24 stundir - 11.01.2008, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 24stundir
„Þeir svífast einskis til að komast
yfir eignir sem þá langar í.“ Þetta
segir Hörður Torfason tónlistar-
maður en í fyrra falaðist verktaka-
fyrirtæki eftir kaupum á litlu húsi
sem hann á í miðbæ Reykjavíkur.
„Þeir spurðu mig hvort ég vildi
ekki selja því að nágrannar mínir
hefðu ákveðið að selja fasteignirnar
sínar. Ég kvaðst ætla að hugsa mál-
ið en þegar ég fór að grennslast fyr-
ir kom í ljós að það var ósatt að ná-
grannar mínir hefðu ákveðið að
selja eignirnar sínar, þannig að það
var logið að mér,“ segir Hörður.
Lúaleg vinnubrögð
Hann segir verktaka beita íbúa
þrýstingi til að selja fasteignir sínar
svo þeir geti í einhverjum tilfellum
rifið húsin og byggt ný hús og
stærri með fleiri íbúðum. Hann
sakar verktaka um að fara bakdyra-
megin að sínum markmiðum.
„Þeir kaupa eina íbúð í húsi og
setja þar inn óreglufólk sem gerir
íbúum lífið leitt. Svo hirða þeir
ekki um fasteignirnar sínar og láta
þær grotna niður til að lækka fast-
eignavirði svæðisins rétt á meðan
þeir reyna að ná því markmiði sínu
að fæla íbúa frá og þreyta aðra til
að selja. Hvern langar til að búa í
nágrenni við svona ástand?“ spyr
Hörður.
Borgaryfirvöld spila með
Hörður gagnrýnir borgaryfir-
völd fyrir að ganga erinda verktaka
við kynningu tillagna að deili-
skipulagi. Hann segir að sér og ná-
grönnum sínum hafi verið sendar
tillögur að deiliskipulagi í desem-
ber 2006 og hann hafi gert athuga-
semdir við tímasetninguna í kjöl-
farið.
„Að senda tillögurnar á þessum
tíma þegar um jafnmikilvægt mál
er að ræða er fáránlegt. Fólk verður
að fá að taka þátt í ríkara mæli í
þessu ferli öllu saman,“ segir
Hörður.
Svipað mál er komið upp í
tengslum við Baldursgötureitinn
svokallaða. Þar hafa íbúar gagnrýnt
vinnubrögð borgarinnar, að sam-
ráði við þá hafi verið ábótavant við
gerð deiliskipulags fyrir reitinn og
þeim hafi verið gefinn of skammur
tími til að andmæla. Þeim bárust
tillögur að deiliskipulagi reitsins í
desember. „Sá eini sem græðir á
svona vinnubrögðum er verktak-
inn,“ segir Hörður.
aegir@24stundir.is
Miðborgarbúi sakar verktaka um vafasöm vinnubrögð
Óreglufólk flutt inn til að fæla
„Vandamál Reykjavíkur er að
hún er hugsuð frá einu húsi í einu
frá einni lóð í einu,“ segir Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson,
doktorsnemi í skipulagshagfræði.
„Ef einn aðili, hvort sem það væri
fjárfestir eða borgin, fengi að
skipuleggja stórt svæði þá væri
komin hagkvæmni í það að fjár-
festa meira í útlitsgæðunum og
umhverfinu,“ bætir hann við.
Sigmundur hefur gert rannsókn
á þróun borga í Austur-Evrópu eft-
ir fall kommúnismans árið 1989.
„Þessar borgir gáfu einstakt tæki-
færi til þess að skoða hvað hefur
áhrif í borgarhagkerfinu,“ segir
hann og bætir við: „Þar var öllu
miðstýrt. Hvar fólk byggi og hvar
fyrirtæki voru sett niður, oft alveg
óháð aðstæðum. Það myndaðist
því eins konar núllpunktur þegar
losnaði um þessa miðstýringu og
út frá honum var hægt að skoða
hvernig hlutirnir hreyfðust til.“
Niðurstöðurnar komu Sig-
mundi nokkuð á óvart en þær
leiddu í ljós að þeim borgum sem
lögðu áherslu á aðlaðandi um-
hverfi, til dæmis varðveislu gamalla
húsa og menningararfs, vegnaði
miklum mun betur. Hann segir
Kraká í Póllandi gott dæmi um
þetta. „Fyrst laðaði þetta að mikið
af ferðamönnum en svo kom í ljós
að það sama og laðaði ferðamenn-
ina að laðaði líka að fólk og fyr-
irtæki,“ segir Sigmundur. „Sérstak-
lega erlend fyrirtæki voru frekar
tilbúin að fjárfesta í borg sem hafði
myndað sinn grunn sem ferða-
mannastaður. Það var auðveldara
að fá fólk til að flytja þangað.“
Sigmundur segir að betra væri
að byggja hátt og þétt í grennd við
gamla miðbæinn heldur en í hon-
um sjálfum. „Gamli bærinn eykur
verðmæti fasteigna í kringum sig
og sú byggð sem er þar í kring veit-
ir honum viðskiptavini.“
elias@24stundir.is
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, doktorsnemi í skipulagshagfræði
Verndun húsa er hagkvæm
Vísitala íbúðaverðs á höf-
uðborgarsvæðinu hækkaði
um 0,1% frá fyrra mánuði
samkvæmt nýjustu útreikn-
ingum Fasteignamats ríkisins.
