24 stundir - 11.01.2008, Qupperneq 30
30 FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 24stundir
Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu
svanhvit@24stundir.is
Endurmenntunardeild Landbún-
aðarháskóla Íslands býður upp á
alls kyns áhugaverð og kannski
heldur óvenjuleg námskeið og þar
á meðal eru blómaskreytingar,
ræktun mat- og kryddjurta, skipu-
lagsmál sveitarfélaga og margt
annað. Ásdís Helga Bjarnadóttir,
verkefnastjóri fyrir endurmennt-
unardeild, segir námskeiðin vera
einstaklega vinsæl og flest þeirra
fyllist mjög fljótt. „Þau námskeið
sem við bjóðum upp á eru fyrir all-
an almenning, áhuga- og fagfólk,
sem og sérfræðinga á fagsviðum
sem skólinn starfar fyrir. Þar inni
eru garðyrkja, búfjárrækt, landnýt-
ing, umhverfisfræði, umhverfis- og
skipulagsmál, landslagsarkitektúr
og blómaskreytingar. Landbún-
aðarháskólinn sinnir öllu landinu
og það hefur meira að segja komið
fólk hingað frá Færeyjum á nám-
skeið í sauðfjárrækt.“
Hestanámskeiðin vinsælust
Aðspurð hvaða námskeið séu
vinsælust segir Ásdís Helga það
jafnan vera hestanámskeiðin. „Það
hefur verið mikil þörf fyrir nám-
skeið í hrossarækt en flest hesta-
námskeiðin ganga út á það hvernig
maður umgengst hestinn, hvernig
hann er þjálfaður, gangtegundir,
byggingar, dóma og hvaða pæl-
ingar liggja að baki sýningahaldi.
Flestir sem sæka þessi námskeið
eiga hross og eru vanir hrossum en
eru ekki endilega sérfræðingar. Í
þessum námskeiðum einbeitum
við okkur fyrst og fremst að þeim
sem hafa reynslu af hestamennsku,
vilja bæta sig í reiðmennskunni
sem og bæta sitt hross og þjálfa
það betur upp,“ segir Ásdís Helga
og bætir við að það sé mjög mis-
jafnt hve löng námskeiðin eru.
„Þau eru allt frá fimm kennslu-
stundum upp í sex helgar en flest
þeirra eru dagsnámskeið, hefð-
bundin endurmenntunarnám-
skeið.“
Brúðir á blómanámskeið
Annað vinsælt námskeið er
blómaskreytingar fyrir áhugafólk
og fagaðila en Ásdís Helga segir að
verðandi brúðir sæki það nám-
skeið oft. „Við bjóðum oft upp á
námskeið í tengslum við jóla-
skreytingar, páskaskreytingar,
borðskreytingar eða bara almennar
blómaskreytingar. Konur sem eru
að fara að gifta sig sækja mikið í
þessi námskeið því þær vilja
kannski undirbúa veislusalinn og
brúðarvöndinn sjálfar eða þær sem
vilja halda fína matarveislu.“
Áhugaverð og öðruvísi námskeið í Landbúnaðarháskóla Íslands
Mikil þörf fyrir
námskeið í hestarækt
➤ Landbúnaðarháskóli Íslandsvar stofnaður árið 1999 og
tók þá við við verkefnum
Bændaskólans á Hvanneyri.
➤ Aðalstarfsstöð Landbún-aðarháskólans er á Hvann-
eyri.
➤ Meginviðfangsefni skólans ernýting og verndun nátt-
úruauðlinda á landi.
LANDBÚNAÐARHÁSKÓLIÞað eru ekki margir í nú-
tímasamfélagi sem
kunna spunagerð, rún-
ingar eða flókagerð en
sem betur fer er enn
hægt að læra þessa iðn
þar sem Landbúnaðarhá-
skóli Íslands býður upp á
stutt námskeið í þeim.
Vinsæl Námskeið fyrir
hestamenn eru haldin á
Mið-Fossum þar sem er
vegleg reiðhöll en hér má sjá
Símon B. Sigurgeirsson
nemanda í reiðhöllinni.
Streita er algengt vandamál í nú-
tímasamfélagi enda eru kröfurnar
miklar. Það er mjög mikilvægt að
vinna bug á streitunni því hún get-
ur haft afdrifarík áhrif á líf og
heilsu, að sögn Kolbrúnar Bjarkar
Ragnarsdóttur, ráðgjafa og þjálfara
hjá Þekkingarmiðlun. „Streitu-
viðbragðið er í sjálfu sér heilbrigt
viðbragð við álagi en ef við látum
það leika lausum hala þá getur það
í versta falli kostað okkur heilsuna
og í allra versta falli lífið þannig að
afleiðingarnar eru alvarlegar.“
Þekkingarmiðlun býður upp á
fimm námskeið sem snúast um
vellíðan og slökun í vinnunni, en
þó út frá ólíkum sjónarhornum.
Kolbrún segir að markmiðið með
námskeiðunum sé að fólk læri að
þekkja sjálft sig, sín streitu-
viðbrögð og læri að takast á við
streituna. „Námskeiðin eru miðað
við daglegt líf og eru því mjög
praktísk. Viðhorf okkar og hugsun
markar hvernig okkur líður og
streita er oft okkar eigin tilbún-
ingur. Fólk getur ekki sagt nei,
verkefnin hlaðast því upp og fólki
finnst sem það standi sig ekki.
Þetta er huglægt mat og eitt nám-
skeiðanna okkar, Batnandi manni
er best að lifa, tekur á því hvernig
hægt er að breyta þessari hugsun.
Námskeiðin eru þannig uppbyggð
að mikið er fjallað um streitu og
eðli hennar auk þess að kenna að-
ferðir til að takast á við hana. Oft-
ast veit fólk mikið um streitu en
það er svo mikið álag í daglegu lífi
að fólk nær ekki að staldra við og
hugsa sinn gang. Íslendingar eru
aldir upp við að vera duglegir og
ástandið er því stundum orðið
miklu alvarlegra en fólk gerir sér
grein fyrir.“
Námskeið um vellíðan og slökun í vinnunni
Afdrifarík áhrif streitu
Kolbrún Björk Ragnarsdóttir
„Íslendingar eru aldir upp við að
vera duglegir og ástandið er því
stundum orðið miklu alvarlegra
en fólk gerir sér grein fyrir.“
KYNNING
Fjarnám á vorönn 2008
Skráning fer fram 11.–20. janúar
Enskuskóli Erlu Ara
Sjá nánar um starfsemi skólans á www.enskafyriralla.is
Auglýsir vinsælu námsferðirnar til Englands.
Þrjár vikur í Kent School of English fyrir 13-15 ára
Íslenskir hópstjórar með í för allan tímann
Skráning stendur yfir í síma 8917576 og erlaara@simnet.is