24 stundir - 04.04.2008, Page 9
24stundir FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2008 9
or.is • reykjavik.isEigendur rafbíla fá lykil að orkupóstum í afgreiðslu Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi 1 og bílastæðaskífur hjá Reykjavíkurborg í Borgartúni 10 -12.
Alls eru 37 hús auð í miðborg
Reykjavíkur samkvæmt samantekt
skipulags- og byggingasviðs borg-
arinnar sem lögð var fram á fundi
skipulagsráðs í fyrradag. Þar kemur
fram að fyrirhugað sé að rífa 18
þessara húsa og að gera eigi upp tíu.
Níu hús eru sögð standa auð vegna
eigendabreytinga. 17 húsanna sem
tilgreind eru í samantektinni eru í
eigu þriggja félaga: Samson Proper-
ties (5 hús), ÁF-húsa ehf. (5 hús) og
Festa ehf. (7 hús).
16 húsanna eru við helstu versl-
unargötu Íslendinga, Laugaveginn.
Mörg þeirra hýstu enn rekstur um
síðustu jól. Á þeim kafla Laugaveg-
arins sem tilheyrir póstnúmeri 101
eru 143 heimilisföng. Því standa
rúm 11% húsa þar auð. 12 húsanna
stendur annaðhvort til að rífa eða
endurgera.
Samkvæmt korti sem fylgir
greinargerð slökkviliðsstjóra um
auðar byggingar á svæði 101, sem
var kynnt í borgarráði í gær, hefur
hústökufólk hreiðrað um sig í alls 5
húsum við götuna; á Laugavegi 33,
33a, 33b, 35 og Vatnsstíg 4. Þau eru
öll í eigu ÁF-húsa ehf.
Húsakaup borgarinnar
Tvö húsanna við Laugaveg,
númer 4 og 6, eru í eigu borgarinn-
ar. Þau voru keypt 25. janúar síð-
astliðinn á 580 milljónir. Kostnað-
ur við enduruppbyggingu þeirra er
áætlaður 389 milljónir. Því er sam-
anlagður kostnaður Reykjavíkur
vegna þeirra áætlaður um 969
milljónir. Húsin tvö eru samtals
390,8 fermetrar. Hver fermetri var
því keyptur á 1,5 milljónir og upp-
gerð munu húsin hafa kostað borg-
ina um 2,5 milljónir á fermetra.
Kaupin voru harðlega gagnrýnd
úr ýmsum áttum. Gagnrýnisradd-
irnar telja að borgin hafi sett for-
dæmi fyrir því að kaupa niður-
níddar byggingar á uppsprengdu
verði og fyrir vikið muni eigendur
annarra grotnandi húsa bíða eftir
sambærilegri lausn.
12 húsanna sem skipulagsráð
telur að standi auð eru við Hverf-
isgötu. Í úttekt slökkviliðsins kem-
ur auk þess fram að hústökufólk
hafi verið í tveimur húsum við göt-
una í mars. Annað þeirra er Hverf-
isgata 92a, sem er í eigu Samson
Properties, en Björgólfur Guð-
mundsson og Björgólfur Thor
Björgólfsson eru eigendur þess.
Kolsvört skýrsla
24 stundir sögðu í gær frá grein-
argerð sem slökkviliðsstjóri höfuð-
borgarsvæðisins, Jón Viðar Matt-
híasson, lét vinna að beiðni
borgarstjóra og borgarráðs og
minnst hefur verið á hér að ofan.
Hún var unnin í mars og í henni
kemur fram að 57 hús í miðborg-
inni standi auð að öllu leyti eða að
hluta. Skýrslan var kynnt í borg-
arráði í gær ásamt myndum af öll-
um þeim húsum sem talin voru
auð.
Í greinargerðinni segir orðrétt;
„skoðun þessi hefur leitt í ljós að
mikið er af yfirgefnum byggingum
og flestar þeirra standa opnar öll-
um, þannig að bæði útigangs-
menn, fíkniefnaneytendur og aðrir
hafa sótt inn í þær.“
Mannlegur úrgangur
Síðar stendur að „notaðar
sprautunálar [hafi] fundist á þess-
um stöðum með þeim hættum sem
þeim fylgir. Byggingarnar eru nær
alltaf rafmagnslausar, hvorki vatn,
né hiti. Útigangsmenn hafa gripið
til ýmissa ráða til að hita sitt um-
hverfi, t.d. með gasi og þeirri hættu
sem því fylgir. Umgengni er að öllu
jöfnu mjög slæm, sorp, mannlegur
úrgangur, rúður hafa verið brotnar
og glerbrot bæði innan sem utan
bygginga.“ Jafnframt hafi nágrann-
ar þessara húsa miklar áhyggjur af
ástandinu, sérstaklega ef kveikt
verði í einhverju húsanna þar sem
flest húsin á þessum slóðum séu úr
timbri og því mikill eldsmatur. Ná-
grannar telja eigendur þessara
bygginga vísvitandi láta þær drabb-
ast niður til að lækka verð nærliggj-
andi bygginga.
DRAUGAVEGURINN
Skipulags- og byggingasvið segir að 37 hús í miðborginni standi auð Slökkviliðið telur auðu húsin vera 57
➤ Í skýrslu skipulags- og bygg-ingarsviðs er sagt að 37 hús
standi auð í miðborginni.
