24 stundir - 11.01.2008, Page 46
árið 2005, var leystur undan
samningi í ársbyrjun.
Bæði Studdard og Hicks voru
leystir undan samningum sínum
af sömu ástæðu og McPhee.
Slæm plötusala.
Áhyggjuefni
Ný þáttaröð af American Idol
verður tekin til sýningar 15.
janúar og er það eflaust
áhyggjuefni fyrir
framleiðendur þátt-
anna að svo margir
af fyrrum kepp-
endum og sigurveg-
urum, skuli nú
standa eftir samn-
ingslausir, slyppir
og snauðir. vij
Bandaríska Idol-stjörnuleitin
er kannski eitt vinsælasta sjón-
varpsefnið vestanhafs en þátttak-
endur í þeirri keppni finna nú
fyrir því að lífið eftir sjónvarps-
þættina er enginn dans á rósum.
Katharine McPhee, sem hafn-
aði í öðru sæti í keppninni árið
2005, hefur nú misst útgáfu-
samning sinn við RCA-útgáfufyr-
irtækið eftir að hafa gefið út ein-
ungis eina breiðskífu. Samnefnd
plata hennar kom út fyrir tæpu
ári en hún seldist afskaplega illa,
einungis 366.000 eintök í Banda-
ríkjunum, og því ákvað RCA að
leysa hana undan samningi.
Bætist í hópinn
Katharine er síður en svo fyrsti
Idol-keppandinn sem sagt er upp
af útgáfufyrirtæki sínu. Ruben
Studdard og Taylor Hicks hafa
einnig misst útgáfusaminga sína
en báðir höfðu þeir sigrað
í keppninni á sínum
tíma.
Studdard, sem sigraði
í annarri þáttaröð
keppninnar, var
leystur undan
samningi sín-
um við J Re-
cords í des-
ember
síðastliðnum
og Hicks,
sem sigraði
einmitt
McPhee
RCA losar sig við Katharine McPhee
Nordic-Photo/Getty
Samningslaus snót McPhee, sem syngur hér á tónleikum til styrktar forseta-
framboði Hillary Clinton, þarf að hugsa sinn gang.
Enn ein American Idol-stjarna samningslaus
Ruben Studdard Sigraði í
American Idol en er nú
samningslaus.
46 FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 24stundir
24LÍFIÐ
24@24stundir.is a
Þeir vilja ennfremur ekki þurfa að deila
búningsherbergi sínu með neinum öðr-
um hljómsveitum, að Supergrass, Oasis og
kannski Led Zeppelin undanskildum.
Þær sögur ganga nú fjöllunum
hærra að hin barmmikla Pamela
Anderson sé með barni. Á barnið
að vera Ricks Salomons þrátt fyr-
ir að þau séu að skilja. Sjálf hefur
Pamela vísað sögusögnunum til
föðurhúsanna, en Salomon hefur
á hinn bóginn gefið þeim byr
undir báða vængi með því að
kvarta undan hormónaflæði
Anderson vegna óléttunnar. hþ
Pamela And-
erson ófrísk?
Enda þótt ástarsambandi þeirra
Jennifer Aniston og Vince
Vaughn hafi lokið á síðasta ári
eru þau ennþá bestu vinir. Þetta
kunngjörði Vince í viðtali við
tímaritið Parade í vikunni, en
hann kveðst þakklátur fyrir vin-
skap þeirra í millum. „Reyndar
tala ég endalaust við hana og hef
virkilega gaman af henni,“ við-
urkenndi leikarinn. hþ
Mikill vinur
Jennifer Aniston
Trommarinn ógurlegi Tommy Lee
er væntanlegur til landsins í lok
mánaðarins og verður að segja að
kröfulisti kappans veldur vissum
vonbrigðum, að minnsta kosti ef
litið er til orðspors hans. Tommy
krefst þess að fljúga til landsins á
fyrsta farrými og enginn annar
gististaður en forsetasvíta á fínu
hóteli kemur til greina. Í búnings-
herberginu skulu vera tvær flöskur
af Cristal kampavíni, tvær flöskur
af Jägermeister og Grey Goose
vodki. Þar að auki þarf hljóðkerfið
á tónleikastaðnum að vera „fram-
úrskarandi.“
Gistir bara í forseta-
svítu Tommy Lee sættir
sig ekki við neitt annað
en fyrsta flokks gistirými.
