24 stundir - 11.01.2008, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 24stundir
Skeifunni17 • Smáralind • Akureyri • Ísafirði • Egilsstöðum
• Vestmannaeyjum • Selfossi • Hafnarfirði (Bókabúð Böðvars)
Allt fyrir skrifstofuna
undir 1 þaki
VÍÐA UM HEIM
Algarve 17
Amsterdam 9
Ankara -2
Barcelona 15
Berlín 5
Chicago 2
Dublin 7
Frankfurt 8
Glasgow 8
Halifax 4
Hamborg 7
Helsinki 1
Kaupmannahöfn 5
London 11
Madrid 12
Mílanó 5
Montreal 2
München 4
New York 6
Nuuk 2
Orlando 14
Osló 3
Palma 20
París 9
Prag 2
Stokkhólmur 2
Þórshöfn 2
Hægur vindur og víða bjart, en skýjað og dá-
lítil él úti við norður- og austurströndina. Hiti
0 til 5 stig við sjávarsíðuna, en frost allt að 8
stig í innsveitum.
VEÐRIÐ Í DAG
2
1
2 2
0
Dálítil él
Fremur hæg austlæg átt og skýjað með köfl-
um, en dálítil él úti við sjóinn. Talsvert frost.
VEÐRIÐ Á MORGUN
2
-1
-1 -2
-1
Talsvert frost
„Það er mikil óvissa í þessu,“
segir Vilhjálmur Bjarnason, tals-
maður Félags fjárfesta, um þá
stöðu sem komin er upp á hluta-
bréfamarkaði.
Ólafur Ísleifsson, lektor við við-
skiptadeild Háskólans í Reykjavík,
segir augljóst að mikið af þeim söl-
um sem nú eru á hlutabréfamark-
aði séu þvingaðar sölur. „Hver vill
selja við þessar aðsæður þegar allt
er á niðurleið? Sumir ætla að forða
sér vegna þess að þeir halda að
bréfin muni lækka ennþá meira.
En það er auðvelt að gera sér í hug-
arlund að mikið af þessu séu
þvingaðar sölur,“ segir hann.
Vilhjálmur segir þessar
þvinguðu sölur hafa þau áhrif að
meira framboð sé á markaðnum og
þrýstingur á sölu.
„Þetta hefur örugglega þrýst á og
vitundin um þetta hefur ekki hvatt
til kaupa,“ segir hann.
Tækifæri í stöðunni
Vilhjálmur segir tækifæri felast í
þessari stöðu. „Það eru alltaf tæki-
færi að kaupa á lágu verði,“ segir
hann en bætir við að óvissan sé það
mikil að hann geri sér ekki full-
komlega grein fyrir ástandinu.
„Fyrir þá sem þurfa á peningi að
halda í dag er þetta slæm staða en
menn verða bara að reikna með því
að stundum er verðfall og við því er
ekkert að segja,“ segir Vilhjálmur,
spurður um það hvort þurfi að
hafa miklar áhyggjur af ástandinu.
elias@24stundir.is
Þvingaðar sölur auka framboð og þrýsta verðinu niður
Óvissa ríkir enn á markaði
Maðurinn sem grunaður er um
að vera valdur að dauða fjögurra
ára drengs í Keflavík 30. nóvember
síðastliðinn hafði einn aðgang að
bifreiðinni sem ekið var á dreng-
inn. Þetta kemur fram í yfir-
heyrslum yfir skráðum eiganda bif-
reiðarinnar. Hinn grunaði var
úrskurðaður í áframhaldandi far-
bann til 29. janúar á þriðjudaginn
var og var sá úrskurður staðfestur í
Hæstarétti í gær. Maðurinn hefur
neitað að vera valdur að dauða
drengsins en mikils ósamræmis
hefur gætt í framburði hans og
framburður hans samrýmist ekki
framburði vitna sem lögreglan hef-
ur yfirheyrt. Einnig er talið ljóst að
reynt hafi verið að hafa áhrif á vitn-
isburð vitna í málinu og er talið að
það sé frá kærða komið. fr
Reynt að hafa áhrif á vitni í Keflavík
Sá eini sem hafði
aðgang að bílnum
Sigurður Líndal prófessor segir Árna Mathie-
sen greinilega ekki botna í viðfangsefninu þeg-
ar hann gagnrýni dómnefndina, sem mat
hæfni umsækjenda um starf héraðsdómara,
fyrir að halda að álit hennar sé bindandi. Árni
sagði í yfirlýsingu í gær að nefndin hefði mis-
skilið hlutverk sitt.
„Í þessu tilfelli reisa vandaðir stjórnsýsluhætt-
ir valdi ráðherra skorður og dómnefndin tak-
markar vald hans þótt hún bindi það ekki,“
segir Sigurður og leggur áherslu á að í rétt-
arríki sé „vald í eðli sínu takmarkað“. Einnig
gagnrýnir hann ráðherra fyrir að rökstyðja ekki þá fullyrðingu í yf-
irlýsingunni að gallar séu á áliti dómnefndar.
Sigurður gagnrýnir rök ráðherra fyrir skipun Þorsteins Davíðssonar.
