24 stundir - 11.01.2008, Síða 42

24 stundir - 11.01.2008, Síða 42
Eftir Albert Örn Eyþórsson albert@24stundir.is Eftir rúmar þrjá vikur kemur fyrst í ljós hvaða áhrif nýr þjálfari hef- ur á stöðu mála hjá landsliði Ís- lands í knattspyrnu en þá mun liðið keppa við Möltu, Hvít-Rússa og Armena á æfingamóti á Möltu. Er þetta í raun fyrsta tækifæri Ólafs Jóhannessonar sem ráðinn var landsliðsþjálfari í október síð- astliðnum til að hrista saman hóp að sínu skapi og víst að allmargir fylgast spenntari með en ella. Starf Ólafs hingað til hefur ver- ið tiltölulega rólegt. Hann stýrði liðinu gegn Dönum í nóvember í 3-0 tapi en hafði skamman tíma til undirbúnings og verður ekki dæmdur af þeim leik. Nú hefur hann hins vegar feng- ið tæpa þrjá mánuði til undir- búnings fyrir umrætt mót á Möltu og ætli hann inn með nýjar áherslur ættu áhugamenn að sjá það í leik liðsins, jafnvel þó enn leiki mikill vafi á hvaða leikmenn Ólafur hefur aðgang að á þessum tíma að hans sögn. „Það er aðeins einn dagur af þessum alþjóðlegur leikdagur og jafnvel hjá strákun- um á Norðurlöndum sem ekki eru að spila er upp og niður hvort þeir komast til Möltu eður ei. Það ræðst í næstu viku hvernig leik- mannahópurinn verður skipaður en ég á von á að taka með mér marga héðan af Íslandi.“ Landsliðsþjálfarinn er hins veg- ar varfærinn hvað mótherjana varðar og fellst ekki á að þar eigi íslensku strákarnir að eiga sigur vísan. „Við eigum ekki neitt gegn neinum heldur þarf að hafa fyrir öllu saman og sama gildir um þessi landslið sem við mætum þarna.“ Samkvæmt heimslista Alþjóða knattspyrnusambandsins er lið Möltu í 136. sæti, Hvít-Rússa í því 60. og Armenar í 93. Íslenska liðið er í 90. sæti. Haus í bleyti Ólafur hefur haft það fremur náðugt síðustu mánuði en hugsar mikið um komandi átök. Fyrsta landsliðs- verkefni Ólafs  Fyrsta verkefni Ólafs Jóhannessonar landsliðsþjálfara fram- undan á Möltu  Erfiðlega gengur að fá atvinnumennina til leiks ➤ 2. febrúar kl. 14Hvíta-Rússland - Ísland ➤ 4. febrúar kl. 18.45Ísland - Malta ➤ 6. febrúar kl. 16.30Armenía - Ísland LEIKIRNIR 42 FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 24stundir ÍÞRÓTTIR ithrottir@24stundir.is a Jafnvel hjá strákunum sem spila á norðurlöndunum sem ekki spila þessa dagana er upp og niður hvort þeir komist til Möltu eður ei. Innan við mánuður er núþangað til Fabio Capellostjórnar sínum fyrsta leik með enska landsliðinu gegn Svisslend- ingum þann 6. febrúar og Bretarnir eru að missa svefn yfir öllu saman. 70 þúsund miðar hafa þegar selst á Wembley sem er vel yfir meðallagi gegn smærri þjóð í bransanum og er alveg klárt að uppselt verður áður en yfir lýk- ur. Capello sjálfur skoðaði ein- mitt Wembley í gær ásamt að- stoðarmönnum sínum í fyrsta skipti síðan hann tók við emb- ættinu. Sam Allardyce varð í fyrra-kvöld áttundi þjálfarinntil að taka poka sinn í ensku úrvals- deildinni á þessari leiktíð þegar for- ráðamenn Newcastle fengu af honum nóg. Fyrrum þjálfari liðsins, Bobby Robson, segir pressuna á þjálfurum komna út í öfgar og vera dap- urlega þróun í boltanum. Líklegastur til að fylla ístórt skarð Allardyce erHarry Redknapp að mati veðbanka. Hinn fríði Redknapp hef- ur gert bæri- lega hluti með Portsmouth og hefur aldrei neitað flotinu, sérstaklega því sem ofar er í skálinni. Margir aðdáendur vilja hins vegar Alan Shearer eða eitthvert alvöru nafn eins og Marcello Lippi. Eitthvað fer á milli mála íensku pressunni hvortMiddl- esbrough er að kaupa Bras- ilíumanninn Afonso Alves frá Heerenveen eða Bras- ilíumanninn Fred frá Lyon nema Gareth Southgate sé að kaupa þá báða. Umboðsmenn beggja leik- manna segja samninga því sem næst í höfn og að báðir geti far- ið að æfa með liðinu í byrjun næstu viku. Meira um Brassana.Kaká hjá Milanhugnast ekki að fá Ronaldinho til liðs síns því þeir séu of líkir leikmenn og eigi erfitt með að leika saman. Nokkur sann- leikur í þessu eins og sést hefur í þeim leikjum Brasilíu þar sem báðir spila. En Kaká er einnig illa