24 stundir - 04.04.2008, Page 20
20 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2008 24stundir
Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu
svanhvit@24stundir.is
Guðjón Birgir Rúnarsson, yf-
irkokkur hjá veisluþjónustunni
Kokkarnir, segist alla tíð hafa haft
mikinn áhuga á matreiðslu. „Ég
hef alla tíð eldað mikið og var til
dæmis með puttana í eldamennsk-
unni í minni eigin fermingarveislu.
Ég mátti ekkert vera að því að opna
gjafir því ég vildi heldur vera í eld-
húsinu að sjóða hamborgarhrygg-
inn. Ég gerði þetta ekki aleinn en
með góðri aðstoð var ég með bind-
ið aftan á bak að hræra í pottum,“
segir Guðjón sem er mikil fiskiæta.
„Fiskur heillar mig mikið en svo er
misjafnt hvað ég hef áhuga á. Það
er alltaf gaman að fá flottan og
góðan mat en þessa dagana er ég
meira í heimilismatnum, eins og
amma gerði hann.“
Guðjón Birgir segir að á vorin
og sumrin vilji fólk oft léttari mat
en áður. „Nú orðið virðist það al-
mennt vera stefna hjá fólki að
borða léttari og hollari mat. Hjá
Kokkunum vinnum við mikið með
létt og hollt hráefni enda er það
nákvæmlega það sem fólk vill.
Tapasveislur hafa verið mjög
vinsælar undanfarin ár þar sem
fólki finnst gott að smakka marga
litla rétti í stað fárra stóra. Sushi
hefur líka verið mjög vinsælt und-
anfarin ár,“ segir Guðjón Birgir
sem lætur fylgja með þrjár ljúf-
fengar salatuppskriftir sem henta
fullkomlega í vor og sumar.
Heitt nautasalat
Fyrir 4
150 g nautafille eða nautalund á
mann ef þetta er aðalréttur, ann-
ars 80 g á mann í forrétt
Marinering á kjötið og salat-
dressingin
1 dl balsamedik
2 dl hunang
2 dl ólífuolía, marinera í ca. 1-2
tíma, ekki lengur og geyma smá
af marineringunni fyrir salatið
100 g rifinn parmesanostur
salatmix eftir ósk (klettabland-
an er t.d. mjög fín í þetta)
50 g ristaðar furuhnetur
tómatar (bufftómatar) í sneið-
um 3-4 sneiðar á mann og skorn-
ar í 1 cm þykkar sneiðar
smá af ólífuolíu, bara til að
þekja tómatsneiðarnar
5-6 rif af skornum hvítlauk.
salt og pipar
Öllu blandað saman og látið í
kæli í 1 tíma.
Nautið er lamið í þunna sneið,
sett á heitt grillið ásamt tóm-
atsneiðunum og grillað í stutta
stund á hvorri hlið. Þá er nautið
fært upp á diskinn og tómatsneið-
arnar þar ofan á. Salatinu er bland-
að við ostinn og hneturnar og lagt
ofan á tómatana. Dressingin er sett
yfir og borið fram strax, þetta á að
vera borið fram heitt.
Peru- og valhnetusalat
Fyrir 4
Salatið
1 bolli valhnetur
2 msk. hunang
2 perur
200 g baby leaf salat
½ bolli gráðaostur
Dressing
1 tsk marinn hvítlauksgeiri
½ bolli ólífuolía
4 msk. balsamedik
1 msk. hunang
½ tsk. Worcestershire-sósa
3-4 dropar Tabasco-sósa
2-3 snúningar af svörtum ný-
möluðum pipar
Setjið valhnetur og hunangið í
eldfast mót í 180°C heitan ofn og
bakið í 10 mínútur eða þar til
hneturnar taka lit. Takið úr ofn-
inum og láti kólna. Flysjið og
kjarnhreinsið perurnar, skerið í
þunnar sneiðar. Blandið saman
perunum, hnetum, salati og osti í
skál. Hrærið saman dressinguna og
setjið yfir salatið, ekki alla dress-
inguna því það er alltaf hægt að
bæta við fyrir þá sem vilja. Berið
fram á disk eða í skál.
Ávaxtasalat með vanillusírópi
Fyrir 4
1 askja jarðarber, skorin í bita
1 bolli bláber
¼ hluti kantalópa (melóna),
skorinn í bita
½ mangó, skorið í bita
2 appelsínur, flysjaðar og laufin
skorin innan úr
¼ hluti ananas, flysjaður og
kjarninn skorinn burt, skorinn í
bita
1 msk. minta, skorin í þunnar
ræmur
Öllu blandað saman
Vanillusíróp
1 dl vatn
1 dl sykur
1 vanillustöng
Stöngin er klofin í tvennt og fræ-
in skafin innan úr og sett í pott-
inn ásamt stönginni.
Soðið saman við vægan hita þar
til sírópið þykknar, tekur um 10
mínútur. Látið kólna áður en
sírópinu er blandað saman við
ávextina. Gott að bera salatið fram
með köku eða ískúlu.
24stundir/Valdís
Þrjár léttar og ljúffengar salatuppskriftir frá Guðjóni Birgi
Létt og hollt á vorin
➤ Kokkarnir eru veisluþjónustasem tekur að sér allar veislur,
stórar sem smáar.
➤ Kokkarnir voru stofnaðir árið2002.
➤ Rúnar Gíslason mat-reiðslumaður er eigandi
Kokkanna.
KOKKARNIR
Guðjón Birgir Rúnarsson
matreiðslumaður býður
lesendum upp á þrjár
ljúffengar salatupp-
skriftir en Guðjón hefur
alltaf haft mikinn áhuga
á matseld. Hann sá til
dæmis að miklu leyti um
eldamennskuna í ferm-
ingarveislunni sinni.
Guðjón Birgir Rúnarsson: „Ég mátti ekkert
vera að því að opna gjafir því ég vildi heldur
vera í eldhúsinu að sjóða hamborgarhrygginn.“
Ljúffengt Heitt nautasalat.
Freistandi Ávaxtasalat
með vanillusírópi.
Sölustaðir: Járn & Gler · Garðheimar · Húsasmiðjan · Egg · Búsáhöld Kringlunni · Pottar og Prik Akureyri · Gallerý kjöt og Fiskisaga · www.weber.is
– ekki bara grill
XE
IN
N
JG
E
BG
5x
4 0
2
DUKA
Kringlunni 4-12
Sími 533 1322 | duka@duka.is