24 stundir - 11.01.2008, Blaðsíða 38

24 stundir - 11.01.2008, Blaðsíða 38
Ævintýri í Iðnó Leiksýning Hin vinsæla sýning Guðrúnar Ásmundsdóttur, Ævin- týri í Iðnó, verður tekin upp í Iðnó á sunnudag en í sýningunni gerir hún upp fimmtíu ára leikferil sinn og 110 ára sögu Iðnós. Guðrún starfaði í húsinu frá 1958 og leiðir áhorfendur inn í horfinn tíma. Kvikmyndaveisla Kvikmyndir Unnendur franskra kvikmynda eiga von á góðu því að í dag hefst frönsk kvikmyndaveisla í Háskólabíói sem stendur til 24. janúar. Sýndar verða 11 nýlegar franskar gæðamyndir. Kammermúsík í janúar Tónlist Víkingur Heiðar Ólafsson og félagar í Kammermúsíkklúbbn- um halda tónleika í Bústaðakirkju sunnudagskvöld kl. 20. Vegna mik- illar aðsóknar verða tónleikarnir endurfluttir í Salnum mánudags- kvöld kl. 20. Það besta í bænum Fer yfir ferilinn Guðrún Ás- mundsdóttir fer yfir ferilinn í Iðnó. 24stundir/Sverrir 38 FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 24stundir LÍFSSTÍLLHELGIN helgin@24stundir.is a Þetta er náttúrlega popp- tónlist 19. aldarinnar og hefur lifað svona vel. Kvenfélagið Garpur og Hafnar- fjarðarleikhúsið sýna leikritið Svartan fugl eftir David Harrower í leikstjórn Graeme Maley á Egils- stöðum um helgina. Sýningarnar fara fram í Sláturhúsinu – menn- ingarsetri á laugardags- og sunnu- dagskvöld og hefjast kl. 20 í bæði skiptin. Næstu helgar stendur síð- an til að sýna verkið á Ísafirði og í Vestmannaeyjum. Meðfærileg leikmynd „Við vorum að sýna Svartan fugl í Hafnarfjarðarleikhúsinu í haust og þar sem við erum bara tveir leikararnir og leikmyndin með- færileg kom upp sú hugmynd að fara með verkið vestur enda er Pálmi frá Bolungarvík,“ segir Sól- veig Guðmundsdóttir leikkona sem leikur á móti Pálma Gestssyni í verkinu. „Þar sem við ætluðum að æfa verkið upp á annað borð fannst mér upplagt að fara líka með það á Egilsstaði og til Vestmannaeyja. Ég hafði samband við menningarfull- trúa á stöðunum og það voru allir mjög spenntir að fá okkur og hafa verið okkur innan handar við að skipuleggja þetta og auglýsa,“ segir Sólveig. Leikrit um forboðna ást Svartur fugl er leikrit um for- boðna ást og fjallar um Unu og Ray sem áttu í sambandi fyrir fimmtán árum og hittast á ný. Verkið hefur vakið mikla athygli og hlaut meðal annars verðlaun sem kennd eru við Sir Laurence Olivier á síðasta ári. Miðaverð er 2.900 krónur og fer miðasala fram á vefsvæðinu midi.is og við innganginn. Einnig býður Flugfélag Íslands fólki upp á að fá flug og leikhúsmiða á sérstöku til- boði. Svartur fugl hefur sig til flugs Fugl gerir víðreist Leikritið Svartur fugl verður sýnt í þrem- ur bæjum um næstu helgar. Eftir Einar Jónsson einarj@24stundir.is Víða um heim fagna menn nýju ári með því að blása til Vínartónleika og eru Íslendingar ekki eftirbátar annarra þjóða í þeim efnum. Salonhljómsveit Sigurðar Ingva Snorrasonar heldur árlega nýárs- tónleika í Salnum í Kópavogi á laugardag þar sem Vínartónlistin verður í öndvegi. Af nógu að taka Þetta er fimmta árið í röð sem sveitin heldur slíka tónleika í Saln- um og segir Snorri að af nógu sé að taka þegar Vínartónlistin sé annars vegar. „Sem dæmi má nefna að Jo- hann Strauss, einn og sér, samdi meira en 600 verk fyrir utan bræð- ur hans og alla hina Vínarkarlana sem sömdu tónlist í þessum stíl,“ segir hann. „Það er svolítill galsi í kringum þetta og fólk er í raun að fagna árinu,“ segir Snorri og tekur undir að þetta sé mikil stuðtónlist. „Þetta er náttúrlega popptónlist 19. ald- arinnar og hefur lifað svona vel,“ segir hann. Á tryggan aðdáendahóp „Þessi tónlist á sér mjög tryggan aðdáendahóp sem sést best á því að Sinfóníuhljómsveit Íslands er núna búin að vera með þrenna tónleika. Stundum er hún með ferna sem þýðir að 4.000 manns mæta en samt er enn þá þörf,“ segir hann. Ýmsir söngvarar hafa komið fram á Vínartónleikum Salon- hljómsveitarinnar á undanförnum árum og að þessu sinni er röðin komin að sópransöngkonunni Huldu Björk Garðarsdóttur. Löngu er uppselt á tónleika Salonhljóm- sveitarinnar í Salnum á laugardag en tónleikarnir verða endurfluttir daginn eftir í Listasafni Reykjanes- bæjar kl. 