24 stundir - 15.03.2008, Page 43

24 stundir - 15.03.2008, Page 43
24stundir/Frikki 24stundir LAUGARDAGUR 15. MARS 2008 43 Þ etta er fyrst og fremst prinsippmál. Það er prinsippmál að ráða- menn eigi að njóta sömu lífeyriskjara og aðrir. Og ef þingmenn gera mistök í laga- setningu þá eiga þeir að leiðrétta þau mistök,“ segir Valgerður Bjarnadóttir, varaþingmaður Sam- fylkingar, en hún flytur frumvarp á Alþingi um afnám eftirlaunalag- anna sem fela í sér sérkjör í lífeyr- isréttindum ráðamanna. „Þessi lög voru sett í desember 2003 og margir urðu þá til að kalla þau ólög. Málið var keyrt í gegnum þingið á örskömmum tíma og fólki ofbauð rækilega. Í stjórnarand- stöðu sögðu flestir: Svona á ekki að gera – en svo breyttist ekki neitt. Síðan komu kosningar og ný rík- isstjórn og þá finnst mér horfa beint við að þeir sem áður voru í stjórnarandstöðu en eru nú komn- ir til valda standi við það sem þeir sögðu áður. Ég leyfi mér stundum að setja þetta í samhengi við fiskveiði- stjórnunarkerfið, sem ég er algjör- lega andvíg. Ef eftirlaunalögunum verður breytt þá er um leið búið að sýna að það sé hægt að breyta. Kannski verður einhvern tíma hægt að breyta fiskveiðistjórnunar- kerfinu sem 80 prósent þjóðarinn- ar eru á móti. Stjórnvöld þurfa oft að taka erf- iðar ákvarðanir. Í fyrra var tekin erfið ákvörðun varðandi kvótann og þetta árið er efnahagsástandið slæmt og við því þarf að bregðast. Ríkisstjórn og ráðamenn á hverj- um tíma eru alltaf tilbúin að taka erfiðar ákvarðanir sem bitna á öðr- um. Ég spyr: Af hverju sýna ráða- menn ekki að þeir geti tekið ákvörðun sem bitnar á þeim sjálf- um? Ég átta mig alveg á því að efna- hagsástandið á Íslandi stendur ekki og fellur með afnámi eftirlaunalag- anna en þetta er prinsippmál í mínum huga. Mér er mikið niðri fyrir. Ég hef skrifað blaðagreinar um þetta mál og endaði svo mína föstu pistla í Fréttablaðinu með að minna á það. Nú er ég komin í að- stöðu sem varaþingmaður og get gert eitthvað í þessu máli. Mér finnst ég verða að sýna að ég meina það sem ég segi. Ég hef alltaf í vinnu og til dæmis í prófkjörsbar- áttu reynt að lofa sem minnstu. Ég hef sagt: Við getum athugað þetta mál, við getum skoðað það. En þegar ég segist ætla að gera eitthvað þá vil ég standa við það. Það er skylda mín.“ Furðulegur viðsnúningur Hefurðu orðið fyrir vonbrigðum með viðbrögð Samfylkingar við þessu frumvarpi? „Ég varð fyrir vonbrigðum á landsfundinum í fyrra þegar ég flutti samskonar tillögu sem var a Ég rekst mjög illa í flokki. Hins vegar veit ég að ef maður er í flokki þá er maður í liði og maður verður að taka tillit til fé- laga sinna en bara upp að ákveðnu marki. Mér finnst líka að hinir í liðinu verði að átta sig á því að sumir rekast betur en aðrir í flokki. HELGARVIÐTALIÐ Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@24stundir.is

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.