24 stundir


24 stundir - 11.01.2008, Qupperneq 27

24 stundir - 11.01.2008, Qupperneq 27
24stundir FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 27 „Við höfum verið með bæði prjóna- og heklnámskeið,“ segir Guðrún Hannele, eigandi Storks- ins. „Námskeiðin hafa verið afar vel sótt og hafa oftast verið full hjá okkur. Prjónanámskeiðin eru í sex skipti, einu sinni í viku og er kennt í þrjá tíma í senn en hekl- námskeiðin hafa verið í fjögur skipti.“ Hannyrðir vinsælar Að sögn Guðrúnar sækir fólk á öllum aldri í hannyrðir. „Þetta hef- ur alltaf verið vinsælt enda hefur fólk mikinn áhuga á að gera eitt- hvað skapandi með höndunum. En auðvitað gengur þetta alltaf í einhverjum bylgjum. Undanfarin ár hefur áhuginn verið að aukast og ungt fólk farið að sýna handa- vinnu mikinn áhuga.“ Á námskeið Storksins koma aðallega konur en einn og einn karlmaður lætur alltaf sjá sig. „Þessi námskeið eru ætluð öllum, hingað kemur fólk á öllum aldri úr öllum þjóðfélagshópum enda hafa margir einhverja þörf til þess að gera eitthvað skapandi.“ Við allra hæfi „Námskeiðin eru sniðin þannig að á þau geta komið bæði byrj- endur og lengra komnir. Við reyn- um að skipuleggja námskeiðin þannig að þau séu við allra hæfi. Við erum með tækninámskeið þar sem við kennum ákveðinn grunn þannig að fólk geti orðið sjálf- bjarga, þá þarf að fara í gegnum vissa hluti. Þá eru prjónaðar pruf- ur til þess að ná tökum á þessum tæknilegu atriðum og svo þarf að læra að reikna út og lesa upp- skriftir, en þetta fer líka eftir því sem fólk vill. Sumir ætla að hanna sjálfir en aðrir vilja fara eftir upp- skriftum. Þetta fer bara eftir fólki, þar sem það er statt og hvað það vill gera. Svo er setið og prjónað og við aðstoðum eftir þörfum. Yf- irleitt eru tveir kennarar á svæðinu og þetta er bara voðalega notaleg stund.“ Íslendingar hafa mikinn áhuga á handavinnu Prjónanámskeið sívinsæl Erla Stefánsdóttir sjáandi stofn- aði félagið Lífssýn fyrir nokkrum árum þar sem hún hélt reglulega námskeið fyrir áhugafólk um and- leg og veraldleg málefni. „Ég var með þessi námskeið í mörg ár en er ekki með opin námskeið lengur. Námskeiðin snerust einna helst um sjálfskoðun og ég aðstoðaði fólk við að efla sínar andlegu skynjanir sem er alltaf þörf á, enda margir sem vita ekki hvaðan þeir koma eða hvert þeir fara. Á námskeiðunum fjallaði ég líka um efnisheiminn og útgeislun hans og eins var talað um dauðann og það sem tekur við eftir jarðlífið og alla þá heima sem tilheyra jarðheimum. Ég fjallaði einnig um þessi mál í bók- inni minni sem kallast Lífssýn mín en þar tala ég jafnframt um nám- skeiðið í hnotskurn.“ Erum flest í barnaskóla Að sögn Erlu voru nám- skeiðin vel sótt á sínum tíma. „Þetta var afskaplega gaman enda eru þetta málefni sem þarf að hugsa um á hverjum degi og fólk ætti að hafa í huga að það sé til meira efni en það sem þreifa má á. Ég tók líka fyrir þroska orkustöðvanna, bæði orkustöðvar manns og jarðar, þróunina, trúarbrögðin og þá sem eru komnir lengra en við í þroska, en mannfólkið er flest ennþá bara í barnaskóla. Nokkrar verur komast þó lengra sem betur fer en vonandi eigum við líka eftir að þroskast í skóla lífsins. Ég hef ekki haldið námskeið í einhver ár en ég hef sinnt fólk- inu mínu í félaginu Lífssýn. Þangað kemur fólk sem er for- vitið og þar hef ég haldið lítil námskeið. En það er ómögulegt að vita hvað verður, ég er farin að eldast og þannig er lífið. Maður er duglegri þegar maður er yngri.“ Erla Stefánsdóttir fjallaði um ókunna heima Efnisheimurinn og útgeislun hans 24 stundir/Kristinn Andleg málefni Fjöldi Íslend- inga sótti námskeið Erlu í félag- inu Lífssýn á sínum tíma. Ert þú stjórnandi sem hefur áhuga á að taka þátt í kröftugri stjórnendaþjálfun og: • fá ítarlegt mat á núverandi stjórnunarárangri? • læra skilvirkar aðferðir til að ráða inn gott fólk og þjálfa það upp? • læra að halda í efnilega starfsmenn og þróa hæfileika þeirra áfram? • læra að taka starfsmannasamtöl og ræða frammistöðu á árangursríkan hátt? • tileinka þér skilvirkar aðferðir í tíma og fundarstjórnun? • læra leiðtogafræðin og geta tekið að sér leiðtogahlutverkið? • læra hvernig eigi að efla sjálfstraust og sjálfsmynd starfsmanna? • læra hvernig eigi að hvetja og efla starfsánægju? • læra að stjórna hinum mannlega þætti breytinga? • læra að taka á erfiðum starfsmannamálum? • læra að laða fram það besta hjá sjálfum sér og öðrum? • fá fræðslu og umræður um 20 góðar stjórnendabækur? • eiga saman góða stund með stjórnendum sem eiga það sameiginlegt að vilja verða betri? Til að tryggja hámarksárangur er fjöldi þátttakenda takmarkaður við 18. Leiðbeinendur: • Eyþór Eðvarðsson, M.A. vinnusálfræði, • Ingrid Kuhlman, framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar • Jóhann Ingi Gunnarsson, sálfræðingur • Valgeir Skagfjörð, leikari • Kolbrún Ragnarsdóttir, handleiðari. • Þórhildur Þórhallsdóttir, B.A. félagsfræði • Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, lektor mannauðsstjórnun HÍ Nánari upplýsingar í netfangi ingrid@thekkingarmidlun.is eða síma 892 2987. Fyrsta námskeiðið fer af stað í febrúar, enn eru nokkur sæti laus. Ítarlega lýsingu er að finna á www.thekkingarmidlun.is Að stjórna fólki 70 klst. stjórnendaþjálfun Dansrá› Íslands | Faglær›ir danskennarar Borgartún 6 | 105 Reykjavík | sími 553 6645 | fax 568 3545 | dans@danskoli.is | www.dansskoli.is VI‹ BJÓ‹UM UPP Í DANS Innritun og uppl‡singar í síma 553 6645 e›a á dansskoli.is Mambó Tjútt Freestyle Break Salsa Brú›arvals Barnadansar Samkvæmisdansar Sérnámskei› fyrir hópa N‡justu tískudansarnir Börn – Unglingar – Fullor›nir

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.