24 stundir - 11.01.2008, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 24stundir
Eftir Auði Alfífu Ketilsdóttur
fifa@24stundir.is
„Þegar hugmyndin um einsetningu
grunnskóla kom fram um 1990, var
aðaláherslan að frístundirnar færu
inn í skólana og öll fjölskyldan væri
komin heim klukkan 5. Það hefur
ekki orðið,“ segir Kristín Ólafs-
dóttir en hún er ein þeirra hátt í 80
foreldra sem mættu á fund
menntasviðs Reykjavíkurborgar og
Íþrótta- og tómstundaráðs Reykja-
víkur (ÍTR) í gær. Efni fundarins
var samstarf skóla, frístundaheim-
ila og félagsmiðstöðva og aukin
samfella í skóladegi barna.
Kristín vill meina að ekki hafi
tekist nægilega vel upp með sam-
þættingu tómstunda og skóla.
Dóttir hennar sækir tónlistartíma
út fyrir skólann en hún vildi sjá
tónlistarnámið í skólanum.
Fjöldi foreldra á fundinum var á
sömu skoðun, til að mynda sagði
móðir tveggja unglingsdrengja sem
æfa sund að skólinn kæmi lítið til
móts við þá, svo þeir þurfa að
vakna klukkan fimm til að ná á æf-
ingu áður en skólinn hefst. Hún
vildi sjá breytingu þar á. Þá var
töluvert rætt um að börn þyrftu að
fara langa leið til að stunda frí-
stundastarf, jafnvel starf sem áður
fór fram í skólunum.
Björn Ingi Hrafnsson formaður
ÍTR og Ómar Einarsson sviðsstjóri
sögðu nýja stöðu í tómstundastarfi
nú, þar sem það væri orðið svo
tengt skólunum. Íþróttaþjálfarar
þyrftu að mæta á vinnutíma og
þannig þyrfti að semja upp á nýtt
við margt það fólk sem nú hefur
umsjón með barnastarfi. Þá væri sú
krafa einnig að aukast að það fólk
hefði meiri menntun á sínu sviði.
Mannekla enn vandamál
Skortur á starfsfólki stendur víða
í vegi fyrir því að börn komist að á
frístundaheimilum. Ómar sagði
það vilja borgarinnar að fá fólk til
starfa í þessum geira, meðal annars
með því að bjóða upp á fullt starf
þar sem fólk ynni til að mynda sem
skólaliðar fyrir hádegi en eftir há-
degi á frístundaheimilum. Á sumr-
in starfaði það svo við tómstunda-
starf á vegum ÍTR.
Biðlistar á frístundaheimilin
voru einnig meðal þess sem brann
á fundarmönnum og höfðu sumir
beðið í mörg ár eftir plássi.
Björn Ingi Hrafnsson minnti á
að frístundaheimilin væru ekki
lögbundin þjónusta sveitarfélaga
heldur hefði verið boðið upp á þau
til reynslu, þó augljóst væri að þau
væru orðin föst í sessi.
Þá var mikið rætt um sam-
göngumál og almennt álitið að
bæta þyrfti stórlega strætisvagna-
samgöngur innan hverfa.
Skýr vilji frá pólitíkusum
Björn Ingi sagðist eftir á nokkuð
sáttur við fundinn. „Við erum
mjög ánægð með að hafa staðið
fyrir þessum fundi, það var rétt
ákvörðun“ segir hann.
Hildur Björg Hafstein frá SAM-
FOK var jákvæð eftir fundinn.
„Það er allavega skýr vilji frá
pólitíkusum og embættismönnum
til að breyta þessu,“ sagði hún.
ÞEKKIR ÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
Einsetning
skóla mistókst
Miklar umræður um frístundaheimilin á fundi með foreldrum
Markmið hafa ekki náðst Bæta þarf samgöngur
24stundir/Eggert
Fjölmenni Margt brann á
foreldrum á fundi ÍTR í gær.
aÁhersla verði lögð á samþættingubóknáms, íþrótta, listnáms og tóm-
stunda í samfelldum skóladegi.
Markmiðið er að vinnudegi barna
ljúki fyrr á daginn og fjölskyldan eigi
lengri samverustundir. Þannig verði
uppfyllt markmið sem sett voru við
einsetningu grunnskólans.
Úr Kosningastefnuskrá B-listans
í Reykjavík 2006
24stundir/Eggert
„Þetta byrjaði með því að einn
bauðst til að gefa vinnu við pípu-
lagnir ef sveitarfélagið keypti efnið
og þá byrjaði bara boltinn að
rúlla,“ segir Ásdís Leifsdóttir, sveit-
arstjóri í Strandabyggð, en um
næstu helgi er óskað eftir sjálf-
boðaliðum til að mála Félagsheim-
ilið á Hólmavík.
