24 stundir - 11.01.2008, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 24stundir
Á seinustu sjö árum bárust rík-
issaksóknara 134 kærur á hendur
lögregluþjónum vegna brota við
störf og varða flestar þeirra ólög-
mætar handtökur eða harðræði í
tengslum við þær.
Átta dómar
Dómur féll í átta málum gegn
lögreglunni á tímabilinu og af
þeim vörðuðu tveir ólöglegar
handtökur, skv. ársskýrslum ríkis-
saksóknara.
Það var sakfellt í þeim báðum í
Héraðsdómi Reykjavíkur 2003.
Málunum var áfrýjað til Hæstarétt-
ar sem sýknaði annan lögreglu-
þjóninn en staðfesti sök hins.
„Allar kærur eru rannsakaðar,“
segir Geir Jón Þórisson yfirvarð-
stjóri. Rannsóknir leiða hins vegar
yfirleitt í ljós að ekki sé um refsivert
brot að ræða og því eru fá slík mál
lögð fyrir dóm.
Í annarlegu ástandi
Stór hluti þeirra sem kæra lög-
reglumenn fyrir ólögmætar hand-
tökur eða harðræði er í annarlegu
ástandi þegar handtakan átti sér
stað, að sögn Geirs Jóns. Það getur
bæði brenglað skynjun fólks á að-
stæðum og gert það erfiðara við-
fangs.
„En eftir á má auðvitað oft sjá að
eitthvað hefði mátt gera betur þó
athæfið hafi ekki verið refsivert.
Menn hafa bara nokkrar sekúnd-
ur,“ segir Geir Jón.
thorakristin@24stundir.is
Flestar kærur gegn lögreglu varða ólögmætar handtökur
Margar kærur - tveir dómar
Lögreglan á
rölti um bæinn.
Samningafundur Starfsgreina-
sambandsins (SGS) og Flóabanda-
lagsins við Samtök atvinnulífsins
(SA) í gær var þungur og kergja í
mönnum. Óánægja með fram-
göngu SA og afskipti fulltrúa þess
af viðræðum verkalýðshreyfingar-
innar við stjórnvöld sat í mönnum.
Sigurður Bessason, formaður Efl-
ingar, sagði fundinn hafa verið
upphafspunkt á nýju stigi í kjara-
viðræðunum. „Við gerðum at-
hugasemdir við hversu sterkt SA
brugðust við tillögum okkar um
skattabreytingar. Við vísuðum á
fundinum í gær til þeirrar kröfu-
gerðar sem við höfum sett fram og
sjáum til hvernig hlutirnir ganga.“
Sigurður kvaðst hóflega bjartsýnn
á árangur viðræðnanna á næst-
unni. fr
Fyrstu fundir með ríkissáttasemjara í gær
Þungt í mönnum
og kergja á fundi
Fasteignagjöld verða lækkuð í Hafnarfirði
ef tillaga sem Lúðvík Geirsson bæjarstjóri
lagði fram í bæjarráði í gær verður sam-
þykkt. Að sögn Lúðvíks er með þessari til-
lögu verið að tryggja að fjárhagsáætlun
bæjarins fyrir árið 2008 standist. „Það var
gert ráð fyrir að fasteignamat myndi hækka
um tíu prósent en svo kom í ljós að það
hækkar öllu meira. Það er ástæðan fyrir
lækkuninni en það er auðvitað gleðilegt að
geta komið til móts við áskorun ASÍ.“
Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins, fagnar tillögu Lúðvíks en
furðar sig á að sams konar tillaga Sjálfstæð-
isflokksins hafi verið kolfelld í bæjarstjórn 18. desember síðastliðinn.
„Lækkunin sem Lúðvík boðar er mun meiri en sem nemur muninum á
ætluðum fasteignagjöldum og þeim sem urðu. Umræða síðustu daga
hefur að okkar mati haft þessi áhrif og þetta er að mínu mati bara tæki-
færismennska hjá Lúðvík.“ fr
Segir Lúðvík tækifærissinna
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
segir að ekki standi til að lækka
fasteignagjöld í Reykjavík eins og
ASÍ hefur kallað eftir. „Við höf-
um sett til hliðar 270 milljónir til
aðgerða í húsnæðismálum. Við
ætlum hins vegar að nýta það til
að styðja við þá sem verst eru
settir í húsnæðiskerfinu.“ fr
Fasteignagjöld
lækka ekki
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn
taka undir með Alþýðusamband-
inu, sem hefur gagnrýnt borg-
arstjórnarmeirihlutann fyrir að
lækka ekki fasteignaskatta. Í yf-
irlýsingu sem sjálfstæðismenn
sendu frá sér í gær er rifjað upp
að tillaga þeirra um lækkun fast-
eignaskatta hafi verið felld af
fulltrúum meirihlutans í nóv-
ember. Sjálfstæðismenn rifja
sömuleiðis upp að ætlunin hafi
verið að lækka fasteignaskatta
um fjórðung á kjörtímabilinu.
Fráhvarf frá þeirri stefnu sé bæði
skattahækkun á borgarbúa og
slæmt innlegg í kjaraviðræður.