15. Sigurður Ingvi og félagar blása til Vínartónleika Leika popptónlist nítjándu aldarinnar Salonhljómsveit Sigurðar Ingva Snorrasonar og Hulda Björk fagna nýju ári með tvennum Vín- artónleikum um helgina. Sívinsæl Vínartónlist Salonhljómsveit Sigurðar Ingva leikur popptónlist 19. aldar um helgina. Myndin er frá tónleikum sveitarinnar fyrir ári. ➤ Átta hljóðfæraleikarar skipaSalonhljómsveitina. ➤ Félagar í Salonhljómsveitinnieru allir jafnframt í Sinfóníu- hljómsveit Íslands. ➤ Auk tónleikanna um helginalék sveitin á tónleikum í Laugarborg á þrettándanum. SALONHLJÓMSVEITIN 24stundir/Ómar Danshópurinn Dari Dari Dance Company sýnir verkið Hoppala í Norræna húsinu um helgina. Inn- blástur að verkinu sækja höfund- arnir í almenningssalerni enda ým- islegt sem á sér stað innan veggja þeirra. Tilfinningar á setunni „Við notum ekki bókstaflega þær hreyfingar sem maður gerir á klósettinu heldur veltum við fyrir okkur hvaða tilfinningar maður upplifir þar inni. Það eru ýmsar að- stæður sem koma upp inni á kló- setti. Stundum ferðu þangað í ró- legheitum en stundum til að fela þig eða gráta,“ segir Inga Maren Rúnarsdóttir sem samdi verkið ásamt Guðrúnu Óskarsdóttur og Kötlu Þórarinsdóttur. Hreyfingar dansaranna taka því öðrum þræði mið af þeim aðstæð- um sem kunna að koma upp á sal- erninu. „Við höfðum til dæmis þá hugmynd að fólk hittist inni á kló- setti og færi að rífast um hvor ætti að fá að nota það og úr því yrði smádúett,“ segir hún. Klósetthljóð í tónlist Lydía Grétarsdóttir semur tón- list við verkið og sækir hún inn- blástur á sömu slóðir og danshöf- undarnir. „Þar sem verkið gerist inni á almenningsklósetti vorum við með hugann við alls konar hljóð sem tengjast því, eins og til dæmis dropa. Við notum því mikið hljóð sem hún tók upp inni á kló- setti, til dæmis með því að skella setunni, sturta niður og annað slíkt. Hún býr síðan til tónlistina út frá þeim hljóðum,“ segir Inga Mar- en. Hoppala verður sýnt í sýning- arsal í kjallara Norræna hússins laugardag og sunnudag og hefjast sýningar kl. 20 bæði kvöldin. Að- gangseyrir er 1.000 krónur. Dansað á salerninu UM HELGINA ● Skemmtun á Akureyri Páll Óskar Hjálmtýsson þeytir skíf- um á tveimur böllum í tilefni afmælis KA um helgina. Dans- leikur fyrir 16 ára og eldri verð- ur í KA-heimilinu í kvöld og er aðgangseyrir 1.000 kr. Annað kvöld verður afmæl- ishátíð á sama stað þar sem að- gangseyrir er 1.500 kr. og ald- urstakmark 18 ár. ● Fjölskylduhátíð KA-menn blása einnig til fjölskyldu- skemmtunar í KA-heimilinu í dag kl. 16-19. Páll Óskar skemmtir og aðgangur er ókeypis. ● Vítamín í Kópavogi Hljóm- sveitin Vítamín heldur uppi stuði á skemmtistaðnum Players í Kópavogi í kvöld. ● Dísel á Dubliner Hljóm- sveitin Dísel leikur fyrir gesti Dubliner í Hafnarstræti 11. og 12. janúar. ● Helgin á Oliver DJ Óli Dóri og Gullfoss & Geysir standa vaktina á Oliver í kvöld. Annað kvöld sjá DJ Haukur og Daði um að þeyta skífunum. ● Alexandra á Gauknum Ný- stirnið DJ_Lex_Intro sem heitir réttu nafni Alexandra stjórnar tónlistarvalinu á Gauki á Stöng föstudags- og laugardagskvöld ● Frönsk dansveisla Ed Ban- ger-gleðskapur fer fram á Org- an í Hafnarstræti á laugardags- kvöldið. Fram koma Busy P (e.þ.s. Pedro Winther), Steed Lord og skífuþeytarar. Verð í forsölu er 1.500 krónur. ● Táningur í tölvunni Leik- félag Selfoss frumsýnir gam- anleikritið Með táning í tölv- unni eftir Ray Cooney föstudaginn 11. janúar. Sýn- ingar fara fram í litla leikhús- inu við Sigtún. ● Aladin í Hvergerði Leikfélag Hveragerðis frumsýnir barna- leikritið Aladin í leikstjórn Haf- steins Þórs Auðunssonar laug- ardaginn 12. janúar. Sýningar fara fram í Völundi, húsi leik- féalgsins. ● Fegurð íslams Ljós- myndasýningin Fegurð íslams - íslömsk húsagerðarlist verð- ur opnuð í anddyri Norræna hússins á morgun. Sænsk- pakistanski ljósmyndarinn Linnea Sellersjö tók mynd- irnar á sýningunni. ● Ágústsýning Gallerí Ágúst fagnar nýju ári með opnun málverkasýningar Davíðs Arnar Halldórssonar laugardaginn 12. janúar kl. 16. Sýningin kallast absalút gamall kastale.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.