24 stundir - 04.04.2008, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2008 24stundir
Tryggingastofnun ríkisins, TR,
bendir á að mismunur geti verið á
milli gjaldskrár bæklunarlækna og
gjaldskrár heilbrigðisráðherra og
þess vegna þurfi sjúklingur sjálfur
að greiða mismuninn. Þótt hámark-
ið sé enn 21 þúsund krónur, eins og
stofnunin greindi 24 stundum frá í
fyrradag og breytist ekki vegna nýrr-
ar reglugerðar sem sett var eftir að
samningar við bæklunarlækna
runnu út 31. mars, kann að vera að
sjúklingar þurfi að greiða meira.
„Hámark fyrir sjúklinga er 21
þúsund krónur en sjúklingar gætu
þurft að greiða meira, eins og til
dæmis í tilfellum sjálfstætt starfandi
hjartalækna,“ segir Guðbjörg Guð-
mundsdóttir, verkefnisstjóri kynn-
ingarmála hjá TR.
ibs
Greiðsluþátttaka sjúkratryggðra
Getur farið yfir 21
þúsund krónur
STUTT
● BHM gerir kröfur
Kjarakönnun sem Capacent
Gallup gerði á kjörum BHM og
VR og SSF leiddi í ljós að heild-
arlaun háskólamenntaðra í VR
eru 10% hærri og heildarlaun
háskólamenntaðra innan Sam-
taka starfsfólks í fjármálaþjón-
ustu 22% hærri en heildarlaun í
BHM-fólks. BHM krefst 28%
launahækkunar í vor. Þetta var
kynnt á aðalfundi í gær.
● Áhyggjur af gengi
Aðalfundur Samtaka ferða-
þjónustunnar lýsir áhyggjum
af sveiflum í gengi íslensku
krónunnar. Þær séu greininni
erfiðar og hafi haft mikil áhrif
á afkomu fyrirtækja. Geng-
isþróun, verðsveiflur og háir
vextir skekki samkeppnishæfi
íslensks atvinnulífs svo mikið
að ekki verði við unað.
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@24stundir.is
KSÍ ber fjárhagslega ábyrgð á þeim
umframkostnaði sem varð á fram-
kvæmdum við Laugadalsvöll. Sam-
bandið bar ábyrgð á að tryggja sér
umboð Reykjavíkurborgar til að
framkvæma auka- og viðbótarverk
og vettvangur þess átti að vera
byggingarnefnd framkvæmdarinn-
ar. Þá bar þáverandi formaður KSÍ,
Eggert Magnússon, ábyrgð á því að
boða formlega til funda í bygging-
arnefndinni, en hún fundaði ein-
ungis tvívegis á framkvæmdatím-
anum, síðast 3. apríl 2006.
Þetta kemur fram í álitsgerð sem
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hrl.,
fyrrverandi borgarlögmaður, vann
vegna fyrirspurna í borgarráði um
framkvæmdina, en hún var lögð
fyrir borgarráð í gær.
Í upphafi átti verkið að kosta
1.068 milljónir króna og hlutur
borgarinnar að vera 428 milljónir.
Krafa KSÍ á borgina í verklok
hljóðaði hins vegar upp á 1.020,5
milljónir, 553,1 milljón meira en
upphaflega hafði verið samið um.
Heildarkostnaður vegna verksins
er alls orðinn 1.639 milljónir.
Borga 230 milljónir króna
Álit Vilhjálms varðar tvær
spurningar, annars vegar um hver
ábyrgð KSÍ væri á framúrkeyrslu
verksins og hins vegar hvort
Reykjavíkurborg hafi einhvern
tíma samþykkt að taka á sig um-
framkostnaðinn að hluta eða í
heild og í hvaða umboði.
Á grundvelli þess samþykkti
borgarráð í gær heimild til að
framfylgja tilboði sem KSÍ fékk í
byrjun síðasta haust, um að greiða
sambandinu 230 milljónir króna
vegna framúrkeyrslunnar, en að
greiðslur bæði til hækkunar eða
lækkunar á þeirri tölu ráðist af yf-
irferð á lokaúttekt verksins sem
liggur enn ekki fyrir.
