24 stundir - 11.01.2008, Síða 36

24 stundir - 11.01.2008, Síða 36
Dr. Mirja Junt- unen, for- stöðukona Nor- dic Centre in India og sérfræð- ingur við Suður- og Mið-As- íufræðadeild Stokkhólmshá- skóla, heldur fyrirlestur í stofu 111 í Aðalbyggingu HÍ á mánu- daginn klukkan 12. Fyrirlest- urinn heitir „Pólitísk málstefna Kurmi-þjóðflokksins við Jhark- hand, Vestur-Bengal og Orissa“. Erindi dr. Mirja Juntunen 36 FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 24stundir MENNING menning@24stundir.is a Hún hefur alltaf verið vel sett í lífinu og fengið allt upp í hendurnar, en henni finnst eins og hún sé búin að sjá allt sem hana langar að sjá, sofa hjá öllum sem hana langar að sofa hjá og að í raun sé ekkert eftir. Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@24stundir.is Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleik- hússtjóri undirritaði í gær samning um samstarf við Vodafone vegna farandleikhúss Þjóðleikhússins. Samningurinn felur í sér að fram- haldsskólanemendum á lands- byggðinni verður boðið að sjá ár- lega sýningu Þjóðleikhússins í sinni heimabyggð sér að kostnaðarlausu og ætlar Vodafone að leggja eina milljón króna árlega næstu þrjú ár- in til verkefnisins. Í ár er það sýn- ingin norway.today sem farand- leikhúsið frumsýnir í Edinborgarhúsinu fyrir nemendur Menntaskólans á Ísafirði, en frum- sýningin verður þann 17. janúar. Tilgangur verkefnisins er að sögn Tinnu að jafna aðstöðumun ungs fólks á landsbyggðinni sem ekki hefur tök á að skreppa í Þjóðleik- húsið um helgar eins og íbúar höf- uðborgarsvæðisins. „Vodafone ger- ir okkur nú kleift að bjóða ungmennum í þessum skólum úti á landi á leiksýninguna án endur- gjalds. Við höfum áður farið í svona leikferðir og fórum til að mynda í fyrra með sýninguna Pat- rekur 1,5 í framhaldsskóla um allt land. Okkur þótti afar miður að þurfa að rukka aðgangseyri inn á sýningarnar, en nú eru þær áhyggj- ur úr sögunni.“ Björn Víglundsson undirritaði samninginn við Þjóðleikhúsið fyrir hönd Vodafone og hann segir verk- efnið ríma mjög vel við áherslur fyrirtækisins þessa dagana. „Við er- um að auka þjónustu okkar úti á landi, alveg eins og Þjóðleikhúsið,“ bendir hann á og Tinna bætir því við að kveikjan að atburðarásinni í verkinu sé netsamskipti tveggja ungmenna og þar sé einnig viss snertiflötur. Brjálæðisleg hugmynd Netsamskiptin sem um ræðir felast þó ekki í venjulegu hvers- dagslegu spjalli ókunnugra net- verja heldur fékk höfundur leikrits- ins norway.today, Igor Bauerisma, hugmyndina að verkinu í kjölfar þess að austurrísk stúlka og norsk- ur piltur komust í heimsfréttirnar. Stúlkan auglýsti á spjallþræði eftir einhverjum sem væri tilbúinn til þess að fremja með henni sjálfs- morð og hann gaf sig fram og kvaðst vera til í að taka þátt í þessu með henni. Vigdís Jakobsdóttir, sem leikstýrir verkinu, segist vel muna eftir því þegar þessi frétt fór eins og eldur í sinu um heims- byggðina í kringum aldamótin síð- ustu. „Í þessu verki eru þau saman komin í Noregi vopnuð samlok- um, bjór og myndbandsupptöku- vél og stefna á himinháa bjargbrún þar sem þau ætla að láta verða af því að stökkva. Þau eru nítján og tuttugu ára og því á svipuðum aldri og framhaldsskólanemendurnir sem er boðið að sjá sýninguna. Hún hefur alltaf verið vel sett í líf- inu og fengið allt upp í hendurnar, en henni finnst eins og hún sé búin að sjá allt sem hana langar að sjá, sofa hjá öllum sem hana langar að sofa hjá og að í raun sé ekkert eftir. Hann er meira utangarðs í sam- félaginu en þau eiga þetta þó sam- eiginlegt, að geta hugsað sér að svipta sig lífi,“ segir hún og bætir því við að ýmsum tilvistarspurn- ingum sé varpað fram í þessu dramatíska en um leið fyndna leik- riti. „Eftir sýningarnar ætlum við að efna til umræðu við áhorfendur um bæði verkið sjálft og leikhúsið sem miðil og við hlökkum mjög til þess að heyra hvað unga fólkið hef- ur til málanna að leggja,“ segir hún en segist aðspurð ekki vilja gefa upp fyrirfram hver örlög ung- mennanna í verkinu verða. Undirrita sam- starfssamning Tinna Gunnlaugs- dóttir þjóðleik- hússtjóri og Björn Víglundsson frá Vodafone. Þjóðleikhúsið sýnir leikritið norway.today á landsbyggðinni Tvöfalt sjálfsmorð í Noregi Þjóðleikhúsið leggur land undir fót með leiksýn- inguna norway.today sem verður frumsýnd í Edinborgarhúsinu á Ísa- firði þann 17. janúar en framhaldsskólanemar fá að sjá sýninguna sér að kostnaðarlausu. ➤ norway.today frumsýnt á Ísa-firði og í kjölfarið verður verkið sýnt í öðrum fram- haldsskólum á Vestur- og Suðurlandi. ➤ Á næsta ári verður stefnansett á alla framhaldsskóla á Norður- og Austurlandi þann- ig að á tveimur árum verður búið að bjóða öllum fram- haldsskólum á landsbyggð- inni upp á sýningar frá Þjóð- leikhúsinu. ➤ Með hlutverk í norway.todayfara Sara Marti Guðmunds- dóttir og Þórir Sæmundsson. FARANDLEIKHÚSIÐ 24stundir/Golli Nýjasti geisladiskur bresku rokkhljómsveitarinnar Radiohead, In Rainbows, kom út í byrjun árs- ins en hafði þá verið aðgengilegur á heimasíðu hljómsveitarinnar í þrjá mánuði. Hljómsveitarmeðlimirnir leyfðu aðdáendum sínum að ákveða sjálfir hvort þeir vildu greiða eitthvað fyrir niðurhalið, og þá hversu mikið. Þetta framtak vakti mikla athygli og leikur ýms- um forvitni á að vita hversu mikið aðdáendurnir kusu að reiða fram. Hljómsveitin neitar að gefa það upp, en nú hefur diskurinn selst í um 122.000 eintökum í plötuversl- unum í Bandaríkjunum. Þessi fjöldi vekur blendin viðbrögð hjá tónlistarspekúlöntum þar sem ljóst má vera að ekki bjuggust allir við svo mikilli sölu, sem þó er mjög lít- il miðað við síðasta diskinn „Hail to the Thief“ sem seldist í meira en 300.000 eintökum fyrstu vikuna þegar hún kom út fyrir fjórum ár- um. Sá hafði þó ekki verið fáan- legur á netinu fram að því, hvað þá gegn frjálsum framlögum. En þó svo að minna hafi selst af nýjasta disk Radiohead í fyrstu viku heldur en þeim síðasta er því við að bæta að hann hefur selst í um 28.000 eintökum á iTunes og má því álykta að framtak hljómsveitarinn- ar hafi verið í askana látið. In Rainbows, nýjasti diskur Radiohead, í plötuverslunum Diskurinn selst þrátt fyrir allt Tom Yorke Söngvari hljóm- sveitarinnar Radiohead. Brynhildur Þorgeirsdóttir opnar sýningu á nýjum verkum í 101 Gallery við Hverfisgötu 18a á morgun, laugardaginn 12. janúar klukkan 14. Brynhildur hefur starf- að sem myndhöggvari frá árinu 1983 og sótti framhaldsmenntun í myndlist til Hollands og Banda- ríkjanna. Hún starfaði á tímabili í New York en eftir að hún flutti vinnustofu sína til Íslands árið 1990 hefur hún sýnt ný verk á þriggja ára fresti. „Það logar í 101“ er liður í þessari samfelldu þroska- sögu og nú verður meðal annars kynnt til sögunnar ný tegund; „eldsprettur“ og spúandi gígaröð. Um er að ræða náttúrumyndanir og eru skúlptúrarnir unnir í stein- steypu, gler og sand. Sýningin stendur til 24. febrúar næstkomandi og er opin frá fimmtudögum til sunnudaga milli klukkan 14 og 17. Brynhildur sjálf verður viðstödd sýninguna meðan opið er á hverjum sunnudegi og veitir gestum leiðsögn. Brynhildur Þorgeirsdóttir sýnir í 101 Gallery Það logar í 101 Sýningu Birgis Snæbjörns Birg- issonar, Ljóshærð ungfrú heimur 1951-, lýkur á Kjarvalsstöðum næstkomandi sunnudag, þann 13. janúar. Sýningin var meðal annars tilnefnd af Morg- unblaðinu sem ein af tíu bestu sýningum ársins 2007. Boðið verð- ur upp á leiðsögn um sýninguna á sunnudaginn klukkan 15. Sýningu Birgis Snæbjörns lýkur Eyrarrósin 2008 kom í hlut tón- listarhátíðarinnar Aldrei fór ég Suður og var hún afhent á Bessa- stöðum í gær. Aldrei fór ég suður hefur verið haldin á Ísafirði og er skipulögð af heimamönnum og áhugafólki um tónlist. Við- urkenningin er fjárstyrkur að upphæð 1.5 milljón, verðlauna- gripur eftir Steinunni Þórarins- dóttur auk flugmiða frá Flug- félagi Íslands. Dorrit Moussaieff forsetafrú afhenti viðurkenn- inguna. Eyrarrósin afhent

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.