24 stundir - 15.03.2008, Blaðsíða 72
24stundir
„KRONBORG PRESTIGE“ ANDADÚNSSÆNG
Notaleg og góð sæng fyllt með 750 gr. af andadúni og andafiðri.
Sængin er saumuð í ferninga og því helst dúnninn jafn yfir alla
sængina. Þolir þvott. Stærð:135 x 200 sm.
Koddi
50 x 70 sm.
2.990,-
SÆNG
7.990,-
„HEMINGWAY” SVEFNSÓFI
Fallegur svefnsófi með slitsterku PU áklæði og rúmfatageymslu.
Litur: Svartur. Stærð: B:186 x H:92 x D:95 sm. Í svefnstöðu: B:125 x L:186 sm.
Frábær svefnsófi á góðu verði!
SVEFNSÓFI
34.900,-
HÁRÞURRKA
Góð hárþurrka með
þremur hausum.
Frábær fermingargjöf!
90x200 sm. 34.900,-
120x200 sm. 49.900,-
153x203 sm. 59.900,-
183x203 sm. 69.900,-
„GOOD NIGHT SLEEP” DÝNA
Virkilega góð og vönduð dýna. Tilvalin fermingargjöf.
Hreint ótrúlegt verð! Fáanleg í fjórum stærðum.
Fætur fylgja með.
www.rumfatalagerinn.is
5.990,-
„CASSANDRA“
SÆNGURVERASETT
Virkilega fallegt sængurverasett úr 100% bómullarsatíni.
Litir: hvítt, svart og sandlitur. Stærð: 140 x 200 sm.
Koddaver. St. 50 x 70 sm.
ST. 120X200 SM.
49.900,-
FERÐATÖSKUSETT
Gott 3ja tösku sett. Tvær stærstu á hjólum.
Sú minnsta í settinu er íþróttataska.
Tilvalin fermingargjöf!
3 TÖSKUR SAMAN
3.990,-
SLÉTTUJÁRN
Keramik húðað sléttujárn sem má
nota bæði á þurrt og blautt hár.
2.490,-
2.490,-
1.490,-
„PRIME“ SÆNGURVERASETT
Flott krep sængurverasett úr 100% bómull.
Stærð: 140 x 200 sm. koddaver. St. 50 x
70 sm. Komdu og gerðu góð kaup!
EINNIG
Í SVÖRTU
& SAND
? Niðurstöður dómstóla vekja ofthörð viðbrögð. Í hita umræðunnarfalla þung orð í garð dómsvaldsins ogaldrei er gagnrýninni svarað. Dómarartjá sig ekki um eigin dóma.Af einhverri ástæðu finnst sumumþetta skrítið. Þeim finnst skrítið aðdómarar, sem eru jú bara manneskjur,
geti ekki tekið þátt í umræðunni eins
og hver annar bloggari. Sumum finnst
jafnvel að dómstólar eigi að ráða til sín
almannatengslafulltrúa til að svara fyr-
ir niðurstöður sínar.
Til að svara þessu hef ég aðeins
þetta að segja: Dómar eru oftast vel
rökstuddir. Þeir eru síður en svo skoð-
un venjulegrar manneskju heldur ann-
ars vegar grundvallaðir á lögum hvers
tíma og hins vegar á reglum tvö þús-
und og fimmhundruð ára gamallar
fræðigreinar. Sá misskilningur að
dómar séu venjulegar skoðanir er
hlægilegur. Þeir sem þenja sig mest
hafa líklega aldrei lesið dóma. Þeir lesa
snöggsoðna útdrætti úr dómum á net-
fréttamiðlum.
Þær niðurstöður dómstóla sem mest
er deilt um eru yfirleitt skýrar og ein-
faldar þegar öllu er á botninn hvolft.
Það þarf engan almannatengslafulltrúa
til að skýra þær út. Það þarf einungis
að taka sér nokkrar klukkustundir og
kynna sér málið í heild. En í dag getur
enginn tekið sér nokkrar klukkustund-
ir til að kynna sér mál. Þá er enginn
tími eftir til að kvarta á netinu og væla
yfir einhverju sem maður hefur ekki
hundsvit á.
Hættið að kvarta og farið að lesa
Bergur Ebbi
Benediktsson
vill að fólk kynni sér málin.
YFIR STRIKIÐ
Þarf að sjóða
upplýsingar
ofan í fólk?
24 LÍFIÐ
24 studir grófu upp barnamyndir
af 20 heimsþekktum einstakling-
um sem hafa breyst
mismunandi mikið.
Barnamyndir
af fræga fólkinu
»64
Gillzenegger er genginn til liðs við
Hvöt frá Blönduósi. Nágrannarnir
í Tindastóli hræðast
ekki Gillzenegger.
Króksararnir óttast
ekki Gillzenegger
»70
Fjórir keppendur í Bandinu hans
Bubba fengu sér tattú í vikunni.
Villi vældi en Hjálmar
kveinkaði sér ekki.
Keppendum Bubba
boðið upp á tattú
»70
● Systkinamót
„Fimleikar eru
náttúrlega fjöl-
skyldusport en ég
veit ekki hvort það
er hægt fullyrða
það út frá þessu,
en það má alveg
spyrja sig hvort
þetta sé í genunum,“ segir Hrund
Þorgeirsdóttir, framkvæmdastjóri
Fimleikasambands Íslands, en nú
um helgina fer fram Íslandsmót í
áhaldafimleikum en þar eru 13
systkini skráð til leiks. „Það er
mikil gróska í fimleikunum um
þessar mundir og það er gaman að
sjá að það eru ungir og sterkir
krakkar að koma upp.“
● Sár fátækt
Hópur Íslendinga
heimsótti nýlega
Gíneu-Bissá til að
sjá árangur af þró-
unaraðstoð UNI-
CEF. „Við erum
litlar þjóðir og það
var gaman að sjá
hvað við getum náð miklum ár-
angri,“ segir Katrín Júlíusdóttir
þingkona. „Það var líka merkilegt
að sjá hvað margt er sameiginlegt
með kvennabaráttunni, hvort sem
það er í ríki sem er númer 175 á
lífsgæðalista SÞ eða í fyrsta sæti. Á
báðum stöðum er til dæmis talað
um hvað sé erfitt að fá konur til að
taka þátt í pólitík og hvað sé erfitt
fyrir þær að nálgast fjármagn.“
● Þorir út þrátt
fyrir svifryk
Gunnar Her-
sveinn, upplýs-
ingafulltrúi um-
hverfissviðs
borgarinnar,
gleðst yfir því að
komast í hreina
loftið í Biskupstungum um helgina,
meðan svifrykið leggst yfir Reykja-
vík. „Ef ég væri í bænum myndi ég
þó hugsa mig tvisvar um áður en ég
hjólaði eða gengi með umferð-
aræðum. Svifrykið þyrlast upp úr
götunni því nú er þurrt í veðri.
Borgin bindur rykið eftir bestu
getu og hélt því í skefjum í gær.“
Ritstjórn
Sími: 510 3700
ritstjorn@24stundir.is
Auglýsingar
Sími: 510 3700
auglysingar@24stundir.is
Hvað ætlar þú að
gera í dag?
- kemur þér við