24 stundir - 11.01.2008, Page 35
24stundir FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 35
MENNING
menning@24stundir.is a
Næsta skref hjá mér er að
taka þátt í samsýningu í
Berlín í lok febrúar.
Eftir Írisi Ölmu Vilbergsdóttur
iris@24stundir.is
Ingirafn Steinarsson listamaður
hefur opnað sýningu í Listasafni
Reykjavíkur en hún samanstendur
af myndbandi, sýningargrip og
teikningu. „Hugtakið sem ég vann
eftir við sköpun sýningarinnar er
fagurfræði í virkni og verkin fjalla
öll um þetta hugtak en hvert þeirra
fyrir sig er unnið út frá misjöfnum
menningarlegum forsendum,“ seg-
ir Ingirafn. Sýning stendur yfir í
tæpa tvo mánuði en
Ingirafn hefur sett saman fjölda
sýninga á verkum sínum síðustu ár.
Fjölmargar sýningar
„Ég er með vefsíðuna
www.this.is/ingirafn þar sem hægt
er að fá allar upplýsingar um sýn-
ingarnar sem ég hef tekið þátt í.“
Fyrsta einstaklingssýning Ingarafns
var haldin í Gallery Gulp árið 1998
og ári síðan tók hann þátt í sinni
fyrstu samsýningu. Hann hefur
einnig tekið þátt í ýmiss konar
verkefnum sem birst hafa í sjón-
varpi og á internetinu.
Ingirafn hefur hlotið ýmsa styrki
en þar á meðal er listastyrkur frá
Reykjavíkurborg árið 2000, frá
menntamálaráðuneytinu árið 2003
og frá Landsbanka Íslands árið
2004. Styrkina hefur hann nýtt til
þess að þróa list sína enn frekar og
árangurinn má sjá á sýningunni.
Samsýning í Berlín
„Næsta skref hjá mér er að taka
þátt í samsýningu Berlín í lok febr-
úar. Þar sýni ég ásamt hóp sem
kallar sig Global Alien sem veltir
fyrir sér sjálfsmynd þjóða, landa-
mærum og innflytjendapólitík.
Þetta er að sjálfsögðu mjög spenn-
andi verkefni.“
Listamaður á ferð og flugi
Fagurfræði á Listasafninu
Janúarmánuður hefur
alltaf verið þekktur sem
daufasti mánuður ársins
en Listasafn Íslands ætlar
að sporna við leiðind-
unum með því að halda
spennandi listsýningar
fyrir alla landsmenn.
Listrænn Ingirafn er
hugmyndabrunnur
➤ Útskrifaðist með mast-ersgráðu frá Listaháskólanum
í Malmö í Svíþjóð árið 2005
eftir nám í Listaháskólanum í
Vín í Austurríki árið 2003 og
Myndlista og handíðaskóla
Íslands 1996-1999.
➤ Hefur sýnt verk sín á einka-og samsýningum á Íslandi
síðan 1998 og einnig tekið
þátt í sýningum í nokkrum
borgum Evrópu og Banda-
ríkjanna.
INGIRAFN STEINARSSON
Í kjölfar samstarfs Iceland Airwa-
ves og norsku tónlistarhátíðinnar
og ráðstefnunnar By:Larm munu
hljómsveitirnar FM Belfast,
Bloodgroup og Benni Hemm
Hemm leika á By:Larm 2008 í
Ósló í næsta mánuði. Um er að
ræða stærstu tónlistarráðstefnu
Skandinavíu sem flakkar milli
stærstu byggðarlaga Noregs.
Íslensk bönd á
By:Larm 2008
Menntamálaráðherra og iðn-
aðarráðherra undirrituðu nýjan
menningarsamning til þriggja ára
við Samband sveitarfélaga á Aust-
urlandi í gær, miðvikudaginn 9.
janúar. Um er að ræða þriðja
samninginn milli ríkis og sveitar-
félaga á Austurlandi um menn-
ingarmál en fyrsti samningur var
undirritaður árið 2001.
Menningar-
samningur
Verslunin Rúmgott · Smiðjuvegi 2 · Kópavogi · Sími 544 2121. Opið virka daga frá kl. 10-18 - laugardaga kl. 11-16
www.rumgott.is
GEL OG
ETHANOL
ELDSTÆÐI
BYLTING Í SVEFNLAUSNUM
SPRENGIÚTSALA
EITT BESTA ÚRVAL LANDSINS Á HEILSUDÝNUM
20-50% AFSLÁTTUR
VAXTALAUS LÁN Í 6 MÁNUÐI
24stundir/Eggert