Hann segir áherslur ráðherrans vera „á framgang í skjóli stjórn-
málaflokks“, t.d. á reynslu Þorsteins í starfi aðstoðarmanns dóms-
málaráðherra og nefndarstörf fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Loks gagn-
rýnir hann að ráðherra tilgreini færni Þorsteins í samningu lagatexta
sem rök fyrir valinu, án þess að nokkur gögn liggi fyrir um hana. þkþ
Vald ráðherra takmarkað
Árni M. Mathiesen, settur dóms-
málaráðherra, gaf út yfirlýsingu
vegna greinargerðar dómnefndar
í gær. „Þar eru slíkar rangfærslur
að nefndin vill ekki eltast við yf-
irlýsinguna,“ segir Pétur Kr. Haf-
stein, formaður dómnefnd-
arinnar, og vísar í greinargerð
nefndarinnar. þkþ
Eltast ekki við
rangfærslurnar
Tveir menn voru handteknir í
Borgarnesi í gær vegna gruns um
íkveikju í parhúsi á Hvanneyri í
fyrrinótt. Öðrum manninum var
sleppt eftir skýrslutöku en hinn
verður áfram í haldi lögreglu
vegna rannsóknar málsins.
Að sögn slökkviliðsins í Borg-
arnesi var einn maður í íbúðinni
og komst hann út af sjálfsdáðum.
Hann var fluttur til læknisskoð-
unar vegna gruns um reykeitrun.
Eldurinn í búðinni var ekki mjög
mikill en íbúðin skemmdist tals-
vert af völdum reyks og hita.
mbl.is
Í haldi vegna gruns um íkveikju
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@24stundir.is
Margir danskir þingmenn eru
hlynntir tillögu Ritt Bjerregaard,
borgarstjóra Kaupmannahafnar,
um að gerð verði skrá yfir ofbeld-
ismenn. Eru þingmennirnir fúsir til
að breyta lögum svo að veitinga-
staðir geti skráð og vísað frá þeim
ólátaseggjum sem settir hafa verið í
nálgunarbann, að því er greint er frá
á fréttavef Berlingske Tidende.
Þingmenn taka það þó fram að
finna verði lausn sem komi í veg
fyrir að aðrar upplýsingar en nálg-
unarbann verði kunnar öðrum en
lögreglunni.
Kormákur Geirharðsson, stjórn-
armaður í Félagi kráareigenda, segir
félagið ætla að safna upplýsingum
um ofbeldismenn og setja myndir
af þeim á heimasíðu félagsins til að
dyraverðir geti þekkt þá og meinað
þeim inngöngu.
„Ég ætla ekki einu sinni að kanna
hvort ég má setja myndirnar á
heimasíðuna. Ef einhverjum er illa
við þetta verður hann að gefa sig
fram. En ef þetta er bannað þá
göngum við bara á milli staðanna
og dreifum myndum af þessum
mönnum ef okkur finnst ástæða til.
Ég þekki þessa menn ekki í sjón en
ég myndi vilja að dyraverðirnir
mínir þekktu þá. Við hleypum ekki
mönnum inn sem við sjáum að eru
dópistar. Af hverju ættum við að
hleypa inn ofbeldismönnum? Það
er alveg jafnslæmt.“
Að sögn Kormáks eru ofbeldis-
mennirnir örfáir. „En þeir eru eins
og rotin epli og ef veitingastaður
fær á sig slæmt orðspor vegna þeirra
getur það eyðilagt viðskiptin.“
Geir Jón Þórisson yfirlögreglu-
þjónn segir veitingastaði ráða því
hverjum þeir hleypi inn. „Og sam-
kvæmt lögreglusamþykkt getur lög-
regla einnig vísað þeim mönnum
burt af almannafæri sem vegna ölv-
unar eða annarrar háttsemi valda
íbúum í nágrenni ónæði eða hættu.
Við viljum allt gera til að einangra
þá sem skapa óróa,“ tekur Geir Jón
fram.
Hann kveðst hins vegar efins um
að heimilt sé með tilliti til persónu-
verndar að setja myndir af óláta-
seggjum á netið. Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra segir einnig að
um persónuverndarsjónarmið geti
verið að ræða.
Danir vilja skrá
yfir hrottana
Danskir þingmenn hlynntir tillögu borgarstjóra Kaupmanna-
hafnar Veitingastaðir eiga að geta vísað hrottum frá
Í miðbænum Lögreglan
hefur í nógu að snúast um
helgar.
➤ Veitingamenn segja að sýni-leg löggæsla hafi jákvæð
áhrif og dragi úr ofbeldi.
➤ Lögreglustjórinn á höf-uðborgarsvæðinu hefur sagt
að breyta beri afgreiðslutíma
skemmtistaða ef í ljós kemur
að of langt hafi verið gengið.
LÖGGÆSLA
24stundir/Júlíus
STUTT
● Ákærur Ríkissaksóknari hefur
ákært sex karlmenn vegna inn-
flutnings á tugum kílóa af
fíkniefnum í svokölluðu Pól-
stjörnumáli. Efnin fundust í
skútu sem kom til hafnar á Fá-
skrúðsfirði í haust. Þetta kom
fram í fréttum Útvarpsins.
Fimm eru í gæsluvarðhaldi
vegna málsins. Einn Íslend-
ingur situr í gæsluvarðhaldi í
Færeyjum og verður hann
væntanlega ákærður þar.
● Þjófnaður Tilkynnt var um
þjófnað í verslun í miðborg-
inni. Kom til ryskinga á milli
afgreiðslumanns og tæplega
fertugrar konu sem er grunuð
um þjófnaðinn. mbl.is
Leiðrétt
Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.