24 stundir - 11.01.2008, Side 34
34 FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 24stundir
Sumir segja að námskeið og fyr-
irlestrar séu frábærir staðir til að
hitta aðila af hinu kyninu, þó aðrir
segi að það sé til lítils þar sem þar
megi aðeins finna aðila af sama
kyni og það er ekki allra. Konum
hefur verið bent á að prjóna- eða
blómaskreytinganámskeið séu
ekki endilega rétta leiðin heldur
eigi frekar að velja sér námskeið
sem frekar höfða til karlmanna.
Hér má nefna sem dæmi nám-
skeið í umhirðu bíla eða eld-
unarnámskeið, þannig getur þú
t.d. auðveldlega séð hvort hann er
efnilegur í eldhúsinu og þú megir
þá búast við einhverju girnilegu á
diskinn þinn. Dansnámskeið eða
námskeið í einhvers konar bar-
dagalist eru líka tilvalin til að finna
út í hversu góðu formi menn eru.
Nýjar leiðir
Galdurinn er að velja sér nám-
skeið sem þú hefur ekki endilega
áhuga á þótt þú vildir gjarnan læra
það sem þar er í boði. Einbeittu
þér frekar að því að velja eitthvað
sem þú telur að hinn rétti fyrir þig
gæti haft áhuga á að sækja. Karl-
mönnum getur t.d. fundist spenn-
andi að hitta konu á námskeiði
um viskí alveg eins og konu getur
fundist spenanndi að hitta karl-
mann á saumanámskeiði. Nám-
skeið eru frábær leið til að kynnast
því umræðuefnið er þegar fyrir
hendi og getur leitt til skemmti-
legra viðræðna um heima og
geima. Þó að kunningsskapur á
námskeiði leiði ekki til sambands
geta slík kynni samt sem áður leitt
til vináttu og það er í það minnsta
góð byrjun. Þannig getur þú eign-
ast félaga sem er ef til vill til í að
koma með þér á fleiri námskeið í
framtíðinni og aldrei að vita hvað
slíkt getur leitt af sér. Prófaðu þig
bara áfram.
maria@24stundir.is
Öðruvísi staðir til að hitta menn
Námskeið geta verið kjörin
Frábært Þessi kann aldeilis að dansa og svo kann hann líka að hrista saman
drykki og hefur gaman af því að lesa!
Ýmiss konar bækur eru til sem
hjálpa fólki við að kenna sjálfu sér.
Teach yourself-bókaflokkurinn er
einn þeirra en í bókunum má
finna sjálfskennslubækur um allt
milli himins og jarðar. T.d. hvernig
eigi að skrifa bækur fyrir börn,
hvernig eigi að klippa saman
myndskeið í tölvu og hvernig sé
hægt að öðlast innri frið og ró.
Einnig er hægt að læra ýmis tungu-
mál með bókunum.
Að kenna
sjálfum sér
Að sækja einhvers konar námskeið
er frábær leið til að auka sjálfs-
traustið. Drífðu þig á námskeið
sem þig hefur lengi langað að
sækja en ekki þorað og sannaðu
fyrir þér að þú getir það sem þú
vilt. Að fara á námskeið er líka góð
leið til að kynnast nýju fólki og það
lífgar upp á daginn að hafa eitt-
hvað til að hlakka til eftir vinnu nú
í svartasta skammdeginu. Veldu úr
það sem þér finnst skemmtilegast!
Gott fyrir
sjálfstraustið
Landbúnaðarháskóli Íslands held-
ur ýmiss konar námskeið nú á
vetrarmánuðum. Eitt þeirra ber
heitið Hvernig er best að fóðra
hestinn? og verður haldið á Ak-
ureyri þann 18. janúar í samstarfi
við Félag hrossabænda. Nám-
skeiðið er ætlað hestamönnum og
hrossaræktendum og þar verður
meðal annars farið yfir náttúrulegt
atferli hestsins og uppbyggingu
meltingarfæra hans.
Hvernig fóðra
skal hestinn
Heimilisiðnaðarskólinn hefur
verið rekinn í um 30 ár. Sérstaða
hans er að bjóða upp á námskeið
þar sem m.a. eru kennd ýmis göm-
ul vinnubrögð í greinum heimilis-
iðnaðar, handmennta og lista.
Kennsla fer aðallega fram á kvöld-
námskeiðum en einstaka námskeið
eru kennd á daginn eða um helgar.
Námskeið í boði:
Námskeið í boði við skólann eru
t.d.: Baldýring – brjóstsykursgerð –
hekl – hnífagerð, skepti og slíður
jurtalitun – leðurvinna – lopa-
peysuprjón – myndvefnaður
möttulsaumur – orkering – prjón:
handstúkur og íleppar, sjöl, hyrnur
og dúkar – sauðskinnsskór – skart-
gripa- og keðjugerð – skyrtu- og
svuntusaumur – spjaldvefnaður –
tálgun og tóvinna – vefnaður og
vattarsaumur – víravirki – útsaum-
ur og þjóðbúningasaumur.
Sérstaklega má geta þessa að á
síðustu árum hefur verið mikil
vakning fyrir eldri gerðum íslensku
þjóðbúninganna; faldbúningnum,
skautbúningnum, kyrtlinum, 19.
aldar upphlutnum og íslenska
herrabúningnum. Í nokkur ár hef-
ur verið boðið upp á nám-
skeiðaröð í því að sauma þessa
búninga.
Nám í Heimilisiðnaðarskóla Íslands
Brjóstsykursgerð og hekl