24 stundir - 11.01.2008, Síða 14

24 stundir - 11.01.2008, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 24stundir 24stundir Útgáfufélag: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Árvakur hf. Ólafur Þ. Stephensen Björg Eva Erlendsdóttir Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Þröstur Emilsson Elín Albertsdóttir Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: 24stundir@24stundir.is, frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is Prentun: Landsprent ehf. Sum af fyndnu atriðunum í áramótaskaupi Ríkissjónvarpsins snerust um pólska verkamenn, sem hafði verið talin trú um að á Íslandi biði þeirra gott starf og frábært húsnæði, en voru hýstir í heldur ömurlegu hreysi. Ádeilan komst til skila, en þó er ekki víst að allir hafi áttað sig á alvör- unni, sem að baki liggur. Um tólf hundruð manns, aðallega útlendingar, búa í ólöglegu húsnæði á höfuðborgarsvæðinu, eins og 24 stundir hafa greint frá. Í mörgum húsum sem um ræðir eru aðstæður tæplega mönn- um bjóðandi; sums staðar eru til dæmis margir um lélega salernis- eða eldunaraðstöðu. Börn búa í hverfum, þar sem eru hvorki leikfélagar né leiksvæði. Bjarni Kjartansson, sviðsstjóri forvarnasviðs Slökkviliðs höfuðborgar- svæðisins, orðaði það svo hér í blaðinu í lok nóvember að ástandið væri orðið aftur eins og á kreppuárunum; það hefði tekið áratugi að koma fólki upp úr saggafullum kjöllurum og ofan af köldum háaloftum og búa al- menningi viðeigandi húsnæði. Nú byggi hins vegar fjöldi manns við óvið- unandi aðstæður í atvinnuhúsnæði, sem aldrei var hugsað til íbúðar. Það alvarlegasta í málinu er þó að víða eru brunavarnir óviðunandi í at- vinnuhúsnæði, sem hefur verið innréttað til íbúðar og leigt út. Það er ástæða þess að Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fer nú í hart og hótar að loka ólöglegu húsnæði í Hafnarfirði, verði nauðsynlegar úrbætur á bruna- vörnum ekki gerðar. Eldvarnir í ólöglegu íbúðarhúsnæði verða kannaðar í fleiri bæjarfélögum á næstunni. Slökkviliðið hefur út af fyrir sig horft í gegnum fingur sér með að fólk skuli búa í ólöglegu húsnæði, svo lengi sem þess hefur verið gætt að bruna- varnir séu í lagi. Lokun húsnæðisins og útburður íbúanna er auðvitað neyðaraðgerð. Hætt er við að margir, sem búa í slíku húsnæði, eigi ekki í mörg önnur hús að venda. Ábyrgð eigenda ólöglegs atvinnuhúsnæðis er mikil, hvort sem um er að ræða atvinnurekendur sem leggja starfsmönnum sínum húsnæðið til eða leigusala, sem bjóða herbergi og íbúðir til leigu án þess að bruna- varnir séu í lagi. Þessir menn nýta sér aðstöðu fátækra útlendinga, sem oft þekkja ekki lög og reglur hér á landi og eiga fáa aðra kosti á húsnæðismarkaðnum. Hvað ef eldur kemur upp í ólöglegu íbúðarhús- næði, þar sem viðvörunarkerfi, slökkvibúnaður og flóttaleiðir eru ekki í lagi? Hvað ef afleiðingarnar verða skelfilegt stórslys? Hvað gera eigendurnir þá? Það verður ekkert skaup. Ekkert skaup SÆKTU LEIÐARANN Á WWW.MBL.IS/PODCAST Eftir að hafa setið í stjórn með Sjálfstæðisflokknum í mörg ár veit ég fyrir víst að fátt fór meira í taugarnar á þeim en útlistanir Stef- áns Ólafssonar á stöðu velferðar- og trygginga- mála, fátækt o.fl. […] iðulega komu efasemdir þeirra um Stefán og pirringur í hans garð fram opinberlega. Það að hann skuli nú vera orðinn herforingi hjá ríkisstjórn Geirs Haarde lýsir best hversu Samfylk- ingin fer sínu fram í ríkisstjórn- inni og tekur ekkert tillit til til- finninga sjálfstæðismanna, né hinnar erfiðu stöðu Geirs og Þor- gerðar. Niðurlægingin er algjör. Valgerður Sverrisdóttir valgerdur.is BLOGGARINN Kysst á vöndinn „Ætli félagsráðgjafar séu almennt latir?