Að sögn Ásdísar ætlar sveitarfé-
lagið að leggja til efni og nú um
helgina er áætlað að ljúka málning-
arvinnu við félagsheimilið. „Fólk
bara mætir klukkan eitt og byrjar
að vinna, það eru nokkrir búnir að
hafa samband og segjast ætla að
koma svo það verður vel mætt. Við
ætlum líka að bjóða upp á vöfflur
og svona og hafa gaman af þessu,“
segir Ásdís. Seinna verður skipt um
pípulagnir og lagt parket. Sjálf-
boðavinna af þessu tagi er ekki
einsdæmi í sveitinni. „Það var
byggður nýr fótboltavöllur hér á
Hólmavík því sá sem var áður var
aðeins fyrir utan bæinn og krakk-
arnir þurftu að hjóla eftir þjóðveg-
inum til að komast þangað,“ segir
hún en tvær helgar í leiðindaveðri
unnu allir sem vettlingi gátu valdið
að því að búa til nýjan völl, burtséð
frá því hvort þeir áttu börn eða
ekki. „Það er dugmikið og bjart-
sýnt fólk sem býr hér á Ströndum,“
segir sveitarstjórinn . fifa@24stundir.is
Óska eftir sjálfboðaliðum á Hólmavík
Flikkað upp á félagsheimilið
Ljósmynd Ingimundur Pálsson
Félagsheimilið Nú vantar bara fólk því málningin er til
Árborg hefur ákveðið að kaupa
Vallholt 38 á Selfossi til að hýsa
dagvist fyrir heilabilaða í sam-
starfi við Félag aðstandenda Alz-
heimerssjúklinga (FAAS) sem
mun reka starfsemina. Dagvistin
verður sú fyrsta sinnar tegundar
sem sett er á fót utan höfuðborg-
arsvæðisins.. „Við erum nátt-
úrlega með Alzheimersjúklinga hér sem hafa engin úrræði,“ segir Mar-
grét Erlingsdóttir bæjarfulltrúi.
Óskað er eftir fjármagni frá ríkinu til rekstrar þjónustunni og verður
dagvistin svo opnuð um leið og leyfi fæst frá heilbrigðisráðuneytinu
fyrir starfseminni. Síðar meir er ætlunin að starfsemin flytjist yfir í
hús þjónustumiðstöðvar aldraðra á Austurvegi. Áætlað er að dagvistin
muni þjóna 15 manns þegar starfsemin er hafin að fullu. þkþ
Dagvist opnuð á Selfossi
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
fallist á kröfur Más Ólafssonar
trillukarls á Hólmavík um að
ómerkt verði ákvörðun skatt-
stjóra Vestfjarðaumdæmis um að
hækka framtalsskyld laun og að
ómerktur verði úrskurður yf-
irskattanefndar um staðfestingu
ákvörðunar skattstjórans. Hér-
aðsdómur féllst einnig á kröfu
Más um að fá greiddan máls-
kostnað. Í málinu var tekist á um
hvort viðmiðunarregla ríkisskatt-
stjóra um reiknað endurgjald
hefði lagastoð. Á heimasíðu
Landssambands smábátaeigenda
segir að gera megi ráð fyrir að
dómurinn hafi fordæmisgildi. ibs
Trillukarl vann
mál gegn ríkinu
Arna Sigríður Al-
bertsdóttir, 17
ára mennta-
skólanemi á Ísa-
firði, er Vestfirð-
ingur síðasta árs,
að mati lesenda
bb.is frétta. Anna
Sigríður
slasaðist alvarlega á skíðum í
Noregi 30. desember 2006 og
lamaðist fyrir neðan mitti. Les-
endum bb.is finnst hún góð fyr-
irmynd annarra, vegna þraut-
seigju og jákvæðni, þótt hún sé
bundin við hjólastól. Annar í röð
Vestfirðinga ársins 2007 er Jón
Bjarnason, bóndi að Hvestu í
Arnarfirði, þriðja er Vilborg
Arnardóttir, stofnandi Ragga-
garðs í Súðavík, fjórði er (Mug-
ison), tónlistarmaður í Súðavík,
og í fimmta sæti er Reimar Vil-
mundarson, skipstjóri í Bolung-
arvík.
bee
Vestfirðingar
ársins 2007
P
IP
A
R
S
ÍA
9. - 11. janúar
landsfrægir
skemmtikraftar
skemmta matargestum
í hádeginu og á kvöldin.