Átti að lækka skattana um 25%
Eftir Frey Rögnvaldsson
freyr@24stundir.is
Alþýðusamband Íslands lagði fram
tillögur við ríkisvaldið um hliðar-
aðgerðir til að draga úr jaðarskatti
sem myndast gæti ef tillögur um
sérstakan persónuafslátt næðu
fram að ganga. Í 24 stundum í gær
lýsti Indriði H. Þorláksson, fyrrver-
andi ríkisskattstjóri, þeirri skoðun
sinni að tillögur ASÍ gætu fest lág-
tekjufólk í fátæktargildru vegna
áhrifa jaðarskatta.
Aðgerðir til að slá á jaðarskatta
Gylfi Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri ASÍ, segir að menn
þar á bæ hafi vel gert sér grein fyrir
því að tillögur þeirra myndu hækka
jaðarskatta. „Við funduðum með
ríkisstjórninni 12. desember síðast-
liðinn. Við erum núna að gera
grunnsamning við aðstæður í efna-
hagslífinu sem hafa ekki verið svip-
aðar síðan fyrir tíma þjóðarsáttar-
innar. Samningar hafa ekki verið
gerðir í svona hárri verðbólgu um
áratugaskeið og það er vá fyrir dyr-
um í efnahagslífinu. Við kynntum
ríkisstjórninni það markmið okkar
að svigrúm sem gefið er í stjórn-
arsáttmálanum til skattalækkana
verði notað sérstaklega þeim tekju-
lægstu í hag. Við vildum því ekki
almenna skattalækkun heldur sér-
tæka aðgerð. Sú aðferð sem ASÍ
kynnti, sem var sérstakur persónu-
afsláttur, var ekki heilög í okkar
huga. Við gerðum hins vegar grein
fyrir því að ef henni yrði beitt þá
myndu jaðarskattar hækka. Við
lögðum hins vegar til hliðaraðgerð-
ir til að koma í veg fyrir að þeir
myndu hækka úr hófi sem voru
ekki kynntar sérstaklega. Ef farið
hefði verið í slíkar aðgerðir þá
myndi aldrei koma til þess sem
Indriði H. lýsir. Hann hefur ekki
tekið tillit til þess enda vorum við
ekkert að blása út þessar tillögur.“
Tillögur ASÍ ekki fýsilegar
Þorgerður Katrín Gunnarsdótt-
ir, starfandi forsætisráðherra, segir
að það hafi ekki verið tímbært nú
að ríkisstjórnin kæmi með útspil
varðandi kjaradeiluna. „Það er ljóst
af stjórnarsáttmálanum að við
stefnum að aðgerðum sem miða að
hækkun lægstu launa. Það ætlum
við að gera með almennum hækk-
unum á persónuafslætti og hækk-
unum á barnabótum. Við verðum
hins vegar að taka tillit til heild-
armyndarinnar. Mat okkar á tillög-
um ASÍ er að þær séu ekki fýsilegar
í ljósi þeirra jaðarskattaáhrifa sem
þær myndu hafa.“
HVAÐ VANTAR UPP Á?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á frettir@24stundir.is
Hægt að draga
úr jaðarsköttum
ASÍ kynnti ríkisstjórninni hliðaraðgerðir til að slá á jaðarskatta
Einfalt Gylfi Arnbjörnsson segir
að hægt sé að slá á jaðarskatta
með einföldum aðgerðum.
➤ ASÍ lagði til hliðaraðgerðirsem myndu draga úr jað-
arsköttum í viðræðum við
ríkisvaldið.
➤ Meðal þeirra voru lækkun átekjutengingu barnabóta og
að lögbinda hámark á jað-
arskatta á einstaklinga líkt og
tíðkast í Danmörku
HLIÐARAÐGERÐIR
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Gerð var könnun á árskortum hjá líkamsrækt-
arstöðvum. Kannað var verð á ódýrustu kortunum og
ekki er tekið tillit til tilboða eða ýmissa fríðinda sem
eru vissulega mismunandi milli staða.
Meira en 100% verðmunur er á hæsta og lægsta verði
eða 39.520 krónur þar sem árskortið er lægst hjá Hress
og hæst hjá Hreyfingu.
113% munur á ræktinni
Ingibjörg
Magnúsdóttir
NEYTENDAVAKTIN
Árskort hjá líkamsræktarstöðvum
Fyrirtæki Verð Verðmunur
Hress 35.000
H10 Sport & Spa 39.900 14,0 %
Veggsport 43.900 25,4 %
Baðhúsið 45.500 30,0 %
World Class 54.900 56,9 %
Hreyfing 74.500 112,9 %
Héraðsdómur Suðurlands hefur
dæmt 17 ára pilt í mánaðar skil-
orðsbundið fangelsi fyrir eigna-
spjöll og fyrir að vera með hass í
fórum sínum í fangaklefa. Pilt-
urinn afplánaði fangelsisrefsingu
þegar brotin voru framin á síð-
asta ári en hefur nú gengist undir
áfengis- og vímuefnameðferð og
fengið reynslulausn. mbl
Brot breyta ekki
reynslulausn
24 stunda
Auglysingasimi
Kolbrun S.510 3722 / kolla@24stundir.is
Katrin s.510 3727 /kata@24stundir.is
Serblad
Born
og
uppeldi
16.januar 2008