“ Þessari hugsun skaut nið- ur í kollinn á mér þegar ég las um það á baksíðu Moggans að stöðugildanefnd Félagsráðgjafa- félags Íslands taldi það ótækt og niðrandi að Hafnarfjarð- arbær auglýsti eftir „röskum“ félagsráðgjafa. Er ekki á lagi með þetta félag? Vissulega veit ég um lata fé- lagsráðgjafa – en veit meðal ann- ars, eftir að hafa gegnt stöðu fé- lagsmálastjóra um nokkurt skeið, að félagsráðgjafar eru einmitt yf- irleitt afar röskir og starfa af- bragðs vel. Hallur Magnússon hallurmagg.blog.is Latir ráðgjafar Ár er liðið frá því að Sigrún Björk Jakobsdóttir tók við emb- ætti bæjarstjóra á Akureyri og leiðtogastöðu í Sjálfstæð- isflokknum, fyrst kvenna. Þetta hefur verið stormasamt ár fyrir Sigrúnu Björk. Það hefur einkennst um- fram allt af klúðri bæjaryfirvalda í skipulags- málum, óskiljanlegum aldurs- takmörkum á tjaldsvæði bæj- arins, langvinnum samningaviðræðum um frjáls- íþróttaaðstöðu á Þórssvæðinu og langri bið eftir því að tekið verði af skarið með miðbæjarsvæðið og íþróttavöllinn. Stefán Friðrik Stefánsson stebbifr.blog.is Ár Sigrúnar Ólafur Þ. Stephensen olafur@24stundir.is Það er nógu slæmt að það viðgangist að fólk búi í ólöglegu íbúðarhúsnæði, svo ekki sé minnst á hættuna sem því fylgir. Það var því ánægjulegt að lesa um átak Slökkviliðs höfuðborg- arsvæðisins í 24 stundum í gær um að loka húsum ef eldvarnir eru ekki fullnægjandi. Það er víða pottur brotinn og því fagnaðarefni að umræða í fjöl- miðlum, eins og verið hefur undanfarið, skili árangri og sýnir það að mínu mati hversu mikilvægu hlut- verki fjölmiðlar gegna. Til mín hafa leitað margir einstaklingar sem bæði búa í óíbúðarhæfu húsnæði eða allt of margir búa í húsnæðinu. Sem dæmi má nefna að oft búa 10-12 einstaklingar í 3-4 herbergja íbúð, þó ekki sé í öllum tilvikum um að ræða óíbúðarhæft eða ólöglegt hús- næði. Leigufjárhæðin virðist þó ekki taka mið af ástandi húsnæðisins eða því rými sem hver og einn hefur til umráða. Þessi staðreynd stangast á við húsa- leigulög og í þeim tilvikum þar sem ástand húsnæð- isins er óviðunandi, er um að ræða brot á ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir og reglu- gerðar um hollustuhætti, sem sett er með stoð í lög- unum, og oft og tíðum lögum um brunavarnir. Gera þarf átak í að skoða ólöglegt íbúðarhúsnæði og enn fremur húsnæði sem vafasamt má telja að uppfylli skilyrði þess að teljast íbúðarhæft. Það er mjög já- kvætt að Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins skuli markvisst skoða eldvarnir í ólöglegu íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og að þeir beiti þeim úrræð- um sem lög um brunavarnir bjóða upp á, það er varðandi aðgerðir til að knýja fram úrbætur, lokun húsnæðis og ekki síst dagsekta- ákvæði. Þá er ég hjartanlega sam- mála ákvörðun slökkviliðsins um að nýta heimild til að kæra mál til lögreglu ef hætta þykir hafa skap- ast af búsetu í tilteknu húsnæði. Ábyrgðina á að setja þar sem hún á heima, það er á eigendur hús- næðisins og er sjálfsagt að þeir taki afleiðingum ábyrgðarleysis, van- rækslu og brota á löggjöf. Höfundur er lögfræðingur Alþjóðahúss Eigendurnir bera ábyrgðina ÁLIT Margrét Stein- arsdóttir margret@ahus.is Auglýsingasímar: Katrín Rúnarsd. 510-3727 kata@24stundir.is Kolbrún Dröfn 510-3722 kolla@24stundir.is fyrir auglýsinguna þína Hafðu samband og fáðu gott pláss 18. janúar 2008 MaturSérblað 24 stunda Fullt af fróðleik og skemmtilegu efni

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.