24 stundir - 15.03.2008, Blaðsíða 62
62 LAUGARDAGUR 15. MARS 2008 24stundir
24LÍFIÐ
24@24stundir.is a
Við féllum kylliflatir fyrir þessari karlmannlegu töffara-
tónlist, en Tony er nánast óþekktur að því er virðist hér á
landi. Hann hefur þó unnið með mörgum frægum, einsog Elvis,
Tinu Turner, Ray Charles og Hank Williams jr.
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@24stundir.is
Þann 19. mars kemur út geislaplat-
an Minni karla, þar sem Skugga-
sveitin leikur lög fenjarokkarans
Tony Joe White, með nýjum text-
um Baggalútsins Braga Valdimars
Skúlasonar.
Valinn maður í hverju rúmi
Á plötunni syngja þekktir tón-
listarmenn einsog Megas, Maggi
Eiríks, Jenni í Brainpolice, Óttarr
Proppé, Ragnar Kjartansson og
Björn Jörundur Friðbjörnsson.
Það er þó Guðmundur Kristinn
Jónsson, betur þekktur sem Kiddi í
Hjálmum, og Sigurður Guð-
mundsson sem eiga heiðurinn af
gerð plötunnar. „Við fundum Best
of-disk með Tony í safninu hjá
Rúnari Júl. Við féllum kylliflatir
fyrir þessari karlmannlegu töff-
aratónlist, en Tony er nánast
óþekktur að því er virðist hér á
landi. Hann hefur þó unnið með
mörgum frægum, einsog Elvis,
Tinu Turner, Ray Charles og Hank
Williams jr.“
Kunnu engin deili á honum
Það skýtur skökku við að á lof-
plötu til heiðurs Tony Joe White
skuli enginn söngvari laga hans
hafa vitað hver maðurinn væri.
„Enginn nema Mugison, sem við
töluðum við líka. Hann reyndist
upptekinn þegar á hólminn var
komið. Þá munaði litlu að Tony
spilaði á plötunni, en ég náði ekki í
hann, enda stórt nafn þarna úti.“
Tony Joe White heiðraður af Skuggasveitinni
Plata til heiðurs
óþekktum manni
➤ Fæddur 1943 í Louisiana.Auknefni: The Swamp Fox.
➤ Lög hans hafa verið gerð vin-sæl af 25 þekktum listamönn-
um.
➤ Er þekktur sem frumkvöðullfenjarokksins, ásamt Cree-
dence og Lynard Skynard.
TONY JOE WHITE
Skuggasveitin, ásamt
fjölda gestasöngvara,
hefur gert lofplötu um
Tony Joe White, sem eng-
inn gestasöngvaranna
veit nein deili á.
Fenjarokkið ræður! Kiddi mundar
gítarinn karlmannlega, enda segir hann
tónlistina karlrembulega.
24 stundir/Sverrir
Nýjasta mynd grínarans Bens
Stiller, Tropic Thunder, skartar
skemmtilegum leikurum, á borð
við Jack Black og Robert Downey
jr., en hann leikur blökkumann í
myndinni. Samfélag þeldökkra
segir það svartan blett á Holly-
wood sé ekki unnt að ráða leikara
af afrísku bergi brotinn heldur
þurfi að farða hvítan leikara í
starfið. Stiller segir að málið
skýrist þegar horft er á myndina.
Fer í gervi
blökkumanns
Eftir kjölfar
stjórnarskipta á
Kúbu hefur nú-
tíminn loksins
haldið innreið
sína á hina fögru
eyju. Til að fagna
því að eyj-
arskeggjar búa nú
við stöðugra flæði rafmagns hafa
stjórnvöld ákveðið að leyfa íbú-
um að kaupa sér ýmsan mun-
aðarvarning svo sem DVD-
spilara, brauðristar, loftkælingar
og sjónvörp stærri en 24 tommur.
Hingað til hafa einungis útlend-
ingar og fyrirtæki mátt fjárfesta í
DVD-spilurum en nú er tíðin
önnur og því má hver sem er fjár-
festa í fyrsta flokks DVD-spilara.
Svo er annað mál hvort fólk hefur
efni á því. vij
DVD loksins
komið til Kúbu
Grínistinn Billy Crystal, sem er einarður
aðdáandi hafnaboltaliðsins New York Yan-
kees, lét gamlan draum rætast þegar hann
kastaði fyrstur fyrir liðið í leik gegn Pitts-
burgh Pirates, í 5-3 tapleik. „Þetta var ótrú-
leg upplifun, ég get varla lýst henni,“ sagði
Billy hrærður, en hann fagnaði í leiðinni sex-
tugsafmæli sínu þennan sama dag. Crystal
leikstýrði myndinni 61* sem fjallaði um af-
rek og raunir Yankee-liðsins árið 1961.
Lét drauminn rætast
Rapparinn P.Diddy hyggst nú bregða á það ráð
að setja á laggirnar fyrirtæki sem sér um akstur
fræga fólksins eftir Hollywoodpartíin. Rapp-
arinn hefur, að sögn talsmanns hans, fengið sig
fullsaddan á fréttum af ölvuðum stjörnum und-
ir stýri og vill nú beita sér fyrir því að fræga
fólkið sýni tilhlýðilega ábyrgð. Stjörnur á borð
við Lindsay Lohan, Paris Hilton, Nicole Richie
og Kiefer Sutherland ættu að geta nýtt sér þjón-
ustuna, en þau hafa sem kunnugt er öll verið
tekin fyrir ölvunarakstur á síðastliðnum tveim-
ur árum. hþ
Spornar við ölvunarakstri
Ný námsbraut - leið til BA gráðu
við erlenda háskóla.
Námið er tilraunastofa þar sem
efni, aðferðir og hugmyndir
mætast.
Umsóknarfrestur til 28.maí 2008
MYNDLISTA- OG
HÖNNUNARSVIÐ
Eins árs undirbúningur fyrir nám í
hönnun - myndlist eða arkitektúr.
Góð reynsla - um 80% útskrifaðra
nemenda fara áfram til náms á
háskólastigi.
Síðara inntökupróf 31.maí 2008
Umsóknarfrestur til 26. maí 2008
Leir og
tengd efniMÓTUN
Hringbraut 121 • 107 Reykjavík
• sími 5511990
Fyrra inntökupróf 5.apríl 2008
Umsóknarfrestur til 25. mars 2008
www.myndlistaskolinn.is