24 stundir - 11.01.2008, Blaðsíða 33
24stundir FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 33
Hinn heimskunni fyrirlesari, Jack
Canfield, verður með dags-
námskeið um lögmál sigurgöng-
unnar í Háskólabíói þann 2. febr-
úar næstkomandi.
Jack er einn allra besti og eftirsótt-
asti árangurs- og leiðtogaþjálfari í
dag og í hópi vinsælustu fyrirlesara
Bandaríkjanna ásamt mönnum
eins og Bill Clinton, Lance Arm-
strong og Anthony Robbins.
Jack er með mastersgráðu í sál-
fræði frá Harvard og hefur þjálfað
athafnamenn og stjórnendur í
meira en þrjátíu ár með frábærum
árangri.
Íslendingar þekkja Canfield ekki
síst af þátttöku hans í hinni
geysivinsælu kvikmynd „The Sec-
ret“ og aðkomu hans að sam-
nefndri bók. Bókin var ein mest
selda bókin á Íslandi á síðasta ári
og hefur selst í yfir 15.000 eintök-
um og er enn að seljast. Myndin
hefur verið mjög vinsæl.
Þá er Jack annar höfunda „Chicken
Soup for the Soul“-bókanna og
maðurinn á bak við samnefnt við-
skiptaveldi, sem Time Magazine
kallaði „útgáfuundur áratugarins“
og er því einstaklega hæfur til þess
að fjalla um velgengni.
Jack er fæddur í Texas og kemur
frá lág-miðstéttarfjölskyldu sem
var á sífelldum ferðalögum fyrstu
árin þar sem faðir hans var í hern-
um.
Þess má geta að Canfield er í
Heimsmetabók Guinness fyrir að
hafa átt sjö bækur á sama tíma á
metsölulista New York Times.
Stephen King kemur næstur með
sex bækur.
Canfield ritar fasta pistla sem birt-
ast reglulega í 150 dagblöðum um
allan heim. Einnig ritar hann
greinar um einstök málefni og er
vinsæll viðmælandi og fréttamatur
í fjölmiðlum.
Meginþemað í umfjöllun Jacks
þann 2. febrúar er lögmál vel-
gengninnar og byggist á bók hans
„The Success Principles, How to
Get From Where You Are to
Where You Want to Be.“
Námskeiðið byrjar kl. 9.30 og
lýkur kl.16.30.
Miðaverð frá 19.900. Miðasalan fer
fram á www.newvision.is.
Jack Canfield
með námskeið
KYNNING
Íslendingar eru afar hrifnir af
Ítalíu og ítölskum mat. Marga
dreymir um að dvelja á Ítalíu og
læra að búa til ekta mat að hætti
heimamanna. Það ætti ekki að vera
fjarlægur draumur því margir mat-
reiðsluskólar í Toskana-héraði á
Ítalíu og í Flórens bjóða upp á
námskeið í matreiðslu þar sem
nemar dvelja í fallegu umhverfi
meðan á því stendur. Sumir skól-
arnir eru áratugagamlir og reknir
af ítölskum fjölskyldum. Í sumum
tilfellum er hægt að læra ítölsku
jafnframt matargerðinni.
Námskeið þessi eru ekki ein-
göngu fyrir matreiðslumenn eða
kokkanema heldur allan almenn-
ing sem hefur áhuga á ítalskri mat-
argerð.
Matreiðslumenn geta þó fundið
námskeið sem eru sérstaklega
hönnuð fyrir þá.
Toskana-héraðið á Ítalíu er
einkar áhugavert svæði enda er þar
matar- og víngerð í hávegum höfð.
Stutt er að fara á marga af merki-
legustu stöðum Ítalíu, Veróna,
Mílanó og Feneyjar eru í norðri og
Flórens og Róm í suðri. Lest-
arsamgöngur eru auðveldar og
bílaleigubílar eru á sanngjörnu
verði.
Í Toskana eru framleidd hin
þekktu Chianti-rauðvín sem flestir
Íslendingar þekkja og þar eru einn-
ig búnar til heimsþekktar ólífu-
olíur.
Einn þekktur matreiðsluskóli í
Toskana er Toscana Saporita en þar
er hægt að fara á vikunámskeið og
læra að búa til pasta, ravíóli, ris-
otto og aðra þekkta ítalska rétti
auk þess sem smakkað er á ostum,
ólífum og vínum úr héraðinu.
Á netinu má finna fjölmarga
aðra matreiðsluskóla í Toskana
þannig að úr nægu er að velja.
Vikunámskeið á Toscana Sapo-
rita með öllu uppihaldi kostar
2550 bandaríska dollara.
Sumarfrí og námskeið sameinað
Lært að matreiða í Toskana
Í Toskana Það er örugglega skemmtilegt að fara á matreiðslunámskeið í
Toskana.
Auglýsingasímar:
Katrín Rúnarsd. 510-3727
kata@24stundir.is
Kolbrún Dröfn 510-3722
kolla@24stundir.is
fyrir auglýsinguna þína
Hafðu samband og fáðu gott pláss
18. janúar 2008
MaturSérblað 24 stunda
Fullt af fróðleik og skemmtilegu efni