24 stundir - 15.03.2008, Page 58

24 stundir - 15.03.2008, Page 58
58 LAUGARDAGUR 15. MARS 2008 24stundir Sýningu blaðaljósmyndara, Myndir ársins, lýkur á sunnudag. Sýningin skartar rúmlega tvö hundruð myndum frá tæplega fjörutíu ljós- myndurum. Myndefnin eru fjölbreytt og sjónarhornin margvísleg og þar fá gestir innsýn í fjöl- marga atburði ársins 2007, eins og ljósmyndarar sáu þá í gegnum linsu sína. Í tengslum við sýninguna kom út bókin Myndir ársins en kápu þeirrar bókar prýðir mynd sem Eggert Jóhannesson tók af Gunn- ari Birgissyni, en myndin var val- in skoplegasta mynd ársins. 24 stundir birta hér nokkrar myndir sem eru á sýningunni og í bókinni. Árið 2007 gegnum linsuna 24stundir/JúlíusEftir slysið Fréttamynd ársins sýnir viðbrögð farþega eftir að rúta varð fyrir skriðu á veginum um Kollafjörð. Merkilegt handtak Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, heilsar Sævari Cieselski. Myndin var valin þjóðlegasta mynd ársins. Dagur íslenskrar tungu Kári Stefánsson tekur daginn bókstaflega og rekur út úr sér tunguna. Mótmæli Jason Slade, einn þeirra fimm sem handteknir voru þegar óeirðir brutust út í mótmælagöngu Saving Iceland. Stjórnarmyndunarviðræður Geir Haarde og Ingibjörg Sólrún hafa ástæðu til að gleðjast því ný ríkisstjórn flokka þeirra er um það bil að fæðast. 24stundir/Frikki 24stundir/Ómar 24stundir/Ómar24stundir/Júlíus Í GEGN UM LINSUNA lifsstill@24stundir.is a Myndefnin eru fjölbreytt og sjónarhornin margvísleg og þar fá gestir innsýn í fjöl- marga atburði ársins 2007, eins og ljósmynd- arar sáu þá í gegnum linsu sína.

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.