➤ Slökkviliðsstjórinn telur aðalls 57 hús séu auð að öllu
leyti eða að hluta.
➤ Hústökufólk hefur hreiðraðum sig í sumum húsanna.
AUÐ HÚS Í MIÐBORGINNI
Autt hús Útigangsfólk hefur
hafst við í slíkum húsum.
24stundir/Ómar
Þórður Snær Júlíusson
thordur@24stundir.is
FRÉTTASKÝRING
Vatnsstígur 4 (hús 1)
Eigandi: ÁF-hús ehf.
Laugavegur 19.
Eigandi: Festar ehf.
Laugavegur 19b
Eigandi: Festar ehf.
Laugavegur 33
Eigandi: ÁF-hús ehf.
Laugavegur 33b
Eigandi: ÁF-hús ehf.
Laugavegur 33a
Eigandi: ÁF-hús ehf.
Laugavegur 35
Eigandi: ÁF-hús ehf
Hverfisgata 92a
Eigandi: Rauðsvík ehf.
(Samson properties)
Frakkastígur 16 Eigandi:
Frjálsi fjárfestingarbankinn.
Klapparstígur 30
Eigandi: Festar ehf.
● Eigendabreyting
Veltusund 3 Eigandi:
Thorvaldsensfélagið
Austurstræti 10
Eigandi: Langastétt ehf.
Skólavörðustígur 1a
Eigandi: Reykjavíkurborg.
Laugavegur 32 (hluti)
Eigandi: Einstaklingar.
Laugavegur 37
Eigandi: Basalt ehf.
Laugavegur 49a Eigandi: Einstkl.
Laugavegur 100 Eigandi: Einstkl.
Hverfisgata (milli 71 og 73)
Eigandi: Einstaklingar.
Hverfisgata 65 Eigandi: Bygg-
ingafélagið Vöxtur ehf.
Samkvæmt upplýsingum frá
framkvæmdasviði Reykjavíkur-
borgar eru fimm auð hús á og við
Laugaveg í eigu fyrirtækisins ÁF-
Hús ehf., en talið er að hústökufólk
hafi hafst við í þeim öllum um
tíma. Fjögur þeirra eru við Lauga-
veg en eitt þeirra er við Vatnsstíg,
en saman standa húsin á bygging-
arreit sem hefur verið skipulagður
af skipulagsyfirvöldum.
„Við kaupum þessi hús til að rífa
og byggja nýtt, en svo hefur af-
greiðsluferlið verið svo hægt hjá
borginni,“ segir Ágúst Friðgeirsson
eigandi ÁF-Húsa ehf. Hann segir
að leigusamningum hafi verið sagt
upp í þeirri trú að húsin yrðu rifin
fljótlega.
„Það eru tvö ár síðan ég vildi
byrja að byggja þarna, en seina-
gangur á afgreiðslu hjá borgaryf-
irvöldum hefur valdið því að stað-
an er eins og hún er núna. Það sem
pólitíkusarnir hafa sagt er með
ólíkindum, því við græðum ekkert
á því að láta húsin grotna niður, því
á meðan eru þau óíbúðarhæf og
við töpum á því að láta þau standa
auð.“ æþe/þsj
ÁF-Hús ehf. á fimm hús á og við Laugaveg
Græðum ekkert á
grotnun húsa
Upplýsingar um húsin frá skipulags-
og byggingarsviði. Upplýsingar um
eigendur frá Landsskrá fasteigna.
Sjö fasteignir á og við Laugaveg
eru í eigu fyrirtækisins Festa ehf.
sem er í eigu Benedikts Sigurðs-
sonar og Níelsar Pálmars Bene-
diktssonar.
Á meðal fasteigna í eigu fyrir-
tækisins eru Laugavegur 19 og 19b,
þar sem veitingastaðurinn Indó-
kína var áður til húsa og þá á fyr-
irtækið Sirkushúsið og húsið sem
hýsti Hljómalind.
Fyrirtækið á einnig húsin við
Hverfisgötu 32 og 34, sem hafa ver-
ið mikið í fjölmiðlum undanfarið.
„Við tókum þá ákvörðun þegar
við fengum húsin að segja upp
leigjendunum því við vissum að
það tæki tíma að tæma húsin en
við ætluðum að rífa þau. Bygginga-
fulltrúi heimilaði svo niðurrif en
sagði okkur að við myndum ekki fá
framkvæmdaleyfi fyrir niðurrifinu,
fyrr en skipulagsráð væri búið að
fjalla um þær tillögur að uppbygg-
ingu sem kæmi í staðinn,“ segir
Benedikt Sigurðsson, annar eig-
enda Festa ehf.
Fyrirtækið hyggst byggja á reitn-
um um 120 herbergja hótel og
þjónustu-, verslunar og íbúðar-
rými.
Fyrirtækið hefur lagt þrjár tillög-
ur inn til borgaryfirvalda hvað
varðar uppbyggingu, en þær hafa
ekki enn fengið umsögn.
æþe/þsj
Festar ehf. á sjö fasteignir á og við Laugaveg
Vilja byggja um 120
herbergja hótel