Síðastliðna 3 mánuði hækkaði
vísitala íbúðaverðs um 1,3%.
Síðastliðna 6 mánuði hefur
vísitalan hækkað um 4,4%.
Hækkun vísitölu íbúðaverðs
síðastliðna 12 mánuði var
15%. Marga síðustu mánuði
hefur því verið spáð að íbúða-
verð færi lækkandi og eru
merki um það farin að sjást
þótt vísitala íbúðaverðs hafi
áfram hækkað alveg til árs-
loka. bee
Vísitala íbúðaverðs
Húsnæðið
hækkar enn
„Þetta er ójöfn staða og það er
mjög vont að það er ekki hægt
að taka á
henni. En
það á ekki
að setja
löggjöf um
að fólk geti
setið
áfram á
landi
vegna þess
að það hafi
haft það á leigu,“ segir Har-
aldur Benediktsson, formaður
Bændasamtakanna, um
mögulega löggjöf um bætt
réttindi sumarhúsaeigenda. ejg
Haraldur Benediktsson
Lög eru ekki
lausnin
Eftir Elías Jón Guðjónsson
elias@24stundir.is
„Það skiptir mestu máli að í þess-
um nýju lögum hafi fólk sem hefur
byggt upp sumarhús á leigulóðum
til áratuga einhvern rétt,“ segir
Sveinn Guðmundsson, formaður
Landssambands sumarhúsaeig-
enda. Félagsmálaráðherra mun
senn kynna nýtt frumvarp sem
tekur á þessum réttindum.
Sumarhúsaeigendur úr ánauð
Sveinn segir að landeigendur
hafi í auknum mæli reynt að mis-
nota sér þá stöðu sem margir sum-
arhúsaeigendur eru í. „Þeir eru
búnir að leggja mikið í bæði bú-
staðinn og landið, þannig að fólk
er nánast í ánauð,“ segir Sveinn og
bætir við: „Þetta nýta sumir sér til
þess að þvinga fólk til að kaupa
lóðirnar á einhverju ímynduðu
markaðsverði sem þeir sjálfir búa
til. Verði sem verður til vegna þess
að þeir sjálfir kaupa þetta á háu
verði og láta síðan svæðið kaupa
upp fjárfestinguna.“
Vonar að lögin leysi vandann
Sveinn segir dæmi um að land-
eigendur heimti að leigjendur
kaupi hektarann af þeim á 40
milljónir en að öðrum kosti verði
þeir að taka upp hús sitt og fara
burt af svæðinu.
„Það sem við viljum sjá í nýju
lögunum er að þau feli það í sér að
forleiguréttur verði virkur jafnvel
þó að landeigandinn selji lóðina,“
segir Sveinn. „Þannig hefur sum-
arbústaðareigandinn áfram rétt á
því að leigja lóðina.“
Hann segir þetta þó ekki leysa
allan vanda. „Leigusalinn getur í
staðinn sagst ætla að hækka leig-
una í tvær milljónir á ári í stað 40
þúsunda áður og þannig útilokað
leigandann frá því að leigja. Við
teljum að lögin geti tekið á þessu
líka. Málið verði sett í gerðardóm
þar sem það verði metið hvert rétt
markaðsverð leigu á viðkomandi
svæði er. Ég er að vona að þessi at-
riði rati inn í þetta nýja frumvarp.“
Breytt frumvarp
Gylfi Kristinsson, skrifstofu-
stjóri í félags- og tryggingamála-
ráðuneytinu, segir að upphafleg
drög frumvarpsins sem starfshóp-
ur félagsmálaráðherra skilaði af sér
í febrúar síðastliðnum hafi verið
gagnrýnd, „fyrir það að ekki sé
bætt réttarstaða leigjanda lóðar
undir frístundahús gagnvart lóð-
areiganda. Unnið hefur verið að
því að mæta þessari gagnrýni“,
segir hann. Frumvarpið verður
lagt fyrir ríkisstjórn á næstu dög-
um.
ÞEKKIR ÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á 24@24stundir.is
Sumarhúsaeigendur
vilja losna úr ánauð
Sumarhúsaeigendur vona að réttur þeirra verði bættur í nýju frumvarpi félagsmálaráð-
herra Segja landeigendur í leið að skjótum gróða þvinga fólk til að kaupa á okurverði
➤ Þáverandi félagsmálaráð-herra skipaði starfshóp í júlí
árið 2006 til þess að fjalla um
réttarstöðu eigenda og íbúa
frístundabyggða.
➤ Þetta var í kjölfar umræðuum að reynt væri að misnota
stöðu sumarhúsaeigenda.
STARFSHÓPUR
Sumarhúsabyggð Sum-
arhúsaeigendur á leigu-
lóðum eru í veikri stöðu.
24stundir/Kristinn Benediktss
Svífast einskis
Hörður Torfason
er harðorður í
garð verktaka.
Það eru tvær góðar ástæður
til að skoða húsbíla...
...McLouis og Weinsberg
Sýning á laugardag
og sunnudag frá eitt til fimm.
24 stundir/Alfons