24 stundir - 11.01.2008, Page 50

24 stundir - 11.01.2008, Page 50
50 FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 24stundir Meðlimir Led Zeppelin munu koma saman síðar í þessum mán- uði og ræða mögulegt framhald á tónleikahaldi. Hljómsveitin lék á tónleikum þann 10. desember síðastliðinn og síðan þá hafa sög- ur hljómað um tónleikaferð í framhaldinu. Bassaleikarinn John Paul Jones sagði í samtali við tímaritið Rolling Stone: „Það verður hljómsveitarfundur í jan- úar. Það gæti orðið gaman að gera eitthvað meira.“ Hann lýsti einnig deginum þegar þeir komu saman: „Ég sat nú og spilaði á banjó allan daginn, því það róar mig. Það eru alltaf svakalegar væntingar og kröfur gerðar þegar við spilum. En við vildum bara drífa okkur í þetta. Móttökurnar voru stórkostlegar, þegar við fór- um svo á sviðið.“ re Led Zeppelin fundar Fjölskylda og vinir söngkon- unnar Britney Spears kveðast þess fullviss að Britney sé best borgið leggist hún inn á geð- sjúkrahús um tíma. Þau telja að söngkonan eigi við geðræn vandamál að stríða og þurfi nauðsynlega á sérfræðiaðstoð að halda. „Ef hún fer ekki inn af sjálfsdáðum mun fjölskylda hennar reyna að svipta hana sjálf- ræði og leggja hana inn,“ segir náinn vinur fjölskyldunnar. hþ Vilja að Britney verði lögð inn Leikkonan Katie Holmes kveðst himinlifandi með nýjustu fréttir af Nicole Kidman, en sú síð- arnefnda staðfesti í vikunni sögu- sagnir um að hún ætti von á barni. Katie er sem kunnugt er kona Toms Cruise, fyrrum eig- inmanns Kidman, en þær stöllur virðast engu að síður hinar bestu vinkonur. „Ég er svo ánægð fyrir hennar hönd. Þetta er æðislegt,“ sagði Katie í samtali við tímaritið People í fyrradag. hþ Ánægð fyrir hönd Kidman Eftir Ragnheiði Eiríksdóttur heida@24stundir.is Lomo-myndavélar eru upp- runalega rússneskar myndavélar framleiddar í St. Pétursborg. Ný kynslóð vélanna kemur hins vegar frá Austurríki, en árið 1991 stofn- uðu nokkrir Austurríkismenn fyr- irtækið Lomography. Þeir heill- uðust af óútreiknanlegum myndunum sem gömlu rússnesku vélarnar skiluðu og gerðu því samning við rússneska fyrirtækið LOMO PLC um að verða einu dreifingaraðilarnir utan Sovétríkj- anna sem þá voru og hétu. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og Lomo-vélarnar eru nú fáanlegar í ýmsum útgáfum um heim allan. Þær eru notendavænar og einfaldar og markaðssettar á þann hátt að allir geti tekið mynd- ir, alls staðar. Viðtökurnar koma á óvart Kjartan Örn Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri verslana Hans Pet- ersen, segir viðbrögð Íslendinga við vélunum hafa komið á óvart. „Við byrjuðum að auglýsa á vel völdum stöðum í september á síð- asta ári. Þá vissum við að á Íslandi fyndist takmarkaður hópur fólks sem hefði mikinn áhuga á þessum vélum. Um miðjan október sáum við hins vegar að áhuginn var mun meiri en við töldum og við fórum að auglýsa víðar. Við höfum ekki verið að selja filmuvélar í búð- unum okkar í nokkur ár, en í des- ember seldum við 10 Lomo á móti hverri stafrænni vél, og samt vor- um við ekkert að selja færri staf- rænar en venjulega.“ Tískan gengur í hringi Þegar Kjartan er spurður hvert leyndarmálið sé á bak við þessar gífurlegu vinsældir vélanna, telur hann að tískan gangi í hringi og undanfarið hafi vörur með tilvísun í eldri tíma selst vel. „Holga, ein vinsælasta Lomo-vélin, er sú myndavél sem Andy Warhol tók allar sínar frægustu ljósmyndir á, og það hefur sitt að segja varðandi vinsældirnar. Þetta eru ódýrar vél- ar og ljósmyndun er ofarlega á lista yfir vinsælustu áhugamál landans í dag. Það útskýrir vinsældirnar.“ LOMO LC-A+ End- urgerð eftir gamalli rússneskri mynda- vél, sem slegið hefur í gegn í dag. Íslendingar fara aftur til fortíðar með rússneskar myndavélar Feta í fótspor Andy Warhol Flestir hafa orðið varir við auglýsingaherferð fyrir jól þar sem sérstakar myndavélar, svokallaðar Lomo, eru mærðar. Færri vita þó um hvað málið snýst. ➤ LOMO, skammstöfun á Len-ingradskoye Optiko Mecha- nichesckoye Obyedinenie, var rússneskur framleiðandi glerja og linsa. ➤ Gerði fyrst myndavél 1930 enframleiðir í dag linsur fyrir vísindi og hernað. LOMO myndi tónlistin hennar vel eiga heima í einum af minni klassísku tónleikastöðum borgarinnar. Það merkilegasta við tónlist Bjarkar er að hún er mjög margslungin og flókin. Tónlistin gæti auðveldlega verið flokkuð undir mjög margar tónlistarstefnur, og myndi alls staðar passa ágætlega.