24 stundir - 11.01.2008, Blaðsíða 26

24 stundir - 11.01.2008, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 24stundir Eftir Hildu H. Cortez hilda@24stundir.is „Við þekkjum öll erfitt fólk og á námskeiðinu sem kallast Að takast á við erfiða einstaklinga tökum við fyrir ákveðnar týpur og hegð- unarmynstur einstaklinga,“ segir Ingrid. „Það sem við förum líka í er okkar eigin hugsun vegna þess að samskipti eru flókin og auðvelt að gera mistök. Stundum drögum við rangar ályktanir um það sem aðrir eru að hugsa eða þarfnast og stundum er þetta bara skilnings- leysi og við höldum að aðrir bregðist við á ákveðinn hátt.“ Erfitt að breyta fólki „Það sem er í raun mikilvægt að hafa í huga og við kennum á nám- skeiðinu er að fólk er kannski ekki endilega erfitt heldur er það öðru- vísi og við þurfum að eiga við þennan mismun. Þetta er líka spurning um að skilja sjálfan sig fyrst áður en við förum að skilja aðra, það er mjög erfitt að breyta öðrum því að erfiðir einstaklingar telja sig ekki ósanngjarna, þeir telja sig hafa rétt á sinni skoðun. Stundum er fólk erfitt af því að það er stressað eða í slæmu skapi eða finnst því vera ógnað. Svo eru sumir sem sjá alltaf það neikvæða í öllu.“ Ingrid segir oft hægt að skipta erfiðum einstaklingum í ákveðnar týpur. „Við tölum til dæmis um einræðisherrann sem er ein- staklingur sem valtar yfir aðra, er oft óútreiknanlegur og talar niður til fólks. Þetta fólk reiðist auðveld- lega og kennum við fólki til dæmis að bregðast ekki við meðan á reiðikasti stendur og láta viðkom- andi ekki æsa sig upp en eins er mikilvægt að hörfa ekki. Svo er það vitringurinn sem þykist sér- fróður um allt og kunnátta hans er að eigin mati afar mikil og einstök. Hann hunsar skoðanir annarra og líkar ekki að vera mótmælt. Þessi aðili finnur alltaf sökudólg ef skoðun hans reynist vera röng. Í samskiptum við vitringinn bend- um við fólki á að vera vel und- irbúið og biðja viðkomandi um nánari útskýringar á máli sínu og leggja fram rök í formi spurninga í stað þess að fara að hegða sér sem gagnsérfræðingur. Það er heldur alls ekki gott að gera lítið úr sjálf- um sér eða þekkingu sinni.“ Hlutverkaleikur skilar miklu Á námskeiðinu bregða þeir Jón Gnarr og Valgeir Skagfjörð sér í gervi erfiðra einstaklinga, enda er hlutverkaleikur partur af pró- gramminu. „Jón Gnarr er auðvit- að snillingur í að leika mismun- andi týpur og Valgeir er það líka, en margir hafa eflaust séð Jón í Næturvaktinni í hlutverki Georgs Bjarnfreðarsonar þar sem óhætt er að segja að hann sé sannkallaður einræðisherra. Við leggjum áherslu á að fólk taki virkan þátt og við viljum að fólk komi með eigin dæmi. Síðan er farið í hlut- verkaleik þar sem tekist er á við erfiða einstaklinga en þannig lærir fólk að tileinka sér tæknina sem við erum að kenna á námskeiðinu. Við lærum líka mikið af því að horfa á aðra og eru yfirleitt svona 12 til 15 á námskeiðinu og allir með eigin sögu af einstaklingum sem þeir takast á við dagsdaglega.“ Nýtt samskiptamynstur Að sögn Ingridar felst nám- skeiðið einnig í því að kenna fólki nýtt samskiptamynstur. „Margir festast kannski sjálfir í ákveðnu mynstri þegar þeir eiga við þessa erfiðu einstaklinga og bregðast alltaf eins við þeim og fá þar af leiðandi alltaf sömu viðbrögðin. Það þarf því líka að átta sig á því að það er sjaldnast hægt að breyta fólki og er þetta oftar spurning um að breyta sjálfum sér og sinni sam- skiptatækni. Það er það sem við getum haft stjórn á, við getum ekki haft stjórn á öðru fólki og al- mennt er mikilvægt að reyna að skilja hinn erfiða, ekki dæma eða ásaka og ekki taka viðkomandi persónulega.