24 stundir - 15.03.2008, Blaðsíða 49
24stundir LAUGARDAGUR 15. MARS 2008 49
Við leitum eftir samstarfi við félagasamtök, sveitarfélög og stofnanir sem ætla að
vinna að verkefnum á sviði umhverfis- eða ferðamála í sumar.
Við bjóðum fram krafta vinnuhópa ungmenna á aldrinum 16 til 20 ára sem starfa hjá okkur
á sumrin. Hóparnir sinna viðhaldi og snyrtingu í nágrenni mannvirkja okkar en um árabil
hafa þeir sinnt umhverfismálum og bætt aðstöðu til útivistar og ferðamennsku víða um
land. Við viljum eiga samstarf um verkefni sem lúta að ræktun, hreinsun og öðrum
umhverfisbótum ásamt t.d. stígagerð og stikun gönguleiða.
Við bjóðum fram vinnuframlag unglinganna og flokkstjórn yfir þeim.
Við óskum eftir að samstarfsaðilar leggi fram vel skilgreind verkefni,
samkvæmt nánari lýsingu á umsóknareyðublaði sem er að finna á vefsíðu
Landsvirkjunar, www.lv.is.
Nánari upplýsingar veita: Þorsteinn Hilmarsson upplýsingafulltrúi og Ragnheiður Ólafsdóttir
umhverfisstjóri í síma 515 9000 – thorsteinn@lv.is og ragnheidur@lv.is.
Umsóknum skal skila í síðasta
lagi 4.apríl með vefumsókn á
www.lv.is
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
8
0
57
7
Margar hendur vinna létt verk
Samstarfsaðilar óskast!
Saltfiskur (hráefni og aðferð):
Fjórar 140 g saltfisksteikur eru
steiktar á pönnu og fulleldaðar í
ofni við 160°C í nokkrar mínútur
(fer eftir stærð).
Kúskús (hráefni):
150 g kúskús
vatn
olía
rjómi
salt og pipar
Aðferð:
Soðið samkvæmt leiðbeiningum
pakkans. Kúskús er steikt á
pönnu með smá olíu, rjóma bætt
út í ásamt salti og pipar
Saltfiskbrandaða (hráefni):
150 g af saltfiski (soðinn),
100 g rjómi
1 hvítlauksrif
½ rauður chili-pipar
½ búnt söxuð steinselja
limebörkur
salt og pipar
Aðferð:
Sjóðið upp á rjómanum, bætið
öllum hráefninu út í og smakkið
til með limeberki, salti og pipar.
Annað hráefni:
4 rósakálsblöð eru soðin í nokkr-
ar sekúndur og pilluð. 150 g af
pekanhnetum eru ristuð á pönnu
og mulin í matvinnsluvél. Eitt
grænt epli er skorið þunnt, flór-
sykri stráð yfir og þurrkað við
100°C í tvo tíma.
Yozuhlaup (hráefni):
200 ml freyðivín
1 msk. yozu-safi
1 stk. lime (safi og börkur)
3 blöð matarlím
Aðferð:
Leggið matarlím í bleyti, sjóðið
upp á freyðivíninu, setjið yozu-
safa, limesafa og börk út í og að
lokum matarlímsblöðin, kælið og
skerið niður.
Eplamísó (hráefni):
100 g ljóst mísó
1 lítri eplasafi
Aðferð:
Sjóðið eplasafa niður þar til
vökvinn verður 50 ml og þá er
mísóinu hrært saman við.
Súkkulaðiskraut
Bræðið 100 g af súkkulaði,
smyrjið á bökunarpappír og strá-
ið gulldufti yfir.
Limesoðsósa (hráefni):
2 skalottlaukar, smátt saxaðir
4 hvítlauksrif, smátt söxuð
1 chili-aldin, smátt saxað
30 g engifer, smátt saxað
50 g hunang
100 ml freyðivín
1 lítri kálfasoð
1 lime
100 g smjör
salt og pipar
Aðferð:
Hitið olíu í potti og „svitið“ ska-
lottlauk, hvítlauk, chili og engi-
fer. Bætið hunangi saman við og
„karamellið“. Hellið freyðivíni út
í og sjóðið niður um helming.
Bætið kálfasoði út í og sjóðið aft-
ur niður um helming. Bætið
smjöri út í og smakkið til með
salti og pipar. Bætið að lokum
limesafa út í, sigtið.
AÐALRÉTTUR
Saltfiskur „goldie“ og meðlæti
24stundir/Árni SæbergAlba mælir með Barone
Ricasoli Torricella 2004. Op-
ið í nefi með fullt af ananas,
grænum eplum, hunangi og
ristuðum hnetum. Ferskt í
munni með gómsætum mel-
ónum og suðrænum ávöxt-
um. Meðalfylling með þétta
áferð og fínlega sýru í lokin.
Vín vikunnar
Erum í Dugguvogi 2. Sími 557-9510
HÚ
SG
AG
NA
-
LA
GE
RS
AL
A HÚSGAGNA
LAGERSALA
Opnunartími
mán-fös 9.00-18.00 lau 11.00-16.00
70%
afsláttur
LEÐUR SÓFASETT
TAU SÓFASETT
LEÐUR HORNSÓFAR
TAU HORNSÓFAR
TUNGUSÓFAR
TUNGUHORNSÓFAR
STAKIR SÓFAR
BORÐSTOFUSTÓLAR
BORÐSTOFUHÚSGÖGN
ELDHÚSBORÐ
RÚMGAFLAR JÁRN
RÚM 120-150-180X200
Allt að