“ Þegar Björk er innt eftir áhrifa- völdum á raftónlist sína nefnir hún meðal annars Karlheinz Stockhau- sen, þýskan frumkvöðul raf- tónlistar sem lést hinn 5. desember síðastliðinn. „Stockhausen var mikill áhrifavaldur á fólk á mínum aldri. Hann var svo bjartsýnn, og var sá eini sem leit 21. öldina já- kvæðum augum.“ heida@24stundir.is Björk Guðmundsdóttir hefur ferðast víða um þrjár heimsálfur á síðasta ári, en tónleikaferðalag hennar hefur teygt anga sína um Evrópu og Norður- og Suður- Ameríku. Fyrirhugað er að bæta við einni heimsálfunni enn, því í lok mánaðarins er stefnt á Ástralíu. Í tölublaði The Australian frá 10. janúar má af því tilefni finna viðtal við Björk þar sem hún talar meðal annars um tónleikaferðina um heiminn. „Ég fór ekki í svona tón- leikaferð í fjögur ár áður en við lögðum af stað í þessa,“ segir Björk. „Og nú er Isadora, dóttir mín, að byrja í skóla næsta haust, svo ég er að nota tímann vel núna áður en ég fer að hafa mig hæga aftur.“ Björk spilar fimm sinnum á tón- listarhátíð sem nefnist Big Day Out-Festival og flakkar um Ástr- alíu. Á þeirra vegum mun hún koma fram í Gold Coast 20. janúar, Sydney þann 25., Melbourne þann 28., Adelaide 1. febrúar og Perth 3. febrúar. Að auki kemur hún svo fram á einum tónleikum í Óp- eruhöllinni í Sydney, þann 23. jan- úar, og eru þeir tónleikar hluti af hátíðarhöldum Sydney-borgar. Skipuleggjandi Sydney-hátíð- arhaldanna, Fergus Linehan, segist ekkert skilja í því hversu vinsæl Björk er, ef litið er á hve óvenjulega og óhefðbundna tónlist hún semur og flytur. „Hún fer algjörlega sínar eigin leiðir,“ segir hann. „Ef hún væri ekki svona gríðarlega vinsæl Björk spilar í Ástralíu Björk Ferðast um heim allan fram á haust, en þá byrjar dóttirin í skóla. Kannski síðasta tónleikaferðin í bili PJ Harvey hefur lýst yfir að hún sé að fara að vinna aftur með vini sínum og samstarfsmanni John Parish, en þau gerðu saman plöt- una Dance Hall At Louse Point ár- ið 1996. Þetta er fyrsta platan sem þau gera í sameiningu síðan þá, en John Parish hefur spilað með PJ á plötum hennar og á tónleikum. Á Dance Hall At Louse Point söng PJ Harvey texta sína en lögin voru eft- ir Parish. Þau hafa bókað hljóðver síðar í mánuðinum og hefjast þá handa við að taka upp plötuna. Söngkonan tilkynnti þetta á MyS- pace-vefnum, en tilkynninguna mátti lesa á síðunni hennar 9. jan- úar. Verkefnið hefur enn ekki hlot- ið nafn en mun koma út síðar á árinu. Lítið er vitað um stefnuna sem tekin verður með plötuna, en staðfest er að Eric Drew Feldman mun verða gestur á plötunni, sem og Carla Azar úr hljómsveitinni Autolux og Giovanni Ferrario. Í kjölfarið á upptökunum mun PJ Harvey fara í tónleikaferð um Nýja-Sjáland og Ástralíu þar sem hún fylgir eftir nýjustu plötu sinni, White Chalk, sem kom út árið 2007. heida@24stundir.is Ný plata frá PJ Harvey Fergie, söngkona hljómsveit- arinnar Black Eyed Peas, hefur lýst því yfir að sér finnist hún vera tengd Díönu, prinsessu af Wales. Söngkonan sagði frá því í tímaritinu Blender að vegna þess hve þekkt hún væri orðin ætti hún ýmislegt sameiginlegt með látnu prinsessunni sem dó í bíl- slysi árið 1997. „Fólk setur fræga í hásæti og lætur eins og þeir séu fullkomnir. En ég er nokkurs konar listamaður fólksins, að ein- hverju leyti svipuð og Díana var prinsessa fólksins“, sagði Fergie og hélt áfram. „Ég er mun mann- legri en flestir aðrir listamenn. Ég er ekki hrædd við að sýna galla mína og hlæja svo að þeim.“ Fer- gie spilaði á minningartónleikum um Diönu á Wembley á síðasta ári. Fergie er eins og Díana 24LÍFIÐ 24@24stundir.is a Við höfum ekki verið að selja filmuvélar í búðunum okkar í nokkur ár, en í desember seldum við 10 Lomo á móti hverri stafrænni vél, og samt vorum við ekkert að selja færri stafrænar en venjulega. 24stundir/Einar Falur

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.