leyti fram í tölvum, símum
og öðrum slíkum græjum.
traustis@24stundir.is
Í verkfalli Breskir kollegar
bandarískra handritahöfunda
sýndu samstöðu sína.
Verkfall handritshöfunda fær víða samúð
Bretar sýna samstöðu
24LÍFIÐ
24@24stundir.is a
Það mun líklega koma mörgum á óvart að
Harrison Ford sér sjálfur um öll sín áhættu-
atriði í myndinni sem verður að teljast nokkuð gott
fyrir mann sem er farinn að nálgast sjötugt.
-hágæðaheimilistæki
Miele ryksugur
á einstöku tilboðsverði
Miele S381 Tango Plus ryksuga
með 1800W mótor
Verð áður kr. 24.600
Tilboð:
Kr. 15.990
Fáanlegir fylgihlutir t.d.:
Hebafilter sem hreinsar loftið af
ofnæmisvaldandi efnum.
Kolafilter sem hreinsar óæskilega lykt.
Hentar vel fyrri þá sem eru með gæludýr.
Parketbursti sem skilar parketinu
glansandi.
Miele ryksugurnar eru traustar og kraftmiklar. Þær eru með
stillanlegu röri og mikið úrval fylgihluta er innbyggt í vélina.
Verið velkomin í glæsilegar verslanir Eirvíkur á Akureyri og
í Reykjavík og kynnið ykkur Miele heimilistækin.
AFSLÁTTUR
35%
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
Baldursnes 6, Akureyri | Suðurlandsbraut 20, Reykjavík Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Misty, Laugavegi 178,
Sími 551 3366
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf
www.misty.is
Rosalega flottur og sexí í
D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 4.990,-
Mjúkur, samt haldgóður, mjög gott
snið í D,DD,E,F,FF,G,GG,H,HH,J
skálum á kr. 5.990,
Stelpulegur og sætur í
D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 4.990,-