24 stundir - 15.03.2008, Side 36
LAUGARDAGUR 15. MARS 2008ATVINNA36 stundir
Ókeypis
-heim til þín
- kemur þér við
Störf í boði hjá Ísafjarðarbæ
Í framhaldi af innleiðingu nýs stjórnskipulags hjá
Ísafjarðarbæ eru auglýstar 3 nýjar og spennandi stöður
í bæjarfélaginu. Umsóknarfrestur er til 28. mars n.k.
Nánari upplýsingar veitir mannauðsstjóri í síma 450-
8000 eða um netfangið mannaudsstjori@isafjordur.is
Umhverfisfulltrúi - Um er að ræða 100 %, nýtt starf
umhverfisfulltrúa hjá Ísafjarðarbæ. Umhverfisfulltrúi ber
ábyrgð á því að útlit bæjarins sé snyrtilegt og
bæjarfélaginu til sóma. Hann þarf að hafa forystu um
bætta umgengni, endurnýtingu og endurvinnslu
úrgangs og halda uppi fræðslu og áróðri í því skyni.
Helstu verkefni:
• Yfirumsjón með málaflokknum í umboði sviðsstjóra
framkvæmdasviðs og umhverfisnefndar.
• Gerð umhverfisáætlana og verkefni á sviði
Staðardagskrár 21
• Yfirumsjón með opnum svæðum og
útivistarsvæðum í samstarfi við garðyrkjustjóra.
• Umsjón með skipulagi sorphirðu, sorðeyðingu og
endurvinnslu
• Skipulagning starfa vinnuskóla
• Störf fyrir umhverfisnefnd og önnur verkefni sem
tengjast umhverfismálum
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Menntun á sviði skrúðgarðyrkjufræða,
umhverfisfræða eða annað sambærilegt nám
• Starfsreynsla á sviði umhverfismála æskileg
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og leiðtogahæfni
Upplýsingafulltrúi - Um er að ræða 100 %, nýtt
starf upplýsingafulltrúa hjá Ísafjarðarbæ.
Upplýsingafulltrúi sér um innri og ytri upplýsingamiðlun
fyrir sveitafélagið, stefnumörkun fyrir nýtt þjónustuver
og stefnumótun varðandi markaðssetningu
Ísafjarðarbæjar utan svæðis.
Helstu verkefni:
• Þáttaka í mótun upplýsingastefnu og framkvæmd
hennar
• Ábyrgð á miðlun upplýsinga til íbúa sem varða
starfssemi bæjarfélagsins
• Innri upplýsingmiðlun og innra net
• Uppbygging og starfssemi þjónustuvers
• Umsjón með kynningarefni á íslensku og öðrum
tungumálum
• Ritstjórn vefsíðu bæjarfélagsins
• Samskipti við fjölmiðla
• Þáttaka í teymisvinnu
• Önnur verkefni tengd upplýsingamálum
Ísafjarðabæjar
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi
• Starfsreynsla á sviði upplýsinga- og kynningarmála
• Gott vald á íslenskri tungu
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og leiðtogahæfni
Umsjónamaður eigna hjá Ísafjarðarbæ - Um er
að ræða 100%, nýtt starf umsjónarmanns eigna, sem
starfar á framkvæmda- og rekstrarsviði bæjarins.
Umsjónamaður eigna ber ábyrgð á viðhaldi og rekstri
mannvirkja Ísafjarðarbæjar. Hann ber stjórnunarlega
ábyrgð á húsvörslu íþróttamannvirkja og annarra
stofnana bæjarins. Umsjónamaður eigna hefur
mannaforráð einkum í starfsemi íþróttahúsa bæjarins.
Helstu verkefni:
• Þátttaka í gerð fjárhagsáætlana um viðhald og
rekstur mannvirkja
• Gerð viðhaldsáætlana mannvirkja
• Kostnaðareftirlit
• Samskipti við verktaka og gerð verksamninga
• Þátttaka í teymisvinnu og fundum innan stjórnsýslu
Ísafjarðarbæjar
• Verkefnastjórnun
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfinu, t.d. tækni- eða
iðnmenntun
• Stjórnunarreynsla
• Starfsreynsla á sviði fasteignaumsýslu æskileg
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og leiðtogahæfileikar
Fljótsdalshéra› - Lyngási 12 - 700 Egilssta›ir - sími 4 700 700 - www.fljotsdalsherad.is
Fljótsdalshéra›
fl
jo
ts
d
a
ls
h
er
a
d
.i
s
Útboð
Fljótsdalshérað ásamt veitufyrirtækjum auglýsir
eftir tilboðum í verkið:
Verkið felst í gatnagerð (án yfirborðsfrágangs) og lagnavinnu við 1. áfanga miðbæjar á Egilsstöðum.
Helstu magntölur eru: Götur 300 m
Uppúrtekt 21.000 m3
Fyllingar 22.000 m3
Holræsi 800 m
Vatnslagnir 900 m
Hitaveitulagnir 700 m
Gagnaveiturör 600 m
Símalagnir 1.000 m
Raflagnir 700 m
Skurðir fyrir veitufyrirtæki 900 m
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Fljótsdalshéraðs, Einhleypingi 1, Fellabæ
og á skrifstofu VGK-Hönnunar, Grensásvegi 1, 108 Reykjavík, frá og með þriðjudegi, 18. mars 2008.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Fljótsdalshéraðs, Einhleypingi 1, Fellabæ, fimmtudaginn
3. apríl 2008 fyrir kl. 14:00, þar sem þau verða opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.
Verkkaupi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum.
F.h. verkkaupa
Miðbær Egilsstaða, norðursvæði
1. áfangi
Jarðvinna og lagnir
Leitum eftir samviskusömu, metnaðarfullu og
reglusömu fólki með bros á vör og góða þjónustulund.
Ef þú hefur áhuga á að vinna í skemmtilegu og
skapandi umhverfi, hafðu þá samband við okkur.
Vinsamlega hringið í 515 8663 eða 659 8385
Ostabúðin á bitruhálsi
óskar eftir sælkerafólki í
veisluþjónustu
Kennarar athugið!
Laus störf hjá Tálknafjarðarhreppi
Grunnskólann á Tálknafirði vantar kennara til
starfa á næsta skólaári.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 456 2537 og
897 6872, netfang; grunnskolinn@talknafjordur.is
eða formaður skólanefndar í síma 456 2623 og 862
2723, netfang, gullabj@simnet.is.
Tálknafjörður er um 300 manna byggðarlag á sunnanverðum
Vestfjörðum þar sem blómlegt mannlíf, framúrskarandi þjónusta og mikil
náttúrufegurð eru einkennandi. Í bænum er öll íþróttaaðstaða eins og
best verður á kosið, 25 m útisundlaug með rennibraut og heitum
pottum. Íþróttahús og tækjasalur bera metnaði sveitarfélagsins vitni.
Mikil náttúrufegurð er á sunnanverðum Vestfjörðum og er t.d. hið
stórfenglega Látrabjarg rétt við túnfót Tálknafjarðar.