við líferni Dinho og segir það hættulegt fordæmi yngri leikmönnum Milan. Manuel Fernandesverður í láni hjáEverton út leiktíðina samkvæmt nýjum samningi en til stóð að kaupa kappann í sumar en sá vildi fremur til Spánar þá. Það verður ekki af Boston Celtics tekið að árangur þeirra í NBA-deildinni það sem af er vetri er stórkostlegur og jafn- ast á við það sem best gerist í þeirri ágætu deild. Nú þegar þriðjungur er liðinn af mótinu er vinningshlutfall Celtics ennþá 88 prósent eftir 33 leiki. Geri aðrir betur. Nema hvað aðrir geta ekki betur og langt í frá. Aðeins tvö önnur félög slefa yfir 70 prósenta markið hvað vinn- ingshlutfall varðar hingað til. Detroit Pistons er með 74,3 prósent og aðeins eitt félag í Vesturdeildinni státar af slík- um árangri; Phoenix Suns er með 71,4 prósent. Vesturdeildin er þó greinilega erfiðari viðfangs enda mun jafnari en Austurdeildin. Þannig eru sjö félög vest- anmegin með yfir 60 prósenta vinningshlutfall á móti að- eins þremur austanmegin. Í Minnesota blóta menn í sand og ösku. Liðið er áber- andi slakasta liðið í NBA-deildinni meðan fyrrverandi stór- stjarna þess, Kevin Garnett, blómstrar með Celtics á toppn- um. Austur- og vesturdeildir NBA virðast aðeins vera að jafnast Boston Celtics í algjörum sérflokki Fyrsta og eina konan sem starfar sem þulur á golfsjón- varpsstöðinni Golf Channel hefur verið sett í bann fyrir ómakleg ummæli. Lét hún hafa eftir sér að til að nýliðar hefðu einhvern möguleika á að sigra Tiger Woods í ár þyrfti að hengja hann í gálga í dimmu öngstræti. Sem reynd- ar er hárrétt hjá stúlkunni en ummælin fóru fyrir brjóstið á forráðamönnum stöðv- arinnar. Woods sjálfur brosti þegar hann heyrði af þessu. Hengja sig á smáatriði Detroit Redwings eiga flesta leikmenn í stjörnuliði ársins í NHL-deildinni vestanhafs. Henrik Zetterberg, Pavel Dat- syuk og Nicklas Lidström eru allir í byrjunarliði Vest- urdeildar en stjörnuleikurinn fer fram þann 26. janúar. Lidström hlaut flest atkvæði, 480 þúsund talsins. Þrír frá Detroit Nýr liðsstjóri Ferrari-liðsins í Formúlu 1, Stefano Domeni- cali, vonast til að njósna- og hneykslismál og hatrömm pólitík þeirra vegna skaði ekki Formúluna á nýju ári. Segir hann nóg komið af slíkum málum og nú sé tíminn til að horfa fram á við. Ítrekaði hann að hvorugur ökumanna Ferrari fengi sérmeðferð eins og stundum virtist gerast und- ir stjórn Jean Todt sem hætti um áramótin. Friður og ró Hlé verður að gera á áralangri hefð fyrir skíðastökki á hinum fræga Holmenkollen í Ósló. Verið er að endurbyggja pall- inn og lítið verður hægt að nota svæðið fyrr en seint á næsta ári. Holmenkollen á ís SKEYTIN INN Kylfingurinn Birgir Leifur Haf- þórsson virðist ekki finna fjöl sína né höggflöt á móti sem fram fer í S- Afríku. Er hann í 135. sæti eftir fyrsta daginn þar sem hann varð sér meðal annars úti um hvorki fleiri né færri en eina sex skolla og ólíklegt mjög að hann komist gegnum 65 manna niðurskurðinn eftir hringinn í dag. Efstu menn eru tíu höggum á undan Birgi á 65 höggum. Gengi Birgis flöktir mjög í S- Afríku en þar hefur hann leikið á þeim þremur mótum sem hann hefur tekið þátt í á nýju leiktíma- bili. Besti árangur hans var 50. sæt- ið á Opna S-Afríkumótinu í des- ember en hann féll úr leik á því fyrsta; Alfred Dunhill-mótinu. Reyndar er Birgi nokkur vor- kunn enda kenndi hann sér meins í öxl eftir komuna til S-Afríku í vik- unni en hafði fram að því æft stíft heima við yfir jólin og áramótin. Veðurfar hafði einnig sín áhrif á fyrsta mótsdegi þar suður frá. Hellirigning gerði keppendum ekki auðvelt fyrir og kannski ekki und- arlegt að tveir vanir heimamenn skyldu deila efsta sætinu að lokn- um fyrsta hring. Fyrir mótið var Birgir kominn í 164. sæti peningalistans evrópska en lokastaða kylfinga á honum ár hvert ræður því hvort þeir fá end- urnýjaðan keppnisrétt. Birgir Leifur Hafþórsson ekki par hrifinn á móti í S-Afríku Sex skollar og á brattann að sækja

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.