Þarf ekki lengur að rífast
Dagur B. Eggertsson borgar-
fulltrúi sat í byggingarnefndinni á
síðasta kjörtímabili. Hann er afar
sáttur við álitsgerðina og við að
málið sé komið í þann farveg að
það þurfi ekki lengur að rífast um
málsatvik heldur sé hægt að leiða
það til lykta. „ Þarna eru tekin af öll
tvímæli um að öll frumábyrgð á
framúrkeyrslunni er hjá KSÍ. Það
var líka á ábyrgð KSÍ að kynna ekki
lykilgögn fyrir byggingarnefndinni
og boða ekki fundi í henni eftir 3.
apríl 2006.“ Geir Þorsteinsson, for-
maður KSÍ, hafði nýverið fengið
álitsgerð Vilhjálms í hendurnar í
gær þegar 24 stundir höfðu sam-
band við hann og var ekki kunnugt
um samþykkt borgarráðs. Hann
vildi fá að kynna sér gögnin áður
en að hann tjáði sig um þau.
Framúrkeyrsla
á ábyrgð KSÍ
KSÍ er ábyrgt fyrir umframkostnaði vegna stúkunnar við Laug-
ardalsvöll Þetta kemur fram í álitsgerð fyrrv. borgarlögmanns
➤ Borgarlögmaður, KristbjörgStephensen, bað Vilhjálm um
að veita álit sitt á tveimur
spurningum.
➤ Hver er ábyrgð KSÍ á þeirriframúrkeyrslu sem orðið hef-
ur í framkvæmdinni?
➤ Hvenær, ef einhvern tíma ogá hvaða vettvangi, hefur ver-
ið samþykkt að Reykjavík-
urborg taki á sig þennan um-
framkostnað að hluta eða í
heild, og í hvaða umboði?
SPURNINGARNAR
24stundir/Árni Sæberg
Laugardalsvöllur Framkvæmdir við bygg-
ingu stúkunnar og höfuðstöðva KSÍ fóru
553,1 milljón króna fram úr áætlun.
Geir H. Haarde forsætis-
ráðherra telur að búið sé
að koma öryggismálum
Íslands í þokkalegt horf
miðað við þá stöðu sem
upp kom eftir að varn-
arliðið fór árið 2006. Ör-
yggismál á Norður-
Atlantshafi voru ekki
rædd á leiðtogafundi
NATO í Búkarest í gær,
nema hvað Geir þakkaði
NATO fyrir að hafa brugðist við erindi sínu um varnir Íslands frá síð-
asta fundi. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra sagði að ut-
anríkisráðuneytið væri að vinna að því að koma á alþjóðlegum fundi
um málefni norðurslóða í samvinnu við NATO. egol@mbl.is
Öryggi í þokkalegu horfi
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Gerð var könnun á Nezeril-nefúða fyrir fullorðna.
Tæplega 20% verðmunur er á milli apóteka eða 69
krónur, þar sem Lyfjaver kemur ódýrast út.
Ekki er heimilt að vitna í þessa könnun í auglýsingum.
20% verðmunur á Nezeril
Ingibjörg
Magnúsdóttir
NEYTENDAVAKTIN
Nezeril-nefúði fyrir fullorðna
Fyrirtæki Verð Verðmunur
Lyfjaver 351
Apótekið 379 8,0 %
Skipholts Apótek 381 8,5 %
Lyf & heilsa 395 12,5 %
Árbæjarapótek 405 15,4 %
Lyfjaval 420 19,7 %
Skeifunni17 • Smáralind • Akureyri • Ísafirði • Egilsstöðum
• Vestmannaeyjum • Selfossi • Hafnarfirði (Bókabúð Böðvars)
Allt fyrir skólann
undir 1 þaki
Laugavegi 54
sími 552 5201
Nýjar vorvörur
20% afsláttur
föstudag og
laugardag
l