24 stundir - 15.03.2008, Síða 41

24 stundir - 15.03.2008, Síða 41
24stundir LAUGARDAGUR 15. MARS 2008 41 MENNING menning@24stundir.is a Nú í dag er hins vegar kominn mað- ur eins og Baldur Ragnarsson sem gerist rithöfundur á esperanto, þar sem slíkt er nú mögulegt. Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@24stundir.is Í ár er þess minnst að 120 ár eru liðin frá fæðingu Þórbergs Þórðar- sonar, og þar sem hann var einhver ötulasti baráttumaður fyrir esper- anto á sinni tíð efna esperantistar til veglegrar menningardagskrár í Esperantohúsinu við Skólavörðu- stíg 6b frá og með deginum í dag og fram til 27. mars. Fyrir utan afmæli Þórbergs fagna íslenskir esperant- istar einnig þremur nýútkomnum bókum á esperanto sem snerta ís- lenskar bókmenntir. Í ágúst 2007 kom út hjá Edistudio í Písa á Ítalíu bókin La lingvo serena (Hin heið- bjarta tunga) með helstu frum- sömdu verkum Baldurs Ragnars- sonar á esperanto. Í desember kom svo út Sjálfstætt fólk (Sendependaj homoj) á esperanto í þýðingu Bald- urs hjá Mondial-forlaginu í New York og einnig þýðing hans á Snorra-Eddu hjá sama forlagi. Baldur flytur erindið Esperanto og þýðingar í Esperantohúsinu klukk- an 14 í dag og eru allir velkomnir að sögn Kristjáns Eiríkssonar, for- manns Esperantosambandsins. „Þetta eru þrjú stór bókmennta- verk sem voru að koma út á esper- anto og þau öll, ekki síst frum- samda verkið, eru mjög merkileg bókmenntaverk,“ segir hann. Esperanto þá og nú Eins og fyrr segir efnir Esper- antosambandið til dagskrár í tilefni af afmæli Þórbergs og verða öll er- indi flutt á íslensku. Á laugardag- inn næsta, þann 22. mars, ætla esperantistar að bera saman stöðu esperantos á dögum Þórbergs ann- ars vegar og svo nú á 21. öldinni hins vegar. „Ég hélt fyrirlestur á Þórbergsþingi hér á dögunum og í umræðum eftir hann fórum við að velta fyrir okkur hvernig stóð á því að Þórbergur gerðist ekki hreinlega rithöfundur á esperanto. Á það var bent að í þá daga var ekki beinlínis grundvöllur fyrir slíkt þar sem ekki var búið að plægja jarðveginn ef svo má segja. Nú í dag er hins vegar kominn maður eins og Baldur Ragnarsson sem gerist rithöfundur á esperanto, þar sem slíkt er nú mögulegt. Raunar má segja að á Þórbergsdögunum hafi menn orð- ið að hafa það á sinni stefnuskrá að málið sigraði að lokum. Nú í dag hins vegar auðveldar netið manni mjög að halda sér við í málinu og fyrir mann eins og mig er til nóg af bókmenntaverkum á esperanto til þess að endast mér út ævina að lesa. Netið gerir það að verkum að nú getur hver sem er lært sitthvað í esperanto frá sinni tölvu og esper- antistar geta haldið sér við með því að nota Skype-forritið og spjalla saman á póstlistum. Ég er því bjart- sýnn á að málið eigi eftir að lifa áfram um ókomna tíð, ekki síst þar sem það hefur þann kost umfram önnur tungumál að það er hlut- laust tungumál sem ógnar engum öðrum tungumálum. Annar mik- ilvægur kostur er að menn eru yf- irleitt fljótir að ná tökum á því, þó svo að það sé viss galli að menn tala ekki esperanto daglega og því fylgir viss fyrirhöfn því að komast í mál- samfélag. En eins og fyrr segir varð það auðveldara með tilkomu nets- ins,“ segir Kristján að lokum. Þórbergsdagar í Esperantohúsi hefjast í dag Esperanto lifir áfram Esperanto ógnar ekki öðrum málum Kristján Eiríksson, formaður Esperantosambandsins. Esperanto lifir góðu lífi og mun gera það áfram að mati Kristjáns Eiríks- sonar, formanns Esper- antosambandsins. ➤ Klukkan 14 á morgun verðuropnuð myndlistarsýning þeirra sem teiknað hafa myndir í þýðingartímaritið La Tradukisto. ➤ Meðal annarra dagskrárliðaeru ókeypis örnámskeið í esperanto 25. og 27. mars. ÞÓRBERGSDAGAR Hingað til lands er kominn víð- frægur drengjakór frá St. Paul’s- skólanum í Baltimore í Banda- ríkjunum. St.Paul’s-skólinn er einkarekinn drengjaskóli sem var stofnaður árið 1849 af söfnuði gömlu St. Paul’s-kirkjunnar í miðborg Baltimore. Kór skólans syngur á tónleikum í Langholts- kirkju í dag klukkan 17. Aðgang- ur er ókeypis og allir velkomnir. Drengjakór í Langholtskirkju Hér getur að líta mynd úr vídeó- verki myndlistarkonunnar Gunn- hildar Hauksdóttur sem sýnir í D-sal Listasafns Reykjavíkur um þessar mundir. Þetta er áttunda sýningin í D-sýningaröðinni svo- kölluðu, en hún var opnuð síðast- liðinn fimmtudag og er opin til 27. apríl. Aðgangur að öllum söfnum Lista- safns Reykjavíkur er ókeypis. Úr vídeóverki Gunnhildar 24stundir/Golli

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.