24 stundir - 04.04.2008, Page 18
18 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2008 24stundir
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttir
dista@24stundir.is
Grilluð silungaflök með So!Go-sultu
2 silungaflök, um 1 kg
1 hvítlauksrif
3 msk. ólífuolía
1 msk. kornað sinnep
3 msk. engifer-chilisulta (frá
So!Go)
½ búnt steinselja
1 tsk. græn piparkorn
Maldon-salt og nýmulinn pipar
Maukið hvítlaukinn í mat-
vinnsluvél, bætið ólífuolíunni
út í ásamt sinnepinu, sultunni
og steinseljunni.
Penslið maukinu á sil-
ungaflökin. Grillið í um 3 mín.
á hvorri hlið, byrjið með roð-
hliðina niður. Smyrjið silung-
inn með kryddmaukinu á með-
an. Saltið og piprið eftir
smekk. Stráið grænu pip-
arkornunum yfir fiskinn rétt í
lokin.
Berið t.d. fram með bakaðri
kartöflu og mangósalsa.
Grillaður skötuselur með pistasíum
og appelsínum
1kg skötuselur
3 msk. pistasíuhnetur
1 hvítlauksrif
5 msk. pistasíuolía
1 appelsína
¼ búnt kóríander um 20 g
Maldon-salt og nýmulinn pipar.
Skerið skötuselinn í fjóra 250 g
bita. Maukið pistasíurnar og hvítlauk-
inn í morteli. Bætið pistasíuolíunni
saman við og hellið maukinu yfir
fiskinn. Rífið appelsínubörkinn og
bætið honum út í kryddlöginn ásamt
söxuðu kóríander. Skerið appelsínuna
í 4 þykkar sneiðar og leggið út í lög-
inn með skötuselnum og látið standa
í kæli í nokkrar klst. áður en hann er
grillaður.
Grillið í 3-5 mín. á hvorri hlið eft-
ir þykkt skötuselsbitanna. Meðan
grillað er, er gott að pensla löginn á
fiskinn.
Berið fram t.d. með sætum kart-
öflum.
Silungaflök með So!Go-sultu og skötuselur með pistasíum
Léttir og spennandi
fiskréttir á grillið
Sveini Kjartanssyni, mat-
reiðslumeistara hjá Fylgi-
fiskum, finnst fiskur
spennandi og fjölbreytt
hráefni og gefur les-
endum hér tvær upp-
skriftir á grillið í vor.
Fiskur á grillið Sveini
Kjartanssyni hjá Fylgi-
fiskum finnst spennandi
að fást við ljúffengt fisk-
metið.
Silungur er kjörinn Á grillið og engifer-
chilisultuna má fá í Fylgifiskum.
Pistasíur og appelsínur Appelsínan
gefur skötuselnum ferskt og skemmtilegt
bragð.
24stundir/Kristinn
„Það er alls ekki erfitt að grilla
fisk, hann er ekki sérlega vand-
meðfarið hráefni eða viðkvæmt,“
segir Sveinn Kjartansson og gefur
hér lesendum góð ráð sem duga
þeim við að grilla fiskmeti í vor og
sumar.
„Mikilvægt er að vera búinn að
hreinsa grillið og bera á það olíu
áður en matreiðsla hefst. Sumum
leiðist að fiskur eigi það til að detta
í sundur þegar hann er grillaður en
vel er hægt að koma í veg fyrir það.
Ráð við því er að láta fiskinn vera á
annarri hliðinni eins lengi og
mögulegt er og snúa honum bara
einu sinni. Ég pakka síðan stund-
um þorskinum inn, það má nota
parmaskinku, beikon, bananablöð
og annað tilfallandi. En annars má
alveg setja þorskinn beint á grillið,
sérstaklega ef um þétta og góða
bita er að ræða. Útvatnaðir saltaðir
þorskhnakkar eru tilvaldir beint á
grillið kryddaðir með rósmaríni og
hvítlauk. Eins finnast mér kinnar
af steinbít, lúðu og skötusel til-
valdar á grillið.“
Sveinn nefnir að hann taki eftir
því að fólk haldi að það eigi að fara
sparlega með krydd við matseld á
fiski. „Svo er ekki, fiskur þolir að
vera kryddaður og um að gera að
nota hugmyndaauðgina. Þá er gott
að nota olíu, pensla fiskinn með
henni á grillinu og dreypa henni á
fiskinn eftir að hann hefur verið
eldaður.“
dista@24stundir.is
Góð ráð fyrir þá sem vilja grilla fisk
Mikilvægt að hreinsa grillið vel
LÍFRÆNIR SAFAR
Fæst í heilsubúðum og helstu
matvöruverslunum landsins
Sérfræðingar
í saltfiski
466 1016
- Útvatnaður saltfiskur án beina til suðu
- Sérútv. saltfiskur án beina til steikingar
- Ýsa, þorskur, gellur, kinnfiskur, rækjur
- Einnig fjölbreytt úrval tilbúinna rétta
www.ektafiskur.is
pöntunarsími:
frumkvöðlafyrirtæki ársins - viðurkenning frá matur úr héraði - localfood
SJÁLFLÍMANDI HNÍFAPARASKORÐUR
Gullkistan- Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160.
Hjálpa þér að halda öllu í skorðum í skúffum.Einning sjálflímandi filt tilað
klæða skúffur og filt með verjandi efni svo ekki falli á silfur og silfur-
plett.Við eigum líka fægilög, fægiklúta og ídýfulög til að hreinsa.
SENDUM Í PÓSTKRÖFU.