“ Höfum alltaf val þegar við tökumst á við erfiða einstaklinga Hvernig skal takast á við erfiðar týpur? ➤ Námskeiðið Að takast á viðerfiða einstaklinga verður haldið þann 21. janúar næst- komandi á Grand Hótel og stendur yfir frá klukkan 13 til 17. ➤ Nánari upplýsingar er hægtað fá hjá Þekkingarmiðlun í síma 892-2987 eða á www.thekkingarmidlun.is. NÁMSKEIÐIÐ „Mannleg samskipti geta verið flókin, sér- staklega þegar ákveðnar týpur eiga í hlut,“ segir Ingrid Ku- hlman, framkvæmda- stjóri Þekkingarmiðl- unar. „En það er hægt að læra að takast á við slíka einstaklinga.“ Jón Gnarr Bregður sér í hlutverk erfiðra einstaklinga á nám- skeiði hjá Þekking- armiðlun. 24 stundir/Kristinn Sumt er einfaldlega ekki hægt að kenna heldur verður maður að æfa sig eins mikið og maður getur. Að kyssa er eitt slíkt og svo sem ekki amalegt að æfa sig í því. Notaðu skammdegið til að kúra uppi í sófa með makanum og æfið ykkur í að kyssast á mismunandi hátt. Stuttir, langir, blautir eða mömmukossar, úrvalið er endalaust og um að gera að gera eitthvað svona kósí eftir langan vinnudag. Kenndu mér að kyssa rétt Það er auðveldlega hægt að kenna að spara. T.d. getur verið góð hug- mynd þegar farið er í frí að bóka ekki hótel heldur frekar finna ein- hvern sem er tilbúinn að skiptast á húsi eða íbúð við þig. Slík skipti verða æ vinsælli víða um heim. Mundu líka að kaupa ekkert í flýti ef þú getur verið án hlutarins í ein- hvern tíma og veltu vel fyrir þér verði og nauðsyn, svo og hvort var- an kostar alls staðar það sama. Lærðu auðvelda sparsemi stundir Skemmtileg námskeið Námskeið fyrir börn og unglinga: * Gítarnámskeið * Trommunámskeið * Bassanámskeið 10 vikna hljóðfæranámskeið ætlað byrjendum. Kennt í litlum hóptímum þar sem þátttakendum er raðað í hópa eftir aldri og getu. Námskeið fyrir fullorðna: * Partýgítarnámskeið * Leikskólagítarnámskeið 6 vikna skemmtileg gítarnámskeið ætluð byrjendum í gítarleik Upplýsingar og skráning á www.tonsalir.is ónsalir Bæjarlind 2 - Sími 534-3700 - www.tonsalir.is Tónsalir er ryþmískur tónlistarskóli þar sem leitast er við að viðhalda gleðinni í hljóðfæraleiknum. Fræðslunámskeið Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins eru ætluð þeim sem vinna með börnum með þroskaraskanir og eru jafnframt opin aðstandendum. Námskeiðin eru bæði fræðileg og hagnýt. Meðal þess sem verður í boði á vormisseri: • Einhverfa og aðrar raskanir á einhverfurófi • Aspergersheilkenni og skyldar raskanir, grunn- og framhaldsnámskeið • Aspergersheilkenni og kynheilbrigði • Skipulögð kennsla, byggð á hugmyndafræði TEACCH • Atferlisþjálfun fyrir börn með einhverfu • Ráðagóðir foreldrar – námskeið í hegðunarstjórnun fyrir foreldra barna með þroskaraskanir • Börn með hreyfihömlun - þátttaka í grunnskólastarfi • Börn með þroskaraskanir - nám, hegðun og félagsleg þátttaka í grunnskóla • Snemmtæk íhlutun - markmið og leiðir • Jákvæðar leiðir til bættrar hegðunar • Tákn með tali, grunn- og framhaldsnámskeið • ofl. Upplýsingar og skráning á námskeið er á www.greining.is NÁMSKEIÐ VOR 2008 H 2 h ö n n u n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.