24 stundir - 11.01.2008, Síða 12
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@24stundir.is
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í
Reykjavík, segir ákvörðun um hve-
nær framkvæmdir við Sundabraut-
ina hefjist á allra næsta leiti. „Það
hlýtur að verða á næstu vikum. Við
stýrum skipulaginu og það stendur
ekkert á okkur að segja að Sunda-
braut verði í göngum. Hins vegar
koma peningarnir frá ríkinu og
það er til lítils fyrir okkur að segja
það ef óeining er þar.“
Hann er óánægður með þá
óvissu sem ríkir um verkefnið. „Ég
held að hún sé óþarfi og að það sé
engin ástæða til að þrátta um ein-
hverjar tölur. Það er ein meginleið
á borðinu og það er Sundabraut í
göngum. Aðrar hugsanlegar leiðir
sem hefur verið ýtt út af borðinu á
þessu stigi málsins hafa einfaldlega
ekki verið uppreiknaðar með sama
hætti síðan 2000 eða 2002. Það er
því tómt mál að bera slíkar tölur
saman og segja það sambærilegt.“
Vegagerðin vill eyjaleið
Í grein G. Péturs Matthíassonar,
upplýsingafulltrúa Vegerðarinnar,
sem birtist í 24 stundum í gær
kemur fram að niðurstaða Vega-
gerðarinnar sé að eyjalausnin sé
tæknilega, fjárhagslega og umferð-
arlega mun betri kostur en jarð-
gangagerðin og gefi meiri arðsemi
af því fjármagni sem til fram-
kvæmdanna er varið. Það sé því
ljóst að Vegagerðin geti ekki mælt
með því að jargangagerð verði val-
in. G. Pétur segir það liggja fyrir að
göngin séu mun dýrari kostur. „Í
þessari skýrslu sem var tilbúin í
nóvember þá komast menn að því
að þetta er miklu dýrari lausn held-
ur en fyrst var ætlað. Svo yrði
rekstrarkostnaðurinn af þeirri
stærðargráðu að þetta yrðu mun
erfiðari göng rekstrarlega en til
dæmis Hvalfjarðargöngin. Það er
því ljóst að ef vilji er til að fara í
jarðgöng, sem er greinilegt að
borgarstjórinn vill, þá kostar það
meira sem þessu nemur.“
Pólitískt útspil
Gauti Kristmannsson, fulltrúi
Íbúasamtaka Laugardals í samráðs-
hópi um legu Sundabrautar, telur
gein G. Péturs í gær vera pólitískt
útspil. „Ég er í samráðsnefndinni
og bað strax um að fá skýrsluna
þegar hún lá fyrir í nóvember. Mér
var ekki svarað og ég fékk engar út-
skýringar. Það var sett sem skilyrði
af umhverfisráðherra á sínum tíma
að samráð yrði haft við íbúa og
okkur finnst þetta ekki boðleg
framkoma af hálfu Vegagerðarinn-
ar. Það er búið að úrskurða um leið
án samráðs við okkur. Þetta hlýtur
að vera einhvers konar pólitískt út-
spil. Slíkt finnst mér ekki Vega-
gerðarinnar að gera.“
Ákvörðun á
næstu vikum
Ákvörðun um hvenær framkvæmdir hefjast við Sundabraut
mun liggja fyrir á næstu vikum Vegagerðin vill eyjaleiðina
➤ Íbúasamtök í Laugardal ogGrafarvogi eru á þeirri skoð-
un að að Sundagöngin séu
farsælasta leiðin fyrir legu
Sundabrautar.
➤ Í grein upplýsingafulltrúaVegagerðarinnar í gær kom
fram að hún telji að eyja-
lausnin sé tæknilega, fjár-
hagslega og umferðarlega
betri kostur en göng.
➤ Göngin eru níu milljörðumdýrari en eyjalausnin sam-
kvæmt Vegagerðinni.
SUNDABRAUT
Borgarstjórinn í Reykjavík
„Það er ein meginleið á borð-
inu og það er Sundabraut í
göngum,“ segir Dagur B.
Eggertsson.
12 FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 24stundir
Kristján L. Möller
samgönguráðherra
segist ekki geta sagt til
um hvenær fram-
kvæmdir við Sunda-
braut geti hafist.
Hann segist heldur
ekki geta tekið afstöðu
til tiltekinna leiða, þar
sem málið gæti lent
inni á hans borði til
úrskurðar.
Hann segir þá nýju
staðla sem notaðir eru við gerð
skýrslu Vegagerðarinnar tilkomna
vegna nýrra reglugerða.
„Þetta var samkvæmt
tilskipun sem kom frá
Evrópusambandinu og
við urðum að taka upp.
Það er því tvennt ólíkt,
hvort menn eru að
ræða jarðgöng sem er
verið að gera núna eða
göng sem voru gerð
fyrir tíu árum. En þetta
eru mikilvæg og góð
gögn sem eru liður í
þessari upplýsingaöflun til að bera
þetta saman á raunhæfan hátt.“
Kristján L. Möller samgönguráðherra
Óvissa um upphaf
framkvæmda
Slökkviliðsstjóri höfuðborgar-
svæðisins hefur boðað að íbúðar-
húsnæði við Hvaleyrarbraut í
Hafnarfirði verði lokað 21. janúar
vegna slæmra eldvarna. Eigendur
hússins funduðu í gær vegna máls-
ins, en þeir saka bæjaryfirvöld um
einelti og segja að lokunin sé runn-
in undan rifjum bæjarins.
„Bæjaryfirvöld hafa lagt okkur í
einelti. Það er búið að vera enda-
laust vesen að eiga við bæjaryfir-
völd út af þessu húsi frá upphafi,“
segir Sveinbjörn Finnsson, einn
þriggja eigenda hússins. „Nýjasta
útspilið er að siga slökkviliðinu á
okkur. Bæjaryfirvöld geta bara ekki
unað því að þarna búi fólk.“
Í húsinu eru um tuttugu her-
bergi og þar búa um tuttugu
manns, Íslendingar og útlendingar.
Atvinnustarfsemi er á jarðhæð
hússins en vistarverurnar eru á efri
hæðum þess.
Athugasemdir við „smámuni“
Eldvarnaeftirlitsmaður slökkvi-
liðsins skoðaði átta hús með ólög-
legum íbúðum í Hafnarfirði í fyrra-
dag, en húsið var það eina sem var
ákveðið að loka.
Sveinbjörn segir ákvörðunina
um að loka húsinu hafa verið tekna
í offorsi. „Okkur var tilkynnt 18.
desember að húsinu yrði lokað 2.
janúar, sem var hlægilegt, því það
voru smámunir sem gerðar voru
athugasemdir við. Ég sendi slökkvi-
liðinu þá bréf þar sem ég fór fram á
að okkur yrði veittur þriggja mán-
aða frestur til að koma málunum í
lag enda stutt í jólin og takmarkað
hægt að gera á þessum tíma. Bréfið
var hunsað fyrir utan það að frest-
urinn var lengdur um tvær vikur,
sáttaviljinn var ekki meiri.“
„Við eigendurnir erum einhuga
um að koma brunavörnum hússins
í lag hið fyrsta og fá lokunar-
ákvörðuninni aflétt. Þá fáum við
ekki séð hvernig hægt er að loka
húsinu þótt bænum sé illa við það.“
aegir@24stundir.is
Eigendur íbúðarhúss í Hafnarfirði sem á að loka eru ósáttir
Saka bæjaryfirvöld um einelti
Þegar Landssíminn var
seldur ákvað ríkisstjórn
Íslands að verja átta millj-
örðum króna í lagningu
Sundabrautar. Ráðgert
var að hefja framkvæmdir
um mitt ár 2007 og setja
1,5 milljarða króna í verk-
efnið á því ári. Árið eftir
áttu framkvæmdir síðan
að ná hámarki og 2,5
milljarðar að renna til
verkefnisins. Fjórir millj-
arðar króna myndu síðan renna til verksins árin 2009 og 2010, en
stefnt var að verklokum á síðarnefnda árinu. Lögum um ráðstöfun
söluandvirðis Landssímans hefur hins vegar verið breytt tvívegis síð-
an. Í bæði skiptin hafa framlög til Sundabrautar verið lækkuð umtals-
vert. Í lok árs 2008 mun því einn milljarður króna hafa runnið til
framkvæmdarinnar í stað fjögurra milljarða króna sem áætlaðar voru í
upphafi. Ljóst er að verklok verða ekki samkvæmt áætlun árið 2010.
Framlögum sífellt frestað
Greiningardeild Kaupþings gerir
nú ráð fyrir því að stýrivextir
Seðlabankans lækki fyrr og
hraðar en fyrri spár gerðu ráð
fyrir.
Ástæðan sé áhrif frá lausa-
fjárþrengingum og lækkun eigna-
verðs í helstu viðskiptalöndum
Íslendinga sem nú þegar hafi
valdið lækkunum á helstu eigna-
mörkuðum hérlendis og muni
kæla niður hagkerfið á þessu ári.
Ný spá greiningardeildarinnar
gerir ráð fyrir því að vaxtalækk-
unarferlið hefjist á fyrsta fjórð-
ungi þessa árs, líklega á næsta
vaxtaákvörðunarfundi í febrúar,
og að vextir lækki um 4,5 pró-
sentustig á árinu. Nákvæm tíma-
setning á fyrstu vaxtalækkuninni
mun þó velta á því hvað tíðin
verði ströng á eignamörkuðum á
næstu vikum og mánuðum.
Seðlabankinn gæti beðið fram í
mars eða apríl. mbl.is
Loksins spáð
vaxtalækkun
Framkvæmdastjórn Landssambands
eldri borgara harmar að reikningurinn
fyrir komur barna á heilbrigðisstofnanir
sé sendur ömmum og öfum barnanna.
Það kallar niðurfellingu komugjalda fyr-
ir börn „eins konar sjónhverfingu“ í
fréttatilkynningu sem það sendi frá sér í
gær. LEB skorar á ráðherrann að endur-
skoða ákvörðun sína og fella niður
komugjöld á heilbrigðisstofnanirfyrir
alla. Í fyrradag sendi Öryrkjabandalagið
ráðherra sams konar áskorun. þkþ
Guðlaugur sjónhverfingamaður