Skrautlegir kröfulistar tónlistarfólks
Nærbuxur og vítamín
Kröfulistar tónlistarfólks, sem það sendir á undan sér
til tónleikahaldara til að tryggja það að allt verði eftir
þess höfði, eru oft á tíðum frekar skrautlegir. Þessir
listar, sem kallast riders, útlista allt frá innréttingu
búningsherbergja til veitinga fyrir tónlistarfólkið. 24
stundir ákváðu að líta yfir kröfulista nokkurra vel
þekktra tónlistarmanna og skrautlegar kröfur þeirra.
Framúrskarandi hljóðkerfi
Uma Thurman segist ekki vilja
flytja til London til þess að geta
eytt meiri tíma með unnustanum
og viðskiptajöfrinum Arpad Bus-
son, en þau eiga í sambandi þrátt
fyrir að hún búi í Los Angeles og
hann Bretlandi. Ástæðan ku vera
sú að leikkonan setur börnin í
forgang og vill ekki raska ró
þeirra með flutningum. hþ
Uma setur börn
sín í forgang
Hljómsveitarmeðlimir Foo Fig-
hters óska eftir því að fá, meðal
annars, fjögur pör af hvítum
íþróttasokkum og fernar boxer-
nærbuxur, í miðstærð. Þeir vilja
ennfremur ekki þurfa að deila
búningsherbergi sínu með neinum
öðrum hljómsveitum, að Superg-
rass, Oasis og kannski Led Zeppel-
in undanskildum.
Sokkar og nærbuxur
Kröfulisti Britney Spears er jafn-
skrautlegur og hegðun hennar hef-
ur verið undanfarið. Meðal nauð-
synlegra hluta hjá henni eru
straujárn og straubretti. Enn frem-
ur krefst stjarnan að fá óskráð
símanúmer sem aðeins er hægt að
hringja úr, tónleikahaldarar sem
klikka í símamálunum þurfa að
greiða 5.000 dollara sekt.
Straujárnið er nauðsynlegt
Christina Aguilera er kona sem
bíður ekki eftir neinu. Því setur
hún það sem skilyrði að tónleika-
haldarar verði henni út um lög-
reglufylgd þegar hún ferðast til
tónleikastaðar svo að hún lendi
ekki í umferðarteppu. Þar að auki
krefst hún þess að í búnings-
herbergi hennar verði nóg af C-
vítamíni og Oreo-smákökum.
Lögreglufylgd á tónleikastað
Það kemur fáum á óvart að dópd-
ísin Amy Winehouse krefjist þess
að nóg af áfengi sé til staðar í bún-
ingsherbergi sínu. Á lista söngkon-
unnar er beðið um eina stóra
vodkaflösku, kassa af bjór, tvær
rauðvínsflöskur, eina flösku af
koníaki og eina stóra kampavíns-
flösku. Þar að auki þarf söngkonan
að fá 40 sígarettur.
40 sígarettur og nóg af áfengi!
Rapparanum Snoop Dogg er mjög
umhugað um öryggi sitt. Þess
vegna krefst hann þess að örygg-
isgæsla á tónleikunum sé fyrsta
flokks. Þar að auki krefst hann þess
að fá Playstation-leikjatölvu með
fjórum stýripinnum og góðu úrvali
íþróttaleikja. Ennfremur eru flúr-
perur illa séðar og eiga helst ekki
að sjást í búningsherbergi hans.
Öryggi og